Morgunblaðið - 09.06.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989
Ráðherraneftid íjall-
ar um ríkisflámiálin
FUNDUR ríkisstjórnarinnar í gærmorgun stóð í ftórar klukku-
stundir, en engin niðurstaða fékkst á fundinum um það hvaða
leiðir skuli farnar til þess að rétta af fyrirsjáanlegan 3,5 millj-
arða króna halla, heldur var ákveðið að nefhd þriggja ráðherra
ynni að frekari tillögugerð. Það verða væntanlega flokksfor-
mennimir þrír sem skipa þá neftid. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins em afar skiptar skoðanir meðal ráðherra ríkisstjóm-
arinnar um það með hvaða hætti hægt sé að standa að niður-
skurði ríkisútgjalda.
Ráðherrar ríkisstjómarinnar
eru allir sammála um að grípa
verði til aðgerða, til þess að rétta
af hallann á ríkissjóði. Ræða þeir
um aukna skattheimtu, niðurskurð
á ríkisútgjöldum og innlenda lán-
töku. Þegar á hinn bóginn kemur
að umræðunni um niðurskurð á
ríkisútgjöldum, eru ráðherramir
komnir í nokkra sjálfheldu, sem
fyrr, því enginn fagráðherranna
getur fallist á að niðurskurðurinn
eigi að bitna á „mínum mála-
flokki“.
Ólafur Ragnar Grímsson segist
ekki telja að nú sé komið á daginn
að fáviska og vanmat hafi ráðið
ríkjum hjá ríkisstjórninni, varðandi
hennar þátt og kostnað ríkissjóðs
vegna kjarasamninganna nú í vor.
Fjármálaráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær: „Megin-
hlutinn af þeim vanda sem nú blas-
ir við er annars vegar fólginn í
því að við höfum aukið niður-
greiðslurnar um 600 milljónir,
vandi útflutningsuppbótanna í
landbúnaðinum er meiri en talið
var og að gengisbreytingarnar
hafa haft aukin vaxta- og rekstr-
argjöld í för með sér.“
Fjármálaráðherra sagði að
ríkisstjómin og forystumenn bæn-
dasamtakanna gerðu sér grein
fyrir því að þær miklu breytingar
sem hér hefðu orðið á kjötneyslu
og sú sauðfjárframleiðsla sem
færi hér fram gerðu það að verk-
um að sá hluti búvörusamningsins
sem snéri að kindakjötsframleiðslu
hefði orðið með allt öðrum hætti
en talið var. Það væri því ljóst að
þann þátt þyrfti að endurskipu-
leggja og um það væri enginn
ágreiningur.
„Ég er mjög hlynntur því að
ríkissjóðsdæminu verði náð sam-
an, en það vom engar ákvarðanir
teknar um hækkun skatta,“ sagði
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra að loknum fundinum.
Forsætisráðherra kvaðst telja það
mikilvægt að sá halli sem væri á
ríkissjóði yrði réttur með innlendu
lánsfé, en ekki erlendu.
/ DAG kl. 12.00:
Heimitd: Veðurstofa islands
á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
(Byggt
VEÐURHORFUR í DAG, 9. JÚNÍ
YFIRLIT í GÆR: Um 600 km suðaustur af Hvarfi er heldur vaxandi
lægð í hreyfingu aust-suðaustur. Áfram verður tiltölulega milt.
SPÁ: Hæg austlæg eða breytileg átt. Skýjað um mestallt land og
víða þokuloft við ströndina. Léttir sums staðar til í innsveitum, eink-
um á Norður- og Vesturiandi. Hiti víðast 8—10 stig, þó hlýrra sums
staðar inn til landsins um hádaginn.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Austlægar áttir. Súld
á Suöausturlandi svo og í útsveitum norðanlands og austan. Þurrt
í öðrum landshlutum og víða léttskýjað á vestanverðu landinu.
Sæmilega hlýtt inn til landsins en svalara við austur- og norður-
ströndina.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius
Heiðskirt * stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * V Skúrir Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning Þoka
Hálfskýjað / / / * / * •> 5 Þokumóða Súld
Skýjað f * / * Slydda r * / oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
®Alskýiaft * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 i gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 10 súld
Reykjavik 12 úrk. f grennd
Bergen 10 rigning
Helsinki 13 rigning
Kaupmannah. 13 skúrir
Narssarssuaq 7 rigning
Nuuk 1 skýjað
Ósló 16 úrkoma
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 8 léttskýjað
Algarve 20 heiðskirt
Amsterdam 15 skýjað
Barcelona 17 alskýjað
Berlin 16 skúrir
Chicago 21 alskýjað
Feneyjar 21 léttskýjað
Frankfurt 12 þrumur
Glasgow 14 úrkoma
Hamborg 12 skúrir
Las Palmas 22 alskýjað
London 16 skýjað
Los Angeles 16 alskýjað
Lúxemborg 12 skúr
Madrfd 24 skýjað
Malaga 25 léttskýjað
Mallorca 25 hálfskýjað
Montreal 19 alskýjað
New Vork 18 þoka
Orlando 23 skýjað
Paris vantar
Róm 22 léttskýjað
Vfn 15 skýjað
Washington 20 alskýjað
Winnipeg vantar
Helmingi minni
sala í mjólkinni
MJÓLKURSAMSALAN í Reykjavík seldi út um 65 þúsund lítra af
framleiðslu sinni í gær en síðastiiðinn fimmtudag seldust 120 þús-
und lítrar af mjólkurvörum, að sögn Baldurs Jonssonar sölusljóra.
Þá þijá daga sem stærstu launþegasamtök landsins hafa hvatt
neytendur til að hundsa mjólkurvörur hefur sala fyrirtækisins ver-
ið 205 þúsund lítrar miðað við 327 þúsund lítra sömu þrjá daga í
liðinni viku.
Að sögn Péturs Sigurðssonar
framkvæmdastjóra Tæknideildar
Mjólkursamsölunnar hefur fyrir-
tækið brugðist við þessu með því
að taka ekki á móti mjólk frá Mjólk-
urbúi Flóamanna, en það er sá við-
skiptaaðili sem á auðveldast með
að beina hráefninu til arinarrar
framleiðslu.
Karl West verslunarstjóri Hag-
kaups í Kringlunni áætlar að í versl-
uninni hafi selst um 50% minna af
mjólkurvörum en venjulega á
fimmtudegi. Bragi Bjömsson versl-
unarstjori Sparkaupa í Hólagarði
sagðist telja að samdráttur í sölu
mjólkurvara næmi 75-80%, en þetta
hefði ekki valdið tjóni þar sem búist
hefði verið við söluminnkun.
Aðgerðir launþegasamtakanna
ná ekki til dagsins í dag, föstu-
dags, en að sögn Baldurs Jonssonar
er salan þá að jafnaði um 210 þús-
und lítrar, þriðjungur vikusölu. Pét-
ur Sigurðsson kvaðst jafnvel óttast
að þessar aðgerðir hefðu í för með
sér einhveija varanlega breytingu
á neysluvenjum. Hann sagði að
mjólkuriðnaðurinn yrði fyrir ein-
hveiju tjóni vegna þessa tíma-
bundna sölufalls þar sem hráefnið
færi í verðminni pakkningar en
venjulega. Tjónið yrði hins vegar
ekki ljóst fyrr en við heildaruppgjör
í lok framleiðsluársins. Pétur ítrek-
aði að bændum væri tryggt grund-
vallarverð með búvörusamningi og
yrðu því ekki. fyrir tekjutapi nema
til lengri tíma litið, ef um varanleg-
an samdrátt yrði að ræða.
Baldur Jónsson sagði erfitt að
meta hvort mjólkursala í dag yrði
svipuð, minni eða jafnvel meiri en
venjulega á föstudegi. Engir erfið-
leikar verði á að framleiða aukið
magn en komi á daginn að kaup-
menn hafi verið of varkárir í pönt-
unum sínum gæti móttaka og pant-
ana og dreifing dreifst meira yfir
daginn en venjulega.
Óskiljanlegt að
ríkisstjórnin skuli ekki
svara þessu kalli
Ákvarðanir um næstu skref í
baráttu Alþýðusambands íslands
og Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja verða teknar á mánudaginn
kemur hafi engin viðbrögð orðið af
hálfu ríkisstjórnarinnar fyrir þann
tíma. Forsvarsmenn ASÍ og BSRB
lýsa yfir ánægju sinni með viðbrögð
almennings við áskorun um að
kaupa ekki mjólk.
„Almenningur hefur aldrei áður
fylgt jafn skýrt eftir eindregnum
kröfum sínum um að stjómvöld
dragi verðhækkanir til baka,“ sagði
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
og nefndi einnig til fjöldafund sam-
takanna fyrir rúmri viku síðan, en
jafn íjölmennur fundur hafi ekki
verið haldinn á Lækjartorgi frá
íjöldafundinum á kvennafrídaginn
fyrir nokkrum árum. „Það er óskilj-
anlegt að ríkisstjómin skuli ekki
svara þessu kalli með aðgerðum af
sinni íiálfu. Krafan stendur skráð
skýrara letri en nokkurn tíma áður
við slíkar aðstæður. Það verður að
gera tilkall til þess að ríkisstjómin
hlusti á almenning."
Aðspurður um viðbrögð stjóm-
valda til þessa og nýjar upplýsingar
um hallarekstur ríkissjóðs, sagði
hann: „Ég ætla ekki núna að fara
í rökræður um fjármál ríkisins eða
landbúnaðarstefnuna við Ólaf
Ragnar. Þá umræðu skulum við
geyma til betri tíma. Ólafi Ragnari
ber skylda til að rifja upp eigin
yfirlýsingu samhliða samningunum
við BSRB sem hann skrifaði undir
sjálfur. Með stóryfirlýsingum sínum
í gær og í dag er fjármálaráðherra
greinilega að reyna að drepa málinu
á dreif og draga athyglina frá þeim
einföldu kröfum sem við höfum
sett fram. Með aðgerðum okkar
erum við ósköp einfaldlega að draga
fram þá bláköldu staðreynd að
ríkisstjórnin gaf ákveðin fyrirheit
samhliða samningunum og við þau
hefur hún ekki staðið. Hún lofaði
að halda aftur af verðhækkunum
og að búvörur hækkuðu ekki um-
fram laun lágtekjufólks. Laun þess
fólks hafa ekki hækkað um 14%
eins og mjólkin, ekki einu sinni um
helming þess,“ sagði Ásmundur.
„Ég er ekíri tilbúinn til þess að
taka þátt í því að hjálpa Ólafí Ragn-
ari að draga athyglina frá okkar
kröfum. Við erum ekki með fjármál
ríkisins á okkar könnu. Það kann
vel að vera skynsamlegt að fela
okkur þau og það getur vel verið
að Ólafur sé þeirrar skoðunar að
það sé rétt. Það er þá mál sem
hann þarf að ræða við okkur í betra
tómi,“ sagði Ásmundur Stefánsson
ennfremur.
Sýnir að samtaka-
mátturinn er til staðar
„Við ætlum að bíða átekta og
sjá hvaða viðbrögð kröfur almenn-
ings fá hjá ríkisstjórninni. Ákvarð-
anir um frekari viðbrögð verða
teknar á mánudaginn kemur í ljósi
þess. Fólk ætlast til aðgerða af
hálfu ríkisstjórnarinnar," sagði Ög-
mundur Jónasson, formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja.
Hann sagði að góðar viðtökur
almennings við áskoruninni um að
kaupa ekki mjólk kæmu sér í raun
ekki á óvart. „Þetta er svo greini-
legur vilji almennings sem kemur
fram í þessum aðgerðum og þetta
sýnir að hjá honum er samtaka-
mátturinn tit staðar. Ég held að
stjómvöld ættu að draga lærdóm
af því. Þessar undirtektir segja
okkur hve alvarlegum augum al-
menningur lítur þessar miklu verð-
hækkanir," sagði Ögmundur.
Hann sagði að menn hefðu verið
að tala um að þessum aðgerðum
væri beint gegn bændum, sem v'æri
auðvitað af og frá. „Þetta eru hugs-
að sem táknrænar aðgerðir og í
rauninni þá bitna þessar aðgerðir
fyrst og fremst á neytandanum
sjálfum, þeim sem tekur þátt í að-
gerðunum. Enda er hugmyndin
ekki sú að klekkja á einhveijum og
allra síst bændum, heldur er fólk á
táknrænan hátt að sýna vilja sinn
og andstöðu gegn þessum verð-
hækkunum," sagði Ögjnundur Jón-
asson að lokum.