Morgunblaðið - 09.06.1989, Blaðsíða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989
Garðar ValdimarssoQ, ríkisskattstjóri:
Þolið hefur aukist mikið f rá
þvf ég hætti að reykja
GARÐAR Valdimarsson ríkis-
skattstjóri ætlar að taka þátt
í Heilsuhlaupi Krabbameins-
félagsins á morgun. Hann
hætti að reykja á reyklausa
daginn í vor og hefur skokkað
regluiega síðan. Garðar segir
að það sé erfitt að byrja að
skokka, en eftir að hann hætti
að reykja hafi þolið aukist
mjög fljótt.
Garðar Valdimarsson segir að
ástæða þess að hann hyggst
taka þátt í Heilsuhluaupinu sé sú
að hann hafi hætt að reykja á
reyklausa daginn í vor, 12. apríl
og farið að skokka í kjölfar þess.
„Aður hafði ég gert það við og
við. Ég hef verið í badminton og
sundi en hef alltaf gefist upp á
því að skokka, því það er ekki
hægt að skokka og reykja um
leið. Ég reykti í- 27 eða 28 ár og
hafði lengi ætlað mér að hætta.
Ég var fyrir alllöngu búinn að
ákveða, að velja einhvem góðan
Garðar Valdimarsson, ríkis-
skattstjóri.
dag til þess og þegar þessi reyk-
lausi dagur var haldinn lét ég
verða af því.“
Garðar segir þol sitt hafa auk-
ist mikið eftir að hann hætti.
„Þetta var gerbreyting og mér
fínnst þolið hafa aukist mjög
fljótt. Á meðan ég reykti byggðist
þrekið lítið upp, maður var í raun-
inni alltaf að byija upp á nýtt
vegna þess að maður eyðilagði
allt jafnóðum með reykingunum.
Ég hafði að vísu stundað sund og
badminton en skokkið reynir
meira á þolið.
Ég hef gaman af því að
skokka," bætir hann við. „Mér
finnst gott að vera úti og það er
líka hægt að fara í þetta hvenær
sem er, hafi maður tíma til þess.
Það er að vísu dálítið erfitt að
byrja á þessu. Ég hleyp að jafn-
aði ekki meira en 3 kílómetra í
hvert sinn, þannig að ef hleyp 4
kílómetra á laugardaginn er það
svona í lengra lagi. En ég ætla
nú að láta mig hafa það,“ sagði
Garðar Valdimarsson að lokum.
Guðmundur Sigurðsson, læknir:
„Oll hreyfing er mann-
inum bráðnauðsynleg“
GUÐMUNDUR Sigurðsson,
laeknir á heilsugæslustöðinni á
Seltjarnarnesi, skokkar 7 km.
þrisvar í viku og segist ekki
láta færð eða veður aftra sér
frá hreyfingunni.
011 hreyfing er manninum bráð-
nauðsynleg og sem læknir ráð-
legg ég öllum að finna sér ein-
hveija hreyfingu til að reyna á líka-
mann,“ sagði Guðmundur.
Sem barn og unglingur fór hann
töluvert um á gönguskíðum en tók
annars ekki þátt í neinum keppnis-
íþróttum. Hann hafði þó alltaf reynt
að halda sér í góðu líkamlegu formi,
en þegar hann kom heim frá útlönd-
um fyrir þremur árum fannst hon-
um eitthvað vanta upp á líkams-
formið.
„Ég ákvað að byija að skokka
reglulega. Það var þá 10-15 manna
hópur sem hljóp reglulega hringinn
í kringum Seltjarnamesið og ég fór
að skokka með þessu fólki. Þessi
hópur hefur síðan stækkað, þannig
að nærri lætur að við séum um 25
talsins, bæði karlar og konur, sem
skokkum um nesið þijá daga vik-
unnar. Auðvitað hleypur hver og
einn á sínum hraða; það er ekkert
atriði að vera fyrstur, mestu máli
skiptir að hafa gaman að því sem
verið er að gera. Á eftir syndum
við svo og látum strengina líða úr
okkur í heitapottinum."
Guðmundur sagði að það sem
mest væri um vert fyrir fólk sem
væri að byija að hreyfa sig, væri
að fara ekki of geyst af stað.
„Það vill oft brenna við að fólk
ráðist í að skokka eða synda með
heilmiklum gassagangi, og ætli þá
að kippa öllu í lag í einu vetfangi.
Reynslan hefur hins vegar sýnt mér
að þeir sem heltast úr lestinni eru
þeir sem ofgera sér. Fólk verður
að athuga að það getur tekið tölu-
vert langan tíma að komast í þjálf-
un og því er um að gera að fara
hægt af stað, hvort sem um er að
ræða sund, skokk eða göngu,“ sagði
skokkarinn og læknirinn að lokum.
Borðtennis kl. 10.30-11.30. Sund-
deild kl. 10.00-12.00. Karate kl.
11.30-12.30. Fimleikar kl. 14.00-
15.00. Blak kl. 15.00-16.00.
Arnarnesvogur:
Kl. 10.00-12.00 verða siglingar á
seglbrettum, almennar siglingar,
sjóþotur og kynning á starfsemi
Vogs.
Lyngás:
Kl. 10.30-12.00 verða gönguferðir
um Eskines og Gálgahraun. Leið-
beinandi verður Jón Jónsson, jarð-
fræðingur.
Við Bæjarbraut:
Kl. 10.00-12.00 fer fram golf-
kennsla á vegum Golfklúbbs
Garðabæjar.
Kjóavöllur:
Kl. 13.00-15.00 verður kynning á
Hestamannafélaginu Andvara.
Teymt verður undir börnum og
unglingar sýna hesta.
Skátaheimilið Hraunhólum:
Kl. 15.00-17.00 verður kynning
á útilífsnámskeiðum félagsins.
Miðbærinn:
Opið hús verður í Heilsugarðinum
kl. 13.00-17.00.
Reykjavík
Sund, skokk, trimm og leikir:
Sundlaugar borgarinnar, Vestur-
bæjarlaug, Sundhöllin, Laugar-
dalslaugin og Breiðholtslaugin,
verða opnar frá kl. 7:30 - 17:30.
Frá kl. 13:00 - 17:00 verður boð-
ið upp á leiðsögn í sundi, trimmi
og skokki ogjafnframt verða aðil-
ar við að hjálpa börnum við barna-
leiktæki sem þar verða. Aðgangur
er ókeypis.
Heilsuhlaup Krabbameinsfé-
lags íslands 1989:
Krabbameinsfélag íslands hefur
veg og vanda af heilsuhlaupinu
og hefst það kl. 12:00 við hús
félagsins við Skógarhlíð. Boðið
verður upp á tvær vegalengdir, 4
km og 10 km. Jafnframt verður
boðið upp á „minitrimm“ fyrir
yngri kynslóðina. Það hefst á
sama stað en verður haldið á
íþróttasvæði Vals. Verður það
undir umsjón leiðbeinenda og geta
því foreldrar skilið börn sín eftir
þar meðan þeir taka þátt í lengri
hlaupunum.
Tennis:
Leiðbeinendur í tennis verða á
tennisvöllunum við gervigrasvöll-
inn í Laugardal, svæði Víkings í
Fossvogi og skólaportum Mela-
skóla og Fellaskóla frá kl. 13:00
- 17:00.
Körfúknattleikur:
Leiðbeinendur verða við Granda-
skóla, Melaskóla, Austurbæjar-
skóla, Hlíðaskóla, Kennaraskól-
ann, Fossvogsskóla, Breiðholts-
skóla, Seljaskóla og Fellaskóla frá
kl. 13:00 - 17:00.
Keila:
Aðgangur að Keilusalnum í
Öskjuhlíð verður ókeypis frá kl.
13:00 - 16:00. Jafnframt verða
leiðbeinendur til staðar á þessum
tíma til þess að leiðbeina byijend-
um.
Golf:
Félagar úr Golfklúbbi Reykjavík-
ur leiðbeina byijendum á svæði
félagsins að Korpúlfsstöðum.
Þeir, sem hafa kylfur, leika á
vellinum, en aðrir fara á æfinga-
svæði og fá tilsögn í helztu undir-
stöðuatriðum. Aðgangur er
ókeypis.
Blak:
Leiðbeinendur verða til staðar við
gervigrasvöllinn í Laugardal og
við Vesturbæjarlaugina.
Gönguferðir:
Ferðafélag íslands gengst fyrir
gönguferð um Elliðaárdalinn.
Gengið verður frá Fossvogsskóla,
upp að Höfðabakkabrú og til
baka. Jafnframt verður þeim sem
óska gefinn kostur á að halda
göngunni áfram að efri stíflunni.
Vanir fararstjórar verða með í
ferðinni.
Siglingar í Nauthólsvík og á
Rauðavatni:
Siglingaklúbbamir hafa opið kl.
13:00 - 17:00. Þar verður alm-
nenningi boðið upp á afnot af
bátum klúbbsins. Leiðbeinendur
kenna byijendum helztu undir-
stöðuatriði siglinga.
AFLRAUNIR
Jón Páll sigrar
Jón Páll Sigmarsson, krafta-
karl, sigraði á sterku aflrauna-
móti sem fram fór í fímmta sinn
í Glasgow í Skotlandi um helgina.
í mótinu tóku þátt allir þeir kepp-
endur sem taka þátt í keppninni
„Sterkasti maður heirns" sem
fram fer á Spáni í lok ágúst.
Jón Páll, sem hefur dvalið er-
iendis síðan í vor, sigraði nokkuð
ömggiega. Jame Reives frá Bret-
landi varð annar, Ab Wolters ,
Hollandi, þriðji og Bandaríkja-
maðurinn Kazmair, sem þrisvar
hefur unnið titilinn „Sterkasti
maður heims, varð fjórði.
Keppt var í sex greinum og
vann Jón Páll tvær, staurakast
og steinalyftu þar sem hann setti
nýtt met. Það tók hann aðeins
19 sekúndur að lyfta fimm hnöt-
tóttum steinum, sem vom allt að
140 kg, hlaupa með þá fimm skref
og setja þá upp á misháar tunnur.
Jón Páll sigraði einnig opna
finnska aflraunamótið sem fram
fór fyrir fimm vikum. Hann kem-
ur til landsins í næsta mánuði til
að undirbúa sig fyrir keppnina
„Sterkasti maður heims“ á Spáni
í ágúst, en hann vann þá keppni
í fyrra.
ÍÞRÓTTASKÓLAR
Knattspyrnufélag ÍA
Knattspyrnufélag ÍA gengst
fyrir knattspyrnuskóla í sum-
ar. Hann hefst mánudaginn 12.
júní og er fyrir alla aldurshópa,
stúlkur og drengi. Sigurður Jóns-
son, atvinnumaður á Englandi,
verður í skólanum einhveija daga
og leikmenn 1 deildarliðs karla og
kvenna koma í heimsóknir. Kristinn
Reimarsson, íþróttakennari, stjórn-
ar skólanum. Kostnaður er kr.
2.200 fyrir námskeiðið, en hvert
stendur í hálfan mánuð. Tekið er
við þátttökutilkynningum í síma
13311 og 11216.
Þróttur
Knattspyrnuskóli Þróttar mun
standa fyrir flórum námskeið-
um í sumar á svæði félagsins við
Sæviðarsund. Um er að ræða hálfs-
mánaðar námskeið. Það fyrsta
hófst mánudaginn 5. júní og það
síðasta 17. júlí.
Þátttakendum er skipt í tvo hópa
5-8 ára og 9-12 ára. Hægt er að
vera fyrir eða eftir hádegi.
Umsjónarmaður skólans er Gísli
Sváfnisson og skráning fer fram í
síma 82817.
KR
nattspyrnuskóli KR mun
standa fyrir fimm námskeiðum
fyrir krakka á aldrinum 6—12 ára
í sumar og er það fyrsta hafið. Á
hveiju námskeiði verða tveir hópar:
kl. 09.00-12.00 og 13.00-16.00.
Skráning fer fram í síma 27181.
Kennari er Geir Þorsteinsson.
Garðabær
Tómstundaráð Garðabæjar
stendur fyrir íþrótta- og leikja-
námskeiði fyrir börn á aldrinum
6-12 ára. I samvinnu við UMF
Stjörnuna verða námskeið í fimleik-
um, knattspyrnu og handknattleik,
auk þess verður námskeið í reið-
mennsku og siglingum. Útilífsnám-
skeið verður á vegum skátafélgsins
og sundnámskeið verður í nýju
lauginni í Ásgarði.
ÍK
Iþróttafélag Kópavogs verður
með íþrótta- og leikjanámskeið
í Fossvogsdal í sumar. Alls verða
fimm námskeið og stendur hvert
námskeið, sem er fyrir börn 5-13
ára, yfir í tvær vikur. Upplýsingar
í símum 79215 og 13037.
Reykjavíkurborg
Iþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur munu í sarnvinnu
við íþróttafélögin Fjölni, Í.R. og
Leikni standa fyrir íþróttanám-
skeiðum fyrir böm á aldrinum 6-9
og 10-12 ára í viðkomandi hverfum
auk Laugardals. Námskeiðin hófust
sl. mánudag og em kl. 9.00-11.30
og 13.30-16.00. Innritun fer fram
í félagsmiðstöðvunum Fellahelli í
Breiðholti, Fjörgyn í Grafarvogi og
á skrifstofu íþrótta- og tómstundar-
áðs að Fríkirkjuvegi 11.
FOLX
■ REAL Madríd sigraði Atl-
etico Madrid 2:0 í fyrri leik liðanna
í undanúrslitum spænsku bikar-
keppninnar í knattspyrnu. Emilio
Butragueno og Bernd Schuster
skomðu mörkin. í hinum undanúr-
slitaleiknum sigraði Coruna Real
Valladolid 1:0.
■ VESTUR-Þ ÝZKIR knatt-
spyrnufrömuðir koma saman í
Frankfúrt í dag til að taka afstöðu
til tillagna um róttækar breytingar
á fyrirkomulagi v-þýzku deilda-
keppninnar í knattspyrnu. Hug-
myndin að baki tillögunum er að
glæða aðsókn að knattspymuleikj-
um en þær hafa mætt mikilli and-
stöðu, meðal annars frá Franz
Beckenbauer landsliðseinvaldi.
MAUSTUR-ÞÝZK knattspymu-
yfirvöld hyggja á miklar breytingar
á þjálfaramálum á næstunni. Ætl-
unin er að ráða fræga erlenda þjálf-
ara til að leiðbeina austur-þýzkum
þjálfumm og leikmönnum. Aust-
ur-Þjóðverjar hafa miklar áhyggj-
ur af stöðu knattspymuíþróttarinn-
ar í heimalandi sínu og slöku gengi
landsliðsins á alþjóðavettvangi und-
anfarið.
■ DINAMO Kiev frá Sovétríkj-
unum, Porto frá Portúgal og
ensku liðin Arsenal og Liverpool
munu leiða saman hesta sína á fjög-
urra iiða móti á Wembleyleikvang-
inum 29. - 30. júlí í sumar.
GOLF
Öldungamót á
Nesvelli
Keppnin um „Hornið“ á golf-
vellinum á Seítjamamesi hef-
ur mörg undanfarin ár verið
ein vinsælasta öldungakeppn-
in í golfí. Það hefst í fyrramál-
ið og verða leiknar 36 holur
laugardag og sunnudag.
Skráning í mótið fer fram í
klúbbhúsinu.
Opið mót GR
Golfklúbbur Reykjavíkur
stendur fyrir opnu móti í Graf-
arholti á laugardaginn. Leikn-
ar verða 18 holur með for-
gjöf. Ræst verður út frá kl. 8
á laugardagsmorgun, eftir
forgjöf (hæsta forgjöf fyrst).
Kvennamót
Opið kvennamót í golfi verður .
hjá golfklúbbnum Keili í hafn-
arfirði á laugardag, 1Ö. júní.
Skráning stendur yfir
(s.53360) í skálanum, en ræst
verður út frá klukkan 10.