Morgunblaðið - 09.06.1989, Side 18
ft
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989
íran eftir dauða Khomeinis:
Boða bætt samskipti við
Sovétmenn og Vesturveldin
Vilja semja við Bandaríkjamenn um gagnkvæma aðstoð
við að fá gísla í Líbanon leysta úr haldi
Teheran. Reuter.
ÍRANSKIR valdhafar gefa í skyn
að samskipti landsins við Sov-
étríkin og Vesturlandaþjóðir
verði framvegis með skaplegri
hætti en var í valdatíð Ayatollah
Khomeinis. Forseti íranska þings-
ins, Ali Akhbar Hashemi Rafsanj-
ani, sagði á blaðamannafundi i
gær að sljórnin í Teheran vildi
stuðla að lausn vestrænna gísla
úr haldi í Líbanon. Einnig gaf
hann í skyn að semja mætti um
að taka aftur morðhótun gegn
rithöfundinum Salman Rushdie
og loks að Khomeini hefði hvatt
til bættra samskipta við Sovétrík-
in, skömmu áður en hann lést.
Rafsanjani er talinn líklegur til
að hreppa forsetaembætti lands-
ins í ágúst.
Rafsanjani skýrði frá því að Iran-
ir myndu innan skamms semja við
Sovétmenn um víðtæka samvinnu í
efnahags- og menningarmálum,
meðal annars um byggingu vatns-
orkuvera. Hann sagði stjórnvöld fús
til að taka upp eðlileg samskipti við
Breta á ný en breska stjómin yrði
að banna bók Salmans Rushdies,
„Söngva Satans." Er Rafsanjani var
Ánægja með niðurstöðu
leiðtogafimdar NATO
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Varnarmálaráðherrar þeirra
Evrópuríkja, sem aðild eiga að
Atlantshafsbandalaginu (NATO),
héldu með sér fiind í Brussel á
miðvikudag og kom þar fram mik-
il ánægja með niðurstöðu leið-
togafúndar bandalagsins á dögun-
um. Þá var því einnig fagnað, að
íslendingar eru orðnir fastir þátt-
takendur í starfi Evrópuhópsins,
samstarfshóps Evrópuríkja innan
NATO.
Vamarmálaráðherra Tyrklands
hefur verið í forsæti fyrir Evrópu-
hópnum síðastliðið ár og kom fram
hjá honum og öðrum mikil ánægja
með niðurstöðu leiðtogafundar
NATO í síðustu viku og eininguna,
sem þá náðist með aðildarríkjunum.
Stríðið í Eþíópíu:
Mengistu vill semja
við Eritreumenn
Addis Ababa. Reuter.
SKÆRULIÐAR Eritreumanna höfhuðu í gær boði Mengistu Haile
Mariams, forseta Eþfópíu, um friðarviðræður. Sögðu þeir að skilyrði,
sem forsetinn setti fyrir viðræðum, þ.e. að ekki skyldi rætt um sjálfstæð-
iskröfúr Eritreumanna, væru óaðgengileg.
Mengistu reynir að styrkja völd frá kröfunni um sjálfstæði Eritreu.
sín eftir misheppnaða valdaránstil-
raun fyrir þremur vikum og boð hans
um að efna til friðarviðræðna við
uppreisnarherinn í Eritreu, til að
binda enda á borgarastyijöldina í
landinu, sem staðið hefur í 28 ár,
var liður í þeim tilraunum hans.
Hann sagðist ekki setja önnur skil-
yrði fyrir viðræðunum en þau, að
hann hafnaði algjörlega kröfum Eri-
treumanna um sjálfstæði. Hefur það
verið aðalkrafa Eritreumanna og því
sjálfgert að hafna boði forsetans, að
sögn fréttaskýrenda. Talsmenn
skæruliða sögðu að ekki yrði fallið
Stjómarerindrekar í Addis Ababa
segja að tillagan sé mesta tilslökun
Mengistu til þessa. Hún var sam-
þykkt samhljóða á eþíópíska þinginu.
Alls eru 183 háttsettir foringjar í
Eþíópíuher í haldi vegna valdaránst-
ilraunarinnar í síðasta mánuði. Ein
af helstu kröfum uppreisnarmann-
anna var að stjómin bindi enda á
stríðið í Eritreu. Mikillar óánægju
gætir innan stjómarhersins með
stríðið og hefur herinn orðið fyrir
miklum skakkaföllum í því undanfar-
in ár.
Þá minntist hann sérstaklega á þátt-
töku íslendinga í fundinum og sagði
hana vera til marks um það öfluga
starf sem væri unnið á vegum Evr-
óþuhópsins.
Róbert Trausti Ámason, áheym-
arfulltrúi íslensku sendinefndarinnar
hjá NATO, sótti fundinn að þessu
sinni. Helstu viðfangsefni Evrópu-
hópsins hafa verið að stuðla að aukn-
um upplýsingum um framlög Evr-
ópuþjóðanna til sameiginlegra varna
og reyna að bæta nýtingu þess fjár,
sem til þeirra er veitt. Hefur fulltrúi
íslands aðeins einu sinni áður sótt
fund hópsins.
1. júlí nk. mun spænski vamar-
málaráðherrann taka við formennsku
Evrópuhópsins en hann kemur reglu-
lega saman fyrir fund vamarmála-
ráðherranna í vamaáætlananefnd
bandalagsins.
í gær kom hermálanefnd Atlants-
hafsbandalagsins saman til fundar í
Bmssel og að honum loknum sagði
formaður hennar, Wolfgang Alten-
burg, að stefnt væri að því að leggja
tillögur leiðtogafundarins fram í
Vínarborg í september. Sagði hann,
að um væri að ræða flókið mál, sem
NATO-ríkin 16 yrðu að ná samkomu-
lagi um, og nauðsynlegt að meta vel
hvaða áhrif tillögurnar hefðu á vam-
ar- og öryggismál vestrænna ríkja.
Sagði Altenburg, að tímamörkin,
sem kveðið væri á um í tillögunum,
lýstu vissulega nokkurri bjartsýni en
væru þó alls ekki óraunhæf. Áheyrn-
arfulltrúi íslands á þessum fundi
hermálanefndarinnar var Þorsteinn
Ingólfsson sendiherra, skrifstofu-
stjóri varnarmálaskrifstofu utanrík-
isráðuneytisins.
spurður hvort hvatning Khomeinis
um að drepa Rushdie væri enn í
gildi svaraði hann: „Enginn mun
andmæla skoðunum imamins [Kho-
meinis]“. Hann sagði að hvatningin
væri í samræmi við trú múslima og
Khomeini hefði orðið að láta hana
í ljós. Kalim Siddiqui, forstöðumaður
stofnunar múslima í London, sagði
eftir að hafa rætt við íranska leið-
toga að lokinni útför Khomeinis að
þeir myndu ekki taka hvatningu
Khomeinis beinlínis aftur en væru
reiðubúnir að láta málið niður falla.
Um gíslamálið sagði þingforset-
inn: „Ef Bandaríkjamenn, sem hafa
meiri áhrif en við á kristna falang-
ista í Líbanon, leggja sitt af mörkum
til að fá okkar gísla leysta úr haldi,
munum við reyna að aðstoða Banda-
ríkjamenn.“ Irönsku gíslarnir eru
sagðir þrír en alls eru nú níu Banda-
ríkjamenn í haldi í Líbanon og talið
að margir þeirra séu á valdi skæru-
liða sem styðja írana.
Rafsanjani er talinn hafa sann-
fært Khomeini á sínum tíma um að
semja yrði vopnahlé við íraka í Pers-
aflóastríðinu. Þingforsetinn sagði
Irana vilja gera friðarsamning en
ekki kæmi til greina að slá af kröf-
um á hendur Irökum. Klerkastjórnin
Reuter
Ali Akhbar Rafsanjani á blaða-
mannafúndinum. „Breska sljórn-
in verður að banna bók Salmans
Rushdies."
í Teheran krefst þess að írakar dragi
herlið sitt á brott frá 2.600 ferkíló-
metra írönsku landsvæði við landa-
mæri ríkjanna en írakar heimta að
strax verði hafist handa við að fjar-
lægja brak og skipsflök frá siglinga-
leiðinni Shatt al-Arab. Ekkert hefur
miðað á fjórum samningafundum
ríkjanna um frið.
Rafsanjani sagði stjórnina vilja
bætta sambúð við önnur ríki við
Persaflóa og hefði fengið jákvæð
svör við þeim málaleitunum frá þeim
öllum að Saudi-Arabíu undanskil-
inni. í erfðaskrá sinni fordæmdi
Khomeini Fahd, konung Saudi-
Arabíu.
Sovétmenn saka
Breta um hleranir
Lundúnum. Daily Telegraph.
SAMSKIPTI Bretlands og Sovétríkjanna versnuðu enn um síðustu
helgi er starfsmenn sovéska sendiráðsins i Lundúnum sökuðu bresk
yfirvöld um að hafa komið hlerunarbúnaði fyrir í viðskiptaskrifstofú
Sovétrikjanna og á heimilum 20 Sovétmanna þar í borg. Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra Breta, vísaði þessum ásökunum á bug og
gaf í skyn að Sovétmenn hefðu sjálfir komið hlerunarbúnaðinum fyrir.
Ásakanir Sovétmanna nu eru
nýjasta uppákoman í milliríkjadeilu
Sovétríkjanna og Bretlands sem
staðið hefur í tvær vikur. Hún hófst
með því að Bretar ráku 11 sovéska
borgara úr landi fyrir njósnir.
Kremlveijar svöruðu með því að
reka jafn marga Breta heim.
Sovéskir sendiráðsstarfsmenn
buðu blaðamönnum í ökuferð á
laugardag til að sýna þeim hler-
unarbúnaðinn á heimilum þeirra. Á
fréttamannafundi voru síðan sýnd
tól og tæki sem sovéskir iðnaðar-
menn hefðu fundið í byggingu við-
skiptaskrifstofu Sovétríkjanna.
Sovétmennirnir vildu ekki gefa upp
hvenær búnaðurinn fannst en sögðu
að honum hlyti að hafa verið komið
fyrir þegar húsið var reist fyrir 15
árum.
Ízvestía, málgagn sovéskra
stjómvalda, hélt því fram á sunnu-
dag að ungur drengur og ungur
starfsmaður fréttastofunnar Nov-
osti hefðu látist af völdum hlerunar-
búnaðarins vegna þess hve sterkum
útvarpsgeisla væri beint að hlustun-
artækjunum úr höfuðstöðvum
bresku gagnnjósnadeildarinnar.
Yíetnam:
Sá Banda-
ríkjamenn
í fangelsi
Tokýó. Reuter.
JAPANSKUR munkur, Iwanobu
Yoshida að nafni, sem nýlega
slapp úr fangelsi í Víetnam eftir
13 ára vist, segir að bandarískir
hermenn hafi setið með sér í
prísundinni.
Yoshida, sem haldið var föngn-
um af pólitískum ástæðum, segir
að fimm eða sex bandarískir fang-
ar hafi verið á lífi í fangelsinu í
Hanoi þegar hann var látinn laus
í janúar síðastliðnum en nokkrir
hafi látist af völdum barsmíða og
pyndinga.
Víetnömsk stjómvöld hafa
ítrekað sagt bandarískum yfir-
völdum að engir bandarískir fang-
ar séu þar í landi og hafa þau
vísað frásögn Yoshidas á bug.
Fulltrúaþingið
samþykkir Ryzh-
kov
Moskvu. Reuter.
Fulltrúaþing Sovétríkjanna
staðfesti í gær kosningu Nikolajs
Ryzhkovs í embætti forsætisráð-
herra Sovétríkjanna. Daginn áður
hafði Æðsta ráðið endurkjörið
Ryzhkov til starfans sem hann
hefur gegnt undanfarin ár. Yfir-
gnæfandi meirhluti fulltrúaþings-
manna greiddi Ryzhkov atkvæði
sitt en þó vom 59 á móti og 87
sátu hjá.
Synti í frelsið
Dannenberg. Reuter.
UNGUR Austur-Þjóðveiji synti
frá Austur-Þýskalandi til Vestur-
Þýskalands yfir Saxelfi í gær.
Félaga hans fataðist sundið og
var handtekinn af austur-þýskum
landamæravörðum. Á miðvikudag
var greint frá því að fjögurra
manna austur-þýsk fjölskylda
hafði með hjálp stiga komist yfir
víggirðingu á landamæmnum við
Bæjaraland.
Havel verðlaun-
aður
Frankfúrt. Reuter.
Áreiðanlegar heimildir em fyrir
því að tékkneska skáldið Vaclav
Havel fái verðlaun á hinn árlegu
bókasýningu í Frankfurt sem
haldin verður um miðjan október.
Havel er einn kunnasti andófs-
maður í Tékkóslóvakíu og er ný-
sloppinn úr fangelsi eftir 4 mán-
aða vist. Vonir standa til að tékk-
nesk yfirvöld veiti skáldinu Ieyfi
til að veita verðlaununum viðtöku.
Kópaskinnsbann
framlengt
Lúxemborg. Reutcr.
Evrópubandalagið (EB) fram-
lengdi í gær bann við sölu á afurð-
um úr kópaskinni. Þessi ákvörðun
sem kunngjörð var á fundi um-
hverfísmálaráðherra EB í Lúxem-
borg vakti mikla gleði í hópi 100
dýravina sem þar voru saman-
komnir. Tímabundið bann hefur
verið í gildi undanfarin 6 ár en
nú hefur það verið sett til fram-
búðar.
Færeyjar:
Fiskverði
haldið uppi
Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
TEKIST hefúr að tryggja í bili
áframhaldandi styrk Iandsstjórn-
arinnar við ferskfisklandanir í
Færeyjum en vegna stjórnar-
kreppunnar er ekki fjóst hvað
við tekur að þeim tíma foknum.
Um síðustu mánaðamót varð
mikið verðfall á fiski, sem landað
var í Færeyjum, vegna þess, að þá
mistókst landsstjórninni að tryggja
sjávarútveginum aukin framlög
með frumvarpi um tolla- og skatta-
hækkanir. Var verðið á sumum fisk-
tegundum ekki nema helmingur af
því, sem verið hefur frá áramótum.
Með tilfærslu innan fiárlaga hefur
þó verið tryggt sama verð fyrir fisk-
inn út júlí en þessar níðurgreiðslur
kosta landsstjómina á tveimur mán-
uðum rúmlega 600 milljónir ísl. kr.
Hér er þó aðeins um gálgafrest
að ræða og ný landsstjóm fær ekki
langan tíma til að útvega fé fyrir
ferskfiskinn það sem eftir er af
árinu.