Morgunblaðið - 13.06.1989, Síða 24

Morgunblaðið - 13.06.1989, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989 Stúlkan sem grædd var á ræktuð húð; Getur gengið á ný og útskrifast brátt LITIL stúlka, sem í vor gekkst undir viðamikla húðágræðslu með nýrri aðferð, hélt upp á gögurra ára afmælið sitt í gærdag á bama- deild Landakotsspitala. Afinælisbarnið, Kristrún Guðmundsdóttir, fór að geta gengið aftur óstudd fyrir örfáum dögum og heldur heim til Bolungarvíkur í næstu viku eftir tólf vikna sjúkrahúsvist. Móðir hennar kveðst ekki geta hugsað sér betri afinælisgjöf handa Kristr- únu en batann sem hún hefur fengið. Hjúkrunarfræðingur á deildinni segir að hvert kraftaverkið hafi rekið annað frá því að Kristrún kom fárveik á spítalann í marslok, alsett sárum vegna alvarlegrar heila- himnubólgu og dreps í húðblæðing- um. Til að græða sárin var tekið lítið sýnishom af húð hennar og sent til ræktunar í Svíþjóð, þar sem stærð þess margfaldaðist á tuttugu dögum. Þessi nýja húð var svo Mikið um meiðsli á íþróttafólki Landakotsspítali var með bráðavakt um helgina og komu um 50 manns á sjúkrahúsið á vaktinni, að sögn Guðrúnar Mar- teinsson hjúkrunarforstjóra á Landakotsspítala. „Það var mikið um meiðsli á ungu íþróttafólki um helgina og þetta var ansi stremb- in vakt,“ sagði Guðrún í samtali við Morgunblaðið. Guðrún Marteinsson sagði að 30 til 80 manns hefðu komið á Landa- kotsspítla á bráðavöktunum en 50 sjúkrarúm væru þar ekki í notkun vegna sparnaðar. Hún sagði að ein deild á sjúkrahúsinu væri lokuð til áramóta og þijár deildir væru lokað- ar 5 vikur í senn. Guðrún sagði að Landspítalinn hefði verið tilbúinn að taka á móti sjúklingum um helgina ef Landakotsspítali hefði ekki getað tekið á móti þeim öllum. Til þess hefði þó ekki þurft að koma. grædd á sár Kristrúnar, en svona aðgerð hefur ekki verið framkvæmd áður hérlendis. Jens Kjartansson, lýtalæknir, og Birgir Jakobsson, bamalæknir, hafa læknað Kristrúnu ásamt hjúkrunarliði Landakots. Að sögn Höllu Eiríksdóttur, aðstoðardeildar- stjóra á bamadeildinni, hefur sama fólkið annast um hana allan tímann og allir lagst á eitt til að ná sem bestum árangri. „En Kristrún er mjög sterk sjálf og ótrúlegt að svona ungt bam geti sýnt þann skilning sem hún hefur gert,“ segir Halla. „Hún var í einangrun í sjö vikur og sá aðeins fólk á grænum sloppum með skurðstofugrímur. Minnsta snerting olli henni sárs- auka, en hún var þolinmóð og hlust- aði á skyringar eins og að þetta þyrfti að gera svo hún gæti gengið aftur.“ Halla segir að móðir Kristr- únar, Guðfínna Magnúsdóttir, hafi varla vikið frá dóttur sinni þessar vikur á spítalanum og það sé ómet- anlegt. Sjálf er Kristrún dálítið hissa á umstanginu á afmælisdeginum og heldur feimin. Þegar afmælisveisl- an stendur sem hæst gengur hún stuttum skrefum út úr stofunni og inn í lítið herbergi til hliðar. Þar bendir hún vinkonu sinni og sjúkra- þjálfara, Ólöfu Ámundadóttur, á sólina á gólfinu og þær kíkja út um gluggann á Landakotskirkju. Kristrún veit að þar var páfinn um daginn og blaðamaður fær að vita að hún hafi teiknað handa honum mynd serri prestur í Landakoti hefur sent til Vatikansins. Kristrún vill ekki segja hvað var á myndinni, það vill hún að sé leyndarmál henn- ar og páfans. Séra Ólafur kveður söfhuðinn Morgunblaðið/Sverrir Sr. Ólafúr Skúlason nýlqörinn biskup og Ebba Sigurðardóttir kona hans, kvöddu Bústaðasöfnuð við messu síðastliðinn sunnudag að viðstöddu Qölmenni. Að lokinni messu var boðið upp á veitingar í safiiaðarheimilinu i boði sóknarnefiidar. Formaður Sambands bankamanna; Góður andí ríkir milli okkar og bankanna Reynt verður að forðast uppsagnir „ÞAÐ ER lítið hægt að segja á þessu stigi annað en það, að góð- ur andi ríkir á milli okkar og bankanna i þessum málum,“ seg- ir Yngvi Om Kristinsson formað- ur Sambands íslenskra banka- manna, en SIB hefúr átt viðræð- ur við sljórnendur Alþýðu-, Iðn- aðar- og Verslunarbanka um starfsmannamál í sambandi við sameiningu bankanna um að Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri: Kemur á óvart að Utvegs- bankinn sé ekki meira virði „Ef Útvegsbankinn stendur svona illa, að hann sé ekki nema þúsund milljóna virði, þá auðvit- að hlýtur það að vera rétt, en mér þykir þá hafa orðið óvænt umskipti í afkomu þessa banka. Mér finnst þetta sýna að matið á bankanum sé ekki hátt. Auðvitað hef ég ekki séð reikninga og veit ekki hvað mikið af skuldum er tap og svo framvegis, en þetta kemur mér á óvart. Það era auð- vitað skattborgararair sem tapa á þessu,“ sagði Baldvin Tryggva- son sparisjóðssljóri SPRON og formaður Sambands íslenskra Eftir er að ákveða veigamestu þættína - segir bankastjóri Útvegsbankans „ÞAÐ BER að hafa í huga, að þessir þrír bankar munu í raun- inni renna inn i Útvegsbankann eins og hann er og á þeim grund- velli verður stofiiaður nýr banki. Það á eftir að taka á ótal mörgum þáttum og þeim veigamestu," sagði Guðmundur Hauksson bankastjóri Útvegsbankans að- spurður um hvaða breytingar sameining Verslunar-, Iðnaðar- og Alþýðubanka um að kaupa Útvegsbankann hefði í for með sér á starfsemi Útvegsbankans. „Það á algjörlega eftir að vinna þann þátt,“ sagði Guðmundur um sameiningu bankanna. „Ég hef átt viðræður við þessa aðila þar sem þeir fullvisa mig um að Útvegs- bankinn og hans sjónarmið koma að fullu inn í þessa umræðu, sem einn af Ijórum aðilum sem renna saman í nýjan banka.“ Guðmundur var spurður hort samráð hefði verið haft við stjórn- endur Útvegsbankans við undirbún- ing hlutabréfakaupanna. „Það er nú mest lítið og það er ekkert óeðli- legt. Hafa ber í huga að þarna eru þessir aðilar fyrst og fremst að sameinast um að kaupa hlutabréfin í bankanum og eru þar með að kaupa eignir Ríkissjóðs. Það snertir þess vegna okkur sem rekum bank- ann ekki mikið, þetta er eignar- haldið sem um er að ræða,“ sagði hann. Standa starfsmenn Útvegs- bankans jafnfætis starfsmönnum hinna bankanna þegar kemur til fækkunar starfsfólks? „Það liggur fyrir að svo er,“ sagði Guðmundur Hauksson. sparisjóða. Sparisjóðirnir höfðu lýst áhuga á að kaupa Útvegs- bankann, en að sögn Baldvins var þeim aldrei gefið tækifæri til al- varlegra viðræðna um þau kaup og hann telur að ekki hafi verið vilji fyrir þeirri niðurstöðu hjá sljóravöldum. „Við töpuðum þessu, fengum ekki að kaupa bankann,“ segir Baldvin. Hann kveðst vera undrandi á afstöðu viðskiptaráðherra, að hafa ekki leitað eftir því í alvöru hvað hann gæti fengið fyrir hluta- bréfin hjá sparisjóðunum. Baldvin var spurður hvort hann telji að ekki hafi verið vilji til þess af hálfu vðskiptaráðherra að spari- sjóðirnir keyptu Útvegsbankann. Hann segir að sá vilji ráðherrans hafi að minnsta kosti aldrei komið í ljós. „Gegn okkur var það notað, að við hefðum ekki sameinast. Við höfum aftur bent á aukið og sívax- andi samstarf sparisjóðanna, þann- ig að við vinnum nánast eins og ein stór samsteypa. Við lögðum líka áherslu á að við værum reiðubúnir að auka þetta samstarf okkar til mikilla muna, en við viljum hins vegar ekki að áhrif heimabyggð- anna hverfi úr sparisjóðunum yfir í eitthvert miðstýrt vald, til dæmis hér í Reykjavík." Baldvin segir að sparisjóðirnir hafi hvað eftir annað boðið upp á alvarlegar viðræður um að kaupa Útvegsabankann, en aldrei fengið svar. kaupa Útvegsbankann. Um 900 manns starfa hjá bönkunum fjór- um og er búist við að við samein- inguna fækki starfsmönnum. Ekki hafa fengist upplýsingar um hve mikið á að fækka starfsfólki, né heldur er tryggt með hvaða hætti það verður gert. „Það er ekki farið að mótast neitt hvern- ig þeir ætla að standa að þessu,“ segir Yngvi. Yngvi segir að ekki hafi fengist nein vilyrði fyrir því, að ekki verði beitt uppsögnum. „Hins vegar höf- um við fengið vilyrði fyrir því, að reynt verði að komast hjá því eins og hægt er,“ segir hann. Morgunblaðið ræddi við formenn starfsmannafélaga þriggja bank- anna í gær, ekki náðist í formann starfsmannafélags Verslunarbank- ans. „Við höfum rætt um að það sé eðlilegt að sameiningin taki sem lengstan tíma og það er í samræmi við það sem Samband íslenskra bankamanna hefur rætt. Ef til fækkunar kemur þá teljum við eðli- legt að hún gerist þannig að ekki verði ráðið nýtt fólk þegar einhver hættir og ekki þurfi að grípa til uppsagna," segir Björg Þórarins- dóttir formaður Starfsmannafélags Alþýðubankans. Björg segist hafa rætt mikið við stjómendur bankans og að þeir telji að hægt verði að fara þessa leið, þótt ekki hafi verið gefið neitt skrif- legt loforð um það. „Ég trúi því og treysti að þannig verði það,“ segir hún. Björg var spurð hvort starfsmenn væru sáttir við þróunina. „Við get- um auðvitað ekki verið annað, þetta er búið og gert.“ Hildur Ástþórsdóttir er formaður Starfsmannafélags Iðnaðarbank- ans. Hún segir starfsmenn ekki hafa fengið neina yfirlýsingu um að gripið verði til uppsagna. Hins vegar hafi stjórnendur bankans sagt að tekið verði á starfsmanna- málum ....eins mjúklega og hægt er og allt gert með opnum huga og í samráði við bæði starfsmenn og starfsmannafélög, það er það sem þeir hafa lofað.“ Hildur kvaðst vera bjartsýn á að takast muni að leiða stafsmannamálin til lykta án þess að grípa þurfi til uppsagna. Birgir Guðmundsson formaður Starfsmannafélags Útvegsbankans segir að starfsfólki bankans hafi verið tryggð jafnstaða við starfsfólk hinna bankanna við sameininguna, þegar til fækkunar kemur. „Þetta er stórmál þegar það fer af stað og vitanlega einhveijir lausir endar núna tveimur dögum eftir að þetfa gerist, þetta er mál sem tekur sjálf- sagt ijögur til átta ár.“ Birgir kvaðst ekki geta tjáð sig frekar um þetta. Guðmundur Þorsteins- son gullsmiður látinn Guðmundur Þorsteinsson, gullsmiður, sem rak skartgripa- verslun i Bankastræti 12 í Reykjavík í rúm 50 ár, andaðist síðastliðinn sunnudag, á 92. ald- ursári. Guðmundur var vel þekktur í bæjarlífinu. Hann starfaði lengi með Fáksfélögum og tók þátt í störfum Karlakórs Reykjavíkur fyrr á árum. Eftirlifandi kona Guðmundar er Ólafía Jónsdóttir. Guðmundur Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.