Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989 Morgunblaðið/Einar Falur Iðnó kvatt með söng Starfsfólk og allir leikhússtjórar Leikfélags Reykjavíkur fyrr og síðar kvöddu með Qöldasöng í lok síðustu sýningar félagsins í Iðnó síðastliðinn sunnudag. í 92 ár hefur félagið starfað í Iðnó og næsta haust verða fyrstu sýningar félagsins í Borgarleikhúsinu. Að sögn Hallmars Sigurðssonar leikhússtjóra hefiir ekki verið tekin ákvörðun um hvað verður um Iðnó en trúlega hefði ekki ver- ið rekin jafh samfelld menningarstarfsemi í neinu öðru húsi hér á landi og vonandi yrði svo áfram. Myndin var tekin þegar sviðstjaldið var fellt í síðasta sinn hjá LR í Iðnó. 3 m VEÐURHORFUR í DAG, 13. JÚNÍ YFIRLIT í GÆR: Yfir Skandinavíu er 1032ja mb hæð, en 987 mb lægð um 800 km suðsuðvestur af Reykjanesi hreyfist lítið og grynn- ist heldur. Hiti breytist lítið. SPÁ: Suð- og suðaustanátt 3—5 vindstig víðast hvar á iandinu. Rigning á Norðaustur- og Austurlandi, en skúrir á Suður- og Suð- vesturlandi. Annars þurrt. Hiti 8—15 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Fremur hæg suð- og suðaustanátt. Þurrt og sums staðar léttskýjað norðanlands, en skúrir um sunnanvert landið. Hiti á bilinu 8 til 16 stig. TAKN: •Q - Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað ^ Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / r / r / r Rigning / r r * / * / * / * Slydda / * r * # * * * * * Snjókoma •j o Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða ’, ’ Suld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 15 léttskýjað Reykjavík 11 þokumóða Bergen 19 skýjað Helsinki 16 skruggur Kaupmannah. 20 léttskýjað Narssarssuaq 10 skýjað Nuuk 1 hálfskýjað Ósló 21 léttskýjað Stokkhólmur 21 léttskýjað Þórshöfn 12alskýjað Algarve vantar Amsterdam 23 léttskýjað Barcelona 25 léttskýjað Berlín 22 léttskýjað Chicago 17 skúr Feneyjar vantar Frankfurt 19 skýjað Glasgow 20 skýjað Hamborg 21 léttskýjað Las Palmas vantar London 26 skýjað Los Angeles 14 léttskýjað Lúxemborg 19 lóttskýjað Madríd 30 léttskýjað Malaga 28 heiðskfrt Mallorca 26 léttskýjað Montreal 12 heiðskírt New York 19 léttskýjað Orlando 25 þokumóða París vantar Róm * vantar Vín 21 léttskýjað Washington 19 atskýjað Winnipeg vantar Strand Barðans: Skipstjóri sviptur réttindum í tvö ár Siglingadómur dæmdi fyrir nokkru réttindi af skipsfjóra Barðans GK 475, sem strandaði á vestanverðu Snæfellsnesi þann 14. mars 1987. Dómurinn leit svo á, að skipsljórinn hefði sýnt af sér vítavert gáleysi við stjórn skipsins og orðið með því valdur að strandinu. Hann var sviptur skipsstjórnarréttindum í tvö ár, auk þess sem hann var dæmdur í tveggja mánaða varðhald, skilorðsbundið í tvö ár, og gert að greiða sakarkostnað. Hann má gegna stýrimannsstöðu meðan á sviptingu stendur. Að morgni laugardagsins 14. mars 1987 strandaði vélbáturinn Barðinn GK 475 á vestanverðu Snæfellsnesi, skammt norðan Hólahóla. Sjór var þungur, 7 vindstig, myrkur og élja- gangur. Eftir að skipið strandaði náði skipstjórinn sambandi við vél- bátinn Höfrung II, sem tilkynnti um strandið, en samband við Barðann rofnaði eftir það. Þyrla Landhelgis- gæslunnar fór á staðinn og bjargaði skipveijunum níu í land. Ekki var talið að björgun af sjó væri möguleg. Skipstjórinn var ákærður fyrir að hafa orðið valdur að strandinu með yfirsjón og vanrækslu með því að hafa, eftir að hann kom á stjómpall skipsins um kl. 5 og taldi sig vera um 4 mílur frá landi, siglt skipinu á hægri ferð í átt að landi, þrátt fyrir vestan 7 vindstig, þungan sjó og að hann ætti ekki möguleika á að stað- setja skipið með nokkurri nákvæmni sökum myrkurs og éljagangs, bilaðs radars, óvirks lórantækis og lítilla upplýsinga um dýpi og með því að yfirgefa stjómpall skipsins um kl. 6.15 og láta skipið reka við þessar aðstæður með mannlausan stjómpall í 10-15 mínútur uns það strandaði. Krafist var að. skipstjórinn yrði dæmdur til refsingar, til sviptingar skipsstjórnarréttinda og til greiðslu alls sakarkostnaðar. í niðurstöðum Siglingadóms er í fyrsta lagi bent á, að í framburðum í málinu hafí hvergi komið fram að skipstjórinn hafi siglt skipinu á hægri ferð í átt að'landi, eins og sagði í ákæru, heldur að hann hafi siglt meðfram landi og á þessu sé megin- munur. Þá fáist staðhæfing í ákæra um litlar upplýsingar um dýpi ekki staðist, þar sem dýptarmælir Barð- ans hafi verið í lagi og sjókort af svæðinu nákvæm. Hins vegar hafi skipstjórinn sýnt af sér vítavert gá- leysi við stjórn skipsins við ríkjandi aðstæður og orðið með því valdur að strandinu. Siglingadómur taldi þó ekki að brotið varðaði við 4. mgr. 220 gr. hegningarlaga, svo sem ríkis- saksóknari taldi, þar sem ekki yrði talið að það hefði verið framið í ávinningsskyni, af gáska eða á annan ófyrirleitinn hátt. Refsing skipstjórans þótti hæfi- lega ákveðin tveggja mánaða varð- hald, en fullnustu refsingarinnar var frestað og fellur hún niður að tveim- ur áram liðnum, haldi ákærði al- mennt skilorð. Þá var hann sviptur skipsstjórnarréttindum í tvö ár frá birtingu dómsins og gert að greiða allan sakarkostnað, þar nmeð talin saksóknarlaun til ríkissjóðs, 40 þús- und krónur, og málsvarnarlaun skip- aðs veijanda síns, 40 þúsund krónur auk söluskatts. Skipstjórinn hefur ákveðið að una dóminum, þ.e. áfrýja honum ekki. Dómarar voru Gunnlaugur Briem, dómsformaður og meðdómsmennirn- ir Guðmundur Kjærnested, Hrafnkell Guðjónsson, Sveinn B. Hálfdánarson og Þorgeir Pálsson. Borgara- fundur um eignarskatt ALMENNUR borgarafimdur um eignarskatt verður hald- inn að Hótel Borg í kvöld klukkan 20.30. í fundarboði segir, að fjallað verði um það misrétti sem bitni á ekkjum, ekklum og einstakl- ingum samkvæmt nýsam- þykktum breytingum á lögum um eignarskatt. Á fundinum mun Þuríður Pálsdóttir söngkona flytja ávarp. Erindi flytja Sigurður Líndal lagaprófessor, Sigurður Tómasson endurskoðandi og Kristjana Milla Thorsteinsson viðskiptarfræðingur. Ný ljóðabók eftir Jóhann Hjálmarsson ÚT ER komin hjá Örlaginu í Reykjavík ljóðabókin Gluggar hafsins eftir Jóhann Hjálmars- son. Þetta er þrettánda ljóðabók Jóhanns en Qögur ár eru nú liðin frá því siðasta frumsamda bók hans, Akvörðunarstaður myrk- ríð, kom út. I frétt frá Örlaginu segir, að Jó- hann hafí víða komið við í Ijóðagerð sinni á þeim 33 áram sem liðin eru síðan fyrsta æskuverk hans leit dagsins ljós. Hann hafi lengi verið í fremstu röð íslenskra súrrealista, einn af helstu merkisberam hins svokallaða opna ljóðs og heimildar- skáldskapar á síðasta áratug og loks verið mikilvirkur þýðandi er- lendra ljóða. Síðastliðið haust gaf Örlagið einmitt út þýðingasafnið í skolti Levíatans. Gluggar hafsins er 56 blaðsíður að stærð og skiptist í sjö kafla. í frétt Örlagsins segir að í heild sé eitt helsta einkenni bókarinnar mannleg hlýja og léttleiki. „Síðasti kafli bókarinnar, Endurtekningar, er ortur í Málaga á Spáni, þegar Jóhann dvaldist þar í skáldaleyfi á síðasta sumri. Jóhann hefur áður sótt sér innblástur suður á Pýrenea- skaga, en í Gluggum hafsins hefur honum á athyglisverðan hátt tekist að flétta saman tilfinningaríki og galsa suðursins og hina djúpu al- vöra sem oft er talin einkenna norð- urbúa. I fjórða kafla bókarinnar, Jóhann Hjálmarsson Heim, koma fyrir minni úr fornsög- um, en fyrir áðurnefnd áhrif verður skírskotun ljóðanna bæði víðfeðm og nýstárleg,“ segir í fréttinni. Gluggar hafsins er prentuð og bundin í Prentstofu G. Benedikts- sonar hf. Málverk á kápu er eftir spænska málarann Pablo Picasso. Örlagið hefur, auk fyrrgreindra bóka, áður gefið úr bækurnar Dag- bók Lasarusar og Frostmark, báðar eftir Kjartan Árnason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.