Morgunblaðið - 09.06.1989, Blaðsíða 9
MOKGUNBIADIÐ ,FÖ$TUDAGUR; 9., JÚNÍ1989
Til sölu 5-6 herbergja
einbýlishús í Kópavogi
í Vesturbæ. Steinsteypt. Forstofa, húsbóndaherb., gesta-
snyrting, saml. stofur, geymsla, rúmg. eldhús og þvottahús.
Á efri hæð er hol, baðherb., 3 herbergi og geymsla. Gott
háaloft. Stór bílskúr. Góð lóð. Útsýni. Verð 8,9 millj.
Upplýsingar í síma 43294.
Skíða-
skálaferé
Hin árlega skíðaskálaferð verður farin þann 10. júní.
Lagt verður af stað frá Geithálsi kl. 10.
Ferðanefnd.
Dalvíkurskóli - siávarútvegsdeild
Skipstjðrnar- og fiskvinnslunám
Umsóknir um nám á 1. og 2. stigi skipstjórnar
og 1. og 2. ári í fiskiðn þurfa að berast skólanum
fyrir 15. júní. Við skólann er heimavist.
Allar upplýsingar gefur skólastjóri eða yfirkennari
í símum 96-61380, 96-61491, 96-61162.
Skólastjóri.
KRUMPUGALLAR
fyrir herra og dömur
Nýsending
Úlsölustaðir:
Akrasport - Akranesi
Aþena - Höfn, Hornafirði
Bikarinn - Reykjavík
Bjólfsbær - Seyðisfirði
Borgarsport - Borgarnesi
Don Cano búðin - Reykjav.
Hverasport - Hveragerði
Kaupfél. Þing. - Húsavík
Kaupfél. Steingrfj. - Hólmav.
Maraþon - Akureyri
Músík og sport - Hafnarfirði
Nes-sport - Seltjarnarnesi
Skógar — Egilsstöðum
Sparta - Sauðórkróki
Sportbúð Óskars - Keflavík
Sportb. Laugav. 97 - Rvík.
Sporthlaðan - ísafirði
Versl. Ara Jónss. - Patreksfirði
Versl. Steina & Stjóna - Vestm.
Versl. Vísir - Blönduósi
SPORTLAND HF.
Álfheimum 74, sími 82966.
9
-H-
Atvinnuöryggið, verðlag-
ið og ríkisbúskapurinn
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráð-
herra, mælti fyrir frumvarpi til fjárlaga
1989 10. nóvembersl. Hann sagði „meg-
ineinkenni frumvarpsins" vera 1.200
m.kr. tekjuafgang (sem lækkaði í 600
m.kr. í meðferð Alþingis). Orðrétt sagði
ráðherra: „Atvinnuleysi hefur verið forð-
að og horfur eru á að verðbólga verði
komin niður fyrir 10% í árslok. Og nýj-
ustu tölur um verðlagsþróun undanfarið
munu á næstu dögum staðfesta enn frek-
ar þann spádóm"!
Staksteinar glugga í dag í spádómsorð
Ólafs Ragnars um fjárlagadæmið og
ríkisbúskapinn.
Fjárlagafor-
sendur
Fjárm;llaráðtierra
sagði m.a. í fjárlagaræðu
sinrn:
„I samræmi við þjóð-
hagsáætlun er í frum-
varpinu gengið út frá því
að framfærslukostnaður
hækki um 12% milli ára.
Launabreytingar eru
áætlaðar 8% á milli ára
og hækkun vísitölu bygg-
ingarkostnaðar 10%.
Aætlað er að meðalverð
á erlendum gjaldeyri
muni hækka um 7% milli
ái’a, en öll sú hækkun er
þegar fram komin . . .
Þessar flárlagafor-
sendur hafa verið gagn-
rýndar töluvert að und-
anfomu. Því hefur verið
haldið fram að þær
standist ekki og þar með
sé grundvellinum kippt
undan frumvarp-
inu . . .“
Þeirri gagnrýni mót-
mælti ráðherra harðlega.
„Rökrænt
samhengi
frumvarpsins“
Ráðherra sagði siðar i
ræðunni:
„Hvað raunlaun varð-
ar gera þessar forsendur
ráð fyrir óbreyttum
raunlaunum frá því sem
þau verða á fyrsta árs-
fjórðungi næsta árs.
Þannig er það misræmi,
sem kemur fram í þróun
verðlags, gengis og
launa, að mestu fram
komið nú þegar. Enda
þótt þróun verðlags og
launa á næsta ári verði á
annan hátt en hér er
miðað við, kollvarpast
flárlagafrumvarpið alls
ekki af þeim sökum.
Skýringin er það inn-
byrðis samhengi sem
byggt er inn í frumvarp-
ið. Ef kaupgreiðslur
hækka umfram það sem
hér er gert ráð fyrir auk-
ast launaútgjöld rikisins.
A móti kemur að eftir-
spurn og umsvif í hag-
kerfinu aukast og verð-
bólga einnig. Skatttekjur
af bæði veltu- og tekju-
sköttum aukast. Tekjuaf-
gangurinn getur því orð-
ið meiri en á móti verður
viðskiptahallinn við út-
lönd einnig meiri. Ef
raungengi krónunnar
lækkar meira en hér er
gert ráð fyrir munu
raunverulegar tekjur,
eftirspum og imiflutning-
ur verða mhmi auk þess
sem vaxtagjöld aukast.
Tekjuafgangurinn
minnkar eða hverfur al-
veg, en það mun koma
lítið að sök þar sem á
móti kemur að viðskipta-
hallinn verður minni.
Vegna þessa rökræna
samhengis frumvarpsins
sjálfs er á þessu stigi
máls engin ástæða til
annars en að byggja á
þeim forsendum sem hér
hafa verið raktar.“
Hinnýja
stefiia
Enn sagði Ólafur Ragn-
ar:
„Eins og fram hefur
komið í máli minu ber
fjárlagafrumvarpið fyrir
árið 1989 það með sér
að gerð er alvarleg til-
raun til að snúa við á
þeirri braut skuldasöfh-
unar og hallarekstrar
sem ríkisfjármálin hafa
verið á undanfarin ár.
Útgjaldahlið frumvarp-
isn felur í sér viðleitni til
þess að stöðva útgjalda-
þenslu ríkisins án þess
þó að skerða margvís-
lega þjónustu . . .
Heimilin i landinu
munu einnig þurfa að
laga sig að breyttum skil-
yrðum og sú aðlögum
kann ýmsum að verða
sársaukafúll. Það er þess
vegna nyög brýnt að Al-
þingi allt og rikisstjórn
sýni í reynd gott for-
dæmi . . .“
Uppskeran á
akri Ólafs
Ragnars
Hvemig hefur svo til
tekizt hjá fjármálaráð-
herranum? Reynslan er
ólýgnust. Gefúm einu
stjómarmálgagninu, Al-
þýðublaðinu, orðið:
„Miðað við útkomu
fyrstu fimm mánaða árs-
ins er útlit fyrir a.m.k.
3,5 milljarða króna halla
á rikissjóði á þessu ári [í
stað 600 m.kr. hagnað-
ar] . . . Astandið í ríkis-
rekstrinum virðist því
verra en á sama tínia i
fyrra . . .“
Það em einkum þijár
ástæður tiundaðar sem
valda kollsteypu ríkis-
búskaparins í höndum
Ólafs Ragnars Grimsson-
ar. I fyrsta lagi nýir
kjarasamningar, sem
ráðherra sagði að vísu
innan fjárlagarammans.
Hver ber meiri ábyrgð á
þeim en fjárm;ilaráð-
herra? í annan stað bú-
vömdæmið. Það Iýtur
einnig stjómarfarslegri
forsjá og ábyrgð ráð-
herra Alþýðubandalags-
ins. í þriðja lagi meiri
verðbólga en fyrir var
séð. Verðhækkanir eiga
ekki sizt rætur í stjómar-
stefhunni sjálfri, m.a.
hærri skatthcimtu í verði
vöm og þjónustu, þótt
lgarasamningar [meiri
innlendur kostnaður]
komi einnig við sögu.
A bak Alþing-
is og viðsemj-
enda
Hvers vegna var koU-
steypan í ríkisbúskapum
fyrst tiunduð eftir að Al-
þingp var sent heim?
Hversvegna kunngerir
flármálaráðherra hug-
myndir sínar um enn
aukna skattheimtu, sem
ganga þvert á anda ný-
gerðra kjarasamninga,
fyrst eftir að Alþingi var
sent heim? Og hvað um
öll stóm orðin um að
snúa haUadæmi rikis-
búskaparins við, tryggja
atvinnuöryggið og lækka
verðbólgustigið?
áfk ÍSLANDSMÓTID HÖRPUDEILD UjJHH W FYLKISVÖLLUR *
FYI jn 1 VOLVO LKIR- kvöld kl. 20.00 IA DAIHATSU
Kannt þú nýja símanúmerid?
Steindór Sendibílar
OsazislA