Morgunblaðið - 16.09.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989
33,
Hulda Sigurðardóttír
frá Króki - Minning
Fædd 12. nóvember 1915
Dáin 9. september 1989
I dag 16. september er borin til
grafar í Hafnarfjarðarkirkju amma
mín, Hulda Sigurðardóttir frá Króki
í Suðursveit. Hulda fæddist 12.
nóvember 1915 á Vagnstöðum í
Suðursveit. Foreldrar hennar voru
þau Sigurður Gíslason og Þorbjörg
Teitsdóttir. Hulda giftist Hermanni
Eyjólfssyni f. 11.1. 1916, og eign-
uðust þau fimm börn: Sigþór f.
15.6. 1938, Gísla Eymund f. 16.02.
1941, Gunnar Val f. 15.11. 1942,
Erlu Sigríði f. 8.9. 1945 og Guðna
Þór f. 7.4. 1954. Barnabörn þeirra
eru nú fjórtán talsins og barna-
barnabörn sautján.
Hulda ólst upp í Króki í Suður-
sveit ásamt fimm systkinum sínum,
þeim Benedikt, Sigríði, Ragnari,
Skafta (d. 25 ára) og dreng er lést
aðeins hálfs árs gamall. Hún vann
öll almenn sveitastörf heima fyrir
og á öðrum bæjum. Nítján ára að
aldri réðst hún til starfa til
Reykjavíkur. Þaðan lá leið hennar
að Svanastöðum í Mosfellsdal, þar
sem hún vann sem vinnukona í eitt
sumar. 1936 fór hún heim í Suður-
sveit á ný, og kynntist þá . afa
skömmu eftir það.
Þau hófu búskap í Suðursveit og
bjuggu þar fimm fyrstu árin, en
fluttust árið 1943 til Hafnar í
Hornafirði. Þar bjuggu þau á
Hlíðarenda, Hafnarbraut 45a, allt
til ársins 1981, er þau fluttust í
Miðtún 10. Þar hafaþau búið síðan.
Nú þegar gamla konan er horfin
á braut, koma upp margar góðar
minningar í hugann. Minningar um
konu sem hafði kærleika, fórnfýsi
og vinnusemi að leiðarljósi í lífi sínu.
Amma hafði yndi af því að fá til
sín gesti, og til henanr var alltaf
gott að koma. Hún var ein þeirra
manneskja sem vilja alltaf allt fyrir
aðra gera, og lét hún alltaf sína
hagsmuni víkja. Hennar hamingja
fólst í því að gera vel við aðra, og
alltaf hugsaði hún um að gera öðr-
um sem minnst ónæði — allt fram
á síðustu stundu. Hulda var gífur-
lega sterk í sínum veikindum og
kvartaði aldrei undan slíku heldur
dró jafnan úr því hversu veik hún
var. Sjón hennar hafði hrakað mjög
síðasta árið. Hún lét það ekki á sig
fá og hélt áfram að halda heimili
þeirra hjóna, og hélt því áfram með
miklum sóma allt fram á síðasta
dag. Ósérhlífni og dugnaður hennar
gerðu það að verkum að hún hélt
þessu áfram. Uppgjöf var ekki til
í huga hennar.
Enda þótt ættingjum hennar og
vinum hafi verið kunnugt um veik-
indi hennar, kom fréttin um skyndi-
lega versnandi heilsu hennar og
síðar dauða sem reiðarslag. Engan
hafði órað fyrir að hún myndi yfir-
gefa okkur svo snemma. En svona
er lífið, það kemur og það fer án
þess að við getum nokkuð að gert.
Við sem eftir sitjum í sorginni vitum
að Guð hefur veitt henni blessun
sína og veglegan sess í ríki sínu,
það átti húnsvo sannarlega skilið.
Þó hún amma mín sé nú dáin,
vitum við að minningin um hana
mun lifa með okkur um alla eilífð.
Afa mínum, ættmennum, afkom-
endum, tengdabörnum og vensla-
fólki votta ég mína dýpstu samúð
og bið Guð að styrkja þau í sinni
miklu sorg. Kvödd er mikilfengleg
kona. Blessuð sé minning hennar.
Hermann Þór Erlingsson
Síminn hringir snemma morg-
uns, og mér er sagt að hún Hulda
frænka sé dáin, að hún hafi veikst
skyndilega kvöldið áður, en því
miður hafi ekkert verið hægt að
gera henni til hjálpar.
Það koma fram í hugann ótal
minningar frá liðnum árum, þegar
við systkinin heimsóttum hana sem
börn og seinna ég og mín fjöl-
skylda, nú síðast í ágúst, og óraði
mig ekki fyrir því þá þegar við sát-
um og spjölluðum saman að þetta
yrðu okkar síðustu samverustundir.
Mig langar með þessum orðum
að þakka frænku minni og nöfnu,
fyrir allt sem hn hefur gert fyrir
mig og mína tjölskyldu á liðnum
árum. Að lokum sendi ég aðstand-
endum hennar mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Á hendur fel þú honum,
sem himna stýrir borg,
það allt, er átt’í vonum,
og allt, er veldur sorg.
Hann bylgjur getur bundið
og bugað storma her,
hann fótstig getur fundið,
sem fær sé handa þér.
Mín sál, því örugg sértu
og .set á Guð þitt traust.
Hann man þig, vís þess vertu,
og verndar efalaust.
Hann mun þig miskunn krýna.
Þú mæðist litla hríð.
Þér innan skamms mun skína
úr skýjum sólin blið.
Blessuð sé minning hennar.
Hulda
t
Hjartkær sonur minn,
BÆRING VAGN AÐALSTEINSSON,
er látinn.
Fyrir mína hönd, barna hans og systkina,
Svanhildur Maríasdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín og dóttir okkar,
MARGRÉT BJÖRGÓLFSDÓTTIR,
Sólvallagötu 45,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 19. september
kl. 13.30.
Jónas Sen,
Þóra Haligrímsson, Björgólfur Guðmundsson.
Innilegar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför frænku okkar,
MARGRÉTAR LÁRUSDÓTTUR,
Eskihlíð 33.
Fyrir hönd vandamanna.
Sigríður Jóhannsdóttir og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu, sem sendu Sambýli ein-
hverfra, Trönuhólum 1, Reykjavík gjafir í minningu
ÓLAFS JÓNSSONAR
frá Skála,
Aðallandi 6, Reykjavfk.
Fyrir hönd Sambýlisins,
Sigríður Lóa Jónsdóttir,
forstöðumaður.
Aldarminning:
Ágústa S. Steindórs-
dóttir, Hnífsdal
Þann 11. septembei' sl. hefði
amma mín, Agústa Sigurborg
Steindórsdóttir, átt einnar aldar
afmæli en hún lést í nóvember 1979,
rétt 90 ára.
Hún fæddist á Snæfjöllum á
Snæfjallaströnd 11. september
1889. Foreldrar hennar voru Sigur-
borg Márusdóttir og Steindór Gísla-
son. Ágústa amma var eina dóttir
þeirra hjóna en auk hennar áttu
þau fimm syni, af þeim komust
þrír til manns.
Ágústa varð ung að fara að vinna
með foreldrum sínum og þótti dugn-
aðarforkur til allra verka, vann
karlmannsverk sem önnur.
Ágústa giftist 20. desember 1924
Guðjóni Magnússyni frá Hóli í Bol-
ungarvík og bjuggu þau allan sinn
búskap í Hnífsdal, lengst af í litla
húsinu sínu við Strandgötu. Þeim
varð ekki barna auðið en ólu upp
tvö fósturbörn, þau Svanfríði
Kristínu Benediktsdóttur (foreldrar
hennar voru Jóna P. Sigurðardóttir
og Benedikt Ásgeirsson frá Galtar-
hrygg), og Kristinn Benediktsson
(foreldrar hans voru Kristín Jóns-
dóttir og Benedikt Rósi Steindórs-
son, bróðir Ágústu). Svanfríður
móður mína tóku þau hjón í fóstur
aðeins 20 mánaða gamla en Kristin
fárra vikna.
Hjólreiðakeppni
í Haftiarfirði
Hjólreiðakeppni JC HafharQarðar og Hjólreiðafélags Reykjavík-
ur fer fram á götum Hafnaríjarðar á morgun, sunnudaginn 17.
september. Keppnin hefst við Lækjarskóla klukkan 10 f.h. Keppt
verður í þremur flokkum, 1. keppnisflokki, 19 km. 2. almennum
flokki 14 ára og eldri, 10 km. 3. unglingaflokki, 13 ára og yngri,
5,5 km.
Hjólreiðamenn í keppnisflokki
munu keppa um Iðnaðarbanka-
skjöldinn, en sá skjöldur er farand-
gripur. Auk þess fá þrír efstu
menn í hveijum flokki verðlauna-
peninga.
Eftir keppnina munu keppendur
og þeir, sem hafa áhuga, á hjóla
hring í bænum og enda síðan við
Lækjarskóla þar sem verðlaunaaf-
hending mun fara fram.
JC Hafnarfjörður fer þess á leit
við ökumenn að þeir sýni keppend-
urn hina fyllstu tillitssemi.
Einnig skorum við á alla áhuga-
menn um hjólreiðar að koma og
hvetja keppendur til dáða.
(Frcltatilkynning)
Amma hafði þá atvinnu auk ann-
ars að vera pijónakona í Hnífsdal.
Og fórum við ömmubörnin og
langömmubörnin ekki varhluta af
því. Á jólum fengum við öll mjúka
pakka frá ömmu og afa með ein-
hverri flík en ömmu féll aldrei verk
úr hendi við hannyrðir.
Amma var skaprík kona og oft
gustaði af henni, vinnusöm var hún
og gerði miklar kröfur til sín sem
annarra.
Þann 29. september eru 90 ár
liðin frá fæðingu Guðjóns en hann
var 10 árum yngri en amma. Hann
stundaði sjómennsku um langan
aldur. Guðjón lést 17. desember
1973, 74 ára að aldri.
Mér er Ijúft að minnast þeirra
mætu hjóna sem tóku mér opnum
örmum er ég sem barn dvaldi hjá
þeim sumarlangt á ári hveiju. Frá
þeim tíma á ég margar góðar minn-
ingar.
I tilefni þess að nú eru liðin eitt
hundrað ár frá fæðingu Ágústu
Sigui'borgar mun fjölskylda hennar
og nánustu vinir hittast og minnast
þeirra merku hjóna.
Sigurboí'g Sveinbjörnsdóttir
+
Hugheilar þakkir færum við þeim fjölmörgu, er auðsýnt hafa okk-
ur samúð og hlýhug við fráfall dóttur okkar, systur, mágkonu og
frænku,
BRYNDÍSAR ÞÓRARINSDÓTTUR,
fóstru,
Rauðalæk 36.
Alda Andrésdóttir, Þórarinn Árnason,
Auður Þórarinsdóttir, Bjarni Jóhannesson,
Þórarinn Árni.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐLAUGAR GÍSLADÓTTUR,
Hraunbæ,
Álftaveri.
Sérstakar þakkirtil þeirra, sem aðstoðuðu í hana veikindum henn-
ar.
Þorbergur Bjarnason,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall dóttur
minnar, eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
HÖNNU E. G. PÁLSDÓTTUR,
Grettisgötu 96,
er lést 2. september sl.
Margret A. Pálmadóttir,
Gyða S. Halldórsdóttir,
Hanna E. Halldórsdóttir,
Páll E. Halldórsson,
Gunnar S. Halldórsson,
Einara Ingimundardóttir,
Halldór Þorgrímsson,
og barnabörn.
Hreinn M. Björnsson,
Sigurjón Bjarnason,
Bára M. Sigurgísladóttir,
Björg Baldursdóttir