Morgunblaðið - 09.06.1989, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989
Arsfundur Alþjóða heilbrigðisstofiiunarinnar:
Islendingar ættu að berjast
fyrir aðild sem flestra þióða
- segir Olafur Olafsson landlæknir
ÓLAFUR Ólafsson, landlæknÍT, var í hópi þeirra sem sátu fyrir ís-
lands hönd ársfund Alþjóða heilbrigðisstofounarinnar (WHO) í Genf
í síðasta mánuði. Það málefoi fondarins, sem mesta athygli vakti,
var tilraun Frelsissamtaka Palestínu (PLO) til að fá aðild að stofoun-
inni. Þeirri málaleitan samtakanna var hafoað eftir tímafrekar
umræður í samræmi við gildandi þjóðréttarreglur. Telur Ólafor
Ólafsson að hin raunverulegu viðfangsefoi fondarins hafi horfið í
skuggann af þessum deilum.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Ólafur, að ársfundir Alþjóða heil-
brigðisstofnunarinnar íjölluðu að
verulegu leyti um vandamál þjóða
3. heimsins enda væri þar við erfið-
ustu heilbrigðisvandamálin að
stríða. Hann hefði alltaf talið, að
megintilgangurinn með veru vel-
ferðarríkjanna í stofnuninni væri
að styðja við bakið á þessum þjóð-
um. Mjög mörg heilbrigðisvanda-
mál 3. heimsins ættu rætur sínar
að rekja til fátæktar, menntunar-
skorts, hrikalegs tekjumismunar
og félagslegs óréttlætis. Af þeim
sökum væru fundir stofnunarinnar
vettvangur umræðu um efnahags-
og menntamál, auk heilbrigðis-
mála. Finnst Ólafi, að þessi mikil-
vægu mál hafi horfið í skuggann
af stjórnmáladeilum af lögfræðileg-
um og þjóðréttarfarslegum toga.
„Við erum tilbúnir að ræða
Minnzt 50 ára aflnælis nor
ræns vinabæjasamstarfs
Thisted í Danmörku:
Nú í vor eru 50 ár liðin síðan fyrsta vinabæjasamstarfi Norður-
landa var komið á fót. Það var með vinabæjatengslum bæjanna
Thisted í Danmörku og Uddevalla í Svíþjóð. Á 50 ára afinæli þessa
fyrsta vinabæjasamstarfs er nú haldin mikil hátíð í Thisted með
þátttöku allra Noðurlanda. Hátíðarhöldin hófiist þann 3. júní sl.
og standa sleitulaust til 12. júní. Á hátíðinni eru fjölmörg atriði
við allra hæfi — íþróttir, listsýningar, skákmót, bridsmót, ráðstefo-
ur, fondir o.fl.
Hátíðin hófst með formlegri
setningarathöfn og kom það í hlut
Margrétar Danadrottningar að
opna hátíðina. Við það tilefni var
m.a. lesinn boðskapur, sem Thor
Vilhjálmsson, handhafi bók-
menntaverðlauna Norðurlandar-
áðs, hafði ritað sérstaklega í því
tilefni, en sá boðskapur hafði geng-
ið dagfari og náttfari milli félags-
deilda norrænu félaganna á Norð-
urlöndum þegar boðað var til hat-
íðarhaldanna. Þá söng karlakórinn
Stefnir frá Mosfellsbæ, sem er
vinabær Thisted. Kaj'lakórinn söng
þjóðsöngva bæði Islendinga og
Dana og Dorte Bennedsen, fyrrum
ráðherra í Danmörku og núverandi
formaður Sambands norrænu fé-
laganna á Norðurlöndum flutti
ávarp. Síðar um daginn voru svo,
við formlega athöfn, gróðursett
tré, eitt fyrir hvert Norðurland-
anna. Fyrir hönd Norræna félags-
ins á íslandi og íslendinga gróður-
setti Gylfi Þ. Gíslason íslenzka tréð
og formenn hinna norrænu félag-
anna á Norðurlöndum gróðursettu
hver sitt tré fyrir hönd landa sinna.
Þá hafa verið fundir Norrænu
ráðherranefndarinnar, sem Jón
Sigurðsson, viðskiptaráðherra, er
nú í formennsku fyrir, einnig fund-
ur forsætisnefndar Norðurlandar-
áðs en þar sitja fyrir íslands hönd
alþingismennirnir Páll Pétursson
og Olafur G. Einarsson. Þá var
efnt til pallborðsumræðna um
norræna menningu þar sem Jón
Sigurðsson, ráðherra, tók þátt fyr-
ir Islands hönd.
„Nordiskt træf“ sem er sameig-
inleg ráðstefna allra vinabæja-
hreyfinganna á Norðurlöndum er
haldin í Thisted. Um 300 þátttak-
endur eru á ráðstefnunni. Þar er
einnig þing Sambands norrænu
félaganna á Norðurlöndum, en þau
þing eru haldin annað hvert ár.
Alls 160 Islendingar sækja
hátíðarhöldin í Thisted á vegum
Norræna félagsins á íslandi.
Fullt hús hjá ís-
lenzku kórunum
Tveir íslenzkir kórar taka þátt
í 50 ára afmælishátíð norræna
vinabæjasamstarfs. Það eru karla-
kórinn Stefnir frá Mosfellsbæ og
Kirkjukór Blönduóss.
Karlakórinn Stefnir, sem söng
við setningarhátíðina, hélt sjálf-
stæða tónleika að kvöldi sunnu-
dagsins 4. júní. Uppselt var á tón-
leikana, sem haldnir voru í stærsta
konsertsalnum í Thisted. Kórnum
var feikilega vel tekið, en hann
söng m.a. Vínarvalsa þar sem Sig-
urlaug Hjaltested söng einsöng og
sló rækilega í gegn. Var kórinn
hvað eftir annað klappaður fram
og söng mörg aukalög.
Karlakórinn Stefnir söng við
útihátiðarhöldin í Thisted á þjóð-
hátíðardegi Dana, en þar kom
einnig fram skærasta poppstjarna
Dana um þessar mundir, Kim Lars-
en. Þá bárust kórnum ijölmörg til-
mæli um að syngja, mun fleiri en
hann gat sinnt. Kórstjóri er Lárus
Sveinsson.
Kirkjukór Blönduóss söng í
Thisted-kirkju laugardaginn 3. júní
og aftur sunnudaginn 4. júní og
hlaut hann mjög góðar viðtökur.
Hvert sæti var skipað í kirkjunni
þegar kórinn söng. Einnig mun
kórinn syngja í vinabæ Blönduóss,
Horsens. Stjórnandi kórsins er Sig-
urður Gunnar Daníelsson.
Fleira íslenzkt tónlistarfólk gerir
garðinn frægan í Thisted því al-
mennum hátíðarhöldum lýkur
laugardaginn 10. júní með
íslenzkri dagskrá. Þar flytja lista-
mennirnir Borgar Garðarsson leik-
ari og Jónas Ingimundarson píanó-
leikari tónverkið „Oður steinsins“
eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð
Kristjáns frá Djúpalæk en síðan
syngur Kristinn Sigmundsson,
óperusöngvari, norræn lög við und-
irleik Jónasar Ingimundarsonar.
Hinni almennu hátíð lýkur svo með
ávarpi Steingríms Hermannssonar,
forsætisráðherra íslands.
(Ur fréttatilkynningn.)
Ólafor Ólafsson, landlæknir.
vandamál palestínsku þjóðarinn-
ar,“ segir Ólafur. „En það kom
okkur spánskt fyrir sjónir, þegar
meira en helmingur fundartímans
í Genf fór í að ræða aðild PLO að
stofnuninni. Það er heldur ekki
heldur ekki í anda yfirlýstrar stefnu
velferðarþjóðanna þegar stórþjóðir,
sem greiða verulegan hluta kostn-
aðarins við rekstur stofnunarinnar,
hóta að ganga úr henni vegna
deilumála af þessu tagi,“ bætir
hann við og vísar þannig til yfirlýs-
inga Bandaríkjamanna þar að lút-
andi.
Honum finnst eðlilegra að um-
ræður af þessu tagi fari fram á
öðrum vettvangi, innan Sameinuðu
þjóðanna. „En tilfellið er,“ bætir
hann við, „að ástæða þess að Pa-
lestínumenn sóttu um inngöngu í
Alþjóða heilbrigðisstofnunina er sú,
að skilyrðin fyrir inngöngu þar eru
ekki eins ströng og hjá Sameinuðu
þjóðunum. Miðað við gildandi þjóð-
réttarreglur var ekki hægt að verða
við beiðni Palestínumannanna en
hins vegar hafa um 80 ríki viður-
kennt ríki þeirra, þannig að þess
er trúlega ekki langt að bíða, að
þeim verði veitt aðild að stofnun-
inni.“
„Mér finnst skilyrðin fyrir inn-
göngu í stofnunina nokkuð hörð,
þegar ekki er hægt að veita Pa-
lestínumönnum aðild,“ heldur Ólaf-
ur áfram. „Þeir eru þjóð í augum
flestra og fáar þjóðir eða þjóðar-
brot eiga meira erindi þangað
vegna þess að ástandið í heilbrigð-
ismálum á Vesturbakka Jórdan og
á Gazasvæðinu er afar slæmt.
Ýmsar aðrar þjóðir eiga einnig að
mínu mati brýnt erindi inn í Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunina. Það er
til dæmis þversögn, miðað við til-
gang og markmið hennar, að úti-
loka Suður-Afríku eins og gert
hefur verið. Það hefur í för með
sér að hrikaleg heilbrigðisvandamál
þeldökkra íbúa landsins eru ekki
rædd innan hennar, þar sem ekki
er tekið á yanda þjóða, sem ekki
eiga aðild. Ég tel af þessum sökum,
að íslendingar eigi að beita sér
fyrir aðild sem flestra þjóða að
Álþjóða heilbrigðisstofnuninni.
Sjaldan hefur verið meiri þörf á
stofnuninni en nú, því ástand í
heilbrigðismálum fer versnandi í
mörgum þróunarlöndum,“ sagði
Ólafur Ólafsson landlæknir að lok-
um.
Játar íkveikju
á Stöðvarfirði
RÚMLEGA fertugnr maður hef-
ur við yfirheyrslur hjá rannsókn-
ardeild lögreglunnar í Suður-
Múlasýslu játað að hafa kveikt í
húsum Færabaks á Stöðvarfirði.
Eldur kom upp í húsunum sunnu-
daginn 28. maí sl.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar hafði maðurinn verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 12.
júní nk. vegna gruns um íkveikju.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um
frekara framhald málsins.
Til sölu í Borgarfirði
þessi 43 fm bústaður. 3 svefnherbergi. Skógi vaxið land.
Búslóð fylgir. Rafmagn væntanlegt á svæðið í sumar.
Verð 1,8 millj.
Upplýsingar í símum 93-11489 og 93-11940.
Tólfæringur í Hafharborg
„Á TÓLFÆRINGI" er yfirskrift myndlistarsýningar sem verður í
Hafoarborg, menningar- og listastofoun Hafoarfjarðar, frá 10. júní
til 7. ágúst i sumar. Þar sýna tólf myndlistarmenn sem feta ólíkar
brautir á listasviðinu. Tólftuenningarnir eru: Björg Örvar, Borg-
hildur Óskarsdóttir, Jón Axel Björnsson, Kristbergur Pétursson,
Magnúys Kjartansson, Margrét Jónsdóttir, Sigurður Örlygsson, Sóley
Eiríksdóttir, Steinunn Þórarinsdóttir, Steinþór Steingrímsson, Sverr-
ir Ólafsson og Valgerður Bergsdóttir. Á myndinni eru 8 af listamönn-
unum. Sýningin verður opin frá klukkan 14-19, alla daga nema
þriðjudaga.