Morgunblaðið - 13.06.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
Anna S. Snorradóttir
útgáfu og þekki vel, hve miklu ódýr-
ara er að prenta t.d. kort í einum
lit eða tveim heldur en mörgum.
Lýsing á innihaldi er til fýrirmynd-
ar.
Manneldisfræðingur til
hjálpar.
Ég sting upp á því, að Laufey
Steingrímsdóttir, sem stundum
skrifar í blöð, ágætar greinar um
manneldismál, verði fengin til að
segja okkur allt um aukaefnin í
jógúrtinni. Mörg eru upp talin, en
ekki víst að við vitum öll deili á
þeim. Líka væri gott að vita, hvort
sætuefni eru sett í jógúrtina ykkar,
mig minnir hún vera ósæt í Júgó-
slavíu. Kannski væri hægt að fá
ykkur til að framleiða hana án syk-
urs og sultu handa þeim, sem vilja
helst jógúrt með jógúrt-bragði? Ég
minnist þess, þegar norðanmenn
hófu framleiðslu á kotasælu, hve
mjög það gladdi undirritaða, og
Bók um
bakverki
IÐUNN hefiir gefið út aðra bók-
ina í bókaflokki sínum um Heilsu-
vernd heimilanna. Nefiiist hún
Bókin um bakverki og er eftir
breska lækninn John Tanner.
íslenska þýðingu annaðist Sig-
urður Thorlacius læknir og ritar
hann einig formála.
í fréttatilkynningu frá Iðunni
segir m.a. um efni bókarinnar: „Hér
er að finna aðgengilegar og ítarleg-
ar upplýsingar um bakið, byggingu
þess og starfsemi. Rakið er hvernig
tengja má verki og önnur einkenni
í bakinu, öðrum Iíkamshlutum, sál-
arlífinu og umhverfinu og hvað
helst sé til ráða. Sagt er frá hefð-
bundinni meðferð lækna og sjúkra-
þjálfara og einnig frá umdeildari
formum meðferðar, svo sem nál-
arstunguaðferðinni, hnykkingum
og dáleiðslu.
Síðast en ekki síst er lögð áhersla
á til hvaða ráða fólk geti gripið
sjálft, svo sem með líkamsæfingum
og slökun og með því að breyta lifn-
aðarháttum sínum og aðlaga um-
hverfi sitt bakinu.“
ðx1
mikið hefir hún verið notuð á mínu
heimili. En ansi er ég hrædd um
að ég hefði fljótt gefist upp, ef
þeir góðu Mjólkursamlagsmenn hjá
KEA hefðu sett sultu á botninn.
Hrein jógúrt er næsta mál.
Og svo eru það áfirnar
Hvenær megum við búast við
áfunum? Þessarar spurningar hefi
ég spurt áður í blaðagrein, en aldr-
ei fengið svör. Frétti þó á skotspón-
um, að svínin fengju þær og annar
kunningi sagði, að áfirnar rynnu út
í fljótin. Ég á bágt með að trúa
þessu, og nú finnst mér endilega,
að áfir verði næsta framfaraskref.
Sumir halda því fram, að AB-mjólk-
in sé áfir. Ef það er svarið við spum-
ingunni, þá er regin-munur á þeirri
vöru, sem í Bandaríkjunum er nefnd
„buttermilk" og í Danmörku
„kærnemælk“ og hins vegar AB-
mjólkinni. Það væri gaman og fróð-
legt að fá fréttir af þessu.
Mysan og skyrið
í lokin langar mig til að þakka
ykkur fyrir mysuna, þessa einu
sönnu, sem ávallt er til kæld í mínu
eldhúsi, svalandi og fitusnauð. Hún
er líka ' framúrskarandi góð við
matargerðina og alveg sérstaklega,
þegar matreiða á fisk. Ég vil líka
þakka fyrir skyrið, það eina sanna,
og vona að aldrei fari svo ilia fyrir
okkur, að við förum að litá skyrið
eða bragðbæta meir en orðið er.
Ekki vil ég amast við blábeijaskyr-
inu. Það tíðkaðist oft hér áður fyrr
að bjóða bláber með vel hrærðu
skyri. En hreint skyr er sá matur,
sem hélt lífi í þessari þjóð, þegar
verst gekk.
Vítamín geymd í skyri
Mér þykir alltaf gaman að segja
frá því, að móðuramma mín, fátæk
sveitakona, sem b jó á Þönglabakka
í Þorgeirsfirði fyrir norðan í lok
fyrri aldar og átti 10 börn, geymdi
bláberin, sem barnahópurinn var
látinn tína á sumrum, í skyri. Á
botn tunnu var látið lag af skyri,
síðan lag af vel hreinsuðum blábeij-
um, þá lag af skyri og svo koll af
kolli. Þarna voru vítamínin geymd
til vetrarins handa bamahópnum.
Fleira var það nú ekki, kæm
Árnesingar, en jógúrtin er ykkur
til sóma, þótt sumir vilji vera lausir
við sultuna. Það er kannski bara
sérviska? Hrein jógúrt við hlið hinn-
ar væri mikill fengur.
Höfundur er húsmóðir í
Reykjavík.
ál
IConic
FAX 100
Einfalt
fyrirferðalítið
þægilegt
Telefax er án efa ein þægilegasta
tjáskiptaaðferð viðskiptalífsins.
Það er eins fljótlegt og símtal,
eins nákvæmt og bréf og
eins einfalt og Ijósritun.
Láttu KONICA FAX 100
létta af þér áhyggjunum
í erli viðskiptalífsins.
Við veitum fúslega allar
upplýsingar ef þú hringir
og sýnum þér hvernig
K0NICA FAX 100 vinnur,
ef þú kemur.
Aðeins kr. 78.900 stgr.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33, simi: 62-37-37
Kannt þú nýja símanúmerid? ^/3x67
Steindór Sendibflar
Nóg pláss — meira að
segja fyrir mig!
Eyðir næstum
engu!
SKUTLAN
SPARARil
Lægstu >
skattar og
fryggingariðgjöld!
Þægilegur í snattið
hægt að leggja
hvarsemer!
Iburðarmikill, vandaður
ogfallegur! .
Skutlan frá Lancia kosta nú frá aðeins 416 þúsund krónum.
gengisskr. 1.6.’89
BILABORG HF
Fossháisi 1 sími 68 12 99
**»»