Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 49
bet Jónsdóttir, sem ól upp og hafði hjá sér dótturson sinn, Ástþór Pétur Olafsson. Allt var þetta fjörmikið málafylgjufólk, frá hinum yngsta til hins elsta. Gestakomur voru tíðar og margraddaður söngur á hátíðum. Þormóður var Húnvetningur og alinn upp á Hnausum í Þingi. Og alla tíð blundaði bóndinn í honum. Ungur að aldri hélt hann til Reykjavíkur og lærði húsgagna- smíði, sem hann stundaði alla sína ævi. Hann mat smiðsstarfið mikils og söng við vinnuna, þegar hann var að glíma við eitthvað vanda- samt. Hann starfaði lengst af í trésmíðastofu Áhaldahúss Reykjavíkurborgar og var verkstjóri þar síðustu fimmtán árin af starfs- ferli sínum. Þoi-móður tengdafaðir minn var ekki margmáll um tilfinningar sínar. Þó bar hann með sér, að hann var hamingjusamur maður. Hann átti því láni að fagna að lifa í farsælu hjónabandi. Þau Steinunn Bergþóra Pétursdóttir giftu sig 7. júní 1941 og stóðu ævinlega saman sem einn maður í blíðu og stríðu. Ég man, að tengdamóðir mín lét þau orð falla, að hún hefði aldrei þurft að kvíða næsta degi með Þormóð sér við hlið. Við Þormóður Jónasson áttum samleið í þijátíu ár. Það er tóm- legra við brottför hans. Ég kveð kæran tengdaföður með virðingu og þökk. Björg Atla Þormóður Jónasson, afi Þormóð- ur, er látinn nærri áttatíu og eins árs að aldri. Ég held að öllum hafi komið það mjög á óvart. Þrátt fyrir alvarlegan sjúkdóm sem fyrst varð vart við fyrir um tveimur árum von- aði ég að við fengjum að njóta sam- vista við hann miklu lengur. Heilsu hans hrakaði hratt síðustu mánuði, en stutt er síðan hann geislaði af hreysti og lífskrafti. 1. ágúst í fyrra, daginn sem hann varð áttræður, lékum við körfubolta saman. Hann var léttur á fæti og kvikur í hreyf- ingum, með blik í augum og bros á híún ivíut, ,8t HuoAcmtmw HiaAJsvgJUHOi MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JUNI 1989 49 vör. Þannig man maður afa Þor- móð. Ég furðaði mig oft á því hvað þessi gamli maður var sterkur. Áður en veikindin settu mark sitt á hann, snaraði hann sementspoka léttilega í fang sér ef þörf krafði og mikið stóð til á Grettó. Hann var sífellt að. Eftir að hann hætti störfum sem verkstjóri leið varla sá dagur að hann væri ekki að dytta að húsinu. Svo dundaði ,hann sér niðri á verkstæði þar sem hann smíðaði og gerði við húsgögn. Maður dáðist að handbragðinu og þolinmæðinni sem hann sýndi þegar hann fékk til viðgerðar illa farna muni sem flestir töldu ógjörning að lagfæra og gerði þá sem nýja. Á verkstæðinu ríkti sérstakur andi. Þar var hefilbekkur, hjólsög og ótal verkfæri önnur. Ilmur af spæni og sagi blandaðist daun af málningu og jakki. Þama var afi í essinu sínu. Ég hafði gaman af því að fylgjast með honum að störfum og þegar ég var smástrákur lét hann mig hafa afgangsspýtur, ham- ar og nagla, svo ég gæti smíðað líka. Svo gaf hann mér gaum við og við til að sjá hvað smíði barnabarnsins liði, þurrkaði af sér svitann og tók í nefið. Úr svipnum mátti lesa, að honum væri ljóst, að smíðagáfan gengi ekki endilega í erfðir. Frá fyrstu tíð var hins vegar eftir því tekið hjá afa hve laginn hann var. Margar af mínum skemmtileg- ustu stundum átti ég með þeim sam- an, ömmu Öggu og afa Þormóði. Samband þeirra var afskaplega traust og hlýtt. Þrátt fyrir nærri hálfrar aldar hjónaband fannst manni oft eins og þau væru nýgift. Við sátum stundum tímunum saman og spjölluðum um heima og geima. Þau sprelluðu og stríddu hvort öðru, enda miklir húmoristar bæði. Meðan hann var heill heilsu spiluðu þau gjarnan rommí þegar færi gafst og gekk þá mikið á og hvorugt gaf nokkuð eftir. Sjaldan hef ég séð spilað af jafn miklu kappi. Nú er skarð fyrir skildi á Grettó. Ég kveð afa minn og þakka honum vináttuna. Atll Orn Hilmarsson Við eigum nú 4 bíla til afgreiðslu STRAX á stórlækkuðu verði: Verð áður................................... Kr. 2.170.000 Tilboðsverð................................. Kr. 1.870.000 Þú sparar......................... Viö getum afgreitt þessa bíla meó vönduðum pölium eða vörukössum, sem vakið hafa verðskuldaða athygli og hlotið HINO FB 113_____________ Heildarþungi: 7500 kg. Burðargeta: 5400 kg. Vél: 111 hö. Kr. 300.000 frábæra dóma atvinnumanna. Ennfremur léttar álvörulyftur, sturtur og vökvakrana. Hafið samband við sölumenn véladeildar, sem veita fúslega allar upplýsingar. T9 BÍLABORG HF FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99 KYOLIC er konungur hvítlauksins - lyktarlaus. 2ja ára kælitæknivinnsla KYOLIC fjarlægir alla lykt en viðheldur öllum hinum frábæru eiginleikum. Ræktun og framleiðsla sem á engan sinn líka í veröldinni KY0LIC er gæðaprófaður 250 sinnum á framleiðslutímanum KY0UC hefur meiri og betri áhrif en hrár hvítlaukur KYOLIC á að baki meira en 30 ára stöðugar rannsóknir japanskra vísindamanna eða töflur FUóta, nai’bxö:^0gánhylk.a Wakunaga, japanska rannsóknarmiðstöðin, sem ræktar og framleiðir kYOLIC hvítlauk rekur eina af þremur stærstu rannsóknarmiðstöðvum í Japan. Þar eru eingöngu notaðir ströngustu alþjóðlegir rannsókna- og framleiðslustaðlar, s.s G.L.P Good Laboratory Practices og G.M.P Good Manufacturing Practices. Wakunaga eyðir árlega miljónum bandaríkjadala til hvítlauksrannsókna. Það eru margfalt meiri fjármunir til rannsókna en allir aðrir hvítlauksframleiðendur veraldar samanlagt. KYOLIC er eini lífrænt ræktaði hvítlaukurinn og vex á ökrum þar sem tilbúinn áburður eða skordýraeitur hefur aldrei komið nálægt. I stað tilbúins áburðar er jarðvegur einungis blandaður möluðum jurtarótum, laufi og öðrum lífrænum efnum. Öll önnur hvítlauksframleiðsla notar hitameðferð. Hiti eyðileggur virk og viðkvæm efnasambönd og hvata í hvítlauk. Þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða verka allir aðrir framleiðendur veraldar hvítlauksafurðir sínar við háan hita til að þurrka hvítlaukinn og fjarlægja lykt eða þá að innihald er mestmegnis jurtaolíur annarra jurta, s.s. sojabaunaolía. Helstu sölustaðir heilsu- og lyfjaverslanir Heildsölubirgðir Logaland heildverslun sími 12804
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.