Morgunblaðið - 16.09.1989, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SÉPTEMBER 1989
Afgreiðslutími áfengis:
Lögreglustj óri fer að
tilmælum borgarráðs
LÖGREGLUSTJORINN í
Reykjavík hefur ákveðið vegna
tilmæla borgarráðs, að heimila
Stuttur fund-
ur í ÍSAL-
deilunni
Samninganefhdir starfsmanna
íslenska álversins í Straumsvík
og viðsemjenda þeirra hittust á
stuttum fundi hjá ríkissáttasemj-
ara í gær og hefur verið boðað
til nýs fundar í dag klukkan 13.
Þá funduðu einnig flugvirkjar
Landhelgisgæslunnar hjá ríkis-
sáttasemjara í gær og tóku for-
svarsmenn Gæslunnar sér tíma
fram yfir helgi til þess að skoða
málið. Nýr fundur hefur verið
ákveðinn á mánudag.
veitingastöðunum tveimur, Fóg-
etanum og KafR Hressó, að hafa
opið til kl. 01 virka daga og
sunnudaga og til kl. 03 föstu-
daga og laugardaga. Þessum
veitingahúsum hefúr verið lokað
kl. 23:30 síðustu daga sam-
kvæmt reglugerð sem á að taka
gildi 1. október næstkomandi.
Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, féllst lögreglustjóri á að
falla frá fyrri ákvörðun um opnun-
artíma á meðan nefnd á vegum
borgarinnar og embættisins ræðir
hvernig staðið verður að leyfisveit-
ingum í framtíðinni. Gert er ráð
fyrir að nefndin skili sameginlegri
niðurstöðu fyrir 1. október.
„Ég er mjög ánægður með þessi
viðbrögð embættisins og vonast til
að hægt verði að komast að sam-
komulagi um frekari verklagsregl-
ur í þessum málum,“ sagði Vil-
hjálmur.
Yfirmaður
Atlants-
hafsflotans
í heimsókn
Yfirmaður Atlantshafsflota Atl-
antshafsbandalagsins, Frank B.
Kelso yfirflotaforingi, kemur í opin-
' bera heimsókn til íslands mánudag-
inn 18. september nk. í boði Jóns
Baldvins Hannibalssonar, utanríkis-
ráðherra.
Morgunblaðið/Þorkell
Viðskipti rædd á ferðakaupstefnunni í Laugardaishöll í gær. --
Ferðakaupstefna í Laugardalshöll:
Velta í ferðaþjónustu
um 10 milljarðar kr.
FJÓRÐA ferðakaupstefna Vest-
norden hófst í Laugardalshöll á
fimmtudag og lýkur í dag. Vest-
VEÐUR
VEÐURHORFURIDAG, 16. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Um 400 km vestsuðvestur af Reykjanesi er 978
mb lægð sem þokast austsuðaustur, en vaxandi hæðarhryggur
yfir N-Grænlandi. Um 600 km suður af Hornafirði er vaxandi 960
mb lægð á hreyfingu norðaustur.
SPÁ: Hvöss norðaustanátt víða um land, jafnvel stormur austantil
á landinu. Rigning um norðan- og austanvert landið en snjókoma
til fjalla, úrkomulítið suðvestanlands. Hiti 3—8 stig á morgun og
heldur kólnandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Norðvestan- og norðvestanátt og svalt
í veðri, skúrir eða slydduél norðanlands, einkum í útsveitum, en
bjart veöur syðra.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hæg breytileg eða norðvestlæg átt og
víðast þurrt veður. Svalt áfram.
a Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
-| 0° Hitastig: ,
10 gráður á Celsius
ý Skúrír
* i
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
W VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 4 skýjað Reykjavík 8 alskýjað
Bergen 12 hálfskýjað
Helsinki 13 alskýjað
Kaupmannah. 15 hðlfskýjað
Narssarssuaq -1 léttskýjað
Nuuk 0 léttskýjað
Osló 13 skýjað
Stokkhólmur 15 skýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 25 skýjað
Amsterdam 18 skýjað
Barcelona 25 rykmistur
Berlín 15 léttskýjað
Chlcago 9 léttskýjað
Feneyjar 22 léttskýjað
Frankfurt 18 alskýjað
Glasgow 11 rigning
Hamborg 16 skýjað
Las Palmas 27 skýjað
Londón 20 rigning
Los Angeles 19 léttskýjað
Lúxemborg 15 rigning
Madrid 26 mistur
Malaga 26 mistur
Mallorca 26 léttskýjað
Montreal 13 þokumóða
New York 24 þokumóða
Orlando 24 léttskýjað
París 19 rigning á síð. klst.
Róm 23 léttskýjað
Vin 19 léttskýjað
Washington 24 þokumóða
Winnipeg vantar
norden er sameiginlegt ferða-
málaráð Islands, Færeyja og
Grænlands sem hóf störf árið
1980 og í því sitja tveir fúlltrúar
frá hverju landi. Á kaupstefti-
unni er áætlað að þátttakendur
verði hátt á fimmta hundrað.
Um 100 seljendur eru með sýn-
ingarbása, og áætlaðir kaup-
endur, fyrirtæki og einstakling-
ar, eru þtjú til Qögur hundruð
talsins.
Kaupendur eru ferðaskrifstofur
og aðrir skipuleggjendur í ferða-
málum en seljendur eru ferðaþjón-
ustufyrirtæki, ferðafélög/ferða-
miðstöðvar, hótel/veitingastaðir,
flugfélög, bílaleigur o.s.frv. Ferða-
málaráð íslands, Grænlands og
Færeyja styrkja kaupstefnuna og
Vestnorden-nefndin leggurtil fjár-
magn. Auk þess hafa stjórnvöld
þessara landa sýnt velvilja,
Reykjavíkurborg, Flugleiðir og
fleiri.
Fyrsta kaupstefnan var haldin
í Reykjavík árið 1986, árið þar á
eftir í Nuuk á Grænlandi og á
síðasta ári var hún í Þórshöfn.
Að sögn Kjartans Lárussonar, for-
stjóra Ferðaskrifstofu íslands,
hefur slík kaupstefna mikla við-
skiptalega hagræðingu í för með
sér, og þátttakendum fjölgar ár
frá ári. Salan hefði margfaldast í
íslenskri ferðaþjónustu og veltan
á þessu ári væri nálægt tíu mill-
jörðum króna. Kjartan sagði að
áður en samstarf þetta hófst hefðu
seljendur þurft að leggja á sig
ferðalög til útlanda og væri kaup-
stefnan gifurleg lyftistöng fyrir
hina smærri þjónustuaðila hér-
lendis. Áætlað er að á þessari ráð-
stefnu verði samið um viðskipti
fyrir milljarða króna.
Auk kaupenda víðsvegar að úr
heiminum verður fjöldi erlendra
blaðamanna á ferðakaupstefnunni
í Laugardalshöll en henni lýkur
formlega í dag. Kaupstefnan er
ekki opin almenningi.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Fiskveiðisteftia mót-
uð fyrir landsftmd
SJÁLFSTÆÐISMENN efha til fúndar um sjávarútvegsmál í Valhöll
við Háaleitisbraut í dag og hefst hún klukkan 10 árdegis. Þar verð-
ur fjallað um drög að sjávarútvegsályktun landsfundar fiokksins, sem
haldinn verður í byrjun október.
Til fundarins er boðað af sjávar-
útvegsnefnd Sjálfstæðisflokksins.
Málshefjendur verða Þorsteinn
Pálsson, formaður flokksins, sem
fjallar almennt um atvinnu- og sjáv-
arútvegsmál, Björn Dagbjartsson,
formaður sjávarútvegsnefndarinn-
ar, sem kynnir drög að ályktun
landsfundar um sjávarútvegsmál og
Björn Steinarsson, fiskifræðingur,
sem ijallar um ástand fiskistofna
við landið. Að framsöguræðum
loknum verða almennar umræður.
Fundarstjóri verður Guðjón A.
Kristjánsson, formaður Farmanna-
og fiskimannasambands íslands.
Umræður um nýtt álver:
Upplýsingamar nauð-
synlegar fyrir fólk
- segir Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra
„Ég vil ekki vera að deila við ráðherra í ríkissíjórninni í Qölmiðl-
um,“ sagði Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, aðspurður umúmsagn-
ir Svavars Gestssonar, menntamálaráðherra, og Hjörleifs Guttorms-
sonar, þingmanns Alþýðubandalagsins, í Morgunblaðinu í gær um
nýtt álver.
„Ég held nú reyndar að sú grein-
argerð sem ég var að reyna að
gefa áhugasömu fólki á þeim land-
svæðum þar sem ákvarðanir um
ný orkuver og ný iðjuver geta skipt
miklu máli séu nauðsynlegar fyrir
fólk til þess að mynda sér skoðanir
á málinu. Um vilja almennings og
þings í þessum efnum held ég að
ég geti farið alveg jafn nærri og
þessir ágætu þingmenn. Ég mun
reyna að leggja fram tillögur í þing-
inu um stefnumótun í málinu í vet-
ur og þá kemur þetta allt saman í
ljós,“ sagði Jón ennfremur.
i