Morgunblaðið - 09.06.1989, Síða 42
42
MÖftGtriítöJÁBlð IÞRÓTTIR'MWbMjr
M/juMiigaæ1
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
ÍÞRÚmR
FOLK
■ HEIMIR Karlsson skoraði
síðast fyrir Val í 1. deild í 16.
umferð sumarið 1985, í 3:1 sigri á
Víði að Hlíðarenda. Þá skoraði
hann eftir sendingu Gríms Sæ-
mundsen þáverandi fyrirliða.
■ HEIMIR kom frá Hollandi
sumarið 1985, eftir að hafa leikið
þar. Hann hóf að leika með Val
um mitt tímabil og skoraði þrjú
mörk. Liðið var meistari 1985.
■ BOJAN Tanevski skoraði
fyrsta mark sitt fyrir Þór í 1. deild
í gærkvöldi, er hann jafnaði, 1:1, í
Keflavík.
I BJARNI Sigurðsson, lands-
liðsmarkvörður, fékk síðast á sig
mark í íslensku 1. deildinni er hann
lék með ÍA 1984. Þá skoraði Arnar
Friðriksson hjá honum á 26.
mínútu í 2:1 sigri Þróttar á Skag-
anum í 16. umferð. Hann hefur enn
ekki fengið á sig mark með Val í
sumar og hefur því haldið hreinu í
deildarleikjum hér á landi í samtals
514 mínútur!
■ BLÖÐ, sjónvarp og útvarp í
Austurríki hafa keppst um að taka
viðtöl við Guðmund Torfason
vegna landsleiks íslands og Aust-
urríki í Reylqavík; „Ég hef verið
lítillátur í þeim viðtölum og að sjálf-
sögðu sagt að Austurríkismenn
væru sigurstranglegri," sagði Guð-
mundur Torfason i spjalli við
Morgunblaðið.
■ ASGEIR Sigurvinsson var í
viðtali við eitt blaðanna í Aust-
urríki i gær.
■ HEIMIR Karlsson, íþrótta-
.fréttamaður Stöðvar 2 og knatt-
spymumaður í Val, hefur verið ráð-
inn þjálfari Islandsmeistara Fram
í kvennahandknattleik.
■ VÍKINGUR hefur ráðið Theód-
ór Sigurðsson sem þjálfara
kvennaliðsins í handknattleik. The-
ódór þjálfaði FH-stúlkurnar
síðastliðinn vetur og var jafnframt
aðstoðarþj álfari kvennalandsliðsins.
■ ENSKI landsliðsmaðurinn
Trevor Steven hjá Everton fer til
Glasgow Rangers fyrir næsta
keppnistímabil. Hann mun gera
þriggja ára samning við félagið.
Kaupverðið hefur ekki verið ákveð-
ið — Rangers er tilbúið að greiða
1.250.000 pund en Everton setur
upp 2.500.000 pund!
Morgunblaðið/Júlíus
Heimir Karlsson sá um að Valsmenn öll stigin sem barist var um að Hlíðarenda í gærkvöldi. Skoraði eina markið. Hér
á hann í höggi við Örn Torfason (t.v.) og Ámunda Sigmundsson.
Eintóm glæsimörk
- á æfingavelli Vals. Nú tryggði Heimir Karlsson þrjú
stig meðfallegu skallamarki
HEIMIR Karlsson sýndi í gær-
kvöldi að hann hefur litlu
gleymt eftir nokkurra ára fjar-
veru úr 1. deildinni, þrátt fyrir
að virka heldur þyngri en áður.
Hann var síógnandi að marki
síns gamla félags, og það var
viðeigandi að hann skyldi ein-
mitt skora sigurmarkið. Glæsi-
legt mark með skalla tryggði
Val stigin þrjú gegn Víkingi og
var sigurinn sanngjarn — þó
Víkingar hefðu hæglega getað
jafnað ílokin.
Liðin buðu upp á bráðfjöruga
kafla, leikmenn beggja voru að
reyna að leika fallega — sérstaklega
Valsmenn. Samleikurinn tókst þó
ekki alltaf, en við-
leitnina verður að
virða.
Liðin voru ámóta
í fyrri hálfleik en
Valsmenn ágengari í þeim síðari
og mark hafði legið í loftinu í nokk-
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
Valur - Víkingur
1 : O
íslandsmótið, 1. deild, Valsvöllur
fimmtudag 8. júní 1989.
Mark Vals: Heimir Karlsson á 61. mín.
Gult spjald: Goran Micic, Víkingi.
Rautt spjald: Ekkert.
Dómari: Ólafur Lárusson.
Áhorfendur: Um 500.
Lið Vals: Bjami Sigurðsson, Þorgrím-
ur Þráinsson, Siguijón Kristjánsson,
Magni BlöndaJ Pétursson, Atli Eðvalds-
son, Sævar Jónsson, Halldór Áskels-
son, Einar Páll Tómasson, Lárus Guð-
mundsson, Ingvar Guðmundsson,
Heimir Karlsson.
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson,
Ámundi Sigmundsson, Sveinbjöm M.
Jóhannesson, Öm Torfason, Hallsteinn
Amarson, Bjöm Bjartmarz (Lúðvík
Bragason vm. á 72. mín.), Aðalsteinn
Aðalsteinsson, Atli Einarsson, Andri
Marteinsson, Goran Micic, Atli Helga-
son.
um tíma áður en það kom. Mínútu
áður hafði Heimir átt þrumuskalla
naumlega framhjá og síðan kom
það; Magni tók aukaspyrnu frá
hægri og höfuð Heimis var rétt
stillt — knötturinn small á enni
hans úti í miðjum teig og söng í
netinu án þess að Guðmundur fengi
rönd við reist.
Lokakafla leiksins sóttu Víkingar
af talsverðum móð, Ámundi átti
bylmingsskot hárfínt yfir utan úr
teig og síðan varði Bjami landsliðs-
markvörður frábærlega, þmmu-
fleyg Gorans Micic af markteigs-
horninu.
Þetta var annar leikur Vals á
æfingavelli sínum að Hlíðarenda í
sumar — áður hafði liðið lagt ÍA
að velli, 2:0, með glæsimörkum
Sævars og Ingvars. Enn hefur því
ekki verið boðið upp á annað en
glæsimörk á vellinum; og spurning
hvort áhangendur Valsliðsins fara
ekki að fjölmenna á æfingar þess
— því þær fara jú fram á þessum
velli...
3.0G 4.DEILD
Sigurður með 4
mörk fyrir Þrótt
Igærkvöldi vom 7 leikir í 3. deild
karla. í 3. deild A sigraði Víkveiji
Grindavík 2:1. Mörk Víkveija skor-
uðu Valdimar Jónsson og Svavar
Hilmarsson, en Þórir Ólafsson skor-
aði mark Grindavíkur. ÍK vann
Leikni 1:0 með marki Steindórs
Elíssonar. Hveragerði og Grótta
gerðu jafntefli 1:1. Fyrir Hvera-
gerði skoraði Gunnar Einarsson og
Karl Sæberg skoraði mark Gróttu.
Sigurður Hallvarðsson skoraði 4
mörk í 5:1 sigri Þróttar R á Reyni
S. Fimmta mark Þróttar setti Óskar
Óskarsson en Antony Stissy skoraði
fyrir Reyni. BÍ sigraði Aftureldingu
3:1. Mörk BÍ skomðu Sævar Æv-
arsson, Stefán Tryggvason og Örn-
ólfur Óddsson.
Tveir leikir vom í B-riðli 3. deild-
ar. Þróttur N. sigraði Huginn 3:2.
Guðbjartur Magnason skoraði 2
mörk fyrir Þrótt og Þorlákur Áma-
son 1. Mörk Hugins settu Svein-
bjöm Jóhannsson og Finnbogi Sig-
urðsson. Þá vann Kormákur Val
^Reyðarfirði 3:1. Fyrir Kormák skor-
uðu Páll Leó Jónsson, Bjarki Har-
aldsson og Albert Jónsson. Agnar
Arnþórsson skoraði mark Vals.
6 leikir í 4. deild
í 4. deild A vom tveir leikir. Ægir
sigraði Njarðvík 1:0 með marki
Björgvins Guðmundssonar og
Augnablik vann Stokkseyri 1:0.
Bjarni Frostason skoraði mark
Augnabliks. Haukar og Snæfell
léku í 4. deild B og sigmðu Haukar
2:1. Gauti Marinóson skoraði bæði
mörk Hauka og mark Snæfells var
sjálfsmark.
í C-riðli deildarinnar vom 3 leik-
ir. Baldur og Léttir gerðu jafntefli
1:1. Garðar Jonsson skoraði fyrir
Baldur og Valdimar Óskarsson fyr-
ir Létti. Ármann og Hafnir skildu
einnig jöfn 1:1. Mark Ármanns
skoraði Gústaf Alfreðsson, en fyrir
Hafnir skoraði Guðmundur Frans
Jónasson. Víkingur Ó og Árvakur
skildu jöfn 2:2. Hermann Her-
mannsson og Jón Thorarensen
skomðu mörk Víkings og Guð-
mundui- Jóhannsson skoraði bæði
mörk Árvakurs.
HANDKNATTLEIKUR / U-21 ARS
ísland í erfid-
asta riðlinum
DREGIÐ hefur verið í riðla í
heimsmeistarakeppni lands-
liða íhandknattleik, skipað
leikmönnum 21 árs og yngri,
sem fram fer á Spáni í byrjun
september. ísland verður í
riðli með Spáni, Vestur—
Þýskalandi og Tékkólóvakíu.
Island er í A-riðli og er hann
talinn sá sterkasti í keppninni.
Spánveijar em á heimavelli og
verða því erfiðir. Vestur-Þjóðveij-
ar leggja mikla áherslu á þessa
keppni eftir hrakfarir A-Iandsliðs-
ins í Frakklandi og Tékkar em
mjög sterkir í þessum aldursflokki
enda margir leikmenn að beijast
fyrir A-landsIiðssæti fyrir heims-
meistarakeppnina sem fram fer i
heimalandi þeirra á næsta ári.
Keppnisfyrirkomulag er það
sama og í B- keppninni í Frakkl-
andi. Þijú efstu liðin í hveijum
riðli komast í milliriðil. A- og B-
riðill mynda einn milliriðil og C-
og D-riðiil annan. Keppnin fer
fram á Spáni 14. til 25. septemb-
er. A-riðilIinn verður spilaður í
La Comfia.
Riðlaskiptingin verður eftirfar-
andi: (Leikstaður í sviga)
■ A-riðilI: (La Corufia)
Spánn, Vestur-Þýskaland, Tékkó-
slóvakía og ísland.
■ B-riðill: (E1 Ferrol)
Svíþjóð, Ungveijaland, Pólland og
Egyptaland.
■ C-riðill: (Lugo)
Júgóslavía, Frakkland, Alsír og
Suður-Kórea.
■ D-riðill: (Orense)
Sovétríkin, Rúmenía, Austurríki
og Bandaríkin.
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu hætti Jóhann Ingi
Gunnarsson sem þjálfari liðsins
eftir leikina við Svisslendinga í
maí. Stjóm HSÍ hefur enn ekki
gengið frá ráðningu nýs þjálfara.
Að sögn Jóns Hjaltalins Magnús-
sonar, formanns HSÍ, er verið að
vinna í málinu og ætti að skýrast
í næstu viku hver verði arftaki
Jóhanns Inga.
2. DEILD
Stjarnan á
toppnum
HEILLASTJ ARN A var það ekki
sem beið Selfyssinga í Garða-
bænum í gærkvöldi. Áður en
yfir lauk var staðan orðin 3:0
fyrir Stjörnuna og þar með er
Selfoss eitt og yfirgefið með
ekkert stig á botni deildarinn-
ar. Stjarnan trónir hins vegar
efst á toppnum með 7 stig.
KrístinnJens
Sigurþórsson
skrífar
Guðmundur
Jóhannsson
skrífar
Frá Bimi
Bjömssyni
á Vopnafiröi
2. DEILD
Fj. leikja U J T Mörk Stig
STJARNAN 3 2 1 0 6: 2 7
VÍÐIR 3 1 2 0 2: 1 5
BREIÐABLIK 3 1 1 1 5: 3 4
VÖLSUNGUR 3 1 1 1 5:4 4
TINDASTÓLL 3 t 1 1 3: 3 4
EINHERJI 3 1 1 1 4: 5 4
ÍR 3 1 1 1 4: 5 4
ÍBV 2 1 0 1 2: 2 3
LEIFTUR 2 0 2 0 1: 1 2
SELFOSS 3 0 0 3 1: 7 0
I
Ifyrri hálfleik vom yfirburðir
Stjörnunnar samt ekki sýnilegir;
liðið var meira með knöttinn en
Selfyssingar vörðust mjög vel.
í síðari hálfleik
vom sóknir Stjörn-
unnar miklu mun
hættulegri og á 57.
mínútu kom fyrsta
markið. Þá skallaði einn besti mað-
ur Stjömunar, Birgir Sigfússon,
knöttinn í netið eftir fyrirgjöf. Ein-
ungis fjórum mínútum síðar bætti
Valdimar Kristófersson öðra marki
við. Þá var allur vindur úr Selfoss-
liðinu og Stjarnan sótti það sem
eftir var. Þriðja markið kom svo
eftir stórgóða fyrirgjöf Heimis Erl-
ingssonar, en þá skallaði Loftur
Steinn glæsilega í netið.
Þrjú stig á Krókinn
Tindastóll sigraði Breiðablik
með tveimur mörkum gegn
einu á Kópavogsvelli í gærkvöldi.
Heimamenn byijuðu betur og höfðu
forystu í leikhléi,
1:0. Jón Þórir Jóns-
son skoraði mark
þeirra. Snemma í
síðari hálfleik jafn-
aði Björn Björnsson leikinn og und-
ir lok leiksins náði Árni Ólafsson
að tryggja norðanmönnum sigur.
Blikar náðu betri samleik og áttu
fleiri færi en herzlumuninn vant-
aði. Tindastólsmenn nýttu færin
betur og voru auk þess líkamlega
sterkari og það gerði gæfumuninn.
Fyrsti sigur Einherja
Einheiji sigraði Völsung 3:2 á
Vopnafirði í miklum baráttu-
leik. Knattspyrnan var samt ekki
að sama skapi alltaf áferðafalleg
og datt leikurinn
niður á köflum og
varð nokkuð þóf-
kenndur.
Fyrsta mark
leiksins kom strax á 5. mínútu þeg-
ar Baldur Kjartansson kom heima-
mönnum yfir. Völsungar jöfnuðu
svo á 11 mínútu með marki af
stuttu færi, sem Skúli Hallgrímsson
gerði. Á 15 mínútu. komust heima-
menn aftur yfir með glæsilegu
skallamarki Þrándar Sigurðssonar.
Völsungar jöfnuðu svo eftir að
15 mínútur vom liðnar af síðari
hálfleiknum. Skúli Hallgrímsson
skoraði þá auðveldlega eftir að
þvaga hafði myndast í vítateig Ein-
heija.
Eftir þetta skiptust liðin á um
að sækja en Einherji var öllu að-
gangsharðari og á 80. mínútu fékk
liðið víti sem Njáll Eiðsson skoraði
öragglega úr.
Jafntefli í Garðinum
Víðismenn máttu sætta sig við
jafntefli 1:1, gegn ÍR-ingum í
Garðinum í gærkvöldi. Heimamenn
sóttu nærri stanslaust í fyrri hálf-
leik og náðu forystunni með marki
Vilbergs Þorvaldssonar um miðjan
fyrri hálfleik. Jón G. Bjamason
jafnaði úr skyndisókn í síðari hálf-
leik eftir mikil vamarmistök.
4
4