Morgunblaðið - 03.06.1989, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.06.1989, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JUNI 1989 // ETLo-, si'iLltu cu rcca 2.2, „T0-frrLveroldin.ee". 0 Búið ykkur undir að heyra hann tala í fyrsta skipti. Vatnið er ískalt... HÖGNI HREKKVÍSI Endurholdgnn og kristin trú Til Velvakanda. í Velvakanda 29. apríl var stutt grein sem gæti valdið leiðindamis- skilningi ef hún væri ekki leiðrétt. Þar er sagt að í Biblíunni, Orði Guðs, séu vers sem fjalli um endur- holdgun. Þetta er eins rangt og það getur verið því að hvergi í Biblíunni er kennt að endurholdg- un eigi sér stað. Það er mjög und- arlegt hvað þeir sem aðhyllast austræna heimspeki þurfa alltaf að vera að ráðast á Biblíuna með rangtúlkunum til þess eins að rétt- læta sjálfa sig og þá trú sem þeir aðhyllast. Því austræn heimspeki á ekkert skylt við kristna trú. í Kólossubréfinu 2. kafla versi 8 segir: „Gætið þess, að enginn verði til að hertaka yður með heim- speki og hégómavillu sem byggist á mannasetningum er runnið frá heimsvættunum, en ekki frá Kristi.“ Bubbi brást aðdáendum fyrir vestan Til Velvakanda. Eins og flestir vita hefur Bubbi Morthens verið á tónleikaferðalagi umhverfis landið og hafa auglýs- ingar verið settar upp með góðum fyrirvara. Þann 29. maí átti hann að vera á Suðureyri en mætti ekki. Múgur og margmenni beið fyrir utan hús- ið í langan tíma, en því miður þurfti allt fólkið frá að hverfa. Hringt var í umsjónarmann fé- lagsheimilisins og fengust þau svör að Bubbi hefði aldrei hringt og aflýst fyrirhuguðum tónleikum. Mörgum fannst þessi framkoma til skammar, að boða ekki forföll á tilsettum tíma. Svipaðar fréttir hafa heyrst frá öðrum stöðum hér fyrir vestan, að Bubbi hafí hrein- lega skilið Vestfirðinga útundan í sinni tónleikaför. - R. Schmidt. Biblían segir hvergi að lífsferill mannsins sé nær endalaus hrin- grás á milli líkama eða lífa. Bibl- ían segir að lífsferill mannsins sé frá fæðingu til grafar og síðan himnavist fyrir réttláta. í Lúkas 20:36 segir Jesús: „Þeir geta ekki heldur dáið framar, þeir eru englum jafnir og böm Guðs, enda böm upprisunnar." Með því að rangtúlka gróflega og slíta vers úr samhengi reyna menn svo að segja að Guðs orð segi eitt á einum og annað á öðr- um, þ.e. sé í mótsögn við sjálft sig. Lítum á hvaða ritningarstaðir em nefndir. Orðskviðimir 8.22—30. í þessum versum er það spekin sjálf sem eru lögð orð í munn til að útskýra hvað og hvemig spekin er. Það ætti að vera augljóst ef kaflinn allur er lesinn í samhengi. Jeremía 1:5. Áður en Guð skapaði Jeremía þá útvaldi hann Jeremía sem spá- mann. En Jeremía varð til í móður- kviði en átti ekki fortilveru. Davíðssálmur 90:3—4. Þetta er undarlegasta tilvitnun- in. í þessum versum er talað um að maðurinn hverfi aftur til dufts- ins en ekki að hann fæðist aftur í öðmm líkama eða sem dýr. Duf- tið er jörðin. Af moldu ertu kom- inn og að moldu skaltu aftur verða. Matteus 16:13—14. í þessum versum er Jesús að spyija lærisveinana hvem menn segi hann vera. I versunum 16 og 17 svarar hann síðan játandi að hann sé Kristur sonur hins lifanda Guðs. Þetta bendir á engan hátt til endurholdgunar. Jóhannes 3:3—7. Nikódemus sá sem Jesús talar hér við var farísei en farísear þekktu manna best ritningarnar. Út frá því hvemig hann spyr í 4. versi má sjá að hann þekkti engan stað í ritningunni sem benti til að maður geti fæðst á ný í öðram líkama. Enda útskýrir Jesús fyrir honum að það sem hann sé að tala um sé eingöngu andlegt en ekki líkamlegt. Opinberunarbókin 3:12. Lesið í samhengi vers 7—13, þessi vers fjalla í engu um endur- holdgun. Malaki 4:5, Matteus 11:11-15, 17:9-13, og Markús 9:11-13. Þessi vers fyalla um það að Jó- hannes sé sá Elía sem koma átti samkvæmt spádóminum í Malaki 4:5. Samkvæmt endurholdgunar- kenningum þá deyja menn og fæðast aftur í öðram líkama. Að segja að Elía sjálfur hafi fæðst á ný í Jóhannesi skírara er að sjálf- sögðu í andstöðu við Biblíuna en einnig passar það ekki við endur- holdgunarkenninguna. Vegna þeirrar einföldu staðreyndar að Elía spámaður dó ekki, heldur var hann uppnuminn, til himna (síðari Konungabók 2. kafli). í Matteus 17. kafla er sagt frá því að Móse og Elía birtust nokkram af læri- sveinunum. Þegar sá atburður gerist er Jóhannes skírari dáinn og ef að hann var síðasta hold- tekning Elía, þá hefði verið rök- réttara að Jóhannes hefði birst. Á þessu sjáum við að ekki er verið að ljalla um endurholdgun í þess- um versum. Það sem átt er við er það að Jóhannes hafði þann sama kraft og Elía hafði og Andi sá sem var yfír Elía var einnig yfír Jóhannesi. Það sama gerðist með Elísa spámann, um hann var sagt: „Andi Elía hvílir yfir Elísa.“ (Síðari Konungabókin 2:15.) Ég vona að með þessu bréfi hafír þú betur áttað þig á þessum málum og vitir nú að kristin trú og austræn heimspeki er langt frá því að vera það sama og ómögu- legt er að sameina þetta tvennt. Lítið á ávexti kristinnar trúar og síðan á ávexti austrænnar heim- speki. Indland er gott dæmi um land þar sem endurholdgunar- kenningin ríkir í fólki. Ef þú hefur mikinn áhuga á að kalla yfír þig sömu eymdina og þar ræður ríkjum, þá er austræn trú rétt spor í þá átt. En ef þú hefur áhuga á hinu sanna lífí og vilt blessun yfír líf þitt, þá leitaðu til Jesú Krists og taktu við honum og gjöf- um hans. Drottinn blessi þig. Kristinn Magnússon Víkverji skrifar Afengiskaup ráðherra í ríkis- stjóm íslands hafa síðustu daga verið í sviðsljósinu vegna málshöfðunar gegn fyrram forseta Hæstaréttar út af áfengiskaupum á sérverði. Það er með ólíkindum, hversu lífsseig þessi mál era í opin- beru lífi á íslandi. Ástæðan er að sjálfsögðu sú, að heimild forráða- manna þjóðarinnar til að kaupa áfengi á innkaupsverði í ÁTVR býður hættunni heim á misnotkun og svo lengi sem þær heimildir era við lýði munu skattborgararnir ala með sér grunsemdir um slíka mis- notkun. XXX heimildum. Það er undarlegt, að þeir skuli ekki láta sér segjast og ríghalda í þetta fyrirkomulag. Sú afstaða er út af fyrir sig næg ástæða til að vekja grunsemdir. Það er ekki eins og ætlast sé til þess að ráðamennimir borgi sjálfir vínföngin. Skattborgaramir eru áreiðanlega sáttir við að borga fyr- ir velgjörðir til gesta sinna þegar það er talið nauðsynlegt. En þeir era ekki reiðubúnir til að borga fyrir einkaneyzlu ráðamanna og fjölskyldna þeirra, vina, samstarfs- manna eða flokksbrodda. Þetta lið getur sjálft greitt fyrir sína neyzlu eins og aðrir verða að gera. xxx Víkveiji minntist á það fyrr í vetur, að aðeins ein leið er út úr þessum ógöngum — að afnema slíkar heimildir með öllu. Það eykur ekki útgjöld ríkisins um eina krónu þótt greitt sé fyrir áfengi fullu verði i opinberam veizlum, hvort sem þær era haldnar í veizlusölum ríkisins eða á einkaheimilum ráðamanna. Ágóðinn af áfengissölunni rennur til ÁTVR og þaðan beint aftur í ríkissjóð. Það er óþolandi fyrir ráðamenn þjóðarinnar að liggja undir gran og ámæli um misnotkun á þessum Ivitnaleiðslum í máli forseta Hæstaréttar í borgardómi hefur margt undarlegt komið í Ijós. Vitn- isburður ráðherra og æðstu emb- ættismanna hefur stangazt á í mik- ilvægum atriðum. Víkveiji hefur það á tilfínningunni, eins og sjálf- sagt margir aðrir, að ráðherrar og embættismenn segi ekki allan sann- leikann í málinu. Greinargerðir ráðuneyta stangast á við framburð embættismanna þeirra fyrir dómin- um. Vitnaleiðslum er lokið, en Víkveija finnst að þær hafí vakið upp fleiri spurningar en svarað hef- ur verið. Forsætisráðherra hefur látið hafa eftir sér í blaðaviðtali, að hann nenni ekki að standa í þessu þrasi um áfengiskaupin lengur. Sé hon- um á annað borð treystandi til að gegna starfi sínu þá hljóti honum að vera treyst fyrir að kaupa áfengi til opinberra veizluhalda. Það má rétt vera. Víkveiji lætur liggja milli hluta hvaða traust stjómmálamenn hafa til starfa enda hlýtur sitt að sýnast hveijum í þeim efnum. Hitt fullyrðir Víkveiji hinsvegar, að fólk almennt treystir stjóm- málamönnum ekki lengur fyrir heimildum til áfengiskaupa á inn- kaupsverði. Atburðirnir að undan- förnu era glöggt dæmi um það. xxx * Idálkum Vikveija hefur að und- anfömu verið fjallað um nafn á veizlusölum ríkisins í gömlu Rúg- brauðsgerðinni. Tillögur hafa komið um nafn og nú síðast í gær, Þilju- vellir. Víkveija fínnst þjóðráð að veizlusalir ríkisins hljóti gömul og gegn íslenzk bæjarnöfn. Þau fyrstu, sem koma í hugann, era Brúsastað- ir og Ölver.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.