Morgunblaðið - 16.09.1989, Blaðsíða 12
12
E* Þetta f»£3íi brj-t y
1N/ETUR.KLUÍBUR KAOS
5EM AUIRfRi/ ABlAlA M
AM'iE&r.sj!
\Ui/
/IV
|q6 ALLT FólKlÐ
i AÐ V»*M
.SNO--HMU«U«SM(r|
iMfcn CiNHST lllKA SEW NflWri
ST YÐ Uf
KAD.
heh v/kum sum\
||>A0 6« órtlÚUGT HVE/
iMlklA Hí^gAÉyiT . I
k'lp MlJ/U A T70TTUK1 ty íAk|
UÚ ERt&^tAlN«UíO(vl f
U^KAOTKWlSAÍWiOtA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989
Undirmál?
efitir Gísla Jónsson
í sjónvarpsviðtali á fimmtudags-
kvöld (14. september sl.) kom fram
prófessor Valdimar K. Jónsson
(stúd. MA 1954). Hann gegndi þar
hlutverki rektors Háskóla Islands í
forföllum. Pjallað var um væntan-
lega sjávarútvegsbraut við Háskól-
ann á Akureyri, og ummæli próf.
Valdimars voru á þá leið, að ég
met þau ófrægingu og hrakspá.
Hann vildi svo vera láta, að sjávar-
útvegsbrautin yrði alltof dýr og nám
þar „undirmálsnám“, ef ég hef
numið orð hans rétt. Þóttist hann
í þessu efni bera umhyggju fyrir
fjárhag landsins og velferð nem-
enda.
Nú ætla ég ekki að þreyta dæma-
reikning við Valdimar K. Jónsson
(doktor í verkfræði 1965) enda „bú-
inn að læra að reikna“, eins og
Bjarni rektor Reykjavíkurskóla
sagði á sínum tíma. En það þykist
ég muna úr stærðafræði, að niður-
stöður útreikninga fari mjög eftir
gefnum forsendum. Þá held ég það
séu alkunn sannindi og ekki frétt-
næmt, að kostnaður á hvern nem-
anda sé hærri í fámennum skóla
en fjölmennum, að öðru jöfnu.
Þegar Háskóli íslands var stofn-
aður 1911, geri ég ráð fyrir að ein-
hveijir talnaglöggir menn hafi talist
geta sýnt fram á að betur „borgaði
sig“ fyrir íslendinga að senda stúd-
enta í erlenda háskóla heldur en
standa í því stímabraki að stofna
eigin háskóla. Nú þekki ég engan
sem telji að stofnun Háskóla íslands
hafi verið röng ákvörðun 1911. Og
þar er nú Valdimar K. Jónsson próf-
essor.
Skólaárið 1911-12 var ekki fjöl-
menninu fyrir að fara í Háskóla
íslands. Þar voru 45 nemendur,
ekki helmingur þess sem nú er í
Háskólanum á Akureyri, hvað þá
er sjávarútvegsbrautin bætist við.
Tala stúdenta í Háskóla íslands var
óbreytt 1912-13.
Rétt er það hjá prófessor V.K.J.,
að stofnun og hald háskóla á Akur-
eyri er byggðamál. Ég leyfi mér að
taka upp eftir sjálfum mér á hátíðar-
stundu: „En fyrst við erum á annað
borð að halda upp á 125 ára af-
mæli kaupstaðarins, þá fer vel á
því, að í haust [1987] skuli draum-
urinn um háskóla hér á Akureyri
verða að veruleika. Ég veit að mönn-
um þykir hann enn smár í sniðum,
en mjór er mikils vísir. Þegar
Menntaskólinn á Akureyri braut-
skráði stúdenta í fyrstu lotu, voru
þeir fimm talsins.
Háskóli á Akureyri mun ekki
aðeins að vissu marki stöðva atgerv-
isflótta, hann mun líka laða að sér
nýtt atgervi og er þegar tekinn að
gera það. Ég leyfi mér að bjóða
velkomna þá sem þegar eru til þess
komnir eða rétt ókomnir að láta
háskólann nýja njóta reynslu sinnar
og menntunar. Þegar Akureyri
verður 150 ára, mun þeim þakkað
að maklegleikum sem röskvastir
Gísli Jónsson
„Háskóli á Akureyri
mun ekki aðeins að
vissu marki stöðva at-
gervisflótta, hann mun
líka laða að sér nýtt
atgervi og er þegar tek-
inn að gera það.“
voru til orða og athafna til þess að
draumurinn um háskóla á
Akureyri mætti verða að veruleika.
Þetta er stærsta byggðamál sem
nú er uppi í landinu."
Mér verður hugsað til baráttu-
sögu Menntaskólans á Akureyri,
þegar ég heyrði orð Valdimars K.
Jónssonar um væntanlegt undir-
málsnám norður þar. Stjórnendur
og kennendur Hins almenna mennt-
askóla í Reykjavík (MR) mæltu
gegn því að Gagnfræðaskólinn á
Akureyri, eins og hann hét þá,
fengi réttindi til að brautskrá stúd-
enta. Nám þeirra yrði, að þeirra
dómi, undirmálsnám og þeir undir-
málsnemendur, þótt þeir orðuðu það
öðruvísi í þá daga. Nú þekki ég
engan sem telji það hafa verið
rangt að stofna Menntaskólann á
Akureyri. Og þaðan vaf Valdimar
K. Jónsson stúdent með sóma 1954.
Og nú spyr ég prófessorinn hvort
reynslan hafi kennt honum að stúd-
entar frá MA hafi verið undirmáls-
menn að kunnáttu og námsárangri
í Háskóla íslands.
í sumar hélt Háskólinn á Akur-
eyri ráðstefnu um nokkrar greinar
vísinda, og komu þangað fyrirlesar-
ar víða að. Þótti dómbærum mönn-
um, meðal annarra prófessorum frá
Háskóla íslands, að ráðstefnan
hefði tekist vel. Hún þótti hafa ver-
ið af háum alþjóðlegum staðli og
borið vitni um metnað og getu í
senn. Því miður sá ég ekki Valdi-
mar K. Jónsson á þessari ráðstefnu.
Þegar ég svo heyri hann og hans
líka hafa uppi hrakspár og ófræg-
ingarorð um sjávarútvegsbraut Há-
skóla Akureyrar, þá trúi ég því
ekki, að það sé af óblandinni um-
hyggju fyrir fjárhag landsins og
námshag stúdenta. Fremur þykir
mér þar kenna skammsýndarlegrar
hagsmunagæslu fyrir eigin stofnun.
Það þykir mér illt.
Ég vil að báðir háskólarnir eigi
góð og bróðurieg samskipti, þótt
mikill sé munur aldurs og stærðar.
Höfimdur er cnnd. mag. frá
Háskófa íslands.
Betri framtíð!
efitir Jóhann Pétur
Sveinsson
Enn einu sinni hafa landsmenn
tekið höndum saman og brugðist
við kalli Sjálfsbjargar. Síðastliðin
vika og helgin sýndu okkur Sjálfs-
bjargarfólki að þjóðin öll styður við
bakið á okkur þegar að þörf kref-
ur. Þó að miklir og ákaflega nauð-
synlegir ijármunir hafi safnast í
landssöfnuninni kunnum við Sjálfs-
bjargarfélagar ekki síður að meta
þann almenna velvilja og stuðning
sem við urðum svo áþreifanlega vör
við í allri framkvæmd afmælisátaks
okkar. Hvar sem við komum og
hvar sem við leituðum liðsinnis voru
menn boðnir og búnir til að vinna
með okkur að framkvæmd átaks-
ins. Að ætla að telja upp alla þá
fjölmörgu sem þar lögðu hönd á
plóg yrði til þess að gefa yrði út
sérstakt aukablað sem eingöngu
fjallaði um það. Sérstakar þakkir
viljum við þó flytja Rás 2 og Ríkis-
sjónvarpinu sem voru með söfnun-
ardagskrána fyrir okkur, Bifhjóla-
samtökum íslenska lýðveldisins
hvers meðlimir létu sér það lynda
að „sniglast" áfram á undan hjóla-
stólaökumönnunum frá Akureyri til
Reykjavíkur, Sérleyfisbifreiðum
Keflavíkur sem lánuðu okkur stræt-
isvagn og ökumann í hjólastólaakst-
urinn, Þýsk-íslenska sem iánaði
okkur bíl, bílstjóra og ógrynni af
Varta-rafgeymum fyrir hjólastól-
ana, bílaleigunni Höldi á Akureyri
sem lánaði okkur bíi undir aðstoðar-
fólk, aðstoðarfólkinu okkar í hjóla-
stólaakstrinum sem stóð sig með
stakri prýði, gistiheimilinu Lónsá,
Húnavallaskóla, Krútt kökuhúsi,
Staðarskála, Sæbergi, veitingaskál-
anum Víðigerði, Hreðavatnsskála,
bændaskólanum Hvanneyri og
Westem fried sem allir veittu okkur
húsaskjól eða veitingar. Þá viljum
við einnig flytja sérstakar þakkir
til allra skemmtikraftanna sem
komu fram í útvarpi og sjónvarpi
okkur að kostnaðarlausu sem og
stjórnmálamannanna okkar sem
tóku á móti okkur á Lækjartorgi
og svöruðu í símana í sjónvarpssal
að ógleymdu fyrirtækinu Miðlun
sem lánaði okkur Gulu línuna sjálft
Jóhann Pétur Sveinsson
„Yið hjá Sjálfsbjörg-
kunnum landsmönnum
öllum hinar bestu þakk-
ir fyrir þær sérstaklega
góðu móttökur sem við
fengum við framkvæmd
afinælisátaksins og fyr-
ir þá gjafmildi sem þið
sýnduð í verki.“
söfnunarkvöldið og tók á móti fram-
lögum.
Vissulega gæti ég haldið svona
áfram lengi enn því þetta var í sann-
leika sagt átak þjóðarinnar, en að
endingu vil ég þó þakka sérstaklega
Sjálfsbjargarfélagsdeildunum um
allt land og þeim fjölmörgu sem
aðstoðuðu okkur við að dreifa söfn-
unarbaukum og sáu um aðra vinnu
við framkvæmd átaksins.
Við hjá Sjálfsbjörg kunnum
landsmönnum öllum hinar bestu
þakkir fyrir þær sérstaklega góðu
móttökur sem við fengum við fram-
kvæmd afmælisátaksins og fyrir
þá gjafmildi sem þið sýnduð í
verki. Við eigum okkur þann draum
að sú vakning sem við fundum fyr-
ir meðal þjóðarinnar við fram-
kvæmd átaksins megi verða upp-
hafið að markvissum breytingum í
samfélagi okkar, breytingum sem
geri öllum þegnum þjóðfélagsins
mögulegt að njóta sín, breytingum
sem tryggi jafnrétti allra þegna
þjóðfélagsins. Þá getum við með
sanni sagt að „betri framtíð hafi
byijað í dag“.
Höfundur er formaður
Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra.
Félagarnir Guðlaugur Bergman Guðlaugsson og Einar Þór Gústafs-
son stóðu fyrir hlutaveltu til ágóða fyrir Reykjavíkurdeild Rauða
krossins. Þeir færðu honum ágóðann sem varð rúmlega 8.000 krónur.
Hjartavernd fékk um daginn rúmlega 2.800 kr. að gjöf. Var það
ágóði af hlutaveltu, sem þessar ungu dömur héldu til styrktar félag-
inu. Stúlkurnar heita: Berglind Heiða Árnadóttir og Unnur Helga
Jónsdóttir.