Morgunblaðið - 09.06.1989, Side 2
2
Ggei mul, .G ÍIUOAínJTHO'í UinA
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 9
1989
Fjöldam orðun um
FJÖLDAMORÐUM kínverska Alþýðuhers-
ins á mótmælendum í Peking var mót-
mælt með fundi fyrir framan kínverska
sendiráðið í Reylq'avík í gærkvöldi. Á fund-
inn, sem ungir sjálfstæðismenn skipu-
lögðu, mættu á þriðja hundrað manns að
sögn lögreglunnar. Fundarmenn minntust
fallinna mótmælenda með mínútuþögn um
leið og blómsveigur til minningar um hina
látnu var lagður á tröppur sendiráðsins,
eins og sjá má á litlu myndinni. Fundurinn
skoraði á kínversk stjórnvöld að láta mann-
úðarsjónarmið ráða ferðinni í stað valda-
fíknar og hemaðarhyggju og að meta
frelsi og lýðréttindi meira en ofurvald
kommúnistaflokksins á öllum sviðum. Loks
var gerð krafa um að þeir, sem fyrirskip-
uðu fjöldamorðin, verði látnir sæta ábyrgð,
svo að Torg hins himneska friðar í Peking
verði ekki blóði drifinn vígvöllur á ný. Er
fulltrúar ungra sjálfstæðismanna knúðu
dyra á sendiráðinu til þess að afhenda
ályktun fundarins var ekki lokið upp, og
henni því stungið í bréfalúguna. Svarað
var í síma í sendiráðinu skömmu eftir fund-
inn og sagt að störfum væri lokið þar.
íslandslaxi í Grindavík veitt
greiðslustöðvun í þrjá mánuði
BÆJARFÓGETINN í Grindavík hefúr veitt íslandslaxi hf. greiðslu-
stöðvun í þijá mánuði til að gefa eigendum feeri á að koma nýrri
skipan á Qárhag og rekstur fyrirtækisins. Heildarskuldir fyrirtækis-
ins nema 850 milljónum króna og eiginfjárstaða er metin neikvæð
um 60-70 miHjónir en að meðtöldum ábyrgðum eigenda eru eignir
um 200 milljónir umfram skuldir. íslandslax er að 51 hundraðshluta
í eigu Sambandsins og dótturfyrirtækja þess; Regins, Olíufélagsins
og Iceland Seafood en 49% eru eign norska fyrirtækisins Noraqua.
Undanfarið hefúr verið dregið saman í rekstrinum og starfa nú 16
manns hjá íslandslaxi, sem er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á
Ráðherrar hitta
frystihúsamenn:
Forsætisráð-
herrasegir
erfitt að
eygja lausn
FORRÁÐAMENN illa staddra
frystihúsa á Vestfjörðum héidu í
gær fúnd með fúlltrúum ríkis-
sljórnarinnar og ýmsissa sjóða.
Engin ákveðin niðurstaða kom
fram á fúndinum. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra,
segir að ástandið sé alvarlegt hjá
þessum fyrirtækjum og erfitt sé
að sjá lausn á vandanum.
Sveinbjörn Jónsson oddviti á Suð-
ureyri, einn fundarmanna, segir að
þijú frystihús á Vestfjörðum hafi
stöðvast og fleiri fylgi í kjölfarið
verði ekkert að gert. Meðal úrræða
sem rædd voru var frekari gengis-
felling, lækkun vaxta og lækkun á
skuldabyrði þessara fyrirtækja.
Vestmannaeyjar:
Oánægja
vegna orða
Steingríms
V estmannaeyj um.
MIKILL urgur er í Eyjamönnum
vegna ummæla er Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra,
viðhafði um útgerðarmenn í Vest-
mannaeyjum á aðalfúndi VSÍ.
Telja menn að Steingrímur hafi
þar tekið fúllstórt upp í sig, að
draga Vestmanneyinga út úr og
stimpla þá sem vanskilamenn.
Steingrímur sagði í ræðu sinni á
fundi VSÍ að sér væri sagt að útgerð-
armenn í Vestmannaeyjum færu nú
um landið, eftir góða vertíð, og
keyptu báta. En þeir ætluðu ekki að
greiða neitt af skuldum sínum.
Vegna ummæla forsætisráðherra
hélt stjóm Útvegsbændafélags Vest-
mannaeyja fund í gær og gerði eftir-
farandi samþykkt:
Stjóm Útvegsbændafélags Vest-
mannaeyja lýsir undrun sinni á um-
mælum þeim, er forsætisráðherra
viðhafði á aðalfundi VSÍ um útgerð-
armenn í Vestmannaeyjum. Útvegs-
bændur í Vestmannaeyjum telja sig
ekki meiri vanskilamenn en aðra og
mótmæla því þessum ummælum um
heila starfsstétt í einu byggðarlagi.
Grímur
landinu.
4-500 þúsund seiði eru í seiðaeld-
isstöð fyrirtækisins, sem framleiðir
einnig um 350 tonn af matfiski á
ári. Þegar öllum framkvæmdum
verður lokið og fullri framleiðslu
náð er áætlað að framleiða um 600
tonn á ári. Seiðaeldisstöð íslandslax
var reist 1985 en matfiskseldisstöð
var tekin í notkun ári síðar. Það
sem af er þessu ári hefur fyrirtæk-
ið framleitt 150 tonn af matfiski
en slátrað er 7-9 tonnum í viku.
Framleiðslan er að langmestu leyti
flutt flugleiðis til Japans en einnig
er óverulegt magn selt til Hollands
og Bretlands, að sögn Bjama Sig-
urðssonar starfandi framkvæmda-
stjóra.
í fréttatilkynningu frá íslands-
laxi segir að mikill halli hafi orðið
á rekstrinum 1988 og ljóst sé að
fyrirtækið geti ekki að óbreyttu
leyst aðsteðjandi rekstrarvanda.
Hins vegar séu ábyrgðir eigenda
talsvert hærri en sem nemi nei-
kvæðri eiginfjárstöðu. Þá segir að
fyrirtækið hafi eins og önnur fisk-
eldisfyrirtæki átt við erfiðleika að
stríða vegna misræmis milli gengis-
þróunar og innlends kostnaðar. Auk
þess séu aðallega tvær ástæður
fyrir erfíðleikum fýrirtækisins:
Kostnaður við uppbyggingu eldis-
stöðvarinnar við Stað í Grindavík
hafí verið mun hærri en gert hafí
verið ráð fyrir í byijun, enda hafí
verið um brautryðjendastarf að
ræða, og hafí umframkostnaðurinn
haldið áfram að íþyngja rekstrinum
vegna gífurlegs fjármagnskostnað-
ar. Þá hafi áætlanir um seiðaút-
flutning brugðist þegar þeir mark-
aðir hafí lokast fyrir íslendingum í
fyrra. Hafi þá orðið að farga seiðum
og hafi tekjutap af þeim sökum
numið um 100 milljónum króna.
Leyfi stjómvalda hafi ekki fengist
til að flytja norskan laxastofn í eldi
hjá fyrirtækinu í sjó en með því
móti hefði verið unnt að bjarga
verðmætunum.
Reykjavíkurhöfn:
~~i
Ovenjumörg
erlend skip
í VOR hafa óvenjumörg erlend
skip haft viðdvöl í Reykjavíkur-
höfri, einkum rannsóknarskip og
skemmtiferðaskip. Yfirleitt hafa
þessi skip hér 2-3 daga dvöl en
skemmtiferðaskipin stoppa sjald-
an lengur en dagstund.
Samkvæmt upplýsingum frá
hafnsöguvaktinni er nú eitt rann-
sóknarskip í höfninni, Atlantis II
frá Bandaríkjunum. Tvö önnur
rannsóknarskip létu nýlega úr höfn,
sovéskt og þýskt.
Af öðrum erlendum skipum sem
haft hafa viðkomu í Reykjavíkur-
höfn að undanfömu má nefna enska
herskipið Ledbury, danska varð-
skipið Beskytteren og tvö rússnesk
skemmtiferðaskip.
Dauðsföll vegna kransæðasjúkdóma:
Pípu- og vindlareykingar
eru mjög stór áhættuþáttur
PÍPU- og vindlareykingar eru mun stærri áhættuþáttur í krans-
æðasjúkdómum og krabbameini hér á landi en venjulega er tal-
ið. Samkvæmt niðurstöðum úr rannsóknum Hjartaverndar síðustu
20 ár tvöfalda pípu- eða vindlareykingar hættu á krabbameini,
og sá sem reykir pípu eða vindla á nokkurn veginn jafúmikið á
hættu að deyja úr kransæðasjúkdómum og meðalsígarettu-
reykingamaður. Nær allir, sem fá kransæðastíflu undir fertugu,
eru reykingamenn.
Á þingi norrænna hjartalækna,
sem nú stendur yfir í Reylq'avík,
gerði Guðmundur Þorgeirsson
læknir grein fyrir niðurstöðum
rannsókna Hjartavemdar, sem
staðið hafa frá árinu. 1967 á 8.001
karlmanni. Af þeim em 1.140
látnir og vom kransæðasjúk-
dómar orsök dauðsfalla í 43% til-
fella, krabbamein var orsök 27%
dauðsfalla, 7% létust úr heilablóð-
falli og 23% af öðmm orsökum.
Hjá þeim sem létust úr krans-
æðasjúkdómum var aldur stærsti
áhættuþátturinn. Næst kom kól-
esterol í blóði, og þar á eftir
reykingar. Þeir sem reyktu 25
sígarettur á dag eða meira áttu
mest á hættu, næstir komu pípu-
og vindlareykingamenn, og þar á
eftir þeir sem reyktu 25 eða færri
sígarettur á dag. Hár blóðþrýst-
ingur var einnig stór áhættuþátt-
ur, og athygli vakti, að ekki virt-
ist skipta máli hvort hann hafði
verið meðhöndlaður með lyfium
eða ekki.
Sígarettureykingar vom lang-
stærsti áhættuþátturinn, þegar
skoðuð vora dauðsföll vegna
krabbameins, og jókst áhættan í
réttu hlutfalli við auknar reyking-
ar. Kólesterol í blóði skipti þar
lítlu máli.
Á þinginu gerði Axel F. Sig-
urðsson einnig grein fyrir niður-
stöðum rannsókna á mönnum,
25-40 ára, sem fengu kransæða-
stíflu hér á landi árin 1980 til
1984. Rannsóknimar sýna að
reykingar em þar langstærsti
áhættuþátturinn. Af 29 mönnum
í þessum aldurshópi, sem fluttir
vom á sjúkrahús vegna krans-
æðastíflu, reyktu 28.
Guðmundur Þorgeirsson sagði
við Morgunblaðið að aðaláhættu-
þættir hjartasjúkdóma hér á landi
væru mjög svipaðir og í nágranna-
löndunum. Guðmundur sagði, að
í rannsóknum Hjartaverndar hefði
verið fylgst mjög Iengi með sama
hópnum, miðað við aðrar rann-
sóknir í heiminum, og samkvæmt
þeim virtust áhættuþættimir
halda vægi sínu allan tímann.
„Mikilvægi þessara rannsókna
fyrir okkur felst þó í því, að ekki
er hægt að álykta út frá vitneskju
annarra landa um áhættuþætti í
kransæðasjúkdómum. Þannig má
benda á það, að í Japan em
reykingar ekki mikill áhættuþátt-
ur og í Afríku er háþrýstingur
ekki vemlegur áhættuþáttur,"
sagði Guðmundur Þorgeirsson.