Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 40
4bf MÖRGi/nBLAÐIÖ ÞRIÐJlíDÁblJR Í3. JUNÍ 1!>89 Hvað er borgaraleg ferming og hvað er siðrænn húmanismi? eftir Gísla Gunnarsson Hér verður fjallað um siðræna manngildisstefnu, sem er þýðing á hugtökunum etískur húmanismi. Nýlega fór fram borgaraleg ferming hér á landi og fyrirmynd að henni var sótt til samtaka etískra húman- ista erlendis. Ekki hafa allir skilið þá hugmyndafræði, sem slík samtök styðjast við, t.d. var slíkur skilningur ekkert skilyrði fyrir þátttöku í ferm- ingarathöfninni. En það hefði að sjálfsögðu verið í andstöðu við frjáls- lyndi siðræns húmanisma að gera í upphafi kröfu um einlita hugmynda- fræðilega afstöðu. Fýrst verður hér Qallað nokkuð um ferminguna en síðan manngildis- stefnu. Fermingin Að fermast borgaralega er ekki endilega merki um trúleysi. Ferming- arbaminu og foreldrum þess getur fyrst og fremst ofboðið sú hræsni, sem óneitanlega felst stundum í kirkjulegri fermingu, að játa trúnað við Krist til að tryggja sér góða gjafa- hátið. Að neita kirkjulegri fermingu við þessar aðstæður er því ákveðin siðræn afstaða sem kristnir menn ættu að geta virt. Einnig getur fermingarbarnið haft agnostísk viðhorf (agnostisismi = að vera ekki viss um tilvist yfirn- áttúrulegra afla eða „guðsríkis"). Það telur því réttara að gefa eng- in heit. Sum fermingarbörnin eru hins vegar viss í sinni sök og telja guðdóminn ekki vera til; heimur- inn sé einn og óskiptur. Þau eru því aþeistar, guðleysingjar. En við allar aðstæður felur borg- araleg ferming og undanfari hennar, sem er allviðamikið námskeið, í sér ákveðna siðræna afstöðu, þá að vilja verða ábyrgur og sjálfstæður ein- staklingur í samfélaginu sér og sam- borgurum sínum til góðs. Fermingar- undirbúningurinn fól fyrst og fremst í sér að styrkja hvern þátttakanda til siðferðilegrar ábyrgðar í framtí- ðinni og efla sjálfstæði hans. Gagnrýni á borgaralega fermingu er einkum á þeim nótum að hún sé á hvern hátt ómakleg stæling kirkju- legrar fermingar. Gagnrýni þessi hefur oftast tvenns konar formerki sem við fyrstu sýn gætu talist merki um að hún sé af ólíkum rótum. Ann- ars vegar er sagt að með borgara- legri fermingu sé verið að stæla ómerkilega gjafahátíð, sem rétt væri að kirkjan ein sæi um. Með því að nefna athöfnina fermingu sé verið að sýna kirkjulegri athöfn of mikla virðingu. Hins vegar er sagt að það sé óvirðing við kristna kirkju að kenna ókristilega athöfn við eitthvað sem kirkjan ein hefur hingað til séð um. Ég held raunar að hjá mörgum blandist þetta tvennt saman: Fóik er íhaldssamt og er illa við nýjung- ar. Öll þessi gagnrýni byggir auk þess á misskilningi. Með borgaralegri fermingu er á engan hátt verið að lýsa stríði á hendur kristni eða öðrum trúar- brögðum. Fermingin er athöfn til að stuðla að siðferðilegum þroska. Ef eitthvað nýtist af kristnum helgisið- um eða kristnu siðgæði við þá athöfn væri slík á engan hátt í mótsögn við eðli borgaralegrar fermingar. Hún er eins og áður segir siðræn afstaða og athöfn en án þess að heit sé gefið um trúnað við ákveðin trúar- brögð. Það hefur einnig verið gagnrýnt að hugtakið ferming sé notað um þessa athöfn. En hugtakið er í g'álfu sér hlutlaust og merkir aðeins stað- festing, sbr. latneska orðið confir- mere. Með athöfninni er verið að staðfesta að unglingurinn hafi sótt sérstakt og sérstætt námskeið og að þar með sé merkum áfanga náð í lífí hans. Sú staðhæfing að hugtakið ferm- ing hafi á íslandi hingað til aðeins verið notað um kirkjulega athöfn, líkt og segi í orðabókum, fræðir okk- ur aðeins um hver venjan hefur ver- ið hér á iandi. Erlendis er ferming, öðru nafni konfirmation, fyrir löngu búin að vinna sér stöðu sem borgara- leg athöfn. Þannig hefur „borgerlig konfirmation" tíðkast í Danmörku síðan 1913 eins og danskar orðabæk- ur bera vitni um. Hér ber einnig að athuga að ferm- ing er ekki sakramenti eða heilög athöfn í lúterskri kristni. Þar eru sakramentin aðeins tvö, skírn og alt- arisganga. Það væri sannarlega gagnrýnisvert ef einhver borgaraleg samtök færu að ræða um „borgara- lega skírn“ eða „borgaralega altaris- göngu“. Ferming í umhverfi lúter- skrar kristni er allt annars eðlis, enda var ferming lítt eða ekkert stun- duð á Islandi frá siðaskiptunum 1540/50 fram til fjórða áratugar 18. aldar. Þá var hún skipulögð á nýjan leik en ekki sem þáttur i nýrri guð- fræði, lúterskur rétttrúnaður breytt- ist þá ekkert, heidur sem fullnaðar- próf ungmenna í konunglegu ein- veldi. Allir skyidu læra að lesa og kunna kristin fræði og prófið í skóla- lausu samfélagi varð fermingin í höndum prestanna. Eftir að almennri skólaskyldu var komið á iaggirnar á þessari öld varð fermingin að hálfgildings vandamáli hjá kirkjunnar mönnum sem gripu þá til þess ráðs að tengja hana fyrstu altarisgöngunni. Þessi ráðstöfun hlýtur að vera mjög umdeild guð- fræði með lúterskum. í löndum mótmælenda, jafnt lút- erskum og kalvínskum, hefur ferm- ingin verið mjög á undanhaldi á þess- ari öld og virðist lítil eftirsjá vera eftir henni 'meðal klerka, enda er hún ekki sakramenti. Á íslandi hefur fermingin hins vegar haldið velli sem íjölskylduhátíð mikilla gjafa. Satt að segja finnst mér lútersk kirkja engan veginn vera í stakk búin að geta hneykslast yfir innleið- ingu borgaralegrar fermingar. Slíkt gæti kaþólska kirkjan hins vegar gert, en hún lítur á ferminguna sem sakramenti. Á sama hátt hefur ka- þólska kirkjan rétt til að hneykslast á notkun lúterskra á fermingar- hugtakinu. Frá sjónarmiði þeirrar kirkju getur varia verið eðlismunur á lúterskri fermingu og borgaralegri fermingu. Siðrænn húmanismi Það er ljóst að ekki þarf endilega að fara saman að taka þátt í athöfn án trúarlegs ívafs eins og borgaraleg ferming er og að stofna félagsskap fólks sem í lífsviðhorfí eru agností- kerar eða aþeistar (trúleysingjar eða guðleysingjar). Kristnir einstakling- ar geta tekið þátt í athöfn eins og borgaralegri fermingu og jafnvel borgaralegri greftrun (en greftrun er ekki sakramenti hjá mótmælend- um. Sumir kalvínskir söfnuðir sleppa þannig meira eða minna öllum helgi- siðum við greftrun). Það er hins vegar ljóst að agnost- ikerar og aþeistar hljóta að vera burðarásinn í samtökum sem skipu- leggja borgaralega valkosti við helsu tímamót lífsins og því hljóta lífsvið- horf þeirra að móta þau. Slík samtök eru á erlendum málum kennd við húmanisma og etík. Frá upphafi húmanismans á síðmiðöldum hefur stefnuáherslan einkum falist í trausti á getu og vilja mannsins til að bæta sjálfan sig og umhverfi sitt: Maðurinn hefur fijálsan vilja til að velja og hafna og ráða örlögum sínum, bæði einn og í samfélagi við aðra. Lögmálum eða valdi utan mannlegs vilja hefur ekki endilega verið hafnað en hins vegar talið að séu þau ekki til þroska eigi að vinna gegn þeim og maðurinn á að geta komist mjög langt í þeim efnum ef vilji hans er tvímælalaus. Slík „lög- mál“ eða slíkt vald getur bæði talist til „yfirnáttúrulegra" og náttúru- legra fyrirbæra. Húmanisminn hefur því bæði get- að samræmst trúarbrögðum og snú- ist gegn þeim. Hinar ýmsu kirkjur heims snerust þó nær allar gegn manngildisstefnunni fyrr á öldum og jafnt mótmælendakirkjur og ka- þólska kirkjan létu brenna húmanista á báli á 16. öld. Því hefur húmanism- inn þróast sem hugmyndafræði í stöðugri andstöðu við kirkjuleg völd. Lögð hefur verið áhersla á fijálsan vilja mannsins til að ráða örlögum sínum og snúist hefur verið gegn aliri forlagahyggju og hugmyndum um að „yfirnáttúruleg" öfl ráði lífi mannsins. Vísindahyggja og skynsemis- stefna 18. og 19. alda voru að mikiu leyti sprottnar af meiði húmanismans en vísindahyggjan setti samt húman- ismann í hugmyndafræðilegan vanda. Samkvæmt gamalii vísinda- hyggju á að vera mögulegt að leysa öll mannleg vandamál með einföldum forskriftum úr náttúruvísindum og félagsvísindum. Forskriftirnar verða að lögmálum, sem hljóta svipað hlut- verk og trúarbrögðin: Maðurinn verður samkvæmt „vísindaforskrift- unum“ að lúta í einu og öllu lögmál- um náttúru, sögu eða markaðar líkt og menn áður fyrr urðu að lúta vilja Guðs. Fijáls vilji mannsins má sín lítils í þessari forskriftatrú. Trúleysi (agnostisismi) og guðleysi (aþeismi), sem á nær einhliða rætur að rekja til lögmálsbundinnar vísindahyggju 19. aldar, er því ann- ars eðlis en það trúleysi og guðleysi sem felst í húmanismanum. Þessu til áréttingar hafa húmanistar nú á síðari helmingi 20. aldar bætt hug- takinu etík, siðfræði, við húmanis- mann. Hún er nokkurs konar undir- strikun manngildishugsjónarinnar. Manninum er gefinn fijáls vilji til að bæta siði sína, þ.e. að bæta sjálf- an sig. Húmanisminn væri lítis eða einskis virði án sterkrar siðgæðisvit- undar. Til hvers væri að setja traust sitt á manngildið ef tilgangurinn er ekki að bæta manninn? Auk þess er það sérhveijum manni nauðsynlegt að búa við ákveðin og skýlaus siðferðisgildi einfaldlega til að geta verið í samfélagi með öðrum mönnum. Hér hræða vissulega spor guðlausrar forskriftatrúar, en þar var gjarnan almennum siðferðisregl- um í samskiptum manna á meðal kastað fyrir róða á þeim forsendum að þær væru smáborgaralegar og jafnvel kristilegar. Guðleysinginn Hitler sótti hugmyndir SÍ77—anr í „mannbóta"- og kynþáttakenningar sósíaldarwinsmans og sniðgekk allar venjulegar siðareglur. Hugmynda- legar rætur stalínismans voru fyrst og fremst trúin á sögulega nauðsyn óhjákvæmilegrar og harðrar stétta- baráttu og öll mannleg breytni var sniðin eftir þessari trú. Hegðun einstakra fylgismanna guðlausrar forskriftar líkist því aug- ljóslega breytni sumra kirkjunnar manna. Þetta ættu allir guðleysingj- ar að hafa í huga þegar sumir þeirra hyggjast fordæma t.d. kristnina með því að benda á einstakar misgerðir kristinna manna í nafni trúar sinnar. En húmanisminn er hins vegar að því leyti líkur trúarbrögðum eins og kristni að hann leggur mikla áherslu Gísli Gunnarsson „Samtök um siðræna manngildisstefhu munu stuðla að því að hver og einn geti í frjálsu vali sínu tekið þann kost sem verði engum til meins og honum eða henni til einhvers þroska.“ á siðfræði hvers og eins. Sérhver húmanisti á að reyna að fara eftir reglunni „Það sem þér viljið að aðrir gjöri yður skulið þér og öðrum gjöra.“ Það er engin skömm að fara í smiðju trúarlegrar siðfræði. Þvert á móti er það skylda húmanistans að efla siðfræði sína í samræmi við það besta og skynsamlegasta sem finnst í siðareglum þess samfélags, sem hann lifir í. Allt skilur þetta sið- ræna manngildisstefnu (etískan húmanisma) frá forskríftatrú gam- allar vísindahyggju. Að endingu skal ítrekað hvað sið- ræn manngildisstefna er: Maðurinn er, bæði einn og í samfélagi við aðra, með fijálsan vilja og lýtur ekki lög- málum trúarbragða hvort sem þau eru í gervi guðstrúar eða vísinda- hyggju. Þetta líf er hið eina sem við eigum og við þurfum að efla það og bæta. Við beijumst gegn hleypidóm- um og þröngsýni og vinnum gegn fáfræði. Samtök um siðræna mann- gildisstefnu munu stuðla að því að hver og einn geti í fijálsu vali sínu tekið þann kost sem verði engum til meins og honum eða henni til ein- hvers þroska. Höfúndur erdósent í sagnfræði við Háskóla Islands. Lestrarfélag Borgar- flarðar hundrað ára Borgarfírði eystra. — Frá Sverri Haralds- syni fréttaritara. Um þessar mundir er Lestrarfélag Borgarfjarðar hundrað ára gamalt. Að vísu var það um haustið 1888 sem nokkrir bændur komu saman á bænum Hofsströnd til að ræða um stofnun lestrarféiags og voru tuttugu einstaklingar sem tóku sig saman um stofnun þess. Ekkert er til skráð um þessa fyrstu ráðstefnu, en fyrsta reglulega fundargerð sem til er er frá fundi sem haldinn var á Hofs- strönd síðla vetrar 1889 og hefur aldur félagsins verið miðaður við þann tíma. Samin voru lög félagsins í ellefu liðum og voru þau lesin upp á þessum fundi og samþykkt. Fjórir Borgfirðingar voru kosnir til að kynna félagið og hvetja sveitungana til að ganga í það. Félagsgjald var ákveðið tvær krónur fyrir karla, en ein króna fyrir konur. Þetta gilti til ársins 1918, en þá var gjaldið hækk- að í fjórar krónur, jafnt fyrir alla. Nokkrar bækur höfðu verið keypt- ar, en ekki svo margar, að allir fé- lagsmenn gætu fengið bók, en þá var bara að skiptast á og láta þær ganga á milli. Bók máttu menn hafa í tvo daga fyrir hveijar fimm arkir. Á þeim heimilum, þar sem einhver var félagsmaður, mátti allt heimilis- fólkið lesa bókina, pn algert bann var við að lána félagsbók út af heimil- inu. Enginn sérstakur útlánstími var, en félagsmenn tóku bækur og ski- luðu þeim, þegar ferð féll og vantaði lestrarefni. Það er fyrst árið 1912, sem auglýstur er ákveðinn tími til útlána, kl. 2—4 á laugardögum. Fyrstu stjórn Lestrarfélags Borg- arfjarðar skipuðu: Hannes Sigurðs- son, Gilsárvallahjáleigu, formaður, Árni Sigurðsson, Bakkakoti, bóka- vörður, og Bjarni Þorsteinsson, Höfn, gjaldkeri. Næstu íjögur árin var þessi stjórn endurkosin. Á fundi næsta ár sögðu þrír sig úr félaginu, en sjö gengu í það. A þessu ári leggja átta félagsmenn fram 50 aura hver, til kaupa á dönsk- um bókum. Þetta annað starfsár eru bækur félagsins þessar: Fornaldar- sögur norðurlanda, bækur Þjóðvina- félagsins, bækur Bókmenntafélags- ins, Búnaðarritið, Iðunn, Snorra- Edda, Lækningabók dr. Jónassens, Hjálp í viðiögum og danskar bækur fyrir 4 kr. Næsta ár eru keyptar bækur fyrir fjörutíu krónur og áttatíu aura og er þá inneign félagsins sex krónur og tuttugu aurar. Og áfram er bætt við bókakostinn: Kvennafræðarinn, Ljóð Kristjáns Jónssonar, Gríms Thomsens, Matthíasar Jochumssonar óg kvæði eftir Hans Natansson, Frelsi og menntun kvenna, Huld o.fi. Giöggt má sjá, að megináhersla er lögð á þjóðlegan fróðleik, bækur góðskáldanna og merk tímarit. Um aldamót voru til í sjóði fimm krónur og sjötíu og þrír aurar. Strax á fyrstu starfsárum félags- ins var farið að halda hlutaveltur og bögglauppboð, til að afla félaginu tekna. Fyrstu árin er Lestrarfélagið til húsa á Bakka, en árið 1904 fær það húsnæði fyrir bækurnar í svokölluðu Bindindishúsi, sem þá var nýreist, Fyrsta húsnæði Lestrarfél. í baðstofunni á Bakka. 1889—1904. Bindindishúsið 1904—1906. Barnaskólinn 1907—1969. Fjarðarborg 1970— . en það var ekki lengi, því að þetta hús brann til grunna árið 1906. Eitt- hvað af bókum var þá í útlánum, er nnikið af bókum brann þarna. Þá hafði félagið átt 260 bækur. Árið eftir er bamaskólinn nýreist- ur og fær Lestrarfélagið þar inni með bækur sínar. Árið eftir berst félaginu bréf frá Oddi Björnssyni bókaútgefanda á Akureyri, þar sem hann býður að gjöf allar útgáfubæk- ur sínar tii þess tíma. Varð þetta mikil og ómetanleg hjálp við að byggja félagið upp aftur eftir brun- ann. í félagsheimilið Fj'arðarborg flytur Lestrarfélagið árið 1970. Þá er bókaeign þess u.þ.b. 1.450 bækur og auk þeirra talsvert af tímaritum. Núverandi bókaeign er um 3.000 bækur auk ýmiskonar smárita og tímarita. Einnig manntöi og kirkjubækur í ljósritum. Útlán eru nú tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum, á tíma- bilinu frá miðjum október til maí. Bókaverðir á þessum árum eru orðn- ir 19. Núverandi bókavörður, Sigríð- ur Eyjólfsdóttir, hefur gegnt því starfi síðan 1965. Núverandi stjóm skipa: Svandís Geirsdóttir, Árgarði, Sesselja Jónsdóttir Desjarmýri og Olafur Arngrímsson, Þórshamri. Segja má, að stórhugur bænd- anna, sem komu saman á Hofsströnd í Borgarfirði fyrir hundrað árum og stofnuðu vísi að lestrarfélagi, hafi borið góðan ávöxt. Síðan hefur Lestr- arfélag Borgarfjarðar eflst og aukist og veitt fjölmörgum fróðleik og ánægju, þrátt fyrir fátækt og tak- markaðan styrk opinberra aðila. Og nú á fjölmiðlaöld er jafnmikil þörf fyrir lestrarfélagið í Borgarfirði og hún var fyrir hundrað árum. — Sverrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.