Morgunblaðið - 13.06.1989, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1989
37
The American Scandinavian Foundation:
Mikill ávinningur fyrir Island
að taka þátt í starfseminni
-segir forseti samtakanna Lena Biörck Kaplan
FJÖLMARGIR fslendingar hafa
í gegnum tíðina notið fyrir-
greiðslu, styrkja og velvildar
bandarískrar stofnunar sem ber
heitið The American Scandinavi-
an Foundation. Þetta er stofnun
sem hefur það meginmarkmið
að leiðarljósi að stuðla að og
auka gagnkvæm kynni og þekk-
ingu milli Bandaríkjamanna og
Norðurlandabúa, auk þess sem
mikil kynningarstarfsemi fer
fram á vegum stofnunarinnar í
Bandaríkjunum á menningu og
listum frá Norðurlöndunum.
Höfiiðstöðvar stofnunarinnar
eru í New York. Nú nýverið tók
við forsetaembætti þessara sam-
taka ung kona, Lena Biörck
Kaplan. Lena er Svíi en hefur
verið búsett í Bandaríkjunum
undanfarin 20 ár. Hún er fyrsti
forseti samtakanna sem ekki er
fæddur Bandarikjamaður og má
því segja að val hennar til þess-
arar virðingarstöðu marki
tvenns konar tímamót hjá þess-
ari bráðum 80 ára stofnun; hún
er kona og útlendingur. Fyrir
skömmu hitti blaðamaður Lenu
Kaplan að máli í New York, á
skrifstofti stoftiunarinnar, og
ræddi við hana um starf hennar,
sögu stofnunarinnar, markmið
starfsins, þær breytingar sem
hún hyggst beita sér fyrir og
þýðingu íslands í samstarfi
Norðurlandanna og stofnunar-
innar.
— Ef við byijum á því að líta
aðeins á sögu stofnunarinnar.
Hvernig bar það til að The Americ-
an Scandinavian Foundation var
stofnuð, árið 1910?
„Það var Daninn Nils Paulson
sem stofnaði American Scandinavi-
an. Hann fæddist í Danmörku, en
hann fluttist ungur til Banda-
ríkjanna og varð auðugur maður
með viðskiptum sínum í stál- og
járniðnaði. Paulson var með stofn-
uninni að láta gamlan draum ræt-
ast og hann lagði fram umtalsverða
fjármuni til uppbyggingar stofnun-
arinnar og reksturs. Paulson lést
árið eftir, eða árið 1911, þannig
að hann lifði vart að sjá draum
sinn rætast. Síðan þetta var hafa
fjölmargir Bandaríkjamenn af
norrænum uppruna lagt stofnun-
inni til fé, þannig að samtals hefur
stofnuninni verið ánafnað um 10,5
milljónum dollara. Rekstur okkar
er fjármagnaður með vöxtunum af
peningaeign okkar, og fjárframlög-
um, en við göngum aldrei á höfuð-
stólinn."
— Hvert er helsta verksvið þess-
arar stofnunar?
„Við veitum ár hvert fjölda
styrkja til Bandaríkjamanna og
Norðurlandabúa. Við greiðum
skóiagjöld eða hluta þeirra fyrir
ákveðinn fjölda Norðurlandabúa
sem koma til náms hér í Banda-
ríkjunum. Hjá okkur er mikið um
gangkvæm samskipti, þannig að
Bandaríkjamenn fara til Norður-
landanna til náms, eða í skemmri
náms- og kynnisferðir og Norður-
landabúar koma hingað. Við reyn-
um eftir því sem við getum að
styrkja þessi tengsl, enda er megin-
markmið American Scandinavian
það að stuðla að gagnkvæmum
heimsóknum og kynnum. Sem
dæmi um þýðingu þessa starfs í
okkar augum, get ég nefnt þér að
starfsmenn þeirrar deildar sem
annast þennan hluta starfseminnar
eru sex talsins, en alls vinna hér
15 manns. Reyndar er ísland það
Norðurlandanna sem nýtur algjörr-
ar sérstöðu í þessum efnum, vegna
þessa sérstaka sjóðs sem við höfum
yfir að ráða til að styrkja íslend-
iríga, sem er Thor Thors minning-
arsjóðurinn. Við höfum því haft
tækifæri til þess að fá hingað fjölda
Islendinga. Island er því okkur og
starfsemi okkar afar mikilvægt."
— Hvað með aðra starfsemi
ykkar?
„Við höfum haft höfuðstöðvar
okkar hér á 73. stræti allar götur
síðan 1964. Nú finnst okkur sem
við séum ekki nógu vel staðsett og
viljum því selja þetta húsnæði og
kaupa annars staðar, þar sem við
erum meira í hringiðu mannlífsins
hér á Manhattan. Við viljum auka
þann hluta starfsemi okkar sem
hefur með listsýningar að gera,
bókasýningar, menningarkynning-
ar, fyrirlestra og fleira í þá veru.
Til þess að auka og rækta þann
hluta starfsemi okkar þurfum við
að ná til fólks og það gerum við
ekki í nægilega ríkum mæli með
núverandi staðsetningu.
— Nú ert þú ekki aðeins forseti
stofnunarinnar, heldur einnig rit-
stjóri tímaritsins sem þið gefið út,
Scandinavian Review. Er þetta
ekki ærinn starfi?
„Reyndar er ég bara tímabundið
ritstjóri Scandinavian Review. Fyr-
ir utan skipulagsstörf og yfirstjórn-
un verður höfuðábyrgð af fjáröflun
á mínum herðum, sem er auðvitað
ómæld vinna. Auk þess er ég þeirr-
ar skoðunar að ég sé ekki nógu
hæf til þess að ritstýra þessu merka
riti. Enska er ekki móðurmál mitt.
(Lena talar að sjálfsögðu reiprenn-
andi ensku eftir 20 ára búsetu í
Bandaríkjunum, en það örlar á
sænskum hreim.) Því held ég að
ritstjórnin væri betur komin í hönd-
unum á einhveijum öðrum og við
erum reyndar að yfirfara það nú,
með hvaða hætti við endurskipu-
leggjum útgáfustarfsemi okkar og
eflum.
Scandinavian Review kemur út
ársfjórðungslega og því er dreift í
áskrift til um 3.500 áskrifenda.
Við ætlum að gera virkilegt átak
í átt til aukinnar útbreiðslu, því ég
tel að samtök eins og okkar, í landi
með allan þennan fjölda af Banda-
ríkjamönnum af norrænum upp-
runa eigi að geta gert miklu, miklu
betur. Við erum spennt fyrir því
að reyna að ráða norrænan rit-
stjóra, einhvem sem býr í ein-
hverju Norðurlandanna og fær
Norðurlandabúa til þess að rita
greinar í tímaritið. Ég tel það vera
Lena Biorck Kaplan, forseti
The American-Scandinavian
Foundation.
veikleika hjá okkur, að sitja hér í
miðri New York-borg og eiga að
gefa út tímarit, sem endurspeglar
og greinir frá þróun, breytingum
og stefnum á Norðurlöndum hvort
sem um er að ræða í menningarleg-
um, þjóðfélagslegum, fræðilegum
eða tæknilegum skilningi. Ef það
verður niðurstaðan að við ráðum
einhvern á Norðurlöndum, tel ég
að tengslin verði mun sterkari og
raunverulegri. Við myndum eftir
sem áður vinna blaðið, gefa það
út og dreifa því hér.“
— Mér hefur skilist að American
Scandinavian væri afskaplega
íhaldssöm stofnun, og því hefur
raunar verið haldið fram að hún
Pat Malloy, einn starfemanna American Scandinavian hefiir haft veg og vanda af undirbúningi
íslensku myndlistarsýningarinnar sem var opnuð þann 23. mai sl. og stendur fram til 28. júlí. Hér
er Pat í sérstöku íslandshorni, en myndlistarverkin sem setja átti upp voru ekki komin.
væri mjög gamaldags. Átt þú von
á því að ímyndin eigi eftir áð breyt-
ast mikið við það að þú tekur við
sem forseti?
„Ég tel að ímynd stofnunarinnar
út á við sé mjög góð. Þetta er afar
virðuleg og góð stofnun, en kannski
það sé rétt að hún sé svolítið gamal-
dags. Ég held nú satt að segja að
forveri minn í þessu starfi, Patricia
McFate, hafi umbylt og breytt
mörgu í átt til nútímalegra forms
en áður var. Ég hef fullan hug á
að halda áfram á þeirri braut, sem
hún markaði á margan hátt. Hún
jók mjög rækt okkar við nútímalist
og því hyggst ég halda áfram.
Fjöldi norrænna listamanna kom
hingað, fyrir hennar tilstilli, sem
ella hefðu ekki haft tækifæri til
þess að vera með sýningar í New
York, upplestur úr verkum sínum,
tónlístarflutning og fleira.
Ég held að sú staðreynd að ég
er frá Norðurlöndum og hef all-
nokkra þekkingu á löndunum,
menningu þeirra og fylgist vel með
því sem þar gerist, eigi eftir að
hjálpa mér í starfi. Þessi þekking
mín og vitund um það sem er að
gerast á Norðurlöndunum gefur
mér til kynna að það sé svo miklu
meira sem við hér eigum og getum
gert. Auðvitað viljum við ná til
miklu fleiri en við gerum og miklu
víðar, en til þess að það sé unnt,
verðum við að afla meira fjár.“
— Einhvern veginn held ég að
fjölmargir íslendingar viti lítið sem
ekkert um starfsemi ykkar, jafnvel
ekki tilvist. Getur þú lýst því hvaða
hlutverk ísland hefur hjá The
American Scandinavian Foundati--
on?
„Það kann vel að vera rétt hjá
þér, að við höfum ekki náð til
nægilega margra íslendinga,
hvorki hér í Bandaríkjunum né á
íslandi. En það er gaman að geta
greint frá því hér og nú að næsta
myndlistarsýning okkar verður ís-
lensk sýning. íslensku listamenn-
irnir sem sýna verk sín eru fjórir
ungir myndlistarmenn. Konumar
eru höggmyndlistarmenn en menn-
irnir eru listmálarar.(Sýningin var
opnuð í New York þann 23. maí
sl. og stendur til 28. júlí.) Við undir-
búning þessarar sýningar og val á
listamönnunum höfum við notið
mikillar aðstoðar Aðalsteins Ing-
ólfssonar listfræðings. Listamenn-
irnir eru tvenn hjón; Jón Axel
Bjömsson og Sóley Eiríksdóttir og
Kolbrún Björgólfsdóttir og Magnús
Kjartansson.
Flugleiðir hafa stutt okkur
dyggilega við undirbúningþessarar
fallegu, íslensku sýningar, svo og
Thor Thorssjóðurinn. Við erum
mjög ánægð að geta sett upp þessa
íslensku sýningu nú, því það em
næstum þijú ár síðan við vorum
með íslenska sýningu síðast. Ég
held að ísland, sem er minnst Norð-
urlandanna, hafi mikinn ávinning
af þátttöku sinni í American Scand-
inavian. Jafnvel hvað mestan
ávinning, vegna smæðar sinnar,
því starfsemin hjá okkur er á jafn-
ræðisgrundvelli, þannig að jafn-
mikið er gert fyrir Island og önnur
Norðurlönd."
Texti og myndir: AGNES
BRAGADOTTIR
VORHAPPDRÆTTI KRABBAMEINSFELAGSINS
STUÐNINGUR YKKAR ER OKKAR VOPN
SAMEIGINLEGUR VINNINGUR
• Öflugri krabbameinsvarnir!
AÐALVINNINGAR:
• Toyota Corolla 4WD.
VINNINGAR MEÐ VALI
• Thailandsferð, tölvubúnaður eða byggingavörur
fyrir 270 þús. kr.
• Sólarlandaferð, myndbands-upptökuvél eða byggingavörur
fyrir 125 þús. kr.
• Ferðalag, hljómflutningstæki eða byggingavörur fyrir 50 þús. kr
t Krabbameinsfélagið
S
AUK/SlA k88d21-63