Morgunblaðið - 09.06.1989, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989
27
Stiörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hœfileikar
Tvíburans
í dag er það umfjöllun um
hæfíleika Tvíburamerkisins
(21. maí — 20.júní). Einungis
er fjallað um hið dæmigerða
merki og um mögulega hæfí-
leika, því hver maður verður
að rækta hæfíleika sína.
Fjölhœfur
Hinn dæmigerði Tvíburi er
fjölhæfur og hefur hæfíleika
til að fást við margt á sama
tíma. Sumir fyllast streitu ef
mikið er að gerast en Tvíbur-
anum líður vel undir slíkum
kringumstæðum. Hann er
fljótur að aðlagast nýju um-
hverfí og eru aðlögunarhæfni
og sveigjanleiki meðal hæfí-
leika hans. Tvíburinn getur
því fengist við fleira en eitt
starf með góðum árangri.
Snerpa
Tvíburinn á auðvelt með að
skipta um vitsmunalegan gír
og býr yfír andlegri snerpu.
Hann er fljótur að hugsa og
snöggur að átta sig á nýjum
aðstæðum.
Fordómalítill
Annar hæfíleiki Tvíburans er
fólginn í fordómaleysi og
opnum huga. Hann er forvit-
inn og lokar ekki á hið nýja.
Hann er opinn, og lærdóms-
fiis.
Rökfastur
Tvfburinn er loftmerki, merki
hugsunar, sem táknar að
hann er að öllu jöfnu skyn-
samur og reynir að leysa mál
útfrá rökfastri skynsemi.
Hann hefur t.d. hæfíleika til
að láta hugsun stjóma til-
finningum, eða getur a.m.k.
séð tilfínningar sínar í meiri
fjarlægð en margur og á því
möguleika á að komast að
skynsamlegum niðurstöðum.
Félagslyndur
Tvíburinn er félagslyndur.
Hann er að öllu jöfnu léttur
og jákvæður í fasi og fram-
komu, vingjamlegur og af-
slappaður. Hann á því auð-
velt með að lynda við fólk
og á auðvelt með að ná til
flest allra. Einn helsti hæfí-
leiki Tvíburans liggur því á
félagslegum sviðum. Hann
er gðour í samstarfi, vill
vinna með öðmm og er þægi-
legur félagi. Tvíburinn býr
sjaldan til vandamál og gerir
lítið af því að abbast upp á
náungan með leiðindum.
Hann er friðsamur.
Tungumál
Tvíburinn er fyrst og fremst
merki fjáskipta og upplýs-
ingamiðlunar. Þvi hefur hinn
dæmigerði Tvíburi hæfíleika
til tungumálanáms og á svið-
um tjáskipta. Hvað varðar
tungumál hefur Tvíburinn
engan sérstakan áhuga á
málfræði en er hins vegar
fljótur að gripa tungumálið
sjálft.
Upplýsingamiðlun
Segja má að Tvíburinn hafí
hæfíleika á sviðum sem krefj-
ast hugmyndalegrar vinnu.
Hann á auðvelt með að leika
sér að hugtökum, hugsa og
ræða málin. Margs konar
fjölbreytileg skrifstofustörf
eiga því vel við Tvíburann.
Hann getur notið sín í
kennslu, í blaðamennsku,
fjölmiðlun eða annarri upp-
lýsingamiðlun. Tvíburinn er
oft góður í síma og hefur
hæfíleika til að starfa við
skiptiborð, eða að selja vöru
í gegnum síma. Sölumennska
á vel við marga Tvíbura. Að
tala og miðla er einn helsti
hæfíleiki hans. Hvemig þetta
birtist hjá hveijum og einum
er síðan einstaklingsbundið,
enda er hver maður samsett-
ur úr nokkrum merkjum.
GARPUR
EM AFOfSW HAHÐCTAXLS
GAMGA EKJC! UPP . í
HÖLLU /ZAUNPÓPS KOMUNGS .
GRETTIR
BRENDA STARR
í VATNSMÝRINNI
FERDINAND
SMÁFÓLK
Við vorum að fá ritgerðina
aftur. Ég þoli ekki að horfa
á þetta.
WE JU5T 60T OUR
TE5T BACK..I MATE
TO LOOK...
I MOPE I PIPN'T
6ET A P-MINU5..
Ég vona að ég hafi ekki
fengið mínus.
THEV5AVA P-MINUS
CAM IMPAlRTHE FUNCTION
OF VOUR. IMMUNE 5VSTEM
AMP PI5RUPT THE CHEMICAL
5ALANCE OFVOUR BOPV..
Það er sagt að mínus geti
haft áhrif á ónæmiskerfíð
í manni og ruglað efiia-
skipti líkamans.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
NS komast í ágætt geim á
5—2 samlegu í trompi, en það
virðist þó dæmt til að tapast
eins og legan er.
Avjstur gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ KG732
V G5
♦ 852
♦ ÁD2
Vestur
496 iiiiu
V10872
♦ G973
♦ 743
Austur
♦ ÁD85
VÁ3
♦ KD1064 .
♦ 96
Suður
♦ 104
¥ KD964
♦ Á
♦ KG1085
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 tígull 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 2 lauf
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass Pass 4 hjörtu Pass Pass
I tspil: tívulsjö.
Með útkomu í spaða tapast
spilið á augabragði. En með
lengd í trompinu er eðlilegt að
vestur vilji spila styttingsvöm.
Flestir spilarar væru ekki
höndum seinni að spila hjarta á
gosann, strax í öðmm slag. Af-
leiðingin: einn niður og ekkert
við því að segja — legan er vörn-
i’nni í hag.
Allt rétt, en kannski getur
sagnhafí aukið vinningshorfur
sínar með því að fara inn á blind-
an á lauf og spila hjartagosanum
þaðan. Það er aldrei að vita
nema austur dúkki, og þá slær
ásinn hans vindhögg í næsta
slag.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stóra opna mótinu í Moskvu
um
daginn kom þessi staða upp í skák
ungs sovézks skákmanns, Mina-
sjan, sem hafði hvítt og átti leik,
og hins kunna stórmeistara, Tony
Miles. Áður en Miles gafst tæki-
færi á að treysta stöðu sína með
21. — Rh6-f5 fékk hann á sig
þrumuleik:
21. Bxg6+! - Kxg6 22. Rf4+ -
Kf7 23. Dh5+ - Kg8 24. Rxe6
- De8 25. Hdgl! (Með þessum
laglega leik, sem Miles hefur e.t.v.
yfírsést, viðheldur hvítur sóknar-
þunganum) 25. — Bf8 26. Dxh3
- Rf7 27. Df5 - Hc8 28. Hxh8+
- Rxf8 29. Rxg7! - Bxg7 30.
Bh6 — Hcl+ (Lengir eigin þján-
ingar um einn leik) 31. Kxcl og
svartur gafst upp.