Morgunblaðið - 10.10.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTOBER 1989
19
deildar Borgarspítalans og Rann-
sóknarstöðvar Hjartaverndar var
gerð rannsókn á fitusýrusamsetn-
ingu blóðfitu meðal sjúklinga með
hjartakveisu og fyrri kransæða-
stíflu, sjúklinga með bráða krans-
æðastíflu og heilbrigðra.
Heilsufarsathugun á
öldruðu fólki
Heilsufarsathugun á úrtaki
Reykvíkinga 80 ára og eldri fór
fram á vegum öldrunarþjónustu-
nefndar og Hjartaverndar. Boðið
var til skoðunar 150 manna úrtaki
en alls voru skoðaðir 107, flestir á
Rannsóknarstöð Hjartaverndar, en
allmargir, sem ekki voru ferðafæí-
ir, voru skoðaðir í heimahúsum.
Þessa rannsókn önnuðust Ársæll
Jónsson, læknir, og Þórhannes Ax-
elsson, félagsfræðingur.
Rannsókn á skammvinnri
heilablóðþurrð
Dr. med. Gunnar Guðmundsson,
yfirlæknir, og John Benedikz, lækn-
ir við taugasjúkdómadeild Landspít-
alans, hafa í samstarfi við Rann-
sóknarstöð Hjartaverndar unnið að
könnun á vissum taugasjúkdómum,
einkum blóðrásartruflunum á heila,
þ. á m. svokallaðri „skammvinnri
heilablóðþurrð" en þetta sjúkdóms-
einkenni er talið vera tiltölulega
áreiðanlegur fyrirboði um alvarlegri
blóðrásartruflun svo sem heilablæð-
ingu eða blóðtappa í heilaæð. Er
því talið mikilvægt að finna þetta
einkenni í tíma, þannig að hægt sé
að koma við varnaraðgerðum.
Rannsókn á gigtarþætti
Blóðsýni hafa verið tekin út' þátt-
takendum í hóprannsókn Hjarta-
verndar frá upphafi til mælinga á
sk. gigtarþætti í blóði (rheumatoid
factor) í samvinnu við Gigtsjúk-
dómafélag íslenskra lækna (Jón
Þorsteinsson) og Rannsóknarstofu
Háskólans í sýklafræði (Arinbjörn
Kolbeinsson) og Karolinska Insti-
tutet (dr. Erik Allander).
Rannsókn á blóðhag o.fl.
í samvinnu við Rannsóknarstofu
Landspítalans (Jón Jóhannes Jóns-
son) var safnað blóðsýnum í sk.
Monica-rannsókn til að kanna blóð-
hag þátttakenda, járn og járnbindi-
getu í blóði og algengi sjúkdómsins
hemochromatisis.
Rannsókn á tannheilsu
í samvjnnu við tannlæknadeild
Háskóla íslands (Einar Ragnars-
son, lektor, Sigfús Þór Elíasson,
prófessor og Siguijón H. Ólafsson,
lektor) hefur verið unnið að könnun
á tannheilsu þátttakenda í hóprann-
sókn Hjartaverndar.
Samvinna við
krabbameinsskrá
í samvinnu við próf. Hrafn Tul-
inius, yfirlækni krabbameinsskrár,
hefur verið unnið að könnun nokk-
urra áhættuþátta þeirra þátttak-
enda í hóprannsókn Hjartaverndar
er greinst hafa með krabbamein.
Svo virðist sem sumir áhættuþættir
hjarta- og æðasjúkdóma og krabba-
meins geti verið sameiginlegir.
Þær rannsóknir sem hér hafa
verið taldar, ásamt hinni eiginlegu
hóprannsókn Hjartaverndar hafa
veitt mikijvægar upplýsingar um
heilsufar íslendinga. Upplýsingum
er stöðugt verið að koma á fram-
færi bæði meðal lækna og leikra.
Þannig hafa nú verið birtar um 170
vísindalegar greinar um niðurstöður
þessara rannsókna í erlendum og
innlendum læknaritum og niður-
stöður kynntar almenningi á marg-
víslegan hátt í ijölmiðlum og á fund-
um.
Árangur af þessu starfi öllu má
merkja á ýmsum sviðum. Allir
helstu áhættuþættir hjarta- og
æðasjúkdóma eru nú á undanhaldi,
blóðþrýstingur hefur lækkað, blóð-
fita hefur lækkað og reykingar
minnkað.
Dánartíðni vegna hjarta- og æða-
sjúkdóma virðist .ekki hafa aukist
sl. 10 ár gagnstætt því sem áður
var þegar tíðni þessara sjúkdóma
óx stöðugt ár frá ári.
Höfundur er yfirlæknir
Rannsóknarstöðvar
Hjartaverndar.
Kentruck
Vandaöir
iyftarar á
lægsta verðinu
&0-
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1 - REYKJAVÍK - SIMI 687222 -TELEFAX 687295
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!_____________x
Löng hrísgjrón með ristuðu
heilvheitiklíði, núðlumog
bragðgóðu grænmeti. Ljúf-
fengur fjölskylduréttur.
Fyrir 4 - suðutími 8 mín.
Heildsölubirgðir:
KARL K. KARLSSON.s C().
Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32
.
Ct-*'i'uólms-beyki& - er þa& ekki
‘legt. Tilvaliö í staðinn fyrir gamla
.....im... Ekki taka samt ákvörðun strax
u getur valiö um 49 tegundir til viðbótar.
nasonhf
!
rík: í
ilar í búöinni okkar og í nýja parket
æklingnum frá KÁHRS. Velkomin.
ARMUIA 8, 108 REYKJAVIK, SIMI 82111