Morgunblaðið - 13.06.1989, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
Bandaríski áfengismarkaðurinn:
Verður Icy helsti
keppinautur sænska
Absolut-vodkans?
New York Times
Bandaríski áfengismarkað-
urinn hefur verið í töluverðri
lægð á síðustu árum en með
þeirri undantekningu þó, að
innflutt gæðavodka hefur stöð-
ugt verið að sækja í sig veðrið.
A þessum 450 milljón dollara
markaði hafði það rússneska
Stolichnaya lengi forystuna en
nú eru aðrar tegundir komnar
til sögunnar. Ber þar fyrst að
neflia Absolut Vodka frá
Svíþjóð, sem komið er í fyrsta
sæti, og Icy frá íslandi, sem er
augsýnilega ætlað að keppa við
sænsku framleiðsluna.
Bandaríski markaðnrinn hefur
eins og áður segir einkennst af
stöðnun yfirleitt og af þeim sökum
hafa ýmis stórfyrirtæki snúið sér
að innflutningi á gæðavodka.
Hefur Brown-Forman Corp. í
Kentucky, sem þekkt er fyrir So-
uthern Comfort, Jack Daniels og
fleiri viskítegundir, tryggt sér inn-
flutninginn á Icy og segir Bill
Creason, einn af yfirmönnum fyr-
irtækisins, að fyrirhugað sé að
auglýsa íslenska vodkað fyrir 4,5
millj. dollara, rúmlega 260 millj.
ísl. kr., á þessu ári.
í Bandaríkjunum hefur áfeng-
isneysla minnkað vegna þess, að
fólki er nú annara um heilsuna
en áður, en þeir, sem reyna að
skýra vaxandi vinsældir vodkans,
segja, að neytendum finnist hann
standa fyrir eitthvað hreint og
ómengað. Þá þykir það líka fínt
að drekka gæðavodka og ekki síst
Absolut. Fyrir sex árum var það
næstum óþekkt merki en hefur
nú forystuna meðal innfluttra teg-
unda. Er það fyrst og fremst
þakkað miklum auglýsingum en
á þessu ári ætlar innflytjandinn,
Carillon Importers Ltd., að aug-
lýsa sænska vodkað fyrir um 870
milljónir ísl. kr.
Markaðssérfræðingar segja
það augljóst, að Icy sé stefnt gegn
Absolut þótt fyrmefndur Bill
Creason vilji ekki láta það á sann-
ast. Til þess bendir hins vegar
auglýsingin, sem innflytjendur Icy
Reuter
Icy-auglýsingin umdeilda og
dæmigerð Absolut-auglýsing.
Bandarískur dómstóll féllst á,
að skírskotunin væri augljós og
bannaði Icy-auglýsinguna.
birtu nú í vor. Svipaði henni mik-
ið til Absolut-auglýsinga og undir
myndinni stóð: ,,„Absolút“ fram-
för“. Fór Carillon í mál við Brow-
n-Forman og fékk auglýsinguna
bannaða.
Af öðrum erlendum vodkateg-
undum, sem verið er að kynna á
Bandaríkjamarkaði, má nefna
Tanqueray Sterling frá Bretlandi
og Denaka frá Danmörku en auk
þess ætla innflytjendur Stotic-
hnaya og Wyborowa frá Póllandi
að leggja upp í mikla markaðs-
herferð.
• •
ORYCCI
FYRIRÖLLU
Stundar gáleysi er oft orsök
meiðsla við vinnu. Erfitt er að
koma í veg fyrir slíkt en
auðvelt er að minnka líkuraar á
skaða. Að því vinnur Dynjandi
ötullega.
Dynjandi selur allar gerðir
öryggisbúnaðar, m.a. hina
vönduðu öryggisskó frá Jallatte.
Þeir fást í mörgum gerðum og
þeim er ætlað að fyrirbyggja
meiðsli á fótum.
0DEXION
MAXI-plastskúffur
varðveita smáhluti
Margar stœrðir
og litir
fyrirliggjandi.
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680
Nýjung í málningarþjónustu á íslandi
Sýnikennsla á sjónvarpsskjá frá Nordsjö sem auðveldar fólki að mála sjálft, hvort sem er inn-
an dyra eða utan. Fjörutíu og fimm mismunandi verklýsingar. Einfaldara getur það ekki verið.
Málarameistarinn
Síðumúla 8, Reykjavík,
símar 84950 og 689045.