Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐÍÐ ÞRIÐJUDÁGUR 13. JtÍNÍ'1989 Hvernig stendur á því að þú ert hér? Ég er enn að tala við þig á skrifstofúnni. Það væri ánægjulegt að sjá þig hér á laugardagskvöld- ið, tengdamamma, þá gæt- um við brugðið okkur bæj- arleið meðan þú gættir bús og bama? HÖGNI HREKKVÍSI Þessir hringdu / Jíc Greiðið niður lambakjötið Húsmóðir hringdi: „Nú er talað um 10 til 15 pró- sent samdrátt í sölu á lambakjöti og er það engin furða. Lambakjöt er svo dýrt að fæstir hafa efni á að kaupa það nema til hátíða- brigða. Matarvenjur hafa í rauninni ekki breyst heldur hefur þetta háa verð neytt fólk til að velja aðrar tegundir kjöts. Þetta virðast ráða- menn ekki skilja. Það er furðulegt til þess að hugsa að þó við höfum ekki efni á að kaupa þetta kjöt sjálf höfum við greitt 350 þúsund krónur með hverju tonni sem flutt hefur verið út. Að mati stjórn- málamanna virðumst við hafa efni á að greiða lambakjötið niður ofan í útlendinga en ekki okkur sjálf! Er einhver skynsemisglóra í þessu? Það hlýtur að vera betra að greiða lambakjötið niður en að láta það fara á haugana." Ýmsar ástæður fyrir gjaldþrotum Þorsteinn Jakobsson hringdi: „Mig langar að gera athugasemd í sambandi vð grein eftir Dr. Gunn- laug Þórðarson sem birtist í Morg- unblaðinu 6. júní. Hann talar um að þeir sem verða fyrir gjaldþroti séu bara skúrkar og svikarar, setur alla undir sama hat sem verða fyr- ir gjaldþroti sem náttúrulega ekki rétt. Það e mismunandi hvernig fólk lendir í þessum erfiðleikum og þar sem Gunnlaugur er að tala um skúrka þá er ansi stór hópur lög- fræðinga sem er í þeim hópi. Ætla mætti að stór hópur af lögfræðing- um væru hreinar blóðsugur á hin- um almenna borgara. Svo skora ég á alla gjaldþrota einstaklinga að gerast félagar í Samtökum gjaldþrota einstaklinga og samein- ast til að stöðva þessi mannrétt- indabrot sem eru að gerast í þessu þjóðfélagi." Orlof húsmæðra Orlofskona hringdi: „Ég vil koma á framfæri spurn- ingu sem brennur í huga margra reykvískra húsmæðra um þessar mundir. Hvað veldur þvi að orlof húsmæðra í Reykjavík efnir ekki til orlofsdvala hér á landi í sumar? Nú verður orlofið staðsett á Bened- orm. Ég legg ekki dóm á þá ráð- stöfun að sinni. Ég er ein af mörg- um sem héf notið orlofsdvalar í ríkum mælienda hefur orlofið haft menningarlegt gildi auk hvíldar og góðs samfélags. Orlof húsmæðra í Reykjavík hefur um langt árabil verið rekið með framsýni og mynd- arskap. Ég harma að sjá því stefnt á þessa braut að það sé engöngu hægt að taka erlendis." Þrílit læða Þrílit læða fór að heiman frá sér í Hafnarfirði 2. júní. Hún er um það bil hálfs árs gömul og var með bláa ól. Hún gæti hugsanlega hafa lokast iryii og ætti fólk að svipast um í skúrum eða öðrum líklegum stöðum. Ef kisa hefur einhvers staðar komið fram vinsamlegast hringið í síma 53353. Vargager Kona hringdi: „Mér finnst furðulegt að það • skuli ekkert vera gert til að fækka veiðibjöllunni á Tjörninni eða ein- hveijar ráðstafanir gerðir til vemd- ar æðarungunum. Ég held að ann- að eins vargager hafi aldrei verið á Tjörninni fyrr. Með þessu móti lifir ekki einn einasti ungi, svo þetta verður bara mávatjörn í framtíðinni. Gerið eitthvað í málinu áður en það verður of seint.“ Bröndótt læða Bröndótt læða fór að heiman frá sér að Miðvangi 151 í Hafnarfirði. Hún var með rautt band með nafn- hylki og gylltri bjöllu á. Þeir sem orðið hafa varir við kisu vinsamleg- ast hringi í síma 652983. Póstkort með páfa Spurt var eftir póstkorti sem gefið var út í tilefni af heimsókn páfa. Póstkort þetta fæst hjá Fé- lagi kaþólskra leikmanna, Magna Laugavegi 15, Rammagerðinni, Isafold og fleiri bókaverslunum. Fækkið veiðibjöllunni Veiðimaður hringdi: „Ég er gamall veiðirnaður og man vel eftir því hve veiðibjöllur eru grimmar og aðgangsfrekar. Nú er fjöldinn allur af veiðibjöllum sestur að á Tjörninni og hafa æðar- kollurnar engan frið með unga sína. Fyrir nokkrum áratugum var mað- ur sem sá um að fækka veiðibjöllum á Tjörninni. Það var Bjargmundur Sveinsson, rafvirki, en hann var bróðir Kjarvals málara. Hann skaut þarna snemma á morgnana og varð ekkert ónæði af því. Borgar- yfirvöld ættu að fá menn frá. skot- félögunum til að annast þetta því ef það verður ekki gert er fuglalíf- ið á tjörninni í mikilli hættu.“ Leðurjakki Brúnn Leðurjakki tapaðist 31. maí í tengslum við lokadansleik háskólastúdenta. í vasa hans var gullúr og lyklar. Vinsamlegast hringið í síma 74581 ef jakkinnn hefur komið í leitirnar. Kettlingur Svartur kettlingur kom í hús við Bárugötu fyrir nokkru. Upplýsing- ar í síma 24966. Víkverji skrifar Það er alltof sjaldgæft, að stjórnmálamenn nái einhveij- um raunverulegum og áþreifanleg- um árangri í störfum sínum. Nú er sagt, að Jón Sigurðsson, við- skiptaráðherra, sé í sjöunda himni vegna þess, að samningar tókust um sölu Útvegsbankans og samein- ingu fjögurra banka í kjölfar þess. Gleði viðskiptaráðherra er skiljan- leg. Menn hafa verið að fást við end- urskipulagningu bankakerfisins í tvo áratugi. Þær tilraunir hafa allar runnið út í sandinn þar til nú. Þess vegna má Jón Sigurðsson vel við una. Fram að þessu hafa flestar tilraunir til endurskipulagningar bankanna miðað að því að sameina einhvern banka Búnaðarbankanum. Sá banki hefur hins vegar byggt upp öflugustu varnarmúra, sem nokkur ríkisstofnun hefur komið sér upp, með þvi að kalla til liðs við sig alls kyns hagsmunahópa, sem að bankanum standa. Niðurstaðan er sú, að Búnaðar- bankinn Iosnar við aðild að einhvers konar sameiningu. En hvernig ætli forráðamönnum hans líki tilhugsun- in um að verða minnsti bankinn? Gaman var að sjá tvo stórsöngv- ara koma fram í sjónvarps- þætti í fyrrakvöld, þau Kristján Jóhannsson og Sigrúnu Hjálmtýs- dóttur. Sérfróðir menn um tónlist hafa sagt Víkveija, að Sigrún Hjálmtýsdóttir hafi slíka hæfileika sem óperusöngkona, að hún hafi möguleika á að bijótast í gegn á alþjóðavettvangi. Þeir hinir sömu segja, að námsdvöl hennar á Italíu hafi gjörbreytt henni sem söngkonu og þar hafi hún náð að þroska hæfileika sína mjög. Hún hafi lagt. dægurlagasöng algerlega á hilluna, enda sé hættulegt fyrir óperusöng- konur að stunda slíkan söng. Við höfum fylgst af stolti með þeim árangri, sem Kristján Jó- hannsson hefur náð á erlendum vettvangi á undanförnum árum. Það verður vissulega spennandi að fylgjast með hinni nýju stjörnu meðal íslenzkra óperusöngvara, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, á næstu Hafa sjónvarpsáhorfendur veitt því eftirtekt, að þegar dregið er í einhvers konar happdrætti í sjónvarpi er alltaf hafður til staðar einn karlmaður og ein kona. Hún er hins vegar alltaf í þjónustuhlut- verkinu en karlmaðurinn í hlutverki stjórnandans. Hvers vegna?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.