Morgunblaðið - 13.06.1989, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
VJDsnPTLfflVlNNinÍF
ÞRIÐJUDAGUR 13. JUNI 1989
35
Sjávarútvegur
Afla verðmæti togara 6 millj-
arðar fyrstu fjóra mánuðina
AFLI 105 togara var samtals
118.248 tonn fyrstu ijóra mán-
uðina í ár og verðmæti aflans
5,857 milljarðar króna. Þar af
voru 23 frystitogarar með
28.867 tonn fyrir 2,058 miHjarða
Fjármál
Erlend lánskjör
þyngri en innlend
FJÁRMAGNSKOSTNAÐUR í fyrra af erlendum lánum varð yfirleitt
talsvert þyngri en kostnaður af verðtryggðu innlendu láni. Að meðal-
tali voru kjör erlendu lánanna 13,2% samanborið við 8,8% af innlendum
lánum og er þá miðað við meðallánskjör erlendra skulda þjóðarbúsins
skv. meðalsamsetningu þeirra á tímabilinu 1979-1988. Hefúr þá verið
tekið tillit til gengisbreytinga og verðbólgu auk vaxta. Þegar litið er
yfir allt tímabilið 1979-1988 kemur í ljós að erlendu lánskjörin hafa
að meðaltali verið þyngri en þau innlendu.
Frá þessu er greint í Vísbendingu,
vikuriti um viðskipti og efnahagsmál
þar sem vísað er til niðurstaðna sem
nýlega birtust í Hagtölum mánaðar-
ins. Erlend lánskjör voru afar mis-
munandi eftir gjaldmiðlum. í fyrra
var greinilega hagstæðast að skulda
svissneska franka, því næst þýsk
mörk en óhagstæðast að skulda
bresk pund. Þá hafa erlend lán í
dollurum, yenum og frönskum frönk-
um verið talsvert óhagstæð á sl. ári.
Á tímabilinu 1983-1988 voru inn-
lendu lánin þyngri að meðaltali eða
5,4% á verðtryggðu fjármagni sam-
anborið við 1,8% á þeim erlendu.
Þessu var hins vegar öfugt farið á
tímabilinu 1979-84 þegar kjör er-
lendu lánanna voru 11,4% saman-
borið við 2,5% á þeim innlendu.
í Vísbendingu kemur fram að er-
lendar skuldir þjóðarbúsins séu nú
um 120 milljarðar króna og sam-
svari um þriðjungi lánamarkaðarins.
Af þessum lánum greiddu landsmenn
um 14 milljarða króna í afborganir
og vexti í fyrra
króna, 73 litlir togarar 77.755
tonn fyrir 3,206 milljarða króna
og 9 stórir togarar 11.626 tonn
fyrir 593 milljónir króna, sam-
kvæmt skýrslu Landssambands
íslenskra útvegsmanna. Frysti-
togarinn Akureyrin EA var með
mestan afla og aflaverðmæti
togara fyrstu fjóra mánuðina í
ár, eða 2.035 tonn fyrir 153,411
milljónir króna. Skiptaverð var
53,49 krónur fyrir kílóið.
Meðalskiptaverðmæti togara
fyrstu fjóra mánuði þessa árs var
34,87 krónur fyrir kílóið og meðal-
afli á úthaldsdag 12,6 tonn. Meðal-
skiptaverðmæti frystitogara var
51,10 krónur fyrir kílóið og meðal-
afli á úthaldsdag 13,51 tonn. Með-
alskiptaverðmæti stórra togara
var 34,71 króna fyrir kílóið og
meðalafli 11,5 tonn á úthaldsdag.
Meðalskiptaverðmæti lítilla togara
var 28,87 krónur fyrir kílóið og
meðalafli á úthaldsdag 12,47 tonn.
Frystitogarinn Öivar HU var
með næstmestan afla og aflaverð-
mæti togara fyrstu fjóra mánuði
ársins, eða 1.844 tonn fyrir
135,429 milljónir króna. Frysti-
togarinn Freri RE var með þriðja
mesta aflann og aflaverðmætið,
eða 1.813 tonn fyrir 132,119 millj-
ónir króna.
Ögri RE var með mesta afla-
verðmæti stórra togara, eða
112,389 milljónir króna. Afli
skipsins var 1.272 tonn. Hann var
allur seldur erlendis og skiptaverð
var 56,57 kr. fyrir kílóið. Guðbjörg
ÍS var með mesta aflaverðmæti
lítilla togara, eða 85,070 milljónir
króna. Afli skipsins var 1.654 tonn
og skiptaverð 32,87 kr. fyrir kílóið.
Kaldbakur EA var með mesta
aflaverðmæti stórra Akureyrar-
togara, eða 55,445 milljónir króna.
Afli skipsins var 1.767 tonn og
skiptaverð 23,85 krónur fyrir kíló-
ið.
Björgúlfur EA var með mesta
aflaverðmæti lítilla togara frá
Norðurlandi, eða 51,277 milljónir
króna. Afli skipsins var 1.236 tonn
og skiptaverð 29,30 krónur fyrir
kílóið.
Breki VE var með mesta afla-
verðmæti lítilla skuttogara frá
Vestmannaeyjum og Suðurlandi,
eða 69,284 milljónir króna. Afli
skipsins var 1.724 tonn og skipta-
verð 28,25 krónur fyrir kílóið.
Hoffell SU var með mesta afla-
verðmæti Austfjarðatogara, eða
61,751 milljón króna. Afli skipsins
var 1.317 tonn og skiptaverð
32,81 króna fyrir kílóið.
Auglýsingar
Islendingar fílma í
Danmörku fyrír Finna
AUGLÝSINGAFYRIRTÆKIÐ Creative Commercials í Kaup-
mannahöfn, sem er að stórum hluta í íslenskri eigu, heftir samið
við öflugan fínnskan fataframleiðanda um gerð sjónvarpsauglýs-
inga á fatnaði fyrirtækisins.
Creative Commercials var upphaf-
lega stofnað af Saga Film og því
ætlað að afla Saga Film fótfestu
á dönskum auglýsingamarkaði
eftir að aflétt hafði verið ríkisein-
okun þar í landi í útvarpsrekstri
og auglýsingar leyfðar í sjónvarpi.
Fyrirtækið er nú dótturfyrirtæki
Creative Media, sem er skráð hér
á landi og er dótturfyrirtæki Saga
Film, Ágústs Baldurssonar, kvik-
myndagerðarmanns og finnska
fyrirtækisins Story Film & Video.
Að sögn Snorra Þórissonar hjá
Saga Film var það fyrir tilstilli
hins finnska samstarfsaðila innan
Creative Media sem þessi samn-
ingur fékkst, en hann felur í sér
gerð 60 sek. auglýsingar og 30
sek. auglýsingar auk þess sem
gert verður myndband frá tökum
þessara auglýsinga til að sýna í
verslunum. Auglýsingamar verða
teknar á 35 mm. kvikmyndafilmu
en síðan færðar yfir á myndband
og fer eftirvinnslan fram í bæki-
stöðvum Ceative Commercials við
Toldbudgade í Kaupmannahöfn,
en þangað flutti fyrirtækið nýverið
samhliða því að þar var komið upp
eftirvinnslubúnaði. Tökur vegna
auglýsingana fara fram bæði í
Danmörku og í London, og verður
Ágúst Baldursson framleiðandi
auglýsingamyndanna en töku ann-
ast Snorri Þórisson.
Innlán
5,3% aukning
á fyrsta árs-
fjórðungi t
INNLÁN banka og sparisjóða
jukust um 5,3% á fyrsta ársfjórð-
ungi þessa árs og á sama tíma
jukust útlán um 6,9%. Til saman-
burðar má nefiia að innlánsaukn-
ingin á sama tíma í fyrra var
1,9% en útlánsaukningin 10,9%.
Þessar tölur gefa til kynna
ákveðin umskipti í þróun inn- og
útlána milli ára. Meginskýringin á
minni útlánum á fyrsta ársfjórðungi
er talin vera breyting á gjalddaga
söluskatts til samræmis við út-
borgunardag greiðslukortafyrir-
tækjanna. A hinn bóginn er talið
að meiri innlánsaukningu saman-
borið við síðastliðið ár megi rekja
til innlausna spariskírteina umfram
sölu framan af árinu.
Liprar,
þéttar,
sterkar,
fallegar,
einfaldar í
notkun -
vandaðar
= HÉÐINN =
Stórás 6 Sími 52000
MED TÓMA BUDDU
Á EFTIRLA UNAÁRUNUM t 1
Þó að fólk láti af störfum og setjist í helgan stein
verður ekkert ódýrara að lifa. Eftir sem áður þarf
að kaupa mat, borga hita, rafmagn og síma, gefa
bamabömunum gjafir - og njóta lífsins.
Æ fleiri gera sér því ljóst að það er ekki nóg að
greiða hluta launanna í lifeyrissjóð og leggja fyrir
aukalega upp á eigin spýtur. Þá skiptir megimnáli
að spamaðurinn sé öruggur og ávaxtist vel.
Tökum dæmi af hjónum sem leggja fyrir auka-
lega 10.000 krónur á mánuði í 20 ár áður en þau
fara á eftirlaun. Þannig gætu safnast um 4 milljónir
og hjónin gætu því haft um 44 þúsund krónur á
mánuði í 10 ár í viðbótarlífeyri.
VIÐBÓTARLÍFEYRIR EFTIR 20 ÁRA
SPARNAÐ
S/mmtiMr Eign ijiii 20tir: Yitibólttr lifiyir
(í mtiintdi: cí mánuili:
5.000,- 2.029.000,- 21.900,-
10.000,- 4.058.000,- 43.800,-
Mitlai) er vii) <u) x’cxlir liahlist j'astir 5 7c xjir xindltólgtt allan
limiiiiu ngac)gciigii)sé jajnl ogþi'll á liöjitilslóliiin á lOcíniiu.
Allarjjciiiiceilireru i lir/iiiiim ugcí iuigilclaixli verólagi.
Aðalsmerki VIB er góð þjónusta og traust verðbréf
sem gefa góða ávöxtun. Komdu við í Armúla 7 og
kynntu þér leiðir til að safna góðum eftirlaunasjóði
á þægilegan og fyrirhafnarlítinn hátt. Þú getur líka
hringt í síma 681530.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármula 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30