Morgunblaðið - 09.06.1989, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989
ATVI NNlf A UGL YSINGA R
Verkstjóri
Verktakafyrirtæki óskar eftir reyndum verk-
stjóra við byggingaframkvæmdir. Meistara-
réttindi áskilin.
Umóknir óskast sendar auglýsingadeild Mbl.
fyrir 16. júní merktar: „S - 893“
Holtaskóli, Keflavík
Næsta skólaár eru lausar fjórar kennarastöð-
ur, m.a. í ensku, íslensku, samfélagsfræði,
stærðfræði og raungreinum.
í skólanum eru u.þ.b. 500 nemendurfrá 6.-9.
bekkjar og kennarar um 30.
Einnig vantar íþróttakennari drengja.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 92-15597
og yfirkennari í síma 92-15652.
Skólanefnd.
Skólastjórar,
Reykjavíkursvæðinu
Tveir kennarar óska eftir kennslustarfi næsta
vetur. Margt kemur til greina.
Upplýsingar gefur Inga í síma 651065 og
Guðrún Ásta í síma 41388.
Kennarar takið eftir
Ef ykkur vantar gott starf, þá er staða skóla-
stjóra við Barnaskólann í Skúlagarði í Keldu-
hverfi laus til umsóknar. Einnig vantar kenn-
ara við sama skóla. Góðar íbúðir og þægileg
vinnuaðstaða.
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 26. júní.
Allar nánari upplýsingar gefur formaður
skólanefndar Ingveldur Árnadóttir í síma
96-52292.
Tek að mér þrif
í heimahúsum. Traustur starfskraftur óskar
eftir vinnu hálfan daginn.
Upplýsingar í síma 72585.
Fóstrur
ísafjarðarkaupstaður auglýsir lausa til um-
sóknar stöðu forstöðumanns við leikskólann
og dagheimilið Eyrarskjól á ísafirði. Jafnframt
er auglýst laus til umsóknar staða fóstru hjá
kaupstaðnum. Um hlutastarf eða fullt starf
getur verið að ræða. í boði er íbúð á vegum
kaupstaðarins og mun verða tekið þátt í
kostnaði vegna flutnings á búslóð.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
Eyrarskjóls í síma 94-3685 og undirritaður á
bæjarskrifstofunni eða í síma 94-3722.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
RAÐA UGL YSINGAR
TIL SOLU
Málverk - tvær stórar
Til sölu tvær Kjarvalsmyndir.
Bláskógarheiðin - 220 x 120 cm - olía - 1932.
Rauðakúla við Rauðamel - 150 x 110 cm -
olía - ca 1955.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Bárður Halldórsson,
símar 17374 og 611374.
Til sölu tré, runnar, rósir
Bergfura, stafafura og sitkagreni 0,5-1,5 m.
Alaskaösp 1-3,5 m. Ennfremur gljámispill,
gullregn, hengilbaunatré og Hansarós frá kr.
200. Sjaldgæfar tegundir, fjölbreytt úrval.
Birki, ösp, stafafura og lerki fyrir sumarbú-
staðaeigendur. Allar plöntur á hagstæðu verði.
Opið frá kl. 15-20 mánudaga-föstudaga og
frá kl. 10-20 laugardaga og sunnudaga.
Garðplöntusalan, Bjarkarholti 2,
Mosfellsbæ, sími 667315.
ísleifur Sumarliðason.
ÓSKAST KEYPT
IBM S/36
Óskum eftir að kaupa eftirtalda hluti í IBM
S/36:
Tengibúnað fyrir fjartengilínu í 5362.
Tengibúnað fyrir viðbótartæki (7-28 tæki) í
5362.
Minnisspjald 512 KB í 5360.
Vinsamlegast hafið samband við Ragnar
Pálsson, Tölvuþjónustu Sambandsins, í síma
681266.
SAMRAND ÍSL.SAMVINNUFÉUGA
KENNSIA
Stýrimannaskólinn í
Reykjavík
Innritun fyrir skólaárið 1989-1990 er daglega
frá kl. 08.00-14.00 í síma 13194.
Þeir, sem hafa fengið umsóknareyðublöð,
eru beðnir um að senda útfylltar umsóknir
til skólans fyrir 10. júní nk.
Skólinn verður settur 1. september.
Skólastjóri.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til sölu
mjög vel staðsett húsnæði með vel innrétt-
aðri hárgreiðslustofu. Góð greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 78167.
Þorlákshöfn
Til sölu lítið þjónustufyrirtæki í Þorlákshöfn
í eigin húsnæði 350 fm. Fyrirtækið er í bíla-
þjónustu, aðalega hjólþörðum og smurstöð
ásamt fleiru.
Nánari upplýsingar í síma 98-33578 virka
daga frá kl. 8.00-19.00.
Atvinnuhúsnæði -
Ártúnshöfða
Til leigu verslunar- og/eða iðnaðarhúsnæði.
Grunnflötur 480 fm. MilJiloft 260 fm. Malbik-
að útisvæði 720 fm. Tvennar stórar inn-
keyrsludyr. Lofthæð að hluta allt að 51/2 m.
Laust strax.
Upplýsingar í síma 623262 frá kl. 8.00 til
18.00 virka daga.
FUNDIR - MANNFA GNAÐIR
Aðalfundur
Grensássafnaðar verður haldinn i Grensás-
kirkju mánudaginn 12. júní 1989 kl. 17.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ákvörðun um kirkjubyggingu.
3. Önnur mál.
Sóknarnefndin.
LÖGTÖK
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúr-
skurði, uppkveðnum 6. þ.m., verða lögtök lát-
in fara fram fyrir vangoldnum opinberum gjöld-
um utan staðgreiðslu, sem féllu í gjalddaga
1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní
1989.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöld-
um, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða
hafin að átta dögum liðnum frá birtingu þess-
arar auglýsingar, verði tilskyldar greiðslur
ekki inntar af hendi innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið
í Reykjavík, 6. júní 1989.
Auglýsing um lögtökfyrir
fasteigna- og brunabóta-
gjöldum íReykjavík
Að kröfu gjaldheimtustjórans, f.h. Gjald-
heimtunnar í Reykjavík og samkvæmt fógeta-
úrskurði, uppkveðnum 6. þ.m., verða lögtök
látin fara fram til tryggingar ógreiddum fast-
eignasköttum og þrunabótaiðgjöldum 1989.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöld-
um, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, hefj-
ast að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd
innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
6. júní 1989.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
L
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
frágang lóðar umhverfis stjórnstöð fyrirtæk-
isins á Bústaðavegi 7 í Reykjavík í samræmi
við útboðsgögn nr. 0212.
Útboðsgögn verða afhent frá og með
fimmtudeginum 8. júní 1989 á skrifstofu
Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103
Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að upp-
hæð kr. 1.000,-.
Lóðin er samtals um 4.900 m2og felst verk-
ið m.a. í frágangi á jarðvegsyfirborði, gróður-
setningu trjáa og runna, lagningu gangstíga,
lagningu snjóbræðslukerfis, malbikun bíla-
stæða, setja upp lýsingu og annast viðhald
lóðar fram til haustsins 1992.
Miðað er við að verkið geti hafist 26. júní
nk. og að 1. verkáfanga verði lokið fyrir 15.
september nk.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjun-
ar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, föstu-
daginn 16. júní fyrir kl. 10.30, en tilboðin
verða opnuð þar sama dag kl. 11.00 að við-
stöddum bjóðendum.
Reykjavík, 6. júní 1989.