Morgunblaðið - 12.10.1989, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÍMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1989
Björn Þórhallsson gefur ekki kost sér
til formennsku 1 LIV:
Kona væntanlega
næsti formaður
BJORN Þórhallsson, formaður Landssambands íslenskra verslunar-
manna, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til formennsku í LÍV á
þingi þess sem haldið verður um hclgina. Björn hefur setið í stjórn
landssambandsins frá stofnun þess
1972 eða í tæp átján ár.
,,Það er sjálfsagt mál til komið að
breyta til og ekki nema eðlilegt að
það sé gert,“ sagði Björn í samtali
við Mogunblaðið. Hann sagðist að-
spurður ekki ætla að hætta afskipt-
um af verkalýðsmálum, en það yrði
að ráðast með hvaða hætti það yrði.
Björn sagði að kjaramálin yrðu
eins og fyrri daginn stærsta mál
þingsins. Þáyrðudög LÍV til endur-
skoðunar, Asmundur Stefánsson,
forseti Alþýðusambands Islands héldi
Torfi Jónsson
Torfi Jónsson
í Galleríi Borg
árið 1957 og verið formaður Irá
framsögu um stöðu verkalýðshreyf-
ingarinnar og framtíð, Guðmundur
H. Garðarsson, hagfræðingur, myndi
fjalla um lífeyrismál, sem væru mik-
ið hagsmunamál, Þráinn Hallgríms-
son, skrifstofustjóri ASÍ, myndi fjalla
um fræðslumál og hugsanlega yrði
einnig kynning á Evrópubandalaginu
og því sem við blasti í tengslum við
það.
„Eg reikna nú varla með því að
við ætlum að leggja heildarefnhags-
stefnu fyrir þjóðina, eins og mér
skilst að annað samband ætli að
gera sem fundar á svipuðum tíma.
Menn verða að hafa verkaskiptingu
í þessu,“ sagði Bjöm. Hann sagðist
ekki eiga von á öðru en þingið færi
fram í friði og spekt. Það hefði oft-
ast nær verið venjan. Menn hefðu
reynt að halda sig við málefni og
ekki verið mikið á auglýsingaþeys-
ingi.
Fullgildir félagar í aðildarfélögum
LÍV eru 14.500 og reikna má með
að félagar alls séu á sextánda þús-
und. 113 fulltrúar eiga rétt til setu
á þinginu. Talsverður meirihluti í
félögunum eru konur, enda er rætt
um að næsti formaður sambandsins
verði kona. Björn sagði að margar
mjög hæfar konur væri að finna inn-
an vébanda landsambandsins og
hann tryði ekki öðru en hægt væri
að finna meðal þeirra góðan foringja.
Morgunblaðið/Sverrir
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands, Jóhann Ólafsson, formaður Verslunar-
ráðs íslands, Guðjón Oddsson, formaður Samstarfsráðs verslunarinnar, Páll Bragason, varaformaður
Félags islenskra stórkaupmanna, Magnús E. Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka Islands
og Arni Reynisson, framkvæmdasfjóri Félags íslenskra stórkaupmanna.
Samstarfsráð verslunarinnar:
Virðisaukaskattur verði ekki
notaður til aukinnar skattheimtu
SAMSTARFSRÁÐ verslunarinnar hefúr sent alþingismönnum bréf þar
sem þeir eru hvattir til þess að standa vörð um að tilkoma virðisauka-
skatts í stað söluskatts, sem fyrirhuguð er um næstkomandi áramót,
verði ekki notuð til þess að auka enn meira skattheimtu á landsmenn
og fyrirtæki og þar með hækkun vöruverðs. Aðild að Samstarfsráði
verslunarinnar eiga Félag íslenskra stórkaupmanna, Kaupmannasam-
tök íslands og Verslunarráð íslands.
í bréfinu segir að samstarfsráðið ráðherra setur, og að uppgjörstíma-
skori á fjármálaráðherra og alþingis-
menn að tryggja að virðisaukaskatt-
urinn verði í einu þrepi. Það verði
ekki hærra en 22%, eins og upphaf-
lega hafi verið gert ráð fyrir, og
undantekningar frá því verði helst
engar. Ákvæði laga um greiðslufrest
skattsins í tolli verði virk frá fyrsta
degi með reglugerð sem fjármála-
bil skattsins verði fjögur á ári í stað
sex. Þá verði tryggt að skattskylda
verði miðuð við greiðsluaðferð en
ekki reikningsaðferð, með sérstöku
tilliti til afborgunarviðskipta, og að
sett verði reglugerð um endur-
greiðsiu skattsins til erlendra ferða-
manna.
Á blaðamannafundi sem Sam-
starfsráð verslunarinnar hélt til að
kynna efni bréfsins var vakin at-
hygli á því, að í lögum um virðis-
aukaskatt væri heimild til ráðherra
að ákveða greiðslufrest skattsins við
vöruinnflutning. Að sögn Páls
Bragasonar, varaformanns Kaup-
mannasamtaka íslands, hefur verið
áætlað að ef innflutningsverslunin
þyrfti að staðgreiða virðisaukaskatt
við innflutning, þá gæti það þýtt
2-4% hækkun á innflutningsverðlagi
vegna fjármagnskostnaðar, miðað
við 22% virðisaukaskatt og meðal-
talsbirgðahald.
TORFI Jónsson opnar sýningu á
verkum sínum í Galleríi Borg,
Pósthússtræti 9, fímmtudaginn
12. október, klukkan 17.
Torfi Jónsson er fæddur á Borg
í Stokkseyrarhreppi 1935. Hann
stundaði nám í Handíða- og mynd-
listaskólanum á kvöldnámskeiðum,
síðan í listaháskólanum í Hamborg
1956-1961.
Torfi hefur haldið nokkrar einka-
sýningar m.a. á Loftinu 1976, Nor-
ræna húsinu 1985 og í Svíþjóð
1988. Einnig hefur hann tekið þátt
í samsýningum. Á sýningu Torfa
eru nú vatnslitamyndir frá Vest-
fjörðum, málaðar sl. sumar.
Við opnunina flytja Ingveldur
Hjaltested og Jónína Gísladóttir lög
eftir Sigvalda Kaldalóns og íslensk
þjóðlög.
Sýningin er opin virka daga frá
klukkan 10-18 og frá klukkan
14-18 um helgar. Henni lýkur
þriðjudaginn 24. októþer.
Dagur fatlaðra á föstudaginn:
Hundruð mamia á biðlistum
vegna húsnæðisvandamála
DAGUR fatlaðra á íslandi verður haldinn föstudaginn 13. október.
Þá verður farin ganga frá Hlemmi niður á Austurvöll undir kjörorð-
inu Lífsgæði og á Austurvelli verður haldinn útifúndur. I frétt frá
Landssamtökunum þroskahjálp og Öryrkjabandalagi Islands, sem
standa fyrir göngunni og fundinum, er meginósk fatlaðra að þessu
sinni að sambýlum þeirra verði fjölgað. Samkvæmt upplýsingum svæð-
isstjórna fatlaðra búa 108 einstaklingar við óviðunandi aðstæður í
húsnæðismálum og umönnun og um 250 manns eru á biðlista hjá
Öryrkjabandalaginu vegna húsnæðisvanda auk Qölmargra hjá sveitar-
stjórnum víða um land.
Alþýðusamband íslands, Banda- lag háskólamenntaðra manna í þjón-
lag starfsmanna ríkis og bæja, ustu ríkisins taka þátt í göngu dags-
Bandalag kennarafélaga og Banda- ins og útifundinum.
Kvikmyndin Magnús tilnefnd til evrópskra verðlauna:
Yiðurkenning fyrir íslenska
kvikmyndagerðarmenn
- segir Þráinn Bertelsson leikstjóri
„ÉG átti ekki von á þessu. í mestu bjartsýni lét ég mig dreyma
um eina tilnefningu, en það hvarflaði ekki að mér að þær yrðu
tvær,“ sagði Þráinn Bertelsson leikstjóri. Kvikmynd hans, Magnús,
hefúr verið tilnefiid til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem besta
kvikmynd ársins, auk þess sem handrit Þráins að myndinni var
einnig tilnefht.
Þráinn kvaðst líta svo á að í til-
nefningunum fælist viðurkenning
fyrir alla þá, sem störfuðu við kvik-
myndagerð á íslandi og vonandi
hvetti þetta þá til dáða. „Þessar
tilnefningar gjörbreyta líka mögu-
leikum mínum á að koma mynd-
inni á framfæri erlendis, því nú
vita allir, sem á annað borð fylgj-
ast með málum í kvikmyndaheim-
inum, af því að Magnús er til,“
sagði hann. „Ef myndin kemst eitt-
hvað áfram í samkeppninni þá
vekur það athygli á því sem við
íslendingar erum að fást við, en
hingað til hafa íslenskar kvik-
myndir ekki átt upp á pallborðið
hjá útlendingum."
Þráinn kvaðst ekki gera sér
nokkrar hugmyndir um í hvaða
sæti myndin lenti við verðlaunaaf-
hendinguna, sem fram fer í París
25. nóvember. „Tilnefningarnar
eru meira en ég lét mig dreyma
um,“ sagði hann. „Hins vegar held
ég að aðeins 5 myndir séu tilnefnd-
ar, svo árangurinn verður alltaf
betri en í þeim evrópskum sam-
keppnum öðrum, sem við höfum
tekið þátt í, því þar höfum við allt-
af verið i 16. sæti.“
Þráinn kvaðst ekki vita hversu
Þráinn Bertelsson.
margir hefðu séð Magnús, en hann
hefði miðað við að myndin stæði
undir sér ef 30 þúsund áhorfendur
berðu hana augum. Því takmarki
teldi hann náð.
Gangan hefst kl. 16 á Hlemmi
og verður gengið um Laugaveg,
Bankastræti, Austurstræti og Póst-
hússtræti á Austurvöll. Göngustjóri
verður Emil Bóasson, en tvær lúðra-
sveitir leika í göngunni, Lúðrasveit
verkalýðsins og Hornaflokkur Kópa-
vogs. Á Austurvelli verður haldinn
útifundur. Fundarstjóri verður Sig-
mundur Guðbjarnaspn, háskólarekt-
or, en ávörp flytja: Ásdís Skúladótt-
ir, sem flytur ávarp dagsins, Ásta
B. Þorsteinsdóttir, formaður Þroska-
hjálpar, Arnþór Helgason, formaður
Óryrkjabandalagsins, og Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB, sem tal-
ar fyrir hönd iaunþegasamtakanna.
Formenn stjórnmálaflokkanna
verða á útifundinum og verður þeim
afhent ávarp dagsins. I lok fundarins
verður borin upp ályktun, sem verð-
ur afhent forsætisráðherra. í henni
verður farið fram á að ríkisvaldið
geri fjögurra ára áætlun um hvernig
leysa megi bráðasta vanda mikið
fatlaðs fólks með kaupum á vern-
duðu húsnæði og rekstri þess. Einn-
ig er því beint til ríkisstjórnarinnar
að hún fylgist með högum fjölfatl-
aðra barna, sem þurfa framtíðar-
heimili.
Að kvöldi föstudagsins hefst svo
sameiginleg ráðstefna Öryrkja-
bandalags Islands og Landssamtak-
anna þroskahjálpar, sem verður
fram haldið á laugardaginn, en á
sunnudaginn verða landsfundir sam-
takanna.
8 landa keppni í skák:
ísland sendir sína
sterkustu skákmenn
SUNNUDAGINN 14. október, hefst í Álaborg í Danmörku 8 landa
keppni í skák. Þetta er landsliðskeppni 6 manna sveita. 5. sæti er skip-
að unglingameistara og 6. sæti kvennameistara. íslenska liðið er skip-
að okkar sterkustu skákmönnum ef frá er talinn íslandsmeistarinn,
Karl Þorsteinsson, sem átti ekki heimangengt að þessu sinni.
Liðið er þannig skipað: 1. Jóhann
Hjartarson, 2. Margeir Pétursson,
3. Helgi Ólafsson, 4. Jón L. Árna-
son, 5. Hannes Hlífar Stefánsson
(unglingaborð), 6. Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir' (kvennaborð). _
í frétt frá Skáksambandi Islands
segir m.a:
„Keppni þessi er í framhaldi 6
landa keppninnar sem íslendingar
tóku þátt í á 8. áratugnum með mi-
sjöfnum árangri. Árið 1983, eftir að
keppnin hafði legið niðri um nokkurt
skeið, var hún endurvakin og Pólveij-
um og Færeyingum bætt við. Keppn-
in 1983 fór fram í Osló og þar sigr-
uðu Pólveijar en íslendingar urðu í
3. sæti eftir að hafa leitt keppnina
lengst af. í tvö næstu skipti var ís-
land ekki með en sendir nú mjög
sterka sveit til keppni. Vonir standa
til að þessi sveit verði í baráttu um
efstu sæti en mótstaðan verður þó
harðvítug."