Morgunblaðið - 16.09.1989, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989
MIKIÐ Á DÖFINNI
í SKÁKHEIMINUM
__________Skák______________
Margeir Pétursson
SKÁKVIÐBURÐUM Qölgar
stöðugt og það er heilmikið á
döfinni bæði innanlands og
erlendis. Skákþing íslands er
nýhafið og í byijun nóvember
flytja Taflfélag Reykjavíkur og
Skáksamband í íslands í nýtt
og glæsilegt húsnæði við Faxa-
fen í Reykjavík. Af erlendum
vettvangi ber hvað hæst að
undanúrslit áskorendaeinvígj-
anna fara fram í næsta mánuði
og undirbúningur næstu
heimsbikarkeppni er kominn
vel á veg. í marz á næsta ári
er næsti stórviðburður í skák
hér á landi fyrirhugaður og
verður hann með nokkuð
óvenjulegu sniði.
Þá munu fjögur tíu manna lið
frá Sovétríkjunum, Bandaríkjun-
um, Englandi og Norðurlöndun-
um sameinuðum tefla innbyrðis
og heitir keppnin VISA-IBM
mótið, eftir aðalstyrktaraðilun-
um. Þegar því er lokið mun hér
fara fram opið alþjóðlegt mót,
sem væntanlega verður afar
sterkt. Að þessu loknu hefur
Skákfélag Akureyrar í hyggju
að haida alþjóðlegt mót, væntan-
lega með þátttöku sterkustu
skákmanna íslands og vaidra
erlendra gesta á svipaðan hátt
og félagið gerði í fyrra.
Skákþing íslands
Keppni í landsliðsflokki hófst
í Útsýnarhúsinu í Mjódd í Breið-
holti á þriðjudaginn. Jón L. Árna-
son er eini stórmeistarinn á með-
al þátttakenda, en auk hans tefla
alþjóðlegu meistaramir Karl Þor-
steins, Hannes Hlífar Stefánsson
og Þröstur Þórhallsson. Aðrir
keppendur úr Taflfélagi
Reykjavíkur eru þeir Sigurður
Daði Sigfússon, Tómas Björns-
son og Þröstur Árnason. Onnur
félög eiga fimm fulltrúa, sem er
óvenju mikið, þeir eru Guðmund-
ur Gíslason, ísafirði, Björgvin
Jónsson úr Njarðvík, Ágúst
Karlsson, Hafnarfirði og Jón
Garðar Viðarsson og Tómas Her-
mannsson, báðit' í Skákfélagi
Akureyrar.
Staðan eftir tvær umferðir á
mótinu er þessi: 1-2. Jón L. og
Karl 2 v. 3-4. Björgvin og Tómas
Björnsson Vk v. 5-8. Þröstur Þór-
hallsson, Þröstur Árnason, Jón
Garðar og Guðmundur Gíslason
1 v. 9-10. Hannes og Sigurður
Daði /n. 11-12. Tómas Her-
mannsson og Ágúst 0 v.
Hannes tapaði óvænt fyrir
Tómasi Bjömssyni í fyrstu um-
ferð og Þröstur Þórhallsson lék
gróflega af sér gegn Karli Þor-
steins í annarri umferðinni. Það
má því búast við því að Karl
muni veita Jóni hvað harðasta
keppni, en fleiri gætu blandað
sér í baráttuna. Björgvin Jónsson
kom mjög á óvart með glæsileg-
um árangri á helgarmótinu á
Flateyri um daginn og í fyrstu
umferðinni vann hann laglegan
sigur:
Hvítt: Björgvin Jónsson
Svart: Jón Garðar Viðarsson
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5 2. Rf3— d6 3. d4 -
cxd4 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3 —
Rc6 6. Bc4 - Db6 7. Rb3 - e6
8. 0-0 - Be7 9. Bg5 - Re5 10.
Be2 - 0-0 11. Khl - a6 12.
a4 - Dc7 13. Rd2 - Bd7 14.
f4 - Rg6 15. f5 - Re5 16. Del
- b5! 17. Dg3 - Kh8 18. axb5
- axb5 19. Hacl — b4 20. Rb5
- Db6?!
Byijun svarts hefur verið
ágætlega heppnuð, hann hefur
náð mótspili með minnihlutaárás
á drottningarvængnum. í fram-
haldinu hyggst hann fylgja þessu
eftir með því að þvinga fram
peðsvinning, en það gefur hvíti
færi á óvæntri og skemmtilegri
sókn. Hér var t.d. nokkuð traust
framhald að leika 20. — Bxb5
21. Bxb5 - Rh5 22. Dh4 -
Bxg5 23. Dxg5 — Rf6.
21. Be3 - Db7 22. Rd4 - Rxe4?
23. Rxe4 - Dxe4 24. Hf4 - Db7
25. f6! - Bx06
Eftir 25. — gxf6 26. Hh4 hef-
ur hvítur einnig mjög hættulega
sókn, því 26. — Hg8? er auðvitað
svarað með 27. Hxh7+!
26. Hxf6! - gxf6 27. Dh4 -
Hg8 28. Dxf6+ - Hg7 29. Bf3
— Rxf3
Hér veitti 29. — Bc6 meiri
mótspyrnu.
Jón L. Árnason og Karl Þorsteinsson eru efstir eftir tvær um-
ferðir á Skákþingi íslands með tvo vinninga hvor um sig.
30. Bh6! - Hag8 31. gxf3 -
Bc6 32. Rxc6 - Dxc6 33.
Bxg7+ og svartur gafst upp.
TR mætir Portisch og
Polgarsystrum!
Einhvern tímann fyrir jól mun
lið Taflfélags Reykjavíkur leggja
leið sína til Búdapest i Ungveijal-
andi og mæta þar MTK Buda-
pest í átta liða úrslitum Evrópu-
keppni skákfélaga. Það eru að-
eins mjög öflugar sveitir eftir í
keppninni og á fyrsta borði i
ungverska liðinu teflir fremsti
skákmaður Ungveija, Lajos Port-
isch. Á öðru og þriðja borði tefla
síðan þær systur Szusza og Jud-
it Polgar, en liðið er að öðru leyti
skipað stórmeisturum og alþjóð-
legum meisturum.
Landslið íslands í skák mun
væntanlega tefla i hinni svo-
nefndu áttalandakeppni sem
fram fer í Álaborg í Danmörku
um miðjan október. í henni taka
þátt hin Norðurlöndin, þ á m.
Færeyingar, auk V-Þjóðvetja og
Pólveija.
Stórmótið í Tilburg
hefst í dag
í dag hefst í Tilburg i Hol-
landi hið árlega stórmót og er
Jóhann Hjartarson á meðal þátt-
takendanna átta, sem tefla tvö-
falda umferð. Hinir eru sjálfur
Gary Kasparov, heimsmeistari,
Viktor Korchnoi, Simen Agde-
stein, Gyula Sax, Ljubomir
Ljubojevic, hinn ungi og stigahái
Sovétmaður Vasily Ivanchuk og
heimamaðurinn Jeroen Piket. I
nóvember mun Jóhann síðan tefla
á öðru öflugu móti í Belgrad í
Júgóslavíu.
Um mánaðamótin fer fram
aukakeppni um sæti á milli-
svæðamóti á milli Bent Larsens,
undirritaðs og Finnans Jouni
Yijölá. Keppni verður háð í
Holstebro, þar sem Larsen er
fæddur og uppalinn. Áður en
þessi keppni hefst mun ég taka
þátt í móti í San Bernardino í
Sviss, þar sem taka þátt tíu aðr-
ir stórmeistarar, þ á m. Vlastimil
Hort og Búlgarinn Kiril Georgiev.
jWtááur
á morsuu
ÁRBÆJAR- og Grafarvogssókn:
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl.
11 árdegis. Ferming og altaris-
ganga. Organleikari Jón Mýrdal.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Lárus Hall-
dórsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sóknarpresti. Altar-
isganga. Organisti Daníel Jónas-
son. Kaffi á könnunni eftir
messu. Ath. breyttan messu-
tíma. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Sr. Pálmi Matt-
híasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn Hunger Friðriksson. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Sr. Birgir Ásgeirsson sóknar-
prestur í Mosfellsprestakalli
messar. Kirkjukór Lágafellssókn-
ar syngur. Organisti Guðmundur
Ómar Óskarsson. Sérstök báts-
ferð verður með kirkjugesti kl.
13.30. Staðarhaldari.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa
kl. 14. Sr. Kristinn Ágúst Frið-
finnsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti Kjartan Ólafs-
son. Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
FELLA- og HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Sóknar-
prestar.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 11. Altaris-
ganga. Biblíulestur aldraðra
þriðjudag 19. sept. kl. 14, sam-
ræður og kaffi. Bænastund
UFMH laugardag kl. 10.
HALLGRÍMSKIRKJA: Sunnudag
17. sept. Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Þriðjudag 19.
sept. fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 14. Orgelleikari Viol-
eta Smid. Cecil Haraldsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Flutt verður Messe Modale eftir
Jeahan Alain, messa í kirkjutón-
tegund, SigríðurGröndal sópran,
Jóhanna V. Þórhallsdóttir alt,
Sigrún Birgisdóttir flauta og
strengjakvartett úr kammersveit
Háteigskirkju flytja. Kór Háteigs-
kirkju annast messusöng. Sr.
Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir
og fyrirbænir eru í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 18.
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Guðspjall dagsins:
Lúk. 14.:
Jesús læknar
á hvfldardegi
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Fimm ára
vígsluafmæli Langholtskirkju.
Guðsþjónusta kl. 14. Altaris-
ganga. Organisti Jón Stefánsson.
Eftir guðsþjónustuna verður
kaffisala á vegum Kvenfélags
Langholtskirkju í safnaðarheimil-
inu. Allir eru boðnir hjartanlega
velkomnir. Sr. Þórhallur Heimis-
son.
LAUGARNESKIRKJA: Laugar-
dag 16. sept. Guðsþjónusta kl.
11 í Hátúni 10b, 9. hæð. Sunnu-
dag 17. sept. Guðsþjónusta í
Laugarneskirkju fyrir alla fjöl-
skylduna kl. 11. Kaffi á könnunni
í safnaðarheimilinu eftir guðs-
þjónustuna. Mánudag 18. sept.
Fundur á vegum Kristilegs félags
heilbrigðisstétta kl. 20.30 í safn-
aðarheimilinu. Þriðjudag 19.
sept. Opið hús á vegum Samtaka
um sorg og sorgarviðbrögð í
safnaðarheimilinu kl. 20-22.
Helgistund í kirkjunni kl. 22.
Fimmtudag 21. sept. Kyrrðar-
stund í hádeginu. Orgelleikur frá
kl. 12.00 altarisganga og fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl.
12.30 í safnaðarheimilinu. Sókn-
arprestur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar
Ólason. Miðvikudag: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 18.20.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Kynningarguðsþjónusta fyrir
fermingarbörn næsta árs og for-
eldra þeirra kl. 11. Léttursöngur
í umsjá Þorvaldar Halldórssonar
og félaga úr UFMH. Organisti
Sighvatur Jónasson. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Allir velkomnir. Samkoma verður
í kirkjunni fimmtudagskvöld 21.
september kl. 8.30. Léttur söng-
ur og fyrirbænir. Allir velkomnir.
KRISTSKIRKJA íLandakoti: Lág-
messa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Lágmessa kl. 14. Rúm-
helga daga er lágmessa kl. 18 á
laugardögum þá kl. 14. Á laugar-
dögum er enska messa kl. 20.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18.
KFUM & KFUK: Afmælissam-
koma í tilefni af 60 ára afmælis
SÍK á Amtmannsstíg 2b kl. 20.30.
Einsöngur: Guðrún Ellertsdóttir.
Ræðumaður Skúli Svavarsson
kristniboði.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filad-
elfía: í kvöld, laugardag, almenn
bænasamkoma kl. 20.30. Al-
menn guðsþjónusta sunnudag
kl. 20. umsjá æskufólks. Skírnar-
athöfn.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Útisamkoma á
Lækjartorgi kl. 16 ef veður leyfir.
Hjálpræðissamkoma kl. 20.30.
Flokksforingjarnir stjórna og tala.
NÝJA Postulakirkjan: Messa að
Háaleitisbr. 58 kl. 11.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messuferð til Viðeyjar. Farið
verður frá safnaðarheimilinu kl.
13. Kirkjukór Lágafellssóknar
syngur. Organisti Guðmundur
Ómar Óskarsson. Sr. Birgir Ás-
geirsson.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Almenn guðs-
þjónusta kl. 14. Kór Víðistaða-
sóknar syngur. Organisti Kristín
Jóhannesdóttir. Sr. Sigurður
Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Messa kl. 14.
Ath. breyttan messutíma. Sr.
Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta kl. 14. Vænst þátttöku
væntanlegra fermingarbarna og
foreldra þeirra. Organisti Smári
Ólason. Sr. Einar Eyjólfsson.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Jónas Þór-
ir. Sr. Þórsteinn Ragnarsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga
daga messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl. 8.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Umræðufundur um
safnaðarstarfið verður nk.
fimmtudagskvöld í Kirkjulundi og
hefst kl. 20.30. Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14. Sóknarprestur.
HEILSUHÆLI NLFÍ Hveragerði:
Messa kl. 11. Sr. Hörður Ás-
björnsson prédikar. Sr. Tómas
Guðmundsson.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 14.
Ath. breyttan messutíma. Messa
á dvalarheimilinu Höfða kl.
15.15. Mánudag fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 18.30. Beðið fyrir
sjúkum. Organisti Einar Örn Ein-
arsson. Sr. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Messa í
Borgarneskirkju kl. 11. Guðs-
þjónusta á dvalarheimili aldraðra
kl. 14. Sóknarprestur.
Ferming*:
Ferming verður í Árbæjarkirkju á
morgun, sunnudag kl. 11. Prest-
ur sr. Guðmundur Þorsteinsson.
Fermdar verða:
Eyrún Rós Árnadóttir,
Hraunbæ 102g.
Geirlaug Sunna Þormar,
FroStafold 50.
Sigríður Þormar,
Frostafold 50.