Morgunblaðið - 13.06.1989, Page 45
. MORGUNBLtAJBIfti )>K1ÐJ UDAGliH. 1 *■; JÚN'l ,3,989
Steindór Sendibílar
Glímunni við gluggatjöldin er lokið. Við komum til þín, tökum þau niður, förum með þau
og hreinsum þau. Svo strekkjum við þau og jöfhum falda með nýrri tölvutækni þannig að
síddin verði nákvæm. Svo pökkum við þeim inn í plast, ökum þeim heim til þín og setjum
þau upp. Gluggatjöldin verða slétt og falleg því að engin aukabrot koma í þau - hvorki
í hreinsun né flutningi. Þú greiðir aðeins jfyrir hreinsunina — ekki fyrir aðra
þjónustu.
FONN
Skeifunni 11
Sími: 82220
Ókeypis þjónusta — ómæld þægindi.
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Helstu Shell- -
og Esso
-stöðvar og helstu
byggingavöruverslanir.
Dreifing: Hringás hf.
S. 77878, 985-29797.
it
TílbOinn
stíflu
eyðir
Axel Þorgilsson
- Kveðjuorð
Þann 2. maí mætti ég eldhress
og kát í skólann, en það var ekki
lengi, vegna þess að ég fékk þær
hörmulegu fregnir að Axel Arnar
Þorgilsson, besti vinur minn, hefði
dáið_ daginn áður. í fyrstu trúði
ég þessu ekki en svo fór ég að
skilja hvað það væri að deyja eða
missa besta vin sinn. Axel var
mjög skemmtilegur, hress og veru-
lega fínn strákur. Hann átti mjög
gott með að tala við fólk og kynn-
ast því. Ég kynntist honum þannig
að hann byijaði að hringja í mig
og tala við mig. Ég spurði hann
hvernig hann hefði fengið síma-
númerið hjá mér, hann sagðist
bara hafað reddað sér því sjálfur.
Svona fann Axel allt út sjálfur,
því hann var mjög laginn. Og þá
allra mest í höndunum, því það
var svo margt sem Axel gat en
en aðrir ekki, t.d. að koma því í
lag sem var í ólagi eða átti að fara
í viðgerð. Hann var líka mjög lag-
inn við að setja saman flókna
hluti. Axel var mjög vinsæll og
átti óteljandi vini. Axel var rétt
að byrja að lifa lífinu og hann
átti allt lífið framundan. Axel var
mikill grínisti og hafði gaman af
að stríða og grínast við fólk, en
hann gat líka verið alvarlegur og
tekið hluti mjög nærri sér. Ef sá
sem hann var að tala við var að
grínast en honum fannst það ekk-
ert grín, þá hvorki hló hann né
brosti, því hann hafði sko sínar
skoðanir á málinu og enginn gat
breytt því nema hann sjálfur. En
það allra besta sem ég á til minn-
ingar um hann eru djúpu spékopp-
arnir í kinnunum hans. ■
Ég hef vitað hver Axel var síðan
ég var sex ára gömul, en ég hélt
alltaf að Axel væri ekkert sérstak-
lega skemmtilegur strákur. En
þegar ég kynntist honum almenni-
lega kom í ljós að Axel var
skemmtilegasti strákur sem ég hef
kynnst og það var mjög gaman
að tala við hann, og gott að treysta
honum fyrir leyndarmálum. En
það er ekki hægt lengur því hann
er dáinn og fer til himnaríkis í
betri heim. Ég minnist þeirra
stunda þegar við töluðum saman,
bæði í gríni og alvöru.
Ég sendi innilegar samúðar-
kveðjur til Þorgils Axelssonar,
Guðrúnar Helgadóttur, Helgu Ra-
kelar Þorgilsdóttur og Þorgils
Rafns Þorgilssonar í Brekkubyggð
20 í Garðabæ. Guð styrki ykkur
öll í sorg ykkar.
Skólasystir,
Rakel Rán Guðjónsdóttir.
Sumartilboð
„Við tökum ekkert fyrir...
...að koma og taka gluggatjöldin niður eða setja þau upp.“
Hótel, veitingahús, sölu-
skálar og mötuneyti.
Hjá RV fáið þið servíettur,
dúka, kerti, diska- og glasa-
mottur á ótrúlega lágu verði.
Qgjitmti
REKSTRARVORUR
Draghálsi 14-16*110 Rvík • Simar: 31956 - 685554