Morgunblaðið - 13.06.1989, Page 13
13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
-------------- •) JV t r. : t f cr ZTT>M f 1 1 T '• fiut
Bréf til ritstjóra Morgunblaðsins:
í tileftii Reykjavíkurbréfs
eftir EyjólfKonráð
Jónsson
Ég kemst ekki hjá því vegna frá-
bærs Reykjavíkurbréfs að senda
hinum ósýnilega anda Morgun-
blaðsins þessar línur, til þess m.a.
að benda á veikleika bréfsins en í
því segið þið:
„Stefnuskrá nýrrar umbótasinn-
aðrar ríkisstjómar verður ekki til á
einni nóttu. Hún verður heldur ekki
til í tveggja mánaða samningaþófi
um stjórnarmyndun að kosningum
loknum.“ Stefnuskrá nýrrar um-
bótasinnaðrar ríkisstjórnar, meiri-
hlutastjómar Sjálfstæðisflokksins,
verður ekki til á einni nóttu, rétt
er það. En hún gæti fæðst á þeirri
dagstund þegar fomsta Sjálfstæðis-
flokksins, eins og Friðrik Sophusson
kallar sjálfan sig og Þorstein Páls-
son eina manna, lýsti yfir gjald-
þroti „Leiftursóknarstefnunnar“,
sem lítill hópur gamalla ungmenna
knúði fram 1979 og allar götur
síðan undir slagorðunum: Vald-
dreifing og Báknið burt, enda lofi
hún um letð að bendla enga for-
ingja Sjálfstæðisflokksins frá Jóni
Þorlákssyni til þessa dags við of-
stjórnar- og ofsköttunarstefnu.
Rétt er það hjá ykkur að samn-
ingaþóf var langt sumarið 1987 en
þið vitið allra manna best að því
lauk farsællega og ættuð kannski
einhvem tíma að lýsa því og svikun-
um dagana 8. og 9. október það
haust, þegar skattheimtubijálæði
komst á áður óþekkt stig, þótt
barnaleikur sé hjá því sem síðar
hefur gerst. Annars get ég minnt
ykkur á það.
Þetta sumar pólitísks sólarleysis
tókst þrátt fyrir allt að ná fullu
samkomulagi þriggja stjórnmála-
flokka um þokkalegusta stjómar-
sáttmála þar sem rækilega var fram
tekið, að sú skepna sem nefnd er
ríkissjóður ætti ekki að sitja í fyrir-
rúmi fyrir fólkinu og atvinnuvegun-
um. Þetta sveik stjórnin á fundi
sínum 8. október án samráðs við
þingflokka. Þá réð hún sér bana
og kyrrstaða Báknsins var innsigluð
þegar Ámi Vilhjálmsson formaður
bankaráðs Landsbankans sagði af
sér.
Þið vitið að ég spáði því, þegar
ég og mínar hugsjónir voru sviknar
á haustdögunum 1987 og tveggja
milljarða gatið á flárlögum sem
átti að fylla með fimm milljarða
skattaáþján til að hafa borð fyrir
bám, eins og Jón Baldvin Hanni-
balsson, versti fjármálaráðherra til
þess tíma, orðaði það, mundi leiða
til mesta halla ríkissjóðs frá upp-
hafi vega. Borðið fyrir bámnni lenti
rúmlega sjö milljörðum undir sjáv-
armáli og var því á sama róli og
aðalatvinnuvegurinn. Hagstæðasti
andstæðingur sem unnt er að óska
sér, Ólafur Ragnar Grímsson, breið-
ir nú yfir þetta allt saman með
tveggja stafa tölu milljarðanna
bæði í nýjum sköttum og ríkissjóðs-
halla enda fer ofsköttun og halli
ríkissjóðs, atvinnuvega og heimila
ætíð saman. Þetta hef ég sagt ykk-
ur í tvo áratugi og skrifað og rætt
um stanslaust í rúman helming
þess tíma opinberlega. Mér fannst
örla fyrir því sl. laugardag þegar
við Styrmir voram að rabba við
utanríkisráðherrann að hann væri
Eyjólfur Konráð Jónsson
að fá svolítinn skilning á þessu —
ogjafnvel fyrrverandi fjármálaráð-
herra.
Mér datt í hug að skrifa ykkur
í þessum tón í von um að fleiri lesi.
Kerfiskarlar skilja ekki rök, en þeir
reka sig á staðreyndir þótt þeir loki
báðum augum. Annars er mér ekki
kerskni í huga helur bjartsýnn að
vanda og þakka ykkur tilskrifið.
Við sigmm í haust.
Höfiindur er einn afalþingismönn-
um Sjálfstæðisflokksins fyrir
Reykjavíkurkjördæmi.
Gl
Þriðjudagstónleikar
í Listasofni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld kl. 20.30
Sigríður Gröndal, sópransöngkona, og
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari,
flytja verk eftir Hugo Wolf, Schubert, De-
bussy og Henri Duparc.
BOSCH
RAFM AGNSVERKSTÆÐI
_____fyrir bíla_
BRÆÐURNIR
(©) ORMSSON HF
Lágmúla 9, sími: 38820
Viltu spara?
Eigum fyrirliggjandi góðan Ijósritunarpappír
á mjög
hagstæðu
verði.
Ó. Johnson & Kaaber hf
Kaupmannahöfn:
Haukur Dór sýn-
ir í Jónshúsi
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
HAUKUR Dór opnaði sýningu
á smámyndum i félagsheimilinu
í Jónshúsi fyrir nokkru. Er þar
um tússteikningar að ræða,
síður en svo einkennandi fyrir
listamanninn, sem þekktastur
er fyrir geysistór og kraftmikil
olíumálverk. Þetta er fjórða
sýning hans á árinu, en hinar
voru í Gallerí Thain hér í borg
og tvær sýningar í Norður-
Þýskalandi sem enn standa.
Önnur sýninganna í Þýskalandi
er í Loccum, nálægt Hannover,
og þar sýnir einnig myndhöggvar-
inn Preben Boye. Hefur sýning
þeirra hlotið mjög lofsamlega
dóma og segir t.d. í einu staðar-
blaði: „I málverkunum tjáir Dór
íslenskan uppruna sinn og sýnir
áhrif hinna erfiðu aðstæðna á
manneskjuna, minnir á eldgosin
og leiðir áhorfandann inn í heim
íslenskra fornsagna." Hin sýning-
in í Þýskalandi er norræna sýning-
in í listamiðstöðinni Mikkelbergi.
Hlutur hans þar hefur líka hlotið
jákvæða umfjöllun og er plakat
sýningarinnar, sem hann gerði, til
sölu víða.
Haukur Dór hefur nú um eins
árs skeið haft verkstæði í bænum
Frederiksværk. Þar er mjög
áhugavert verkefni á döfinni, en
bæjarstjórinn lætur standsetja
gamla verksmiðjubyggingu sem
listamannahús. Þrír bæjarlista-
menn fluttu starfsemi sína þar inn
í fyrra, fyrst leirkerasmiðurinn Per
Weiss og síðan Haukur Dór og
Preben Boye og brátt bætast gull-
smiður og vefjarlistakona í hópinn.
Elsti hluti járnsmiðjunnar er frá
1769 og er verið að endurbyggja
hann sem listasafn og menningar-
miðstöð. Er fyrsti áfangi þessa
umfangsmikla verks var tekinn í
notkun í fyrrasumar fluttu bæjar-
stjórinn í Frederiksværk og Hans
Futtrap, formaður listaráðs, ávörp
en sá síðarnefndi átti hugmyndina
að listahúsinu. Nú er í ráði að
bjóða erlendum listamönnum
starfsaðstöðu og tíma og koma
fyrstu gestirnir í haust. Mikil
umræða er að baki, er fylgt var
eftir af gífurlegri vinnu og brátt
mun heildarárangur sjást. Iðnað-
arbærinn Frederiksværk vekur nú
líka athygli fyrir listamenn sína.
Hakur Dór og Preben Boye
opna tvær sýningar hlið við hlið á
Kjarvalsstöðum 24. júní nk. og
geta íslenskir listunnendur búist
við miklu af þeim félögum._
- G.L.Ásg.
Vmf. Hlíf:
Ríkisstjórn-
in vítt fyrir
svikin ioforð
STJÓRN verkamannafélagsins
Hlífar hefur harðlega mótmælt
„þeim miklu verðhækkunum
sem ríkisstjórnin stendur nú
fyrir,“ eins og segir í ályktun
sem Morgunblaðinu hefúr bo-
rist.
Ennfremur segir: „Fundurinn
vítir ríkisstjórnina fyrir að sam-
þykkja þessar hækkanir þvert
ofan í gefin loforð og telur að
með þeim séu forsendur kjara-
samningana frá 1. maí s.l. brostn-
ar. Fundurinn áskilur verkafólki
allan rétt til hverra þeirra að-
gerða sem nauðsynlegar kunna
að reynast til þess að endur-
heimta þann kaupmátt sem sa-
mið var um.“
Áskrifiarsimim er 83033
Tu*c$tonc
Firestone radial ATX heilsársdekk og
radial ATX 23° torfœrudekk. Gripmikil,
sterk og endingargóð.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2, Kópavogi
Sími 42600
<f
0
D
ix
PÚSTKERFIN FRÁ FJÖÐRINNÚ
0
D
D
Gæðavara úr álseruðu efni sem gefur 70-80% betri endingu gegn ryði.
KYNNTU ÞÉR OKKAR VERÐ ÁÐUR EN ÞÚ LEITAR ANNAÐ
FJÖÐRIN
Skeifunni 2
82944
Póstsendum
um allt land