Morgunblaðið - 09.06.1989, Page 40
40*
úö'kgunMdíð' ÍÞRÓÍffift
4
IÞROTTADAGURINN -10. JUNI
Hreyfing til
heilsubótar
eftir Ingimar
Jónsson
MIKIÐ hefur verið rætt og ritað
um mikilvægi hófsamlegrar
líkamsræktar fyrir líkamlega og
andlega vellíðan. En góð vísa
er aldrei of oft kveðin. Hófleg
líkamsrækt er kjörin og ódýr
leið til að viðhaida heilsunni,
dýrmætustu eign hvers og
eins, og vinnur gegn afleiðing-
um hreyfingarskorts og öðrum
fylgisfiskum nútíðar lifnaðar-
hátta. Hún þarf því að vera
fastur liður í lífi hvers og eins,
rétt eins og það að gæta hrein-
lætis.
Oft er spurt hvaða íþróttir séu
hollar eða hentugastar ti! þess
að efla heilbrigði. Við þessari spurn-
ingu er ekki til neitt eitt svar, nema
þá helst: Oll hreyfing er góð. Vissu-
lega eru sumar íþróttir betur til
þess fallnar en aðrar að styrkja
starfsemi hjarta og lungna. Þetta
eru íþróttir eins og t.d. skokk, skíða-
ganga og hjólreiðar, svo aðeins
nokkrar séu nefndar sem fyrst og
fremst reyna á þolið. Það er því
ekki að ástæðulausu að slíkar
líkamsæfíngar eru núorðið mikil-
vægur þáttur í forvömum gegn
hjarta og æðasjúkdómum og í end-
urhæfingu hjartasjúklinga.
Aðrar líkamsæfingar eru hins
vegar betur til þess fallnar að efla
styrk vöðva og samhæfingu hreyf-
inga. Það er því æskilegt að stunda
fjölbreytta líkamsrækt, t.d. skokk
og leikfimi, jöfnum höndum, og
reyna þannig alhliða á líkamann.
Hér verður hver og einn, sem vill
viðhalda eða bæta heilsu sína með
líkamsrækt, að finna sér þá hreyf-
ingu sem honum hentar; hreyfingu
sem veitir hæfilega áreynslu, endur-
næringu og vellíðan. Sumir kjósa
þá íþrótt eða þá tegund líkamsrækt-
ar, sem þeir geta stundað í ein-
rúmi, en aðrir vilja iðka íþróttir
með öðrum og njóta félagsskapar
þeirra. Hvort heldur er, skiptir
'miklu að hafa ánægju af þeirri
hreyfingu sem lögð er stund á.
Annars er hætt við að lítið verði
úr reglubundinni ástundun, sem er
forsenda þess að tilætluðum ár-
angri verði náð.
Oft er spurt hve oft þurfi að
stunda líkamsrækt of hver áreynsl-
an í henni þurfi að vera til þess að
hún hafi tilætluð áhrif til heilsubót-
ar. Einnig við þessari spurningu er
ekki til neitt einhlítt svar. Það sama
gildir ekki fyrir þá sem eru mið-
aldra og þá sem eldri eru. Auk
þess er margt annað sem taka verð-
ur tillit til, svo sem líkamlegt ásig-
komulag. Fyrir miðaldra telst það
þó iágmark að stunda líkamsrækt
þrisvar sinnum í viku og í 30-60
mínútur í senn. Að sjálfsögðu er
æskilegra að stunda líkamsrækt
oftar, helst daglega, en gæta þá
hófs. Brýnt er að stunda líkams-
rækt með gætni. Einkum þurfa
þeir að gæta sín sem vilja byija á
líkamsrækt en hafa ekki stundað
hana um langt skeið. Margir hafa
farið flatt á því að fara of geyst í
upphafí. Afleiðingin er oft óþægindi
eða meiðsli, sem svo hafa haft í för
með sér að lítið hefur orðið úr góðri
fyrirætlan.
Mikil áreynsla er heldur ekki allra
meina bót. Þvert á móti eykur hún
hættuna á meiðslum. Því er hæfileg
áreynsla farsælust. Miðaldra fólki
ætti því að ráðleggja að stunda
einkum göngur, skíðagöngur, sund,
skokk og leikfimi sér til heilsubót-
ar. Þótt helsta markmiðið með
líkamsrækt sé að viðhalda eða bæta
líkamlega heilsu má ekki gleyma
því að hún er líka, og e.t.v. ekki
síður, mikilvæg fyrir andlega heilsu
manna.
Höfundur er doktor í íþróttafræðum.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir læknir.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir læknir:
Skokkið færir mér auk-
inn kraft og betri líðan
„ALLIR verða að hreyfa sig eitt-
hvað og ég veit það vegna
starfs míns að öll hreyfing og
líkamsáreynsla í hæfilegum
mæli er af hinu góða,“ segir
Sigríður Dóra Magnúsdóttir
læknir, sem hyggst taka þátt í
Heilsuhlaupi Krabbameinsfé-
lagsins á morgun. Hún hefur
skokkað nokkuð reglulega í 6
til 7 ár og telur það hafa haft
góð áhrif á sig, bæði líkamlega
og andlega.
Sigríður Dóra segist skokka
reglulega, að jafnaði þrisvar
til fjórum sinnum í viku. „Ég skokka
allt árið og yfir veturinn fer ég
minnst þrjá og hálfan kílómetra en
yfirleitt ijóra til fimm, jafnt í snjó
og bil sem í rigningu og roki. Og
á sumrin hleyp ég venjulega um 7
kílómetra í hvert sinn. Núna hef
ég hlaupið nokkuð reglulega í 6 til
7 ár.“
Endurnærð
„Skokkið hentar mér mjög vel,“
heldur hún áfram, „vegna þess að
ég hef gaman af því að vera úti.
Mér finnst mjög skemmtilegt að
hlaupa eftir Grandanum og Ægiss-
íðunni, sjá fjöllin og finna sjávarilm-
inn. Það er alveg sama hvað ég fer
þreytt af stað, þó ég sé til dæmis
búin að vera á næturvakt og sofa
lítið, þá er ég alveg endurnærð eft-
ir skokkið. Mér finnst það veita
mér aukinn kraft og betri líðan.
Það er líka svo gott andlega, að
finna að maður getur notað þennan
skrokk eitthvað.“
Enginn maraþonhlaupari...
Varðandi þá gagnrýni sem stund-
um hefur komið fram á skokkið
segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir,
að auðvitað verði fólk að fara var-
lega. „Fólk verður náttúmlega að
vera vel klætt til að halda hita á
sér og gera þetta bara þannig að
það hafi gaman af. Ég er enginn
maraþonhlaupari heldur hleyp ég
til að mér líði vel og ég held að
þannig sé þetta mjög æskileg
líkamsrækt. Skokkið hentar auðvit-
að ekki öllum og sumum hundleið-
ist það. Ég get hins vegar ekki
hugsað mér að fara eftir langan
vinnudag inn í einhvern sal, þar sem
fjöldi fólks svitnar hvert í kapp við
annað. Ég vil miklu frekar fara út,
anda að mér hreinu lofti og hreyfa
mig þar.“
Guðmundur Sigurðsson lækn-
ir.
Dagskrá íþróttadagsins
Dagskrá íþróttadagsins
á morgun verður sem hér
seg-
ir, í bæjarfélögunum sex á suð-
vesturhorninu, en dagskrána fyrir
Akureyri er að fínna á Akur-
eyrarsíðu blaðsins í dag.
Kópavogur
Sundlaug Kópávogs verður opin
allan daginn. Aðgangur ókeypis.
Leiðbeinendur frá Breiðabliki
verða á staðnum kl. 10.00-11.00
og 15.00-16.00.
Digranesvegur 12:
„Hana-nú“ býður til fjöruferðar
undir leiðsögn frá kl. 10.00-16.00.
Félagssvæði ÍK:
Kynning á starfsemi félagsins kl.
10.00-12.00, en svæðið er í Foss-
vogsdal við Snæland. Heilbrigði-
stáðherra Guðmundur Bjarnason
leiðir göngu um Fossvogsdalinn.
f'jölskylduleikir, knattleikir,
skokk o.fl. Tennis við Snælands-
og Kópavogsskóla með leiðsögn.
Félagssvæði Breiðabliks:
Íþróttahátíð kl. 13.00-16.00.
Þrautir og gaman fyrir alla fjöl-
skylduna. Einnig verður félags-
starfsemin kynnt, m.a. ný deild,
Amerískur fótbolti (ruðnings-
deild).
íþróttahús Gerplu:
Almenn leikfimi á klukkutíma
fresti allan daginn. Kynning á
starfsemi félagsins.
I Vesturvör Fossvogi:
Siglingafélagið Ýmir býður til
siglingar á alls konar fleytum.
Kynning á starfsemi Ýmis. Leið-
beinendur á staðnum.
Æfíngastöðin Engihjalla:
Opið hús allan daginn. Kynning á
staðnum. Ókeypis aðgangur.
íþróttahúsið Digranesi:
Opið hús kl. 10.00-14.00 til kynn-
ingar á starfsemi hússins.
Seltjarnarnes
Krabbameinshlaup í Reykjavík kl.
12.00
Sundlaug:
Opin frá kl. 07.00-17.30. Aðgang-
ur ókeypis og sundkennari á
staðnum frá kl. 10.00-14.00.
Grótta
Knattspyrnudeild:
Kl. 09.00-17.00 fer fram knatt-
spyrnumót 6. flokks drengja af
stór-Reykjavíkursvæðinu.
Fimleikadeild:
Kl. 10.00-12.00 munu þjálfarar
leiðbeina í eldri sal íþróttahússins
og svampgryfju.
Handboltadeild:
Þjálfarar og handboltastúlkur
verða í nýja sal íþróttahússins frá
kl. 12.00-14.00.
Fjölskylduskokk:
Hefst kl. 10.30. Upphitun verður
við sundlaugina undir leiðsögn.
Skokkað verður við hæfi hvers
og eins.
Hjólreiðar:
Kl. 11.00 verður hjólaður Nes-
hringur frá sundlaug.
Heilsuræktin:
Þreksalurinn opinn frá kl. 10.00-
16.00. Leiðbeinendur á staðnum
og aðgangur ókeypis.
Siglingar:
Siglingaklúbburinn Sigurfari
verður með kynningu á starfsemi
klúbbsins við Bakkavör. Stutt
sigling ef veður leyfir.
Gönguferð með öldruðum:
Lagt verður af stað kl. 14.00 frá
íbúðum aldraðra í fylgd með
íþróttakennara.
Utilífsnámskeið:
Kl. 10.00-12.00 fer fram kynning
á starfseminni í sumar. Forstöðu-
maður námskeiðsins verður í
Gróttuherberginu við hlið sund-
laugarinnar.
Leikfími íyrir alla:
Kl. 15.00 á skólalóð Mýrarhúsa-
skóla. Leiðbeinandi stýrir æfing-
um.
Mosfellsbær
Kl. 08.00 verður fjöruferð. Mæt-
ing í biðskýlið við Álfholt. Leið-
beinandi Þuríður Ingvarsdóttir.
Kl. 12.00 fer fram Krabbameins-
hlaup í Reykjavík.
íþróttamiðstöðin Varmá:
Kl. 10.00 verður Hjördís Magnús-
dóttir með fyrirlestur um trimm
og heislurækt. Skokk, ganga,
teygjur. Leiðbeinandi Fríða Rún.
Sundlaugin verður opin frá kl.
10.00-18.00, ókeypis aðgangur
og leiðsögn. Ókeypis aðgangur er
í þreksalinn á sama tíma. Leið-
beinendur verða Alfa og Stefán.
Kynning á íþróttastarfi:
Badminton í sal. Handknattleiks-
skóli. Sundnámskeið, leiðbeinandi
Guðrún Jónsdóttir. Fijálsar íþrótt-
ir, leiðbeinendur verða Alfa, Fríða
Rún og Einar Vilhjálmsson.
Knattspyrnuskóli. Leiðbeinandi
Magnús Jónsson. Davíð Sigurðs-
son og Vigfús Aðalsteinsson sýna
nýja vallarsvæðið.
Hestgerði:
Kl. 13.00 fer fram hestasýning.
Teymt verður undir börnum.
íþróttavöllur:
Frá kl. 13.30 verða leikir og fjöl-
skylduhlaup á vellinum.
Kl. 17.00 verður gönguferð á
Helgarfell undir leiðsögn Hauks
Níelssonar. Kl. 16.00 gróðursetur
ungmennafélagið tijáplöntur á *
Varmásvæði.
Hafnarfjörður
Kl. 08.30
Ókeypis aðgangur í sundhöllina
og leiðbeinendur á staðnum.
Kl. 10.00
Tennis við Öldutúnsskóla og blak
við Lækjarskóla. Leiðbeinendur á
staðnum.
Kl. 11.00
Fijálsíþróttamót í Kaplakrika.
íþrótta- og Ieikjanámskeið.
Kl. 10.00-12.00
Sjúkraþjálfarinn og Hress með
sérstaka kynningu á starfsemi
sinni.
Kl. 14.00
Fjöldaleikfimi á Thorsplani. Eftir
létta upphitun geta þátttakendur
valið um: Skokk 3-5 km, fjöl-
skylduskokk, ratleik á Víðistaðat-
úni og gönguferðir með leiðbein-
endum.
Garðabær
íþróttamiðstöðin Ásgarður:
Ökeypis aðgangur í sundlaugina
kl. 08.00-17.00. Kl. 08.00-10.30
stjórnar Lovísa Einarsdóttir leik-
fími í íþróttahúsinu. Kl. 13.00- '
14.00 fer fram fjölskylduskokk
2, 3 og 5 km.
Sljarnan:
Knattspyrna kl. 14.00-15.00.