Morgunblaðið - 09.06.1989, Page 44
FÉLAG FÓLKSINS
EINKAfíE/KN/NGUR Þ/NN
í LANDSBANKANUM,
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Morgunblaðið/Sig. Sigm.
Vor í Hreppum
Breytt vinnsla í sláturtíð:
Gæti lækkað raun-
verð kjöts um 20%
NIÐURBRYTJUN og grófþökkun
kindakjöts í sláturtíð gæti leitt til
17-20% raunlækkunar á verði
kjötsins til neytenda. Sláturkostn-
aður myndi lækka um 12%, og
geymslukostnaður um sem svarar
45% rýmisþarfar. Þá yrði sparnað-
ur í framlögum ríkissjóðs, án
framleiðslulækkunar, um 250
milljónir króna ef þessi aðferð
yrði viðhöfð, en samkvæmt henni
er gert ráð fyrir að útflutningi
kindakjöts yrði hætt. Þetta eru
meðal annars niðurstöður starfs-
hóps á vegum Framkvæmdanefnd-
ar búvörusamninga.
Starfshópurinn hefur unnið að því
að útfæra tilraunir sem gerðar voru
hjá versluninni Víði árið 1985 og hjá
Kaupfélagi Borgfirðinga á síðasta
ári með niðurbrytjun og grófpökkun
kjöts í sláturtíð, og reikna fram heild-
aráhrif breyttrar meðhöndlunar kjöts
á sláturkostnað, geymslurými, niður-
greiðslur, útflutningsbætur, heild-
sölukostnað og verð til neytenda.
Samkvæmt niðurstöðum starfs-
hópsins myndu um 20% af kjöti í 1.
til 5. verðflokki fara út af markaði
sem afskurður, og einnig allur 6.
verðflokkur, sem nýttur yrði í loð-
dýrafóður og sérvinnslu. Samkvæmt
þessu hækkar útsöluverð á völdu
kindakjöti um 1,3%, sem þýðir
17-20% raunlækkun á verði til neyt-
enda, þar sem gæði vörunnar hafa
aukist vegna afskurðar sem neytend-
ur hafa greitt fyrir, en nýtist þeim
illa eða ekki. Veija þyrfti 105 milljón-
um til nauðsynlegra breytinga á slát-
urhúsum og til rannsókna og ráð-
gjafastarfa.
Flugmálastj órn;
Lendingar-
gjöld hækka
um 21-33%
Lendingargjöld á flugvöllum
hér á landi hækkuðu um síðustu
mánaðamót. Hækkunin á flug-
völlum fyrir innanlandsflug
nemur 33 af hundraði en fyrir
millilandaflugið nemur hækk-
unin 21 af hundraði. Þá hækk-
uðu þjónustugjöld Loftferðaeft-
irlitsins um helming, 100%, við
síðastliðin mánaðamót.
Jóhann H. Jónsson fram-
kvæmdastjóri flugvalladeildar
Flugmálastjórnar segir að hækkun
þessi hafi verið ákveðin í fjárlögum
fyrir þetta ár. Hann segir að lend-
ingargjöldin séu einu sértekjur
Flugmálastjórnar og sem slík þau
einu sem hægt er að hafa áhrif á
með þessum hætti sem hér er
raunin.
Alþingi hafi ákveðið að hækk-
unin yrði þetta mikil í ár en gjöld
þessi hækkuðu síðast á síðasta ári.
Kvörtun frá heilbrigðisfulltrúa í Hull vegna íslenzka físksins:
Óliæfiir til manneld-
is í æ fleiri tilvikum
ÍSLENSKUR fiskur, sem sendur er á markað í gámum, fer síversn-
andi og oftar og oftar þarf að dæma einstakar sendingar óhæfar til
manneldis. Þessi þróun hefúr verið stöðug undanfama mánuði. Þessi
tíðindi era kjarninn í formlegri kvörtun heilbrigðisfulltrúans í Hull
^ Englandi til íslenska sendiherrans í London. Þetta er í fyrsta sinn
sem slík formleg kvörtun berst vegna íslensks ferskfisks. Ríkismati
sjávarafúrða hefúr verið falið að rannsaka málið og gera viðeigandi
ráðstafanir.
Bréfið er sent í byijun þessa
mánaðar. Efni þess kemur heim við
verðþróun á fiskmörkuðum í Bret-
landi undanfarið, en meðalverð á
þorski er nú um tíu krónum lægra
en meðalverð fyrstu fimm mánaða
þessa árs, sem var um 79,60 krón-
ur hvert kíló.
Afrit af bréfinu voru send ut-
anríkisráðuneytinu og Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna. Vil-
hjálmur Vilhjálmsson hjá LÍÚ segir
bréfið ekki hafa borist, og að ekki
hafi verið rætt um efni þess á vett-
Vangi samtakanna. Hins vegar ýti
það undir þá skoðun, sem LIÚ hef-
ur sett fram, að veita beri leyfi til
útflutnings í gámum í samræmi við
það, hvernig menn standa sig varð-
andi gæði vörunnar.
Morgunblaðið leitaði áiits Péturs
Bjömssonar hjá fisksölu- og um-
boðsfyrirtækinu ísbergi í Hull.
Hann sagðist telja að helsta ástæða
Túnvíðakalin
í Borgarfirði
Hvannatúni, Andakíl.
TALSVERT ber á kali í túnum
í öllum sveitum Borgarfjarðar.
Áberandi kal er meðfram skurð-
bökkum þar sem vatn og klaki lá
lengi í vetur. Undan þykkum snjó-
fönnum koma tún kalin og áber-
•tndi illa famar eru nýræktir á
fyrsta og öðm ári. - D.J.
þessarar kvörtunar væri að kröfur
hefðu verið auknar í Bretlandi.
Hann segir jafnframt að undanfarið
hafi nokkuð borið á lélegum fiski
héðan.
Ríkismat sjávarafurða hefur rit-
að öllum útflytjendum bréf vegna
þessa máls og óskað eftir skýring-
um þeirra. Halldór Árnason for-
stöðumaður stofnunarinnar mun
kynna sér tilefni umkvörtunarinnar
og aðstæður í Hull í næstu viku,
vegna þessa máls.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vísað af velli
Fleiri en dómarinn taldi löglegt vildu taka þátt í leik FH og Fram í
1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi, eins og sjá má á myndinni.
Eftir snarpa viðureign bára Hafnfirðingar sigurorð af íslandsmeistur-
um Fram með tveimur mörkum gegn engu.
Sjá nánar á íþróttasíðum.
Ekki margir semkomu aft-
ur frá slátruninni í Peking
- segir Sigrún Guömundsdóttir í Tianjin í samtali við Morgunblaðið
„FRÉTTIRNAR um slátrunina bárust þegar um morguninn og sér-
staklega þegar lestirnar komu aftur með stúdentana úr þessum
háskóla frá Peking — þá sem lifðu slátrunina af,“ sagði Sigrún
Guðmundsdóttir í Tianjin í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það
voru 200 stúdentar úr Tianjin-háskóla á Torgi hins himneska frið-
ar, þegar slátrunin átti sér stað á sunnudag, og það voru ekki
margir sem komu aftur frá Peking.“
„Það var fólk héðan af garðin- synir þeirra, eru síðustu íslending-
um, sem var í Peking þessa nótt
og sá þegar múgurinn réðst á her-
mann sem stóð og lét kúlnahríðina
dynja á fjöldanum. Fólkið tók af
honum vélbyssuna og dró hann upp
á umferðarbrú og henti honum of-
an. Á götunni fyrir neðan tók ann-
ar hópur manna við og kveikti í
honum. Síðan var hann merktur á
þann hátt að hér lægi hræ af dýri
en ekki mannslík. Sá maður sem
sagði mér þetta átti fótum Qör að
!auna.“
Sigrún, eiginmaður hennar, Jón
Steinar Guðmundsson, og tveir
arnir sem eftir eru í Kina og búa
þau á stúdentagarði við Tianjin-
háskóla. Þau hafa hug á að fara
frá Kína í næstu viku.
Tianjin er mikil viðskipta- og
háskóiaborg j um 150 km fjarlægð
frá Peking. í borginni og úthverf-
um hennar búa um 8,3 milljónir
manna og er hún þriðja stærsta
borg Kína á eftir Peking og Shang-
hai.
„Þeir sem lifðu fjöldamorðin af
komu með lestinni á sunnudaginn
og var farið í mikla mótmælagöngu
héðan af háskólasvæðinu að braut-
arstöðinni. Göngumenn voru há-
skólastúdentar og það stöðvaðist
allt í borginni meðan á göngunni
stóð. Hvaðanæva dreif að fólk, sem
fagnaði stúdentum og hvatti þá
áfram.
Á brautarstöðinni sögðu þeir,
sem af lifðu, frá slátruninni á torg-
inu. Það voru ótrúlegar lýsingar.
Slíkir fundir eru nauðsynlegir,
því það sem ríkisfjölmiðlarnir hér
segja er tómur þvættingur. Þeir
segja að 23 stúdentar og 300 her-
menn hafi látist. Það trúir enginn
orði af því sem heyrist í ríkisfyöl-
miðlunum.
Aftur á móti hafa stúdentar
mjög virka og vel skipulagða
fréttamiðlun. Sem dæmi má nefna
að þeir hafa stöðvað strætisvagna
og vörufiutningabíla og málað og
límt á þá fréttir og skilaboð, sem
síðan berast um alla borg.
Síðastliðinn sunnudag var skrif-
að á strætisvagnana að 2.673 hefðu
látist og okkur fannst það ýkju-
kennt, en nú skilst okkur að hin
rétta tala sé nær sex þúsundum.
Það er enginn hér, sem styður
stjórnina. Að minnsta kosti enginn,
sem maður talar við. Við fréttum
það að félögum í kommúnista-
flokknum hefði verið skipað að
halda sig innan dyra og tala ekki
um fjöldamorðin. Ég get ekki séð
að þessi stjórn þeirra í Peking hafi
stuðning nokkurs manns hér í
borginni eða annars staðar."
Sigrún sagði að mótmælin hefðu
til þessa aðallega veriðú borgunum,
þar sem sérstaklega mikið er af
ungu fólki, sem er í háskólum. Nú
væru stúdentarnir hins vegar farn-
ir heim í hérað og nú fyrst fengi
fólkið í dreifbýlinu að heyra hvað
gerst hefur.