Morgunblaðið - 09.06.1989, Blaðsíða 26
26
M0RGT3NBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR '9J OTNÍ'1989
AKUREYRI
Nýliðar á námskeiði hjá KEA.
Kaupfélag Eyfírðinga:
Nýliðar á námskeiði
NÁMSKEIÐ fyrir allflesta þá sem
eru að hefja störf hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga í sumar voru haldin á
Hótel KEA nýlega. Tæplega 50
manns sóttu námskeiðin. „Þetta
er liður í þeirri viðleitni Kaup-
félags Eyfirðinga að efla íræðslu
meðal starfsmanna og ekki síst
V erkmenntaskólinn
á Akureyri:
Liðlega 850
umsóknir
LIÐLEGA 850 umsóknir hafa-
borist um skólavist í Verk-
menntaskólanum á Akureyri
fyrir næsta skólaár. Síðasta
haust settist 921 nemandi í
skólann.
Baldvin Bjarnason skólameist-
ari sagði ekki ólíklegt að fleiri
umsóknir ættu eftir að berast, en
þessi hópur væri ósköp passlegur
miðað við það húsnæði sem skólinn
hefði til umráða.
Baldvin sagði að nokkur breyt-
ing hefði orðið á varðandi þær
brautir sem nemendur sækja á,
en hingað til hefðu langflestir sótt
um viðskiptabraut. Nú hefði það
hins vegar gerst að dregið hefði
úr ásókn á þeirri braut, en þeim
nemendum sem sækja um heilsu-
gæsiu-, uppeldis- og matvæla-
braut fjölgað um helming.
þeirra sem eru að hefja störf,“
sagði Áskell Þórisson blaðafull-
trúi.
Áskell sagði að rætt hefði verið
um hvernig best væri að haga kynn-
ingu á kaupfélaginu á meðal nýliða
og að þessu sinni hefði það verið
byggt upp þannig að nýliðum var
gerð grein fyrir uppbyggingu og
starfsemi félagsins. Að því loknu
tóku við tveir sálfræðingar, en þeir
fjölluðu í máli og myndum um mann-
leg samskipti frá ýmsum sjónar-
hornum. Fulltrúi frá starfsmannáfé-
lagi fræddi nýliða um það og síðan
tók sjúkraþjálfari við mannskapnum
og ræddi um nauðsyn þess að fóik
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf.
gengst fyrir námstefhu um ferða-
mál á Hótel KEA í dag, fostudag,
og hefst hún kl. 10.00.
Námstefnan hefst á kynningu Sig-
urðar P. Sigmundssoar fram-
kvæmdastjóra Iðnþróunarfélagsins á
nýjum áhersluþáttum í starfsemi fé-
lagsins, en erindi hans ber heitið:
Ferðamál — Vaxtarbroddur framtíð-
ar?
Umfang og þýðing ferðaþjónustu
fyrir Eyjafjarðarsvæðið er heiti er-
indis Þorleifs Þórs Jónssonar, en
hann hefur nýlega tekið við starfi
ferðamálafulltrúa Iðnþróunarféiags-
ins og er ætlað að vinna að eflingu
á stöðu Eyjafjarðarsvæðisins í ferða-
málum.
stæði og sæti rétt til að fyrirbyggja
atvinnusjúkdóma.
Umfangsmiklum námskeiðum fyr-
ir alla starfsmenn félagsins, tæplega
eitt þúsund að tölu, er nýlokið, en
þar var um að ræða námskeiðið fólk
í 'fyrirrúmi _ sem Stjórnunarfélagið
stóð fyrir. Áskell sagði að frekara
námskeiðshald væri fyrirhugað, en í
haust mun Magnús Ólafsson sjúkra-
þjálfari taka nokkra vinnustaði fyrir
og kenna starfsfóiki rétta líkams-
beitingu við störf. Einnig er ætlunin
að að gefa fólki sem komið er yfir
ákveðinn aldur kost á því að sitja
námskeið sem fjaliar um starfslok
og efri ár.
Að loknum hádegisverði talar
Bjami Sigtryggsson markaðsfræð-
ingur um ferðamenn. Hvað vilja þeir,
hvernig á að ná til þeirra? heitir er-
indi hans. Síðastur talar Reynir
Adolfsson ferðamálafulltrúi Vest-
Norden nefndarinnar og ræðir hann
um samstarf aðila í ferðaþjónustu
m.a. í tengslum við ferðakaupstefn-
ur.
Geysis-
kvartettinn
syngur í
Slgólbrekku
Geysiskvartettinn frá Akureyri,
sem nýverið hélt söngskemmtun í
Akureyrarkirkju við ágæta aðsókn
og góðar, undirtektir syngur í Skjól-
brekku í Mývatnssveit næstkom-
andi sunnudag kl. 21. Á söng-
skránni eru lög sem almenningur
hefur haft dálæti á áratugum sam-
an. I fréttatilkynningu frá Geysis-
kvartettinum segir að alltaf sé
keppikefli að syngja í Mývatns-
sveit, þar sé mikið af söngunnend-
um sem láta þakklæti sitt óspart í
ljós.
Ferming
í Grímsey
Fermingarguðsþjónusta verður í
Miðgarðakirkju í Grímsey sunnu-
daginn 11. júní næstkomandi og
hefst hún kl. 14.00. Fermd verður
Hulda Signý Gylfadóttir, Sól-
brekku, Grímsey. Séra Pálmi Matt-
híasson fermir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
FSA fær gjöffrá Krúttmagakonum
Krúttmagakonur hafa gefið tveimur deildum Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri, lyija- og handlækningadeild, sjónvarpstæki og örbylgju-
ofn, en gjöfin var afhent fyrir skömmu. Krúttmagakvöld hafa verið
haldin á hverju vori um 6 ára skeið og hefúr ágóðanum af þeim
verið varið til líknarmála. Krúttmagakonur hafa m.a. gefið sónar-
tæki, baðlyftara og tekið þátt í kaupum á krabbameinsleitartæki.
Myndin var tekin við afhendingu tækjanna, en á henni eru krúttmaga-
konur ásamt læknum og framkvæmdastjóra FSA.
Iðnþróunarfélag Eyjagarðar:
Námstefiia um ferðamál
Sauðárkrókur:
Gnmnskólanum slitið
GRUNNSKÓLUNUM á Sauðár-
króki, sem nú heita Barna- og
gagnfræðaskóli, var slitið 24. og
27. maí. Við báða skólana störf-
uðu í vetur 32 kennarar í hluta-
stöðum og heilum stöðum og
nemendur voru í Barnaskóla 254
og í Gagnfræðaskóla 245. Að
venju var mjög fjölmennt við
skólaslit, viðurkenningar veittar
fyrir góðan námsárangur og
skólunum færðar gjafir. Við
skólaslit Gagnfræðaskólans
mættu fulltrúar eldri útskriftar-
árganga og ávörpuðu nemendur
og gesti.
Við skólaslit Barnaskóians af-
henti frú Steinunn Erla Friðþjófs-
dóttir skólanum að gjöf myndvarp-
atjöld í allar stofur skólans frá
Kvenfélagi Sauðárkróks, þá færðu
félagar í Skátafélaginu Eilífsbúum
skólanum að gjöf orðabækur og
spil, og foreldra- og kennarafélag
skólans, sem starfaði vel á skólaár-
inu, gaf skyggnusýningarvél svo
og mikinn fjölda bóka og spila.
Þakkaði Björn Björnsson skóla-
stjóri þessar gjafir og sérstaklega
þann hug sem þeim fylgdi.
Við skóiaslit Barnaskólans er
það nú orðinn árviss atburður að
Ungmennafélagið Tindastóll og
verslunin Tindastóll færa öllum
nemendum forskóiadeiidar vandað-
an fótbolta að gjöf. Ávarpaði Bjarni
Jóhannsson þjálfari hina ungu
boltaeigendur og hvatti þá til úti-
veru og íþrótta. Vakti þessi gjöf
mikinn fögnuð þeirra sem hennar
fengu að njóta.
Óskar Jónsson læknir ávarpaði
skólastjóra og gesti fyrir hönd
þeirra nemenda skólans sem út-
skrifuðust fyrir 30 árum. Afhenti
hann skólanum að gjöf bókaflokk-
inn Landið þitt ísland eftir Þor-
stein Jósefsson. Friðrik Margeirs-
son fyrrverandi skólastjóri rakti í
örfáum orðum tildrög þess að
stofnaður var Gagnfræðaskóli á
Saúðárkróki og afhenti Bimi Sigur-
björnssyni skólastjóra Minningar-
sjóð um séra Helga Konráðsson
sem hafði frumkvæðið að stofnun
skólans. Þá afhenti Friðrik skólan-
um að gjöf Ferðabók Eggerts og
Bjarna, tii minningar um, að í ár
eru 40 ár frá því að hann hóf störf
við Gagnfræðaskóiann.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Björn Sigurbjörnsson skóla-
stjóri ávarpar gesti við skóla-
slit. Þar var aflientur minning-
arsjóður um sr. Helga Konráðs-
son.
Frú Ragnhildur Helgadóttir,
dóttir sr. Helga Konráðssonar,
þakkaði þann sóma sem minningu
föður hennar væri sýndur. Færði
hún skólanum að gjöf gott safn
handbóka til minningar um föður
sinn.
Fulltrúi þeirra nemenda sem út-
skrifast úr 9. bekk, Kristján Krist-
jánsson, færði umsjónarkennara
bekkjarins blóm og einnig þeim
kennurum sem fóru með bekknum
í nýafstaðna skólaferð. Þá færðu
9. bekkingar skólanum að gjöf Fjöl-
fræðispil til þess að auka á
víðfeðma þekkingu nemenda og
fráfarandi húsverði Snorra Jó-
hannssyni færðu þeir 9. bekkingar
forláta hengirúm með þeim um-
mælum að hann ætti það inni að
geta hvílst vel eftir langt og lýj-
andi starf, enda kvaddur með sár-
um söknuði.
Björn Sigurbjörnsson þakkaði
þær ágætu gjafir sem skólanum
höfðu borist og afenti þeim Snorra
Jóhannssyni húsverði og Friðrik
Margeirssyni biómakörfur, en Frið-
rik varð sjötugur þann 28. maí.
Að þessum þætti dagskrár lokn-
um hlutu nemendur viðurkenningar
fyrir ágætan námsárangur og voru
verðlaun þessi gefin m.a. af norska,
danska og sænska sendiráðinu,
Kaupfélagi Skagfirðinga, Rotary-
klúbbi Sauðárkróks og Sambandi
skagfirskra kvenna.
- BB
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Blásarar úr yngri deild tónlistarskólans leika við skólaslit.
Nemendur tónlistar-
skólans 174 í vetur
Sauðárkróki.
ÞRIÐJU og síðustu nemendatón-
leikar Tónlistarskólans á Sauð-
árkróki fóru fram að kvöldi ann-
ars í hvítasunnu, þann 15. maí
síðastliðinn. Þar komu fram
nemendur söngdeildar, sem nú
var starfrækt í fyrsta sinn við
skólann. Kennari var Helga
Baldursdóttir. Auk þess komu
fram eldri nemendur og léku
einleik og samleik á ýmis hljóð-
færi.
í vikunni fyrir hvítasunnu voru
tvennir tónleikar þar sem fram
komu margir þeirra sem nám
stunduðu í skólanum í vetur, meðal
annars blásarasveitir eldri og yngri
deildar og einnig jazz-band skólans
sem lék nokkur lög. Þá söng einn-
ig barnakór undir stjórn Rögn-
valdar Valbergssonar.
Á síðustu tónleikunum var kaffi-
sala og nutu gestir glæsilegra veit-
inga sem kennarar og nemendur
sáu um, en ágóði af þessari kaffi-
sölu mun renna til kaupa á hljóð-
færum fyrir skólann.
Mikil starfsemi var í vetur utan
skólans og komu nemendur' hans
fram og léku við ýmis tækifæri.
Þá tóku blásarar úr eldri deild þátt
í Lúðrasveitamóti sem haldið var á
Seltjarnamesi nú í vor.
Kennarar við Tónlistarskólann á
Sauðárkróki voru á skólaárinu
fimm auk skólastjórans frú Evu
Snæbjarnardóttur, og nemendur á
haust og vorönn voru 174.
- BB