Morgunblaðið - 13.06.1989, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
Hong Kong-búar vilja
auka lýðræði fyrir 1997
Hong Kong, Reuter.
STUÐNINGSMENN kínversku
lýðræðishreyfingarinnar í Hong
Kong eru nú hvattir til þess að
einbeita sér að því að ná fram
umbótum í lýðræðisátt í nýlend-
unni fyrir árið 1997, en þá rennur
út leiga bresku krúnunnar á Hong
Kong og kommúnistastjórnin í
Peking tekur við henni.
Undanfarnar vikur hafa skoðana-
bræður kínversku námsmannanna í
Hong Kong haft frammi fjölmenn
mótmæli og safnað jafngildi tæplega
200 milljóna íslenskra króna til
styrktar námsmönnunum.
íbúar Hong Kong hafa nú enn
meiri áhyggjur af því en fyrr, hvað
bíður nýlendunnar árið 1997. Fram
að þessu hafa lýðræðiskröfur ekki
verið háværar í Hong Kong, en ný-
lendunni er stjórnað af landstjóra
Bretadrottningar og löggjafarþingi.
í því sitja þingmenn, sem eru til-
nefndir af iandstjóranum eða sitja
sem fulltrúar einstakra stétta og
samtaka í nýlendunni.
Eftir að lýðræðiskröfur stúdenta
handan landamæranna hófust hafa
íbúa Hong Kong, löggjafarþingið og
landstjórinn tekið höndum saman og
hvatt til þess að fullt lýðræði verði
komið á í nýlendunni fyrir árið 1997.
Mun slík samstaða eindæmi.
Hins vegar heyrast efasemdar-
raddir um stuðning við stúdenta í
Kína, því stjómin í Peking lítur yfir-
leitt á hvers konar afskipti Hong
Kong-búa af málefnum Kína sem
freklega íhlutun og hefur jafnvel í
hótunum.
Milljónir manna við
gnllna gi’aftivelfingn
Khomeinis í Teheran
Rafsanjani endurkjörinn forseti þingsins
Teheran. Reuter.
ALI Rafsanjani var endurkjör-
inn forseti íranska þingsins til
eins árs með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða í gær. Rasanjani,
sem er eini frambjóðandinn í
forsetakosningum sem haldnar
verða í ágústmánuði, þykir
fylgja hófsamri stefhu í garð
vestrænna ríkja og er talið að
hann sé hlynntur opnari sljórn-
arháttum í íran og aukinni hlut-
deild einkaframtaksins í efiia-
hagslífi þjóðarinnar. Mörg
hundruð þúsundir syrgjenda
söfiiuðust við gullna graflivelf-
ingu Khomeinis í Behesht-e
Zhara grafreitnum á sunnudag.
Þar er nú verið að reisa mosku
til heiðurs hinum látna trúar-
leiðtoga.
í útvarpinu í Teheran var graf-
hvelfing hins látna trúarleiðtoga
nefnd Haram-e Sharif, sem er helg-
asta moska múhameðstrúarmanna
í Mekka, og Rasanjani sagði að
innan tíðar myndu múhamestrúar-
ERLENT
menn hvaðanæva úr heiminum
streyma að grafhvelfingu Kho-
meinis til votta honum virðingu
sína.
Fréttastofan IRNA taldi líklegt
að þeir sem voru viðstaddir athöfn-
ina í Behesht-e Zhara hefðu skipt
milljónum. „Slagorðið „Dauði yfir
Bandaríkjamönnum" hljómaði af
vörum syrgjenda og lýsir það við-
brögðum þjóðarinnar við ákaili hins
útvalda um eilífa baráttu gegn erki-
djöflinum, Bandaríkjunum," sagði
útvarpið í Teheram
Harðlínumenn í íran hafa heitið
Ali Khameini, eftirmanni Khomein-
is, stuðningi sínum og dagblaðið
Kayhan International sagði að hinn
nýji leiðtogi og Rafsanjani, forseti
þingsins, væru best fallnir til að
stjóma landinu í kjölfar fráfalls
Khomeinis.
Tugir tjalda vora reist við graf-
reitinn þar sem tekið var á móti
fjárframlögum almennings til
byggingar miðstöðvar pílagríma.
„Hér ætlum við að reisa einu
stærstu mosku í heimi. Hann,
[Khomeini], var okkar mesti leið-
togi,“ sagði einn þeirra er lét fé
af hendi rakna.
Þrátt fyrir vatnsaustur yfir æst-
an múginn við gröf Khomeinis
hnigu mörg þúsund manns til jarð-
ar og voru bomir á sjúkrabörum í
burtu.
Líkamsleifar stúdenta og reiðhjól þeirra í einni kös á Torgi hins himneska friðar í Peking. Bryndrekum
var ekið yfir stúdentana hvað eftir annað þar til líkin „voru orðin að mauki einu.“
Frásögn sjónarvotts af fjöldamorðunum í Peking:
Ekið var yfir líkin þar til
þau voru orðin að mauki
Canberru, Reuter, WTN og Visnews.
í ÁSTRALÍU hafa stjórnvöld látið
í ljós miklar áhyggjur af ástandinu
í Kína og meðal annars gefið til
kynna að fjöldi kínverskra ríkis-
borgara í Ástralíu muni fyrir-
hafiiarlaust getað fengið varan-
legt landvistarleyfi þar. Forsætis-
ráðherra Ástralíu, Bob Hawke,
brast í grát við tilfínningaríka
minningarathöfii um fómarlömb
Qöldamorða kínverska alþýðu-
hersins, sem haldin var i þingsal
hins nýja þinghúss Ástrala í Can-
berrn síðastliðinn fijstudag. Kafli
úr minningarathöfninni var sýnd-
ur í fréttatíma Stöðvar tvö um
helgina.
Hawke las meðal annars upp lýs-
ingu sjónarvotts af blóðbaðinu á
Torgi hins himneska friðar og sagð-
ist meðal annars svo frá:
„Ekið var yfir stúdentanna með
þungum herflutningavögnum og
skriðdrekum, sem síðan óku fram
og aftur yfir lík hinna föllnu þar til
þau voru orðin að mauki einu. Eftir
það var jarðýtum ekið inn á torgið
og líkamsleiftinum ýtt saman í hrúg-
ur, sem síðan var kveikt í af her-
mönnum með eldvörpur.“
Hvað eftir annað var Hawke nærri
því að gráti kominn og var auðheyrt
á mæli hans, að hann var miður sín
við þessa lesningu.
Víðs vegar um Ástralíu voru
haldnar minningarathafnir, en í Ástr-
alíu er fjöldi manna af kínverskum
uppruna.
Kínverskur stjórnarerindreki í
Canberru hefur leitað hælis sem
pólitískur flóttamaður og er talið að
fleiri kunni að feta í fótspor hans. í
Ástralíu eru um 10.000 kínverskir
námsmenn og hafa stjórnvöld til-
kynnt að dvalarleyfi þeirra verði
framlengd uns um hægist í heima-
landi þeirra, en auk þess var sagt,
að umsóknir um varanlegt landvist-
arleyfi yrði vel tekið.
Á föstudag var leikin segulbands-
upptaka í sjónvarpi í Hong Kong,
en þar talaði Chai Ling, einn af leið-
togum lýðræðissinnaðra stúdenta í
Kína. Hún komst hvað eftir annað
við á meðan lýsingu hennar á hryðju-
verkum alþýðuhersins á Torgi hins
himneska friðar stóð.
„Stúdentarnir voru dauðuppgefnir
og lágu sofandi í tjöldunum, en skrið-
drekarnir óku yfir þá og breyttu
þeim í kjötkássu," sagði Chai Ling.
Hún skýrði einnig frá því að stúd-
entar, sem hefðu verið að hörfa frá
torginu, hefðu gengið fram á annan
vígvöll, þar sem brunnin farartæki
og önnur ummerki um átök voru út
um allt, en engin lík.
„Seinna komumst við að því að
þessir fasistar höfðu notað vélbyssur
og skriðdreka til þess að drepa fólk-
ið og síðan komu aðrir hermenn og
stöfluðu líkunum inn í strætisvagna.
Sumir voru enn lifandi þegar þeir
voru settir ásamt líkunum inn í vagn-
ana, en þeir köfnuðu brátt.“
New York Times:
Karpov blæs á afvopnunar-
tillögur Bandaríkjaforseta
Gcnf og New York, Reutcr.
VIKTOR Karpov, aðalsamningamaður Sovétmanna í afvopnunarvið-
ræðum austurs og vesturs, sagði í grein, sem birtist í New York
Times á mánudag, að tillögur George Bush Bandaríkjaforseta um
niðurskurð á heijum og hefðbundnum vopnabúnaði væru óaðgengi-
legar á mörgum mikilvægum sviðum og að of mikið hefði verið
gert úr þessu frumkvæði forsetans í vestrænum Qölmiðlum. Þá sak-
aði Karpov Vesturlönd um tafir í viðræðum um skammdræg kjarn-
orkuvopn.
Karpov sagði að vænta mætti
samkomulags um nokkrar af tillög-
um Bush, sem hann lagði fram á
leiðtogafundi ríkja Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) í Brussel í
síðasta mánuði, þar sem þær væru
margar hveijar nær orðrétt fengn-
ar að láni frá Varsjárbandalaginu.
Kvað hann þetta sérstaklega eiga
við um fækkun skriðdreka, her-
flutningavagna, stórskotaliðs og
þyrlna.
Tillögu Bush um gagnkvæma
15% fækkun orrustuflugvéla sagði
hann fráleita og óréttmæta, þar
sem Bandaríkjamenn vildu telja
með orrustuþotur, sem hafa það
hlutverk að fljúga í veg fyrir flug-
vélar, sem ekki hafa gert grein
fyrir flugi sínu, og væru „alger
varnarvopn".
Karpov sagði einnig að tillaga
Bandaríkjaforseta um fækkun í
herliði NATO og Varsjárbanda-
lagsins í Evrópu væri of þröngt
skilgreind og myndi vera vestræn-
um þjóðum of mikið í vil. Bush
lagði til að Bandaríkjamenn fækk-
uðu um 30.000 manns í herliði sínu
í Evrópu, þannig að samtals yrðu
275.000 Bandaríkjamenn undir
vopnum í álfunni, og lagði til að
Sovétmenn kölluðu 325.000 her-
menn frá Evrópu, þannig að í her-
afla þeirra þar yrðu 275.000 manns
— jafnmargir og í Evrópuheijum
Bandaríkjanna.
„Bush forseti ræddi aðeins um
samdrátt í liði Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna í Evrópu. I Varsjár-
bandalaginu eru Sovétríkin ein með
herlið utan eigin landamæra, en í
NATO eru (auk Bandaríkjanna)
Bretland, Frakkland, Belgía og
Kanada með slíkt lið [í öðrum
ríkjum].“
Karpov heldur því fram að heyri
herir þessir ekki undir hugsanlegan
samning muni Atlantshafsbanda-
lagið hafa um 100.000 hermenn
umfram Varsjárbandalagið.
Hann vék einnig að því að vest-
rænir fjölmiðlar hefðu haldið því
Reuter
William J. Crowe aðmíráll, yfirmaður bandariska herráðsins,
kannar heiðursvörð á Sheremetjevo-flugvellinum í Moskvu í gær.
Honum á vinstri hönd er Míkhaíl Moisejev, yfirmaður sovéska
herráðsins.
fram, að með tillögum sínum á leið-
togafundinum hefði Bush tekist að
ná frumkvæðinu í afvopnunarmál-
um frá Míkhaíl Gorbatsjov, forseta
Sovétríkjanna. „Okkur skiptir engu
máli hver stendur með pálmann í
höndunum fyrir að hafa rutt ein-
hverjum hugmyndum braut.“ Hins
vegar sagði hann Kremlveijar litu
á það, sem mikinn og alvarlegan
galla á ræðu Bush á leiðtogafund-
inum, að þar hefði vantað jákvæð
viðbrögð við þeirri tillögu Varsjár-
bandalagsins, að þegar í stað yrði
rætt um skammdrægar kjamorku-
flaugar í Evrópu.
í gær undirrituðu Bandaríkja-
menn og Sovétmenn samkomulag
sem miðar að því að draga úr
hættu á stríðsátökum fyrir slysni.
Míkhaíl Moisejev, yfirmaður sov-
éska herráðsins, sagði að undirrit-
un samkomulagsins væri „söguleg-
ur atburður" í samskiptum
ríkjanna.