Morgunblaðið - 13.06.1989, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
33
Tvö þúsund
manns sóttu
dýrasýningu í
Reiðhöllinni
UM tvö þúsund manns sóttu
dýrasýningn fyrir alla Qöl-
skylduna sem haldin var í
Reiðliöllinnií Víðidal um
síðustu helgi. Á sýningunni
gafst gestum tækifæri til að
komast í návígi við ýmsar teg-
undir dýra.
Að sögn Gylfa Geirssonar,
framkvæmdastjóra Reiðhallar-
innar, er þetta í fyrsta skipti
sem e&it er til dýrasýningar I
Reiðhöllinni. Sagði hann und-
irtektir sýningargesta hafa
verið góðar. Sýndar voru
margar tegundir heimilisdýra,
allt frá fuglum til Sska.Á milli
sýningaratriða var börnum
gefinn kostur á að fara á hest-
bak.
Morgunblaðið/Sverrir
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins:
Tímaritið 19. júní:
Fjallað um tækni-
fijóvgun og glasaböm
TIMARITIÐ 19. júní, ársrit Kven-
réttindafélags íslands, er nú kom-
ið út og er þetta 39. árgangur
þess. Megin efiii blaðsins að þessu
sinni er tækniftjóvgun og glasa-
börn, en að auki er að finna ýms-
ar greinar og viðtöl.
í 19. júní er fjallað um réttarstöðu
glasabarna hér á landi, velt upp sið-
rænum spurningum sem framfarir
fijóvgunarvísindanna vekja og birt
brot úr dagbók konu á „glasa-ferð“
í Englandi. Þá er viðtal við Jón Hilm-
ar Alfreðsson, yfirlækni á Kvenna-
deild Landspítalans, undir fyrirsögn-
inni „Meðferð gegn ófrjósemi er
mannúðarmál".
Af öðru efni 19. júní að þessu sinni
má nefna grein um sambúð karla
og kvenna í framastörfum og viðtal
við hjón um það efni. Þá er viðtal
Bátur leit-
ar aðstoðar
ísafirði.
við Helen Caldicott, barnalækni frá
Ástralíu, en hún er væntanleg hingað
til lands nú i júní.
„Er lýðræðið lýðræðislegt" er yfir-
skrift hringborðsumræðu um stjóm-
mál, völd og hlut kvenna í þjóðfélag-
inu. Þá ræðir Andrea Jónsdóttir við
söngkonurnar Ragnhildi Gísladóttur
og Onnu Vilhjálms um konur í rokki.
„Árangnr af stefhumörk-
un sj álfstæ ð ismanna4 4
„Eg tel þetta vera mjög mikil-
vægan áfanga í þróun banka-
mála. Þetta er árangur af stefiiu-
mörkun sjálfstæðismanna í
bankamálum," sagði Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, i samtali við Morgun-
blaðið.
„Það er ástæða til þess að fagna
frumkvæði einkabankanna í þessu
máli nú. Það eru forystumenn
þeirra sem hafa gert þetta mögu-
legt. Núverandi viðskiptaráðherra
hefur lengst af verið andvígur sam-
einingu af þessu tagi,“ sagði Þor-
steinn. Hann sagði að þess væri
skemmst að minnast að Alþýðu-
flokkurinn hefði ekki staðið að sam-
þykkt laganna um breytingu á Út-
vegsbankanum í hlutafélag á sínum
tíma. Því væri það alveg ljóst að
það væri sá mikli þungi sem einka-
banakarnir hefðu lagt í þessa vinnu,
sem hefði knúið fram þessa niður-
stöðu.
„Þetta þýðir minni ríkisafskipti
af bankakerfinu og sterkari banka.
Ég er sannfærður um að það muni
verða viðskiptavinum hins nýja
banka til hagsbóta þegar af samein-
ingunni hefur orðið og stuðla að
auknu heilbrigði í banka- og fjár-
málum,“ sagði Þorsteinn.
„Það var Sjálfstæðisflokkurinn
sem ruddi brautina fyrir þessar
skipulagsbreytingar sem eru að
verða vegna frumkvæðis einkaban-
kanna. Það er mér sannarlega mik-
ið ánægjuefni að þrátt fyrir and-
stöðu hinna stjórnmálaflokkanna
er þessi breyting orðin að veru-
leika,“ sagði Þorsteinn Pálsson.
BJORGUNARBATURINN Dan-
íel Sigmundsson var kallaður
út um hádegisbil á sunnudaginn
vegna snurvoðabátsins Guðrún-
ar Jónsdóttur, sem var að veið-
um tvær til þrjár mílur út af
Rit. Sjór var kominn í bátinn
og var því leitað aðstoðar.
Björgunarbáturinn var kominn
á staðinn um klukkustundu eftir
að hann var kallaður út. Tók hann
Guðrúnu Jónsdóttur í tog og dró
hana til ísafjarðar, þar sem dælt
var úr bátnum og skemmdir lag-
færðar. Skipveijunum, þremur að
tölu, var engin hætta búin þar sem
veður var gott. Skipstjóri á björg-
unarbátnum Daníel Sigmundssyni
í þessari ferð var Ólafur Þór Geirs-
son.
- Ulfar
Tveir slös-
uðust í veltu
BÍLL valt við Kjarrá í Borgar-
fírði á laugardag. Þyrla Land-
helgisgæslunnar flutti tvo
menn á sjúkrahús í Reykjavík.
Annar þeirra var talinn mikið
slasaður. Ekki er vitað um
aðdraganda óhappsins.
Þá sótti þyrlan veikan sjó-
mann um borð í togarann Andey
Su, aðfaranótt mánudags. Tog-
arin var þá staddur við Papey.
Maðurinn var fluttur á Lands-
spítalann.
Björn Björnsson bankastjóri Alþýðubankans;
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 12. júní.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 64,00 44,00 60,20 43,713 2.631.770
Þorskur(smár) 45,00 45,00 45,00 1,000 45.000
Ýsa 79,00 35,00 60,59 8,708 527.621
Karfi 35,00 30,00 32,69 10,862 355.113
Ufsi 39,00 25,00 37,21 63,581 2.366.395
Steinbítur 39,00 39,00 39,00 0,431 16.813
Steinbítur(ósL) 26,00 26,00 26,00 0,470 12.428
Langa 37,00 37,00 37,00 3,544 131.128
Koli 56,00 49,00 54,00 3,500 189.000
Lúða 200,00 140,00 177,41 1,953 346.489
Skötubörð 140,00 138,00 139,00 0,500 69.500
Skötuselur 114,00 99,00 108,84 1,852 201.574
Samtals 49,33 140,312 6.921.104
Selt var meðal annars úr Gjafari VE. í dag verða m.a. seld 20
tonn af þorski, , 15 tonn af ýsu, 22 tonn af karfa, 10 tonn af
kola, 1,5 tonn af skötusel, óákveðið magn af lúðu og fleiri teg-
undum úr Arnari HU, Sigurjóni Arnlaugssyni HF og fleirum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 65,00 47,00 60,69 51,087 3.100.576
Þorskur(smár) 50,00 27,00 46,73 9,848 460.206
Ýsa 90,00 35,00 76,95 4,986 383.677
Karfi 34,00 31,50 33,27 77,039 2.563.188
Ufsi 39,00 15,00 38,64 22,293 861.308
Ufsi(umál) 20,00 15,00 16,29 0,804 13.095
Steinbitur 39,00 36,00 37,75 0,436 16.461
Langa 40,00 40,00 40,00 1,635 65.400
Lúða 240,00 170,00 201,75 0,763 153.935
Skarkoli 53,00 45,00 47,47 0,188 8.994
Keila .5,00 5,00 5,00 0,050 250
Samtals 45,11 169,600 7.649.892
Selt var meðal annars úr Viðey RE. í dag verða m .a. seld 100
tonn af grálúðu, 30 tonn af ýsu, 12 tonn af þorski, óákveðið
magn af öðrum tegundum úr Sunnutindi SU og frá Grundarfirði.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 62,00 48,50 60,96 18,860 1.149.659
Þorskur(smár) 33,00 33,00 33,00 0,310 10.230
Ýsa 76,00 50,00 68,32 7,327 500.585
Karfi 37,00 29,00 31,29 6,903 215.994
Ufsi 40,00 27,50 37,39 25,226 943.216
Steinbítur 34,00 29,00 30,77 0,970 29.850
Lúða 185,00 70,00 123,31 0,386 47.535
Skarkoli 54,00 43,00 44,38 0,778 34.527
Sólkoli 54,00 54,00 54,00 0,654 35.316
Keila 6,00 6,00 6,00 0,365 2.190
Skata 70,00 40,00 42,52 0,207 8.802
Skötuselur 295,00 275,00 294,06 0,373 109.538
Samtals 49,44 62,512 3.090.388
Selt var úr Eldeyjar-Boða GK, Hörpu GK, humar- og færabátum. •
í dag verða m.a. seld 6 tonn af ufsa, óákveðið magn af karfa,
steinbít og fleiri tegundum úr Hrafni Sveinbjarnarsyni GK.
Smæð bankans hefttr staðið
þjónustunni fyrir þrifiim
„ALÞÝÐUBANKINN er minnst-
ur viðskiptabankanna með um
3,7 prósent af heildarinnlánum
þeirra. Það er Ijóst að þessi smæð
bankans hefur staðið okkar þjón-
ustu við félagsmenn og verka-
lýðsfélög og lífeyrissjóði fyrir
þrifúm, ásamt því að við höfúm
ekki afgreiðslu nema hér í
Reykjavík, á Akureyri, Húsavík,
Blönduósi og Akranesi. Þetta er
sú staða sem við höfúm horft á
og menn hafa velt fyrir sér
hvemig mætti bæta úr,“ segir
Björn Björnsson bankastjóri Al-
þýðubankans um ástæður þess
að gengið var til samstarfs við
Verslunar- og Iðnaðarbanka um
að kaupa hlutabréf ríkisins í Ut-
vegsbankanum.
„Út af fyrir sig má segja það að
bankinn hefur verið að sækja í sig
veðrið á undanförnum árum, en það
er líka ljóst að sú uppstokkun sem
var augljóslega framundan í banka-
kerfinu hlyti enn frekar en áður að
gera litlum einingum erfitt upp-
dráttar." Björn segir að við þessar
aðstæður hafi niðurstaðan orðið sú,
að höfðu víðtæku samráði við hlut-
hafa bankans og viðskiptavini að
skynsamlegt væri að stíga þetta
skref til samstarfs við hina bankana
og ná þannig umtalsverðum hlut í
nýjum banka, sem byggður yrði á
grunni Útvegsbankans.
Eignarhluti Alþýðubankans verð-
ur jafn eignarhluta Verslunar- og
Iðnaðarbanka. „Til þess þurfum við
að auka eigið fé okkar sem nemur
350 til 400 milljónum króna.“ Á
síðasta aðalfundi Alþýðubankans
var ákveðið að auka hlutafé um 100
milljónir króna og safnaðist það fé
á fimm til sex vikum. „Það má segja
að sú reynsla hafi sýnt okkur að
bankinn á miklar undirtektir. Við
þykjumst vissir um að við munum
ná að afla þess fjár sem þarf með-
al einstaklinga, verkalýðsfélaga og
lífeyrissjóða.“
Bjöm segir að láta muni nærri
að eigið fé bankans tvöfaldist við
hlutafjáraukninguna og verði langt
í átta hundmð milljónir króna.
Sameining’in
markar tímamót
- segir fiármálaráðherra
„Þessi sameining markar tíma-
mót í íslenskri bankasögu. Það
hefúr lengi verið knýjandi mál
að fækka bönkurn," sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, Qármálaráð
herra í samtali við Morginblaðið
í gær.
Ólafur Ragnar sagði að mat sér-
fræðinga benti til að bankakerfið
hér væri alltof dýrt og óhagkvæmt
og að þar munaði um tveimur mill-
jörðum í samanburði við það sem
tíðkaðist í helstu viðskiptalöndum.
„Lykillinn að breytingum var fækk-
un,“ sagði Ólafur Ragnar.
Hann sagði að kostirnir við þann
nýja banka sem hér hefði verið sa-
mið um væru þeir að bankar sem
þjónað hefðu ólíkum atvinnugrein-
um rynnu saman í einn. Gömlu
hugmyndirnar 'um sérbanka fyrir
iðnað, verslun og útgerð væru ekki
í samræmi við nútíma atvinnuþró-
un.
Hann sagði að forystumenn ASÍ
hefðu talið mikilvægt að styrkja
áhrifastöðu samtakanna í stýringu
peninga og að samtökin hefðu nú
aðstöðu til að beina Ijármagni sínu
og lífeyrissjóðanna til aukinna
áhrifa í bankakerfínu. „Þótt sumum
finnist skrýtið að ASI taki höndum
saman við Iðnaðar- og Verzlunar-
banka getur þessi nýi banki leitt
til þess að staða ASÍ í fjármála-
kerfi landsins styrkist."
Aðspurður hvort hann væri
ánægður með söluverðið á Útvegs-
bankanum, sagði fármálaráðherra:
„Það er alltaf matsatriði hvemig á
að verðleggja banka en ég tel að
það verð sem fæst fyrir Útvegs-
bankann sé viðunandi."