Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989 Innanlandsflug- Arnarflugs: Ný flugvél að koma Innanlandsflug- Arnarflugs fær nýja flugvél í flotann um næstu helgi. Þar er um 2ja ára gamla vél af Dornier-gerð að ræða frá V-Þýskalandi. Hún tekur 19 manns í sæti og þykir sérlega hentug til lendinga á stuttum flug- brautum og við erfiðar aðstæður. Ami Ingvarsson framkvæmda- stjóri innanlandsflugs Amarflugs segir að vélin sé bæði burðarmeiri og flugþolnari en Twin Otter-vélar þær sem Amarflug hefur notað á innanlandsleiðum. Með tilkomu hennar er félagið að mæta aukningu á flutningum þess. Amarflug tekur Domier-vélina á leigu í nokkra mánuði til að byija með en síðan á að sjá til hvort hún verður keypt eða ekki. Vélar af þess- ari tegund kosta 3 milljónir dollara, eða rúmar 170 milljónir króna. Verð þeirrar vélar sem Amarflug fær er á bilinu 2,4-2,5 milljónir dollara. Hjartaþeginn í lungnavél Hjartaþeginn í Lundúnum, Helgi Einar Harðarson frá Grindavík, varð að fara aftur í öndunarvél, sem hann var að mestu laus við, í fyrrakvöld, en nú miðar aftur í rétta átt, að sögn Jóns A. Baldvinssonar, sendiráðs- prests í Lundúnum. Að sögn hans getur þetta orðið til að fresta flutningi Helga til Hare- field sjúkrahússins um tvo til þijá daga. Mánafoss kyrrsettur MÁNAFOSS, leiguskip Eimskipa- félags íslands, var síðastliðinn miðvikudag kyrrsettur í New. York í einn sólarhring vegna skulda þýsks fyrirtækis, sem hafði skipið á leigu fyrir nokkrum árum. Að sögn Jóns Sigurðssonar hjá Ameríkudeild Eimskipafélagsins var ástæða kyrrsetningarinnar gömul krafa, sem fyrri rekstraraðili skips- ins, þýska skipafélagið Oversea Transport Intemational, hafði ekki innt af hendi, en samkvæmt banda- rískum lögum er hægt að velta slfkum kröfum yfir á þá sem reka skipið núna. Skipið var kyrrsett í einn sólarhring en þá ábyrgðist Eim- skipafélagið greiðslur á kröfunni. Jón segir að um syo skamma töf hafí verið að ræða, að líkur séu á að kyrrsetningin raski ekki áætlun skipsins. Morgunblaðið/Siguröur Gunnarsson Hrafoseyrarheiði. Þar er hátt „stál“, það er skafl öðrum megin vegarins sem búið er að moka úr. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Á Dynjandaheiði eru enn mikil snjógöng. Morgunblaðið/Matthias Jóhannsson Lágheiðin er að verða fær, en þar eru enn mikil snjógöng. Heiðavegir að opnast HEIÐAVEGIR á Vestflörðum eru nú að opnast fyrir umferð fólksbfla. í dag mun veghefill fara um Dynjandaheiði og Hrafhseyrarheiði og búið er að auka öxulþungann á þessum vegum upp í 7 tonn. Að sögn Eiðs B. Thoroddsens hjá Vega- gerðinni á Patreksfirði ættu þessar heiðar tvær að verða í þokkalegu lagi fyrir umferð fólksbíla eftir daginn í dag. Þessar heiðar lokast strax í fyrstu snjóum á haustin og eru ekki opnaðar fyrr en að vori. Snjóalög hafa verið með mesta móti í vetur. Lágheiðin, á milli Fljóta og Ólafsfjarðar, er að verða fær og er jafnvel búist við að hún verði opnuð á morgun, að sögn yfir- verkstjóra Vegagerðarinnar á Sauðárkróki. Ráðgjafarnefnd Fríverslunarbandalags Evrópu: EFTA taki þátt með EB í hagræðingu vöru- og flármagnsflutninga Ráðherraráð EFTA kemur saman í dag Ráðgjafarnefnd Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) átti í gær fimd með Efiiahags- og félagsmálanefiid Evrópubandalagsins í Kristianssand í Noregi, en þar hefst í dag fúndur ráðherraráðs EFTA. Að sögn Ólafs Davíðssonar, formanns ráðgjafarnefhdarinn- ar, kom í gær fram mikill stuðningur við aukið samstarf bandalag- anna tveggja í framhaldi af yfírlýsingu leiðtogafúndar EFTA í Ósló 14.-15. mars síðastliðinn. Samstaða náðist um það í viðræðum nefndanna tveggja að EFTA-ríkin yrðu ekki skilin útundan þegar verið væri að auka hagkvæmni í Evrópu í fjármagnsviðskiptum og vöruflutningum. Lagðar voru fram tvær skýrslur sem hafa að geyma sameiginlegar tillögur nefndanna. Önnur skýrslan íjallar um fjármagnsviðskipti, þar sem fram kemur að það skipti miklu máli að einn fjármagnsmark- aður verði ekki bundinn við Evrópu- bandalagið (EB) heldur nái einnig til EFTA-ríkjanna sex, íslands, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Sviss og Austurríkis. Einnig voru lagðar fram sameiginlegar tillögur í flutn- ingamálum. Þar er minnt á að ver- ið sé að gera EB að einum vöru- flutningamarkaði og það sama þurfi að gerast annars staðar í Evrópu. Innan EB er til dæmis lögð mikil áhersla á aukið frelsi í flug- samgöngum og er mælt með því að sú þróun nái einnig til EFTA- ríkjanna. Þessar skýrslur verða til meðferðar innan EFTA eftir að þær hafa verið kynntar ráðherrunum í dag. Ráðherrafundinn situr fyrir ís- lands hönd Jón Baldvin Hannibals- son, utanríkisráðherra, en hann tekur við formennsku í ráðherra- ráðinu um næstu mánaðamót. í íslensku sendinefndinni eru auk þess Hannes Hafstein, ráðuneytis- stjóri utanríkisráðuneytisins, Einar Benediktsson, sendiherra í Brussel, Sverrir Haukur Gunnlaugsson, fastafulltrúi hjá EFTA, Valgeir Ársælsson, forstöðumaður við- skiptaskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins, og Kjartan Jóhannsson, form- aður Evrópubandalagsnefndar Al- þingis. Fundi ráðgjafamefndar EFTA sitja fyrir íslands hönd: Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra iðnrekenda, en hann er jafnframt formaður ráðgjafar- nefndarinnar, Magnús Gunnars- son, framkvæmdastjóri Sölusam- bands íslenskra fiskframleiðenda, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Verslunarráðs íslands, Ari Skúlason, hagfræðingur Alþýðu- sambands íslands, og Benedikt Launþegar hvattir til að leggja bílunum í dag og á morgun Forystumenn ASÍ og BSRB hvöttu í gær til nýrra aðgerða til þess að mótmæla nýafstöðnum verðhækkunum. Þeim tilmælum er beint til launþega að þeir skilji bifreiðir sínar eftir heima í dag og á morgun og mótmæli þannig hækkun bensínverðs. Gripið er til þessara aðgerða til þess að knýja ríkisstjómina til þess að lækka verð á bensíni, en forystumenn launþegasamtakanna segja hækkun bensínverðs mun meiri en nemi hækkunum erlendis. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, hefúr boðað til fiind- ar með forystumönnum BSRB á fimmtudag. Til fúndarins er boðað á grundvelli ákvæðis í samningi rikisins og BSRB um að ræða skuli gmndvöll samningsins á tveggja mánaða fresti. Á fundi sem Alþýðusamband Is- nein viðbrögð og því væri gripið til lands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja efndu til í gær sagði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, að almenn þátttaka í mjólk- urbindindinu sem hvatt var til í síðustu viku sýndi ljóslega álit laun- þega á verðhækkununum. Hins vegar hefðu stjómvöld ekki sýnt frekari aðgerða nú. Á fundinum kom fram að bensín- hækkunin þýddi 1.328 krónur á mánuði í aukin útgjöld hjá vísitölu- fjölskyldu. Rúmlega helmingur hækkunarinnar, 53,7%, rennur sem opinber gjöld til ríkisins. í máli Amar Friðrikssonar, vara- forseta ASÍ, kom fram að gengið hefði verið til samninga við ríkið í vor í trausti þess að staðið yrði við gefín loforð um aðhald í verðlags- málum. Það hefði ekki gengið eftir. Með þessum aðgerðum væri vonast til þess að ríkisstjórnin tæki við sér og bætti launþegum það tjón sem þeir hefðu þegar orðið fyrir vegna verðhækkananna. Forystumenn launþegasamtak- anna búast við almennri þátttöku í mótmælunum. „Við viljum að ríkis- stjórnin geri sér grein fyrir að laun- þegar eru tilbúnir til þess að leggja ýmislegt á sig til þess að standa við gerða samninga," sagði Öm Friðriksson. „Hins vegar vil ég taka fram að við geram okkur grein fyr- ir að margir eiga bágt með að Sveinsson, aðstoðarframkvæmda- stjóri Sjávarafurðadeildar SÍS. Pétur Gauti Pétursson Mývatnssveit: Lést í drátt- arvélaslysi Björk, Mývatnssveit. ÞAÐ SVIPLEGA slys varð á Gaut- löndum í Mývatnssveit síðastliðinn laugardag að bóndinn þar, Pétur Gauti Pétursson, varð undir drátt- arvél og lést samstundis. Pétur var 75 ára og hefur búið á Gautlöndum alla sína búskapartíð. Enginn sjónarvottur var að þessu slysi en talið er að Pétur hafi verið að opna hlið sem var á veginum en nokkur halli var þar og vélin þá rann- ið yfír hann með fyrrgreindum afleið- ingum. Pétur Gauti Pétursson lætur eftir sig eiginkonu og ijögur uppkomin ^)nrn' Kristján leggja bifreið sinni í tvo daga.“ Forsætisráðherra boðaði í gær- morgun til fundar með forystu BSRB á fimmtudag. Ögmundur Jónasson segir boðað til þessa fund- ar á grandvelli ákvæðis í kjara- samningi ríkisins við BSRB þar sem kveðið er á um að eigi sjaldnar en á tveggja mánaða fresti skuli samn- ingsaðilar fara yfir þróun verðlags- mála og ræða aðgerðir sem stuðli að því að grundvöllur kjarasamn- ingsins haldi. Ögmundur sagði að á fimmtudag yrðu því ræddar að- gerðir vegna verðhækkananna á undanfömum vikum. Fram kom á fundinum að frekari mótmæli gegn verðhækkunum hafa ekki verið undirbúin af hálfu ASÍ og BSRB. Runólfiir Sveinn Sverrisson Lést í bif: hjólaslysi 22 ARA gamall maður beið bana þegar biflijól sem hann ók fór út af veginum skammt vestan við Rangá við Ilellu að kvöldi laugar- dags. Bifhjólið var á vesturleið og hafn- aði út af veginum skammt vestan brúarinnar yfir Rangá. Maðurinn var látinn þegar læknir kom að. Hann hét Runólfur Sveinn Sverrisson til heimilis á Melabraut 6, Seltjamar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.