Morgunblaðið - 13.06.1989, Page 56

Morgunblaðið - 13.06.1989, Page 56
 MORéÚíÍBLÁ£)IÐ ÞRIÐJUDÁGUR ÍÍ3. JÚNÍ 1989' 17. þing Landssambands sjálfstæðiskvenna: Sigríður Anna Þórðar- dóttir kjörin formaður SIGRÍÐUR Ánna Þórðardóttir frá Grundarfirði var kjörin formaður Landssambands sjálfstæðis- kvenna á 17. þingfi þess i Viðey um helgina. Sigríður tekur við af Þórunni Gestsdóttur, sem gegnt hefur embættinu í 4 ár. Á þinginu voru haldnir fyrirlestrar um skattamál, húsbréfakerfið og um- hverfismál auk þess sem sam- þykkt var stjórnmálaályktun, þar sem ríkisstjórn Steingríms Her- mannsonar er gagnrýnd harðlega fyrir óhóflega og rangláta skatt- lagningu og óstjórn í efhahags- málum þjóðarinnar. Landsþingið var sett í Valhöll síðastliðið föstudagskvöld. Þórunn Gestsdóttir, fráfarandi formaður Landssamþandsins, ávarpaði þing- fulltrúa og fjallaði meðal annars um stöðu Sjálfstæðisflokksins um þessar mundir: „Við stofnun Sjálfstæðis- flokksins fyrir sextíu árum var byggt á háleitum hugsjónum einstaklings- framtaksins, hugsjónum.um víðsýni og umbætir. Á þessum árum hafa Success GUW.KTEED f%2 ! PEBffCT!N IrlrCi! 8 M<NOTES H|VV Cfíicímt AÍmondine CMcncn Vbvorcd fVce with Posta & Atmónas Framandi og ógleymanlegur hrísgrjónaréttur. Löng hrísgrjón blönduð með ses- am, möndlum og núðlum og kryddað á afar sérstæðan hátt. Svo sannarlega öðruvísi kjúklingaréttur. Fyrir 4 — suöutími 8 mín. Heildsölubirgðir: KARL K. KARLSSONkGO. Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32 framfarirnar í þjóðfélaginu verið stórstígar og þessi stjórnmálaflokk- ur hefur þróast með, án þess að glata grunntóninum. Hann hefur gert bet- ur en að þróast með þjóðinni, hann hefur verið brautryðjandi. Sjálfstæð- isflokkurinn hefur verið kjölfestan í íslensku samfélagi og mótað ut- anríkisstefnu þjóðarinnar." Þorunn fjallaði einnig um stöðu kvenna innan Sjálfstæðisflokksins og sagði, að megintilgangurinn í starfi Landssambands sjálfstæðis- kvenna væri að vinna að framgangi kvenna innan flokksins, sem og að framgangi flokksins í samfélaginu. Kom fram í máli Þórunnar, að hún teldi að ekki hefði nægilega mikið áunnist á síðustu árum. „En margt jákvætt blasir einnig við,“ hélt hún áfram. „Konum hefur fjölgað í sveit- arstjórnum og ábyrgðarstöðum í þjóðfélaginu. Við teljum að við höf- um stuðlað að viðhorfsbreytingum víða innan Sjálfstæðisflokksins og ber þar að nefna samhljóða sam- þykkt í miðstjórn í mars síðastliðn- um. Þar var meðal annars viljayfir- lýsing um að auka þyrfti hlut kvenna á framboðslistum flokksins. Þar voru orð samþykkt, sem eru til alls fyrst, en það eru athafnirnar sem við bíðum eftir,“ sagði Þórunn Gests- dóttir. Skattamál Á laugardaginn var þinginu fram- haldið í Viðey. Voru þá haldnir fyrir- lestrar um skattamál, húsbréfakerf- ið og umhverfismál. Ólafur Helgi Kjartansson, skattstjóri Vestfjarð- aumdæmis, fjallaði um skattakerfið hér á landi og vék meðal annars að þeim breytingum sem orðið hafa á því að undanfömu. Hann ræddi síðan um þær skattkerfisbreytingar sem orðið hafa í tíð núverandi ríkisstjórn- ar. Um eignarskattshækkunina í vetur sagði hann að ýmsir ættu eft- ir að hrökkva við í sumar, þegar sá skattur yrði lagður á, þar sem um verulega hækkun væri að ræða hjá stórum hópi gjaldenda. Ólafur gagn- rýndi breytingar á lögum um vöru- gjald harðlega og enn fremur sér- stakan skatt, sem renna á í Fram- kvæmdasjóð aldraðra. Hann vitnaði til þess, að með staðgreiðslukerfinu hefði verið ætlunin að afnema sér- staka skatta af þessu tagi. Einnig benti hann á, að áætlað hefði verið að 200' milljónir króna innheimtust með þessum hætti en þar af hefðu aðeins 40 milljónir átt að renna til Prólaöu Græðandi varasalvi úr kraftaverkaþykkblijöungnum ALDE VERA Heilsuval, laugavegi 92. S: 626275 og 11275 hjól Metsölu- vélar Meisö'u-*jto0^v I* —Fjöldi tegunda mismunandi stæröir og gerðir garða. M.a.: MURRAY 9-20201, 3,5 ha bensínmótor, 7" hjól, 51 sm sláttubreidd: Verð aðeins kr. 15.350,- Glæsilegt úrval reiöhjóla fyrir alla fjölskylduna. M.a.: Fjallahjól frákr. 16.4f9,- 10 gíra hjól frákr. 11.816, Sterkir kraftmiklir gæðagripir. Allt fyrir garöinn á einum stað: SLATTUVELAR fyrir allar stæröir garða. Vélorf * Raforf ★ Kantklippur * Hekkklippur * Traktorar + ,—-n Einungis viöurkennd hágæðamerki: MURRAY, ECHO, AL-KO 0.fl. VISA og EURO-þjónusta. Póstsendum um land allt. Góð varahluta- og viðgerðarþjónusta. Sláttuvéla- & Hvellur Hjólamarkaður Smiðjuvegi 30, Kópavogi Sími 689 699 og 688 658 Frá þingi Landssambands sjálfstæðiskvenna í Viðey um helgina. Sigríður Anna Þórðardóttir, ný- kjörinn formaður Landssam- bands sjálfstæðiskvenna. Framkvæmdasjóðsins. Ólafur Helgi Kjartansson kom einnig að fyrirhuguð breytingum svo sem virðisaukaskattinum, sem hann taldi til bóta. Á hinn bóginn varaði hann við þeim áhrifum, sem skattur á fjármagnstekjur gæti haft. Annað hvort yrði hann til þess að draga úr sparnaði eða að kröfur um hærri ávöxtun kæmu fram í kjölfar álagn- ingar hans. Eins taldi hann að sérs- takt hátekjuskattþrep væri vara- samt, þar sem annað hvort yrði að leggja hann á eftir á og riðla þann- ig staðgreiðslukerfinu, eða hafa hann inn í staðgreiðslukerfinu, sem þýddi að erfitt yrði að leggja hann á einstaklinga sem þægju laun á fleiri en einum stað. Húsbréfakerfíð Að erindi Ólafs loknu var hús- bréfakerfið tekið til umræðu á þing- inu. María E. Ingvadóttir, fjármála- stjóri, gerði grein fyrir núverandi húsnæðiskerfi og sagði það hafa sprungið. Ýmsar leiðir væru til út þeim vanda sem við blasti í þessum málaflokki og væri einfaldasta lausnin sú að hækka vexti á hús- næðislánum. Sagði María að spum- ing væri, hvers vegna ríkið ætti að hafa afskipti af þessum málum og hvort ekki væri eðlilegra að fast- eignamarkaðurinn fjármagnaði þessi lán innan frá. Hún gagnrýndi breytingar sem gerðar voru á hús- bréfafrumvarpinu í meðförum Al- þingis og sagði mikilvægt að nægt fjármagn fengist í kerfíð til að leyfa því að sanna tilverurétt sinn. Hús- bréfakerfið væri, eins og það var fyrst hugsað, skref í þá átt, að ríkið hætti afskiptum sínum af fasteigna- markaðinum. Geir H. Haarde alþingismaður gerði síðan grein fynr framgangi húsbréfafrumvarpsins á Alþingi. Sagði hann að á haustdögum hefði stefnt í að nokkur samstaða hefði getað orðið um þetta kerfi í þjóð- félaginu, en andstaða hefði komið fram frá afturhaldsöflunum á þingi, Framsóknaflokki og Alþýðubanda- lagi. Sú afstaða mótaðist af þeirri skoðun þessara afla, að viðskipti með verðbréf á fijálsum markaði væru af hinu illa. Félagsmálaráð- herra hefði síðan samið við þessa andstæðinga kerfisins um að gera breytingar á því, sem hefðu þannig náð að eyðileggja það að verulegu leyti. Hins vegar hefði ekki verið samið við sjálfstæðismenn, sem hefðu flestir verið fylgjandi kerfinu. Vegna breytinganna hefðu sjálf- stæðsmenn ekki fallist á frumvarpið i endanlegri mynd þess og lagt til að því yrði aftur vísað til ríkisstjórn- arinnar. Þegar það hefði verið fellt hefðu þeir því setið hjá. Umhverfismál Að loknum umræðum og fyrir- spurnum um húsbréfakerfið voru haldin tvö erindi um umhverfismál. Annars vegar fjallaði Hulda Valtýs- dóttir, formaður Skógræktarfélags íslands, um skógrækt hér á landi og aukinn áhuga almennings á þess- um málaflokki. Fyrirhugað væri átak í skógrækt á næsta ári og ætti þar að beina athyglinni að land- græðsluskógum. Taldi Hulda þetta átak efla heilbrigðan þjóðarmetnað og skoraði á þingfulltrúa að láta ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Hún vék í lok máls síns að frum- varpi ríkisstjómarinnar um um- hverfismál, sem ekki fékkst afgreitt á Alþingi í vor, og taldi það gallað að mörgu leyti. Salóme Þorkelsdóttir, alþingis- maður, íjallaði einnig um umhverfis- málafrumvarp ríkisstjómarinnar. Það hefði verið lagt fram skömmu fyrir þinglok og átt að keyra það í gegnum Alþingi á skömmum tíma. Taldi Salóme þetta gagnrýnisverð vinnubrögð auk þess sem það hefði mætt andstöðu frá flestum hags- munaaðilum. Hins vegar væri vissu- lega þörf á að samræma yfirstjórn ÓlöfKristjánsdóttir, Víði - Kveðjuorð Fædd 27. apríl 1971 Dáin 30. maí 1989 Með þessum fáeinum orðum vil ég kveðja fyrrverandi skólasystur mína, Ólöfu Kristjánsdóttur. Ég kynntist Ólöfu á Skógaskóla. Alltaf var hún hress og kát. Mér þykir leitt að geta ekki verið heima á íslandi við útförina, vegna náms erlendis. Ég vil senda innilegar samúðar- kveðjur til fjölskyldu hennar. Við söknum hennar öll. Ólöf Hrafhsdóttir Skólasystir okkar og vinkona er látin. Er við fréttum af þessu hræði- lega slysi brá okkur mjög, en okkur datt ekki til hugar að afleiðingar þess yrðu eins alvarlegar og raun ber vitni. En eins og við vitum öll, deyja þeir ungir sem guðirnir elska. Við kynntumst Ólöfu sem mjög glaðlyndri, ákveðinni og traustri manneskju. Hún hafði einkar hlýja framkomu og mjög gott var að tala við hana. Hún var ávallt svo jákvæð og skilningsrík að margir leituðu til hennar til þess að ræða hina ólíkustu hluti og vandamál. Ólöf var mjög sérstök stelpa, stelpa sem okkur þótti öllum vænt um og ein af fáum sem algjörlega var hægt að opna sig fyrir og tala við um hvað sem var. Er við hugsum um það að við eigum aldrei eftir að sjá hana né heyra aftur í þessu lífi finnum við til mikillar sorgar og einnig eftir- sjár. Þótt hún sé ekki lengur meðal okkar munum við ekki gleyma henni heldur mun minningin um hana ávallt lifa í huga okkar og hana getur ekkert tekið frá okkur. Við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast henni þennan stutta tíma og við sendum öllum þeim sem þekktu hana, foreldrum, systrum, ættingjum, vinum og þá sérstaklega Jóhanni innilegustu samúðarkveðj- ur. Megi Guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Mér finnst ég varla heill né hálfur raaður og heldur ósjálfbjarga, því er ver. Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður verða betri en ég er. Horfið er nú sumarið og sólin í sálu minni hefur gríma völd. í æsku léttu ís og myrkur jólin, nú einmanna ég sit um vetrarkvöld. En eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það, en samt ég verð að segja, að sumarið það líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Blessuð sé minning hennar. Nemendur og vinir á Skógaskóla t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, PÉTURS PÁLSSONAR, Hraunbraut 1, Kópavogl. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar. Steinunn Sæmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR SIGURÐARDÓTTUR. Friðjón Þórðarson, Sigurður Rúnar Friðjónsson, Guðborg Tryggvadóttir, Þórður Friðjónsson, Þrúður G. Haraldsdóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson, Margrét Lísa Steingrímsdóttir, Lýður Árni Friðjónsson, Ásta Pétursdóttir, Steinunn Kristin Friðjónsdóttir, Árni M. Mathiesen og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.