Morgunblaðið - 13.06.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JUNI 1989
29
Uppstokkun í stjórn Sovétríkjanna;
Ráðuneytum fækkað og
yngri menn taka völdin
Moskvu. Reuter.
NIKOLAJ Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, skýrði á
laugardag Æðsta ráðinu, efri deild sovéska þingsins, frá róttækum
breytingum á ríkisstjórn landsins. Auk þess sem yngri og betur
menntaðir menn taka nú við völdum verður embættum fækkað;
meðal annars verða 20 ráðuneyti á sviði iðnaðar, samgangna og
landbúnaðar lögð niður. Alls verða ráðuneyti og valdamestu nefiid-
irnar, er voru samanlagt um 100 fyrir fimm árum, nú 57. Af um'
hundrað háttsettum mönnum, sem skipaðir voru 1984, halda að-
eins tíu stöðum sínum. Meðal þeirra sem hækka í valdastiganum
er hagfræðingurinn Leóníd Abalkín, einn af 13 aðstoðarforsætis-
ráðherrum landsins, en hann vakti mikla athygli á landsfundi
kommúnistaflokksins á síðasta ári er hann gagnrýndi efnahags-
stefiiu Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga.
Efnahagsstefna stjórnarinnar
hefur verið harðlega gagnýnd á
fundum hins nýja Æðsta ráðs og á
fulltrúaþinginu, neðri deild þingins.
Sagt hefur verið að bregðast þurfi
strax við vaxandi og geigvænlegum
fjárlagahalla ríkisins og bæta úr
skorti á ýmsum nauðsynjum í versl-
unum. Hagfræðingurinn Nikolaj
Shmeljov sagði í síðustu viku að
Ryzhkov gerði sér ef til vill ekki
grein fyrir því hve alvarlegur fjár-
iagahailinn væri. Yfirvöld áætla
hallann um 100 milljarða rúblna en
Shmeljov segir það 20% of lágt.
í ræðu sinni viðurkenndi Ryzh-
kov að gagnrýnin væri „réttmæt“
og stjómin myndi bregðast við
henni. Nýju ráðuneytin myndu
starfa á algerlega nýjum grundvelli
þar sem lögð yrði áhersla á sem
minnst afskipti af framleiðslunni.
„Frá þeim verða tekin mörg verk-
efni en þau verða að helga sig einu
- stuðla ötullega að því að fram-
leiðslufyrirtækin geti hvert fyrir sig
Reuter
TIL SOLU
þessi stórglæsilegi
Buick Riviera
Hann er árgerð 1987.
Vélin er 6 cyl. 3800 cc, 165 dín hþ. m/ beinni innspýt-
ingu, „cruise control", vökva- og veltistýri, 4ra þrepa
sjálfskipting m/„overdrive“, tölvumælaborð (digital),
sjálfvirkur hitastillir, snúningshraðamælir, aðvöruna-
rrtölva, hljómflutningstæki, farsími, sentral læsingar,
rafdr. rúður, rafdr. stólar, rafdr. loftnet, rafdr. sóllúga,
rafdr. útispeglar og að sjálfsögðu er hann allur leður-
klæddur. Sumar- og vetrardekk.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.,
Smiðjuvegi 4, Kópavogi,
símar 77200 - 77202.
náð sem bestum árangri," sagði
ráðherrann.
Hann sagði meðalaldur ráðherr-
anna verða um 55 ár. Einn þeirra
sem hverfa úr embætti er Borís
Gostev fjármálaráðherra og var
engum orðum farið um feril hans
en forsætisráðherrann sagði arftak-
ann, Valentín Pavlov, hafa öðlast
þá reynslu sm nauðsynleg væri til
að gegna slíku embætti. Ryzhkov
mælti með því að Edúard She-
vardnadze utanríkisráðherra héldi
stöðu sinni. Tllnefningar embættis-
mannanna verða lagðar fyrir Æðsta
ráðið til umljöllunar á næstunni.
Skömmu eftir ræðu Ryzhkovs
gekk umbótasinninn Borís Jeltsín í
ræðustól og tók undir gagnrýni
Andrejs Sakharovs í fulltrúaþinginu
síðasatliðinn föstudag. Sakharov
sagði þinginu hafa mistekist að að
leysa ýmis grundvallarmál og var
hrópaður niður af afturhaldsmönn-
um. Jeltsín taldi óvíst að umbætur
stjórnar Ryzhkovs dygðu til að
bæta efnahagsástandið á næstu
tveim árum. Hann sagði að fulltrúa-
þinginu hefði ekki tekist að fá fram-
gengt breytingatillögum á stjórnar-
skránni sem hefðu tryggt því meiri
völd og jafnframt að fleiri en einn
frambjóðandi yrði um allar helstu
valdastöður, þ. á m. forsetaembætt-
ið. Skömmu eftir ræðuna var Jeltsín
kjörinn formaður nefndar Æðsta
ráðsins um byggingamál og fékk
hann þorra atkvæða en áður hafði
Gorbatsjov forseti sagt að mælt
yrði með Jeltsín í stöðuna.
Sérmerkjum
%>
uiy
Sérmerkjum ölglös
meö skemmtilegum
teikningum eöa eftir
ykkar tillögum!
Höfðabakki 9
Reykjavík s. 685411
Nikolaj Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, tilkynnti í gær, á
síðasta starfsdegi hins nýja fulltrúaþings, að gerðar yrðu róttækar
breytingar á ríkissljórn landsins. 20 af 50 ráðuneytum í Moskvu
yrðu Iögð niður, en þau hafa fjallað um málefiii landbúnaðar, iðnað-
ar og samgangna. Af um eitt hundrað háttsettum sem skipaðir voru
1984 halda aðeins tíu stöðum sínum. A myndinni sést Ryzhkov í
ræðustól á fulltrúaþinginu.
BREYTTUR
AFGREIÐSLUTÍMI Á
FIMMTUDOGUM
Ákveðið hefur verið að leggja niður síðdegisafgreiðslu bankans
á fimmtudögum. Frá og með 15. júní næstkomandi verður afgreiðslu-
tími bankans sá sami á fimmtudögum og aðra virka daga, frá klukkan
915 til 1600.
Ástæður þess eru fyrst og frernst þær að viðskiptavinir hafa
lítið nýtt sér síðdegisafgreiðsluna en kostnaður við hana er mikill.
Við vonum að þessi hagræðing í rekstri bankans valdi
viðskiptavinum ekki óþægindum og munum, hér eftir sem hingað til,
kappkosta að veita víðtæka og persónulega þjónustu á öllum sviðum
bankaviðskipta.
Viðskiptavinum, sem ekki geta nýtt sér hefðbundinn opnunar-
tíma bankans, er bent á Greiðsluþjónustu Verslunarbankans og
Hraðbankana.
UíRSlUNflRBfiNKINN
-vútHUK <tteð þ&i!
Bankastræti 5, sími 27200
Grensásvegi 13, sími 84466
Laugavegi 172, sími 20120
Þarabakka 3, sími 74600
Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7, sími 687200
Þverholti 6, Mosfellsbæ,
sími 666080
Vatnsnesvegi 14, Keflavík,
sími 92-15600