Morgunblaðið - 13.06.1989, Page 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
131. tbl. 77. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 13. JUNI 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Viðræður um fækkun hefðbimdins herafla:
Gorbatsjov segir
tillögur Bush geta
flýtt samningum
Bonn. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, Sovétleiðtogi, fagnaði í gær tillögum George
Bush, Bandaríkjaforseta, um niðurskurð á sviði hefðbundins herafla
í Evrópu og sagði að ástæða væri til að ætla að þær kynnu að fiýta
gerð samkomulags austurs og vesturs þar að lútandi í viðræðum, sem
fram færu í Vínarborg. Viktor Karpov, aðalsamningamaður Sovét-
manna í afvopnunarviðræðum austurs og vesturs, sagði hins vegar í ■
grein, sem birtist í New York Times í gær, að tillögur Bush væru
óaðgengilegar á mörgum mikilvægum sviðum.
Reuter
Tekið var á móti Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétleiðtoga (í miðið), með viðhöfn á flugvellinum í Bonn er
hann kom í fjögurra daga heimsókn til Vestur-Þýskalands í gær. Þar tóku Richard von Weiszaeker,
forseti Vestur-Þýskalands (t.v.) og Helmut Kohl, kanslari (t.h.) á móti honum.
Gorbatsjov fjallaði um tillögur
Bush á fyrsta degi heimsóknar sinnar
í Vestur-Þýskalandi. Var það í fyrsta
sinn sem hann tjáir sig um tillögur,
sem Bush kynnti á leiðtogafundi
NATO í Brussel 29. maí sl. Sagðist
hann gleðjast yfir tillögunum þar sem
þær endurspegluðu vilja vesturveld-
anna til þess að fækka eigin vopnum
í stað þess að krefjast einhliða fækk-
unar af hálfu Varsjárbandalagsríkj-
anna. Þær mörkuðu einnig tímamót
þar eð með þeim hefði tillögum Var-
sjárbandalagsins um fækkun hefð-
bundinna vopna í fyrsta sinn verið
Bretar setja Boeing
737-400 í flugbann
Þotur Flugleiða fljúga áfram en með minna afli - flugmálastjóri kveðst
bíða ákvörðunar bandarískra flugmálayfirvalda
London. Reuter.
BRESKA flugmálasljórnin (CAA) kyrrsetti allar Boeing 737-400 far-
þegaþotur í eigu breskra flugfélaga í gær vegna bilana í hreyflum
tveggja þeirra um helgina. Pétur Einarsson, flugmálastjóri, sagði að
í gærkvöldi hefði ekki verið talin ástæða til að kyrrsetja 737-400 þot-
ur Flugleiða, Aldísi og Eydísi, en þær eru með hreyfla sömu tegundar
og kyrrsettu þoturnar. Forráðamenn Flugleiða ákváðu í nótt að þotum
félagsins yrði ekki flogið fyrr en að skoðun lokinni. Skoðun annarrar
þeirra hófst í nótt og var ráðgert að henni Iyki í dag og hin yrði skoðuð
í kjölfarið. Pétur sagði að viðbrögð Flugmálastjórnar myndu ráðast
af afstöðu bandarisku flugmálastjórnarinnar (FAA), en á miðnætti
hafði FAA ekkert formlega látið frá sér fara um málið. Skeyti barst
Flugleiðum frá framleiðanda hreyflanna, SNECMA í París, þar sem
farið er fram á að vélunum verði ekki flogið með fúllu afli, en að
sögn Leifs Magnússonar, framkvæmdastjóra hjá Flugleiðum, er það
að jafhaði ekki gert.
Tom Cole, talsmaður Boeing-1
verksmiðjanna, sagði í samtali við
Morgunblaðið í nótt, að verksmiðj-1
urnar hefðu sent flugfélögum ábend-
ingar um bilunina í bresku þotunum.
Blöð í forþjöppum hreyflanna hefðu
brotnað en óljóst væri hvers vegna.
Cole sagðist búast við að bandaríska
flugmálastjórnin héldi að sér höndum
þar sem 737-400 þotur í eigu banda-
rískra flugfélaga væru knúnar ann-
arri undirtegund CFM-56 hreyfilsins
en 737-þotur Fiugleiða og annarra
evrópskra flugfélaga.
Breska blaðið Daily Telegraph
sagði að breska flugmálastjórnin
hefði kyrrsett bresku þoturnar eftir
að SNECMA hefði ráðlagt flugfélög-
um að nota hreyflana ekki með fullu
afli. Breskir flugmenn hefðu ítrekað
látið í ljós áhyggjur um að hreyflarn-
ir væru viðkvæmir fyrir raka og
ísingu og hefði þeim verið fyrirskipað
að setja afísingarbúnað í gang á flugi
í skýjum.
Samkvæmt Reuters-fréttum sagði
talsmaður CAA í London, að brezku
flugvélarnar fengju ekki að fljúga
fyrr en rannsókn á orsökum bilana
í hreyflum þotanna tveggja væri lok-
ið og „fullnægjandi ráðstafanir gerð-
ar til þess að tryggja öryggi“. í báð-
um tilvikum kom mikill titringur
fram í hreyflum er þær voru að klifra
í 25-29 þúsund feta hæð. Eftir lend-
ingu fundust málmbrot í loftinntök-
um hreyflanna.
Á sunnudag neyddust flugmenn
737-400 þotu flugfélagsins British
Midland með 79 manns innanborðs
að hætta flugi frá London til Belfast
á Norður-írlandi og lenda í Mið-
Englandi vegna titrings í hægri
hreyfli. Urðu þeir að draga afl af
hreyflinum. Daginn áður urðu flug-
menn 737-400 þotu Dan-Air að
slökkva á vinstri hreyfli hennar
vegna titrings. Sneru þeir við og
lentu heilu og höldnu á Gatwick-
flugveilinum í London, en um borð
voru 100 farþegar á leið í sumar-
leyfi á spænsku eynni Mínorku.
Talsmaður CAA sagði að þoturnar
ættu að baki 400 og 600 flugtök og
lendingar og því tiltölulega nýjar.
Þær voru knúnar frönskum hreyflum
af gerðinni CFM-56-3C, eða sömu
tegundar og voru á 737-400 þotu
Brjtish Midland, sem fórst í Mið-
Englandi í janúar sl. Flugmenn henn-
ar tilkynntu um eld og titring í öðrum
hreyflinum en slökktu á röngum
hreyfli og brotlentu þotunni er þeir
hugðust nauðlenda henni.
svarað af alvöru og með gagntillög-
um í stað þess að vera mætt með
tortryggni.
í vestur-þýskum blöðum er vakin
athygli á því að í fjóra daga verði
Sovétríkjunum stjórnað frá Bonn.
Við skipulagningu heimsóknarinnar
lögðu Sovétmenn mikla áherslu á að
Gorbatsjov hefði tíma til að sinna
starfi sínu sem leiðtogi Sovétríkjanna
og var upprunaleg dagskrá stytt í
þess skyni. Miðvikudagskvöld er frá-
tekið fyrir embættisstörf í sendiráði
Sovétríkjanna í Bonn þar sem Sovét-
leiðtoginn býr með fylgdarliði sínu.
Venjulega búa svo háttsettir erlendir
gestir í Gymnich-kastala í Bonn en
Sovétmenn vildu njóta góðs af þeim
tæknibúnaði sem er til staðar í sov-
éska sendiráðinu. Gorbatsjov mun
einnig notast við sovéskar flugvélar
þegar hann flýgur milli Bonn, Kölnar
og Stuttgart. Er talið að það sé gert
til þess að hann geti verið í sem
nánustu sambandi við Moskvu.
Mikilvægasta niðurstaða heim-
sóknar Gorbatsjovs verður að öllum
líkindum sameiginleg stjórnmálayfir-
lýsing ríkjanna tveggja. Slík yfirlýs-
ing var undirbúin þegar Helmut
Kohl kanslari sótti Sovétríkin heim
í október síðastliðnum. Samkvæmt
heimildum þýska blaðsins Welt am
Sonntag er meginatriði yfirlýsingar-
innar það að grundvallarregla sam-
eiginlegrar stefnu ríkjanna verði
sjálfsákvörðunarréttur þjóða og ein-
staklinga. Ekki verður sérstaklega
minnst á málefni þýsku ríkjanna en
tekið verður fram að tekið verði sérs-
takt tillit til Berlínar í öllum samning-
um ríkjanna.
Mikið vatn er nú runnið til sjávar
síðan Helmut Kohl líkti Gorbatsjov
við Göbbels, áróðursmeistara Þriðja
ríkisins. Samskipti ríkjanna voru
stirð um langa hríð eftir það. Segja
má að ekki hafi gróið um heilt fyrr
en Kohl kom til Moskvu í fyrra en
þá mælti hánn þau fleygu orð að
„ísinn hefði verið brotinn“.
Sjá „Karpov blæs á
afvopnunartillögur... á bls. 26.
Samskipti Bandaríkjanna og Kína versna
Washington, London, Peking. Reuter, Daily Telegraph.
KINVERSK stjórnvöld gagn-
rýndu Bandaríkjamenn harð-
lega í gær fyrir afskipti af inn-
anríkismálum Kína og réðust á
Fang Lizhi, stjarneðlisfræðing
og andófsmann, sem fyrir átta
dögum leitaði hælis ásamt eig-
inkonu sinni og syni í banda-
ríska sendiráðinu í Peking.
Gefin hefiir verið út handtöku-
skipun á Fang og eiginkonu
hans, Li, og seint í gærkvöldi
var landamærum landsins lok-
að til að hindra hugsanlegan
flótta þeirra. Bresk stjórnvöld
kröfðust þess að námsmaður
frá Hong Kong, sem handtek-
inn var x Peking, yrði tafar-
laust leystur úr haldi.
Fang, sem er virtur stjarneðlis-
fræðingur, hóf afskipti af stjórn-
málum seint á árinu 1986 þegar
hann hvatti námsmenn til að beij-
ast fyrir auknu lýðræði í landinu.
í kjölfar stúdentaóeirða 1986 var
hann rekinn úr stöðu háskólapró-
fessors og flokksskírteini hans
afturkallað.
Bandarísk stjómvöld hafa í
fyrsta sinn opinberlega gagnrýnt
kínverska ráðamenn. I yfirlýsingu
bandaríska utanríkisráðunejrtisins
sagði að tilraunir valdhafa til að
stimpla pólitíska andstæðinga
sem „gagnbyltingarmenn"
breyttu því ekki að fjöldi friðsam-
legra mótmælenda hefði verið
myrtur af hermönnum á Torgi
hins himneska friðar.
í yfirlýsingunni sagði ennfrem-
ur að væri heisti leiðtogi Kína,
Deng Xiaoping, ábyrgur fyrir
blóðbaðinu, „þá hefur hann þar
með kæft þær umbótatilraunir
sem hann hafði sjálfur hrundið
af stað“.
Sjá einnig: „Ekið var yfir
líkin“ og „Hong Kong-
búar“ á bls. 26.