Morgunblaðið - 03.06.1989, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 03.06.1989, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1989 VERÐ I LAUSASOLU 80 KR. Ríkisstjórnin: Staðið við allt sem lof- að var í samningum Stjórnir ASÍ og BSRB fiunda um við- brögð stjórnvalda við kröfiim þeirra Ríkisstjórnin segist hafa staðið við öll loforð um aðgerðir í verð- lagsmálum í tengslum við kjara- samninga ASÍ og BSRB. í firéttatil- kynningu, sem stjómin sendi frá sér í gær, segir að á fiindum með fulltrúum launþega hafii ætíð verið tekið skýrt fram að ríkissljómin hafi engin ráð til að stöðva erlend- ar verðhækkanir eða lofa föstu gengi. Óformlegur ríkisstjómar- fundur var haldinn í gær og að sögn ráðherra stjómarinnar vom þar engar ákvarðanir teknar um að ganga lengra til móts við kröf- ur launþegasamtaka um hömlur á verðhækkanir en þegar hefiir ver- ið gert. í tilkynningu stjómarinnar segir að við samningagerð hafi því verið lofað að verðhækkanir á þjónustU ríkisfyrirtækja verði ekki umfram forsendur fjárlaga, að aðhaldi verði beitt að verðákvörðunum einokunar- Fyrstístang- veiðilaxinn Fyrsti stangveiðilaxinn á þessu sumri kom á land i gær. Hann veiddist í Norðurá, nánar tiltekið á Kálfhylsbroti I Stekknum. Þetta var 9 punda hængur sem veiddist á maðk. Norðurá hefur verið í vexti undanfarið, sem og Þverá, og em þær mjög kaldar. fyrirtækja og markaðsráðandi fyrir- tækja, að 500-600 milljónum króna verði varið til aukinna niðurgreiðslna á verði landbúnaðarafurða og að dilkakjöt verði sérstaklega lækkað í verði. Við þetta hafi allt verið staðið. í tilkynningunni segir að í ljósi þessara staðreynda verði að skoða þær hækkunarbeiðnir, sem Verð- lagsráð hafi samþykkt. Jón Sigurðs- son, viðskiptaráðherra, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að hann legði áherslu á að Verðlagsráð væri sjálf- stætt stjómvald og færi að sínum eigin starfsreglum. Miðstjóm Alþýðusambands ís- lands og stjóm Bandalags starfs- manna ríkis og bæja munu funda á sama tíma á mánudaginn kemur og ræða viðbrögð stjómarinnar við ijöldafundi samtakanna þar sem þess var krafist að allar verðhækkanir yrðu þegar í stað stöðvaðar. „Þau skilaboð sem þjóðin hefur sent ríkisstjórninni em svo ótvíræð og afdráttarlaus að við þau er í raun- inni engu að bæta. Það hlýtur að vera ríkisstjómarinnar og er að svara þessum skilaboðum með aðgerðum. Hún hlýtur að verða að bregðast við kröfum almennings," sagði Asmund- ur Stefánsson forseti ASÍ í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að engin tilraun hefði verið gerð af hálfu launþegasamtak- anna til þess að hafa samband við ríkisstjómina, enda þyrfti ekki að bæta neinu við skilaboð fjöldafundar- ins, né hefði ríkisstjómin haft sam- band við ASÍ eða BSRB. Páfí tíl landsins á hádegií dag Hirðisheimsókn Jóhannesar Páls páfa H til íslands hefet á há- degi í dag og stendur í tæpan sólarhring. Forsætisráðherra, bisk- up íslands og kaþólski biskupinn eru meðal þeirra sem taka á móti páfa á Keflavíkurflugvelli klukkan 13. Frú Vigdís Finnbogadóttir, for- kaþólikka. Þaðan verður honum seti Islands, tekur á móti páfanum og 35 manna fylgdarliði hans ásamt æðstu stjóm landsins á Bessastöðum laust eftir hádegið. Forsetinn mun ræða einslega við páfa í um stundarfjórðung. Frá Bessastöðum heldur páfi í Landa- kotskirkju til fundar við hátt í 500 ekið til Þingvalla, þar sem hann tekur þátt í samkirkjulegri guðs- þjónustu í boði biskups íslands, hr. Péturs Sigurgeirssonar. At- höfnin á Þingvöllum, sem fram fer undir berum himni, hefst skömmu eftir 17.30 og stendur í um klukkustund. ísbrjótur í bílaflu tningum Morgunblaðið/Bjami. ER sovéski ísbijóturinn Otto Schmidt lagði úr höfn í Reykjavík í gærdag var 21 bíll, Lödur og Volgur, á dekki hans. Skipveijar höfðu fengið þessa bfla fyrir lítið enda allir afskráðir. Skipveijar á sovéskum skipum sem hafa hér viðdvöl taka gjarnan með sér gamla sovéska bíla heim enda eru þeir þar gulls ígildi, hvort sem skipveijamir gera þá upp eða selja í varahluti. Félagsmálaráðuneyti með atvinnumiðlun iyrir skólafólk: Ríkisstofiianir fjölgi sumarafleysingafólki RÍ KIS STJ ÓRNIN hefur ákveðið að vegna bágs atvinnuástands verði félagsmálaráðuneytinu falið að útvega skólafólki sumarvinnu á vegum hins opinbera. Ráðuneytið mun hafa samráð við forsætisráðuneyti og fjármálaráðuneyti um þessa atvinnumiðlun, sem mun heQast strax eftir helgina. Að sögn Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra verður lögð áherzla á að útvega skólafólki vinnu við umhverfisvemd og -fegr- un, auk þess sem sumarafleysingum hjá rikisstofnunum verði fjölgað. Forsætisráðherra sagði að ekki hefði verið ákveðin föst fjárupphæð til atvinnubóta, það yrði að sjá hver þörfin yrði. í þriggja manna starfs- hópi ráðuneytanna um atvinnumál skólafólks hefur verið rætt um að 200 milljónir króna þurfi til. Sérstak- ur starfsmaður verður ráðinn til fé- lagsmálaráðuneytisins og mun hann hafa veg og vanda af atvinnumiðlun- inni. Forsætisráðherra sagði að haft hefði verið samband við fjöldann all- an af ríkisstofnunum og kannað hver þörfin væri fyrir afleysingafólk. Að- spurður hvort sumarafleysingafólki yrði einnig fjölgað á spítulum, þar sem sumarlokanir hafa nú verið auknar vegna aðhalds í mannahaldi, sagði Steingrímur að þar myndi gilda Aðalfundur Sambandsins á mánudag: Tapið í fyrra nálægt 1200 milljómim króna AÐALFUNDUR Sambands íslenskra samvinnufélaga verður haldinn í nýjum húsakynnum Sambandsins við Kirkjusand á mánudag og þriðjudag, þann 5. og 6. júní. Búast má við að megn- ið af fundartímanum fari í að fjalla um svartar skýrslur þeirra , Olafs Sverrissonar, stjórnar- formanns og Guðjóns B. Ólafs- sonar, forsljóra. Ólafur Sverris- son staðfesti í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér sem formaður. Afkoma síðastliðins árs var mjög erfið hjá Sambandinu, og mun tap- ið hafa verið nálægt 1200 milljónum króna, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins. „Þetta h'tur miklu betur út en á sama tíma í fyrra. Við fór-. um yfir bráðabirgðauppgjör fyrstu fjögurra mánaða þessa árs á fundi Sambandsstjómar í dag,“ sagði Ólafur Sverrisson að afloknum fundinum í gær. Að öðru leyti kvaðst Ólafur ekki vilja upplýsa hver staðan væri, það yrði gert á aðalfundinum á mánudag. það sama og um aðrar ríkisstofnanir þar sem sumarafleysingar kynnu að vera æskilegar umfram það, sem flárhagur stofnananna leyfði. „Það verður metið í hveiju tilfelli og þá veitt sérstakt fjármagn í því skyni,“ sagði hann. Eins og fram hefur komið í frétt- um Morgunblaðsins bætast nú 40-50 námsmenn á atvinnuleysisskrá á degi hveijum í Reykjavík einni, og eru nú yfir 700 á skrá. Reykjavíkurborg hefur veitt 55 milljónir króna auka- lega til að ráða 250 námsmenn til viðbótar þeim 750, sem fyrr var ætlað að ráða, en útlit er fyrir að ekki verði hægt að ráða yfir 1.000 umsækjendur um sumarvinnu hjá borginni. Steingrímur sagði að ríkis- sijórnin væri ánægð með að Reykjavík og fleiri sveitarfélög hefðu bætt við sumarfólki. Samstarf yrði haft við sveitarfélögin um þessi efni. Fiskverð hækkar um 4,2% frá 1. júní YFIRNEFND Verðlagsráðs sjáv- arútvegsins ákvað í gærkvöldi almennt fiskverð sem gildir frá 1. júní til 30. september 1989. Jafiiframt ákvað yfirnefiidin fisk- verð sem gildir fyrir tímabilið frá 1. október til 31. janúar 1990. Þessar ákvarðanir fela í sér 4,2% hækkun fiskverðs frá 1. júní sl. og 3,8% hækkun frá og með 1. október næstkomandi. Verðið var ákveðið með atkvæð- um fulltrúa fiskseljenda og odda- manns gegn atkvæðum fulltrúa fiskkaupenda. í yfimefndinni áttu sæti: Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhags- stofnunar, sem var oddamaður, Guðjón A. Kristjánsson og Sveinn Hjörtur Hjartarson af hálfu seljenda og Friðrik Pálsson og Árni Bene- diktsson af hálfu kaupenda. Fulltrúar fiskkaupenda gerðu svofellda grein fyrir atkvæði sínu: Þar sem ekki er tryggt að fisk- vinnslan fái strax þann tekjuauka, sem nauðsynlegt er til þess að standa undir þessari fiskverðs- hækkun og þeim halla sem fyrir er á vinnslunni, getum við ekki tekið þátt í þessari afgreiðslu. Elding í nef- ið á Eydísi ELDINGU Iaust niður í nef Eydísar, annarrar af hinum nýju Boeing-þotum Flugleiða er hún var í aðflugi að Kastrupflugvelli við Kaupmannahöfn á Smmtu- dag. Farþegar í þotunni heyrðu mikinn hvell og sáu glampa sem fylgdi þessu. Geir Garðarson flugstjóri í þess- ari ferð segir að aldrei hafí verið nein hætta á ferðum enda þotan varin gegn hættum sem þessum. Farþegum brá nokkuð við hvellinn en lending þotunnar varð síðan með eðlilegum hætti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.