Morgunblaðið - 09.06.1989, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989
Reuter
Flak sovésku MiG-29 orrustuþotunnar brennur eftir brotlendinguna á Le Bourget-flugvellinum. Á ann-
arri innfelldu myndinni er Anatolí Kvotsjúr, flugmaður. Á hinni er Antonov An-225, stærsta flugvél
heims, með geimferjuna Byl á bakinu.
Sovésk þota ferst í Paiís
París. Reuter.
SOVÉSK orrustuþota af gerðinni MiG-29 fórst er flugmaður henn-
ar sýndi flugkúnstir á fyrsta degi flugsýningar á Le Bourget-
flugvellinum í París. Brotlenti þotan og varð varð brakið samstund-
is að eldhafi í aðeins 300 metra fjarlægð fi*á áhorfendastæðum.
Flugmanninum tókst að skjóta sér út í fallhlíf en var sagður hafa
þessa í fyrra og er sömuleiðis sýnd
frysta sinni á Vesturlöndum nú.
Páfí í Svíþjóð;
slasast mikið.
Tala fallinna í Úzbekístan komin upp undir 80;
Æstur múgur réðst
á lögreglustöð
Moskvu. Reuter.
SEX manns týndu lífi og 90 særð-
ust er óeirðir breiddust út í Uz-
bekístan á miðvikudag en um
síðustu helgi lét 71 maður lífið f
átökum í borginni Fergana, að
sögn sovésku fréttastofiinnar
TASS. Þúsundir manna í ná-
grannaborginni Kokand réðust á
lögreglustöð til að komast yfir
skotvopn og nokkur hundruð
manns gerðu árás á byggingu i
eigm samgöngufyrirtækja inn-
anríkisráðuneytisins I lýðveldinu.
Fréttastofan sagði nokkur hús í
Kokand standa í björtu báli og
mikil spenna ríkti í borginni en
tekist hefði að dreifa árásarhópun-
um og flestir leiðtogamir væru í
haldi lögreglu. Enn héldu „rib-
baldar", sem hvattir væru af
„glæpamönnum og ofstækismönn-
um“ áfram að hópast saman á
nokkrum stöðum.
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi
skýrði fulltrúaþingi Sovétríkjanna á
miðvikudag frá atburðunum í Ferg-
ana. „Átökin halda áfram, enn .yerð-
ur fólk fyrir meiðslum og sumir týna
jafnvel lífi,“ sagði hann. „Það eru
margir sem róa undir og skotvopnum
hefur verið beitt.“ Hann skýrði frá
því að mörg þúsund vopnaðir herlið-
ar innanríkisráðuneytisins reyndu að
stöðva róstumar og hvatti íbúana
öðru sinni
á þrem
dögum til
að hafa
hemil^ á
sér. Átök-
in hófust
með
slagsmál-
um Úz-
beka og
meshketa,
múslimsks þjóðabrots 160 þúsund
manna af georgískum uppruna er
Stalín lét flytja frá Georgíu til Úz-
bekístan á stríðsárunum. Þeir hafa
krafist þess að fá að snúa heim.
jVomsíý'-fréttastofan sovéska gaf í
skyn að átökin ættu rætur að rekja
til þjóðemismisklíðar og trúardeilna.
Meskhetar em shíitar en Úzbekar
súnnítar. Flestir hinna föllnu í Ferg-
ana vora meskhetar sem margir hafa
nú flúið híbýli sín vegna róstanna
og sest að í flóttamannabúðum þar
sem þeir njóta verndar yfirvalda.
Sæmilegur friður hefur virst með
þjóðunum undanfarna áratugi. Sov-
éskir íjölmiðlar segja að atvinnuleysi
ungs fólks ásamt kröfum meskheta
um heimfararleyfi, er virtar hafa
verið að vettugi, hafi átt sinn þátt í
að til átaka kom.
Lúterskir biskupar ánægðir
Stokkhólmur. Frá Önnu Bjarnadóttur, Iréttaritara Morgunblaðsins.
CASSIDY erkibiskup og þriðji æðsti maður Vatikansins sagði í gær á
blaðamannafundi í Stokkhólmi að lilýjar og innilegar móttökur í Norður-
landaferð Jóhannesar Páls II páfa hefðu komið páfahirðinni nokkuð á
óvart. Hann nefndi sem dæmi að á íslandi hefði tvisvar sinnum fleira
fólk sótt útimessu páfa í Reykjavík en kaþólikkar væru á öllu landinu.
Stór hópur fólks hefði verið viðstaddur kvöldbæn páfa á torginu í
Tromso í Noregi. Cassidy sagði að samkirkjulegu bænastundirnar í
Þrándheimi, Turku og á Þingvöllum hefðu aukið tengsl kirknanna og
bjóst við hinu sama af bænastundinni í Uppsölum i dag.
Flugvélin var í vandasömum
lágflugsæfingum er flugmaðurinn
rnissti stjórn á henni. Skaut hann
sér út í 100 metra hæð yfir jörðu
en fallhlíf hans opnaðist ekki full-
komnlega og skall hann til jarðar.
Sýning flugvélarinnar átti að vera
hápunktur listflugsatriða á fyrsta
degi flugsýningarinnar í París,
sem fram fer annað hvert ár og
er ein sú stærsta sem haldin er.
Þar sýna 1.600 fyrirtæki frá 34
löndum framleiðslu sína.
Mig-29 þotan er jafnan nefnd
Fulcrum á Vesturlöndum og er
eitt af mikilvægustu framlínu-
vopnum Sovétmanna í Evrópu og
við kínversku landamærin. Hún
var sýnd fyrst utan austantjalds-
ríkjanna á flugsýningu í Farn-
borough sl. september og þótti
búin ótrúlegum flugeiginleikum.
Flugmaðurinn, sem flaug þotunni
þá, Anatolí Kvotsjúr, var við stjórn
þotunnar, sem fórst í París.
Mig-29 þotan flaug til Parísar
í fylgd tveggja orrustuþotna af
gerðunum Súkhoj-25 og -27, en
það er í fyrsta sinn, sem þær sjást
utan Varsjárbandalagsríkjanna. Á
Parísarsýningunni sýna Sovét-
menn einnig nýja flutningaflugvél,
Antonov-225, í fyrsta sinn á Vest-
urlöndum. Er hún stærsta flugvél
heims.
Flaug hún til Parisar með so-
vésku geimfeijuna Byl á bakinu.
Feijan fór sína einu geimferð til
Lútersku biskuparnir í Svíþjóð
hafa allir lýst ánægju sinni með
heimsókn Rómarbiskups til Svíþjóð-
ar. Páfi ræddi í gær stuttlega við
Lisbet Palme, ekkju Olofs Palme,
eftir fund sinn með Ingvar Carlsson
forsætisráðherra. Páfi tók um báðar
hendur hennar og rifjaði upp að
Palme forsætisráðherra bauð páfa
fyrstur manna til Svíþjóðar snemma
á þessum áratug. Páfi hafi þá sagt
að hann gæti ekki komið því að
sænsku biskupamir hefðu ekki boðið
sér. „Ég segi þeim að bjóða yður,“
vora viðbrögð Palme samkvæmt frá-
sögn talsmanns páfa af fundinum
með frú Palme.
Hans heilagleiki heimsótti sænsku
konungsfjölskylduna og átti óform-
lega stund með henni. Hann kyssti
bömin þijú og skiptist á gjöfum við
þau og foreldrana. Konungshjónin
verða viðstödd bænastundina í Upp-
sölum.
Páfi söng messu í Stokkhólmi í
gær að viðstöddum 13.000 manns,
þ. á m. erkibiskupnum í Uppsölum
og tveim biskupum.
Umræður á sovéska fulltrúaþinginu:
Varað við efiiahagslegu
og vistfræðilegu hruni
- og arðrán hinna vinnandi stétta sagt hvergi meira en í Sovétríkjunum
Moskvu. Reuter.
KUNNUR, sovéskur hagfiræðingur sagði í umræðum á nýja fúlltrúa-
þinginu í gær, að yrði ekki komið í veg fyrir gífúrlegan og vaxandi
Qárlagahalla vofði stórslys yfír í efnahagsmálunum. Hélt hann því
einnig firam, að í engu iðnríki öðru væru hinar vinnandi stéttir
arðrændar jafú herfilega og í Sovétríkjunum. Annar þingmaður
sagði í sinni ræðu, að. tímaspursmál væri hvenær náttúruspjöll og
vistfræðilegt hrun víða um landið leiddu af sér ókyrrð og þjóð-
félagslega ólgu. Að loknum þessum lestri tók Mikhaíl Gorbatsjov
sovétleiðtogi til máls og tiikynnti, að fundinum yrði lokað.
„Ef okkur tekst ekki að herrvja
verðbólguna á næstu tveimur eða
þremur áram, koma í veg fyrir
síminnkandi framboð á neysluvam-
ingi og snúa við fjárlagahallanum
þá blasir ekkert annað við okkur
en efnahagslegt hran,“ sagði hag-
fræðingurinn Níkolaj Shmeljov en
hann er einn af þingmönnum sov-
ésku vísindaakademíunnar. í ræðu,
sem Níkolaj Ryzhkov forsætisráð-
herra hafði áður flutt, dró hann
upp fremur dökka mynd af efna-
hagsmálunum en Shmeljov kvaðst
efast um, að Ryzhkov skildi hve
ástandið væri alvarlegt. Sagði
hann, að fjárlagahallinn næmi 120
milljörðum rúblna, 187 milljörðum
dollara á opinbera gengi, eða 24%
af áætluðum útgjöldum ríkisins á
þessu ári.
„Efnahagslegt hrun leiddi af sér
skömmtun á öllum sviðum, neðan-
jarðarhagkerfið tæki í raun völdin
og rúblan yrði einskis virði. Tilskip-
anakerfið settist aftur í hásætið,"
sagði Shmeljov.
Arðránið mest í
Sovétrílqimum
Shmeljov gagnrýndi Ryzhkov í
ræðu sinni og sagði, að rangt væri,
að fjárlagahallinn stafaði fyrst og
fremst af kauphækkunum umfram
framleiðni- og framleiðsluaukn-
ingu.
„I engú iðnríki öðra era hinar
vinnandi stéttir arðrændar jafn
herfilega og hér. Af þjóðarfram-
leiðslunni fara aðeins 37 eða 38%
í laun en um 70% annars staðar,"
sagði Shmeljov. Þingheimur hlust-
aði á hljóður og leyndi sér ekki
undranarsvipurinn á mörgum enda
vanalegra, að talað sé um arðránið
í ríkjum kapitalismans.
í ræðu sinni sagði Shmeljov enn-
fremur, að mörgu í stefnu Gor-
batsjovs væri um að kenna hvernig
komið væri. Nefndi hann meðal
annars baráttuna gegn áfenginu,
sem hefði svipt ríkið gífurlegum
tekjum en fært þær í hendur bragg-
ara, og herferðina gegn „ranglát-
um tekjum", sem hefði lamað
einkaframtakið í matvælafram-
leiðslu. Þá sagði hann, að það hefði
verið út í hött að skera niður inn-
flutning á neysluvörum því að
stjómvöld gætu stórhagnast á hon-
um og náð til sín einhveiju af allt
of miklu peningamagni í umferð.
Ritstjóri Prövdu verri en
CIA
Shmeljov sneri sér nú að Viktor
Afanajev, aðalritstjóra Prövdu, og
sakaði hann um að valda kaupæði
og hamstri í hálftómum verslunum
með því að leggja til í grein, að
Míkhaíl Gorbatsjov greiðir at-
kvæði á sovézka fúlltrúaþing-
inu.
umframfjármagn yrði gert upp-
tækt meðal almennings yfirleitt.
„Engin CIA (bandaríska leyni-
þjónustan), enginn stéttaróvinur,
sama hve slæmur hann er, gæti
valdið okkur meiri skaða en sumt
það, sem birtist hér á prenti,“ sagði
Nikolaj Shmeljov að lokum en þess
má geta, að hann vinnur við rann-
sóknastofnun um bandarísk mál-
efni í Moskvu.
Yfirstéttin þrífst vel
Alexei Jemeljanov, prófessor við
Moskvuháskóla, talaði næstur og
beindi spjótum sínum að „sovésku
yfirstéttinni", sem þrifist vel þrátt
fyrir Gorbatsjov. „Sagan kennir
okkur, að valdastéttin lætur ekkert
af hendi baráttulaust. Þannig er
það einnig með þá sovésku, þessa
stétt, sem hefur aðeins réttindi en
engar skyldur," sagði Jemeljanov
við fögnuð margra þingmanna og
bætti því við, að margir kjósenda
sinna í Moskvu byggju í blokkum
þar sem þeir yrðu skiptast á um
afnot af eldhúsi og baðherbergi á
sama tíma og byggðar væra fínar
íbúðir fyrir forréttindastéttina í
flokki og stjórnkerfinu.
Vistkerfið að hrynja
Alexei Jablokov, líffræðiprófess-
or og félagi f vísindaakademíunni,
sagði í sinni ræðu, að kommúnista-
flokkurinn og ríkisstjómin yrðu að
fara að sýna „grænan lit“ ef kom-
ast ætti hjá skelfilegum náttúra-
slysum. Sagði hann, að 20% allra
íbúa Sovétríkjanna byggju á „vist-
fræðilegum hörmungarsvæðum“
og önnur 40% á svæðum þar sem
ástandið væri óviðunandi og færi
versnandi.
„Það þarf engan spámann til að
sjá hvert stefnir. Astandið mun
versna og koma af stað þjóðfélags-
legri ólgu. Annaðhvort förum við
að sjá grænan lit á flokknum eða
fólkið f landinu mun taka höndum
saman utan hans,“ sagði Jablokov
við mikið lófatak mörg hundrað
þingmanna en aðrir sátu þögulir.
Gorbatsjov steig nú í pontu og
tilkynnti, að fundinum yrði lokað f
skamman tíma. „Ég vil biðja blaða-
menn og gesti að víkja úr saln-
um,“ sagði hann en frá umræðum
á þinginu hefur útvarpað og sjón-
varpað um öll Sovétríkin.