Morgunblaðið - 09.06.1989, Síða 43
MORGUNBLIAÐIÐ1 IÞROTTIR roSTÚÐAGUR 9. JÚNÍ’1989 (]jj
43
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Keflvíkingar
enn án sigurs
„ÞETTA var baráttuleikur og'
ég er ágætlega sáttur við úr-
slitin og stigið. Markið í upp-
hafi kom okkur úr jaf nvægi, en
í síðari hálfleik náðum við upp
góðri baráttu og réttum okkar
hlut, sagði þjálfari Þórsara
Milan Djuricic frá Júgóslavíu
eftir leik ÍBK og Þórs í Keflavík
í gærkvöldi þar sem liðin deildu
með sér stigunum. Keflvíking-
um eru því enn eina liðið án
sigurs í 1. deild.
Keflvíkingar fengu óskabyijun
þegar Kjartan Einarsson skor-
aði gott mark á 10. mínútu, hann
fékk boltann utarlega í vítateig
■■■■■■ Þórsara og skaut
BjömBlöndal föstu skoti ofarlega
skrifarfrá í hornið fjær sem
Keflavík annars ágætur
markvörður Þórs
Baldvin Guðmundsson náði ekki að
veija. Eftir markið réðu heimamenn
lengstum ferðinni án þess þó að
skapa sér teljandi færi.
Síðari hálfleikur var mun líflegri
en sá fyrri. Þórsarar komu ákveðn-
ir til leiks og þeir náðu að jafna
metin á 53. mínútu með marki
Júgóslavans Bojan Tanevski sem
kom inná í síðari hálfleik sem vara-
maður. Markið var fallegt, Ólafur
Þorbergsson átti laglega sendingu
á Tanevski sem var aðþrengdur af
varnarmönnum ÍBK, en hann náði
samt að skjóta hnitmiðuðu skoti í
stöngina og inn - óveijandi fyrir
Ólaf Pétursson í markinu. Eftir
markið sóttu Þórsarar af krafti og
nokkrum sinnum skall hurð nærri
hælum við mark ÍBK. Undir lokin
færðist meira líf í heimaliðið sem
átti þá nokkur færi, en fleiri urðu
mörkin ekki.
1. DEILD
Fj.leikja U j T Mörk Stig
VALUR 4 3 1 0 4: 0 10
FH 4 2 1 1 4: 2 7
KA 3 1 2 0 3: 1 5
ÞÓR 4 1 2 1 3: 4 5
FYLKIR 3 1 1 1 5: 4 4
KR 3 1 1 1 4: 5 4
FRAM 4 1 1 2 3: 6 4
ÍBK 4 0 3 1 3: 4 3
VÍKINGUR 4 1 0 3 2: 3 3
ÍA . 3 1 0 2 3: 5 3
Morgunblaöið/Einar Falur
Guðmundur Hilmarsson, fyrirliði FH, hefur hér betur í viðureigninni við Ómar Torfason, Fram. FH-ingar, sem
eru nýliðar í 1. deild, voru mun betri en íslandsmeistarar Fram og hefði sigur þeirra getað orðið enn stærri.
ÍBK-Þór
1 : 1
Keflavíkurvöllur, íslandsmótið 1. deild,
fimmtudaginn 8. júní 1989.
Mark ÍBK: Kjartan Einarsson (10.
mín.).
Mark Þórs: Bojan Tanevski (58. mín.).
Gult spjald: Bojan Tanevski, Þór,
Kjartan Einarsson, ÍBK, og Gestur
Gylfason, ÍBK.
Áliorfendur:400.
Dómari:Eysteinn Guðmundsson og
dæmdi ágætlega.
Lið ÍBK: Ólafur Pétursson, Valþór
Sigþórsson, Sigurjón Sveinsson, Ami
Vilíy'álmsson (Jón Sveinsson vm. 70.
mín.), Ingvar Guðmundsson, Jóhann
Júlíusson, Jóhann B. Magnússon,
Kjartan Einarsson, Óli Þór Magnússon,
Freyr Sverrisson og Gestur Gylfason.
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Luca
Kostic, Birgir Karlsson, Sveinn Páls-
son, (Bojan Tanevski vm. 46. mín.),
Nói Bjömsson, Ólafur Þorbergsson,
Júlíus Tryggvason, Kristján Kristjáns-
son, Hlynur Birgisson, Þorsteinn Jóns-
son og Valdimar Pálsson.
Heimir Karlsson, Val.
Bjarni Sigurðsson, Sævar
Jónsson, Atli Eðvaldsson og
Halldór Áskelsson, Val. Andri
Marteinsson og Aðalsteinn
Aðalsteinsson, Víkingi. Ólaf-
ur Jóhannesson, Birgir Skúla-
son, Guðmundur Hilmarsson,
Ólafur Kristjánsson og Pálmi
Jónsson, FH. Birkir Kristins-
son, Fram. Kjartan Einarsson
og Valþór Sigþórsson, ÍBK.
Bojan Tanevski og Luca
Kostic, Þór.
íkvöld
TVEIR leikir eru á dagskrá í
1. deild karla í knattspyrnu.
Á Akureyri mætast KÁ og
KR og á Fylkisvelli Fylkir og
ÍA. Báðir leikirnir hefjast kl.
20.00. í 2. deild leika IBV og
Leiftur á sama tíma í Eyjum,
en leiknum var frestað í vik-
unni. í 3. deild mætast Dalvík
og Austri á Dalvík.
Meistaramir höiðu ekki
roð við nýliðunum í FH
Fyrsti sigur Hafnarfjarðarliðsins á Fram í átta ár
FH-INGAR gerðu sér lítiðfyrir
og sigruðu Islandsmeistara
Fram, 2:0, á Kaplakrikavelli.
Sigur FH var mjög verðskuld-
aður og hefði 4:0 gef ið réttari
mynd af gangi leiksins. Þetta
var fyrsti sigur FH á Fram í 1.
deild síðan 1981.
FH-ingar voru mun betri allan
leikinn, barátta þeirra var að-
dáunarverð og uppskeran eftir því.
Framarar voru daufir og var eins
■■■■■■I og þeir héldu að
ValurB. þetta kæmi af sjálf-
Jónatansson um sér og áttu
skrifar hreinlega ekkert
svar við kraftmikl-
um leik Hafnfirðinga.
Fyrri hálfleikur var frekar tíðind-
alítill framan af og fátt um mark-
tækifæri. FyiTa mark FH kom eftir
hræðileg mistök í vörn Fram á 33.
mínútu. Birkir, markvörður, tók
útspark og sendi lausan bolta út
fyrir vítateig hægra megin á Þor-
stein sem sendi síðan knöttinn fyrir
markið og þar var Pálmi Jónsson
mættur og þakkaði fyrir sig með
því að renna boltanum í autt mark-
ið.
Rothöggið fyrir Fram kom þegar
aðeins sex mínútur voru búnar af
síðari hálfleik. Eftir þunga sókn FH
fékk Ólafur Kristjánsson knöttinn
rétt utan vítateigs og skaut föstu
skoti sem hafnaði í markinu eftir
að hafa snert varnarmann og þann-
ig breytt stefnu. Pálmi komst
tvívegis einn í gegn eftir markið
en Birkir sá við honum. Eins fékk
Guðmundur Valur dauðafæri rétt
fyrir leikslok, en Birkir bjargaði í
horn.
FH hafði fyrir leikinn ekki unnið
Fram síðan 1981 er liðið sigraði
5:1. Sigurinn var því kærkominn
fyrir nýliðana í 1. deild sem eiga
eftir að hala inn mörg stig ef svo
heldur áfram sem horfir. Liðið sam-
anstendur af léttleikandi strákum
sem hafa ódrepandi baráttuvilja.
Ólafur Jóhannesson og nafni hans
Kristjánsson á miðjunni voru bestir
og varnarmennimir Bjöm, Birgir
og Guðmundur stóðu sig vel. Pálmi
var ógnandi í framlínunni en hefði
átt að skora fleiri mörk.
íslandsmeistarar Fram töpuðu
öðmm af fjórum leikjum sínum í
deildinni og léku ekki sannfærandi.
Leikmenn liðsins virkuðu þungir og
áhugalitlir. Þeir brotnuðu niður við
hinn mikla baráttuvilja FH-inga
sem vom alltaf skrefinu á undan.
Eini Ijósi punkturinn hjá Fram var
markvarsla Birkis sem kom í veg
fyrir að tapið yrði enn stærra.
FH - Fram
2 : O
Kaplakrikavöllur, íslandsmótið - 1.
deild, fimmtudaginn 8. júní 1989.
Mörk FH: Pálmi Jónsson 33. mín.,
Ólafur Kristjánsson 51. mín.
Gult spjald: Ólafur Kristjánsson, FH
og Ómar Torfason, Fram.
Rautt spjald: Ekkert.
Áhorfendur: Um 500.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson - stóð sig
vel.
Lið FH: Halldór Halldórsson, Birgir
Skúlason, Ólafur Jóhannesson, Pálmi
Jónsson, Björn Jónsson, Guðmundur
Hilmarsson, Kristján Gíslason, (Guð-
mundur Valur Sigurðsson vm. á 78.
mín.), Þórhallur Víkingsson, Hörður
Magnússon, (Jón Erling Ragnarsson
vm. á 80. mín.), Magnús Pálsson, Ólaf-
ur Kristjánsson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Guð-
mundur Steinsson, Ómar Torfason,
Kristján Jónsson, Kristinn R. Jónsson,
Viðar Þorkelsson, Ragnar Margreirs-
son, (Ríkharður Daðason vm. á 59.
mín.), Þorsteinn Þorsteinsson, Pétur
Ormslev, Pétur Amþórsson, (Steinn
Guðjónsson vm. á 46. mín.), Helgi
Bjamason.
KNATTSPYRNA / NOREGUR || TENNIS / OPNA FRANSKA
Graf og Sanchez
komnar í úrslit
Teiturá
förumfrá
Brann?
AUt útlit er fyrir að Teitur Þórð-
arson sé á förum frá norska
1. deildarliðinu Brann. Fjölmiðlar í
Noregi skýrðu frá því í gær að
Teitur hafi fengið gott tilboð frá
um að gerast þjálfari þjá ónefndu
1. deildarfélagi í Sviss.
Teitur var ráðinn þjálfari Brann
í upphafi síðasta keppnistímabils
og náði að halda liðinu í 1. deild
og koma því í úrslit í bikarkeppn-
inni. Ástæðan fyrir því að Teitur
hyggst yfirgefa Brann er ólga innan
stjórnar félagsins.
Teitur Þórðarson.
STEFFI Graf þurfti að taka á
honum stóra sínum til þess að
tryggja sér sæti í úrslitum á
Opna franska meistararmótinu
í tennis í gær. Graf lék við lítt
þekkta júgóslavneska stúlku
Monicu Seles í undanúrlitum
og sigraði eftir jafnan og
spennandi leik 6:3,3:6 og 6:3.
Graf, sem stefnir nú á sigur á
þessu móti þriðja árið í röð,
var ekki ánægð þrátt fyrir sigurinn.
„Þetta var ekki minn dagur. Ég lék
illa og hefði auðveldlega getað tap-
að,“ sagði Graf eftir leikinn. Hún
hrósaði frammistöðu Seles sem er
aðeins 15 ára og líkleg til að vera
næsta stjarna í tennisíþróttinni.
Seles sem hefur heillað áhorfend-
ur í París með frammistöðu sinni
var ánægð þrátt fyrir tapið og sagð-
istvera stolt af frammistöðu sinni.
í hinum undanúrslitaleiknum í
kvennaflokki mættust Arantxa
Sanchez frá Spáni og Mary Joe
Fernandez frá Bandaríkjunum og
sigraði Sanchez auðveldlega 6:2 og
6:2.