Morgunblaðið - 12.10.1989, Blaðsíða 50
50 MORUUNBl.ADH) IÞROI I /RkíMMVUIíAGPR: 12. OKTÓBER 1989
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Valsmenn í vandræðum
ÍSLANDSMEISTARAR Vals
áttu í mestu vandræðum með
lið ÍBV f fyrsta leik liðanna í
íslandsmótinu íhandknattleik.
Valsmenn sigruðu þó 29:24
eftir mjög góðan endasprett
en greinilegt er að liðið þarf
að laga margt fyrir næstu leiki
sína. Lið ÍBV er mun betra en
í fyrra og á án efa eftir að gera
það gott í vetur.
að voru Eyjamenn sem réðu
ferðinni framan af. Vörn þeirra
var sterk og sóknarleikurinn agað-
ur. Valsmenn virtust hinsvegar
taugaóstyrkir en
Brynjar Harðarson
hélt þeim á floti, og
gerði 8 af 13 mörk-
um liðsins í fyrri
hálfleik. Valsmenn náðu svo að
rétta hlut sinn undir lok fyrri hálf-
leiksogíleikhléivarjafnt, 13:13.
Logi B.
Eiðsson
skrifar
ÚRSLIT
» Valur-ÍBV
29 : 24
Iþróttahús Vals, íslandsmótið í handknatt-
leik, 1. deild, miðvikudaginn 11. október
1989.
Gangur leiksins: 1:2, 2:6, 6:9, 8:11, 10:11,
18:13, 14:13, 14:16, 15:17, 22:18, 24:21,
28:22, 29:24.
Mörk Vals: Brynjar Harðarson 13/3, Finn-
ur Jóhannsson 5, Jakob Sigurðsson 4, Júlíus
Gunnarsson 4, Theodór Guðfinnsson 2, Jón
Kristjánsson 1.
Varin skot: Páll Guðnason 10/1, Einar
Þorvarðarson 5.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk IBV: Sigurður Gunnarsson 7, Guð-
mundur Albertsson 4, Hilmar Sigurgíslason
3, Óskar F. Brynjarsson 3, Björgvin Rúnars-
son 3, Þorsteinn Viktorsson 3, Guðfinnur
Kristmannsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 14.
Utan vallar: 10,
Dómarar: Guðmundur Stefánsson og Guð-
mundur Lárusson. Voru mjög mistækir.
Áhorfendur: T50.
Stjarnan—KA
23 : 14
íþróttahúsið Garðabæ, íslandsmótið í hand-
knattleik, 1. deild, 11. október 1989.
Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 4:4, 8:4, 8:6,
9:6,11:9,16:9,16:11,21:11,22:13,23:14.
Mörk Stjömunnar: Sigurður Bjamason
9/1, Skúli Gunnsteinsson 5, Einar Einars-
son 3, Axel Bjömsson 3, Hafsteinn Bragson
2, Gylfi Birgisson 1.
Varin skot: Brynjar Kvaran 14/2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk KA: Guðmundur Guðmundsson 5,
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 3/3, Karl
Karlsson 2, Pétur Bjarnason 2, Jóhannes
Bjarnason 1, Erlingur Kristjánsson 1/1.
Varin skot: Axel Stefánsson 17/1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Áhorfendur: 188.
Dómarar: Hákon Sigyrjónsson og Guðjón
Sigurðsson. Höfðu góð tök á leiknum.
Víkingur—KR
21 : 22
Laugardalshöll, íslandsmótið í handknatt-
leik, 1. deild, miðvikudaginn 11. október
T989.
Gangur leiksins: 3:0, 3:1, 7:1, 7:2, 13:2,
13:3, 15:5, 15:6, 15:11,17:12,18:13, 18:16,
21:18, 21:22.
Mörk Víkings: Árni Friðleifsson 6/3, Ingi-
mundur Helgason 4/2, Guðmundur Guö-
mundsson 3, Birgir Sigurðsson 3, Siggeir
Magnússon 3, Bjarki Sigurðsson 2.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 17/3. Utan
vallar: 6 mínútur.
Mörk KR: Konráð Olvason 9/3, Páll Ólafs-
son (eldri) 4, Stefán Kristjánsson 4/2, Sig-
urður Sveinsson 3, Þorsteinn Guðjónsson 2.
Varin skot: Gísli Felix Bjamason 13, Leif-
ur Dagfinnsson 2.
Utan vallar: 8 mínútur.
Áhorfendur: Um 200.
Dómarar: Rögnvaldur Erlingsson og Stef-
án Arnaldsson. Komust þokkalega frá leikn-
Sigurður Bjarnason, Sljörnumii. Brynjar
Harðarson Val. Hrafn Margeirsson,
Víkingi. Gísli Felix Bjarnason og Konráð
Olavsson, KR.
Brynjar Kvaran, Stjörnunni. Axel Stefáns-
son, KA. Finnur Jóhannsson, Valdimar
Grímsson og Páll Guðnason, Val. Sigurður
Gunnarsson, Sigmar Þröstur Óskarsson og
Hilmar Sigurgíslason, ÍBV. Árni Friðleifs-
son og Ingimundar Helgason, Víkingi.
Páll Ólafsson (eldri), Þorsteinn Guðjónsson
og Sigurður Sveinsson, KR.
KORFUBOLTI
Guðni Guðnason.
Þetta eru gífur-
leg vonbrigði
- segir Guðni, sem verðurfrá keppni ítvo mánuði
Þetta eru gífurleg vonbrigði og ég er orðinn svolítið þreyttur á
þessu,“ sagði Guðni Guðnason, leikmaður KR í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik, en hann handarbrotnaði í leik KR gegn Haukum í fyrra-
kvöld og verður sex vikur í gifsi.
„Þetta er svosem ekkett nýtt því ég hef handarbrotnað fjórum sinn-
um á nokkrum árum,“ sagði Guðni. Hann sagðist ekki hafa áhyggjúr
af gengi KR, þó að hann yrði ekki með. „Þetta hefur gengið vel og ég
hef ekki trú á öðru en það komi maður í manns stað,“ sagði Guðni.
Landsliðið æf ir í Austurríki
Islenska landsliðið í alpagreinum
hélt utan til æfinga um síðustu
helgi. Liðið verður í mánuð við
æfingar í Hinterdux í Austurríki.
Liðið skipa þau Valdimar Valdi-
marsson, Akureyri, Arnór Gunnars-
son, ísafirði, Kristinn Björnsson,
Ólafsfirði, , Haukur Arnórsson,
Reykjavík og Þórdís Hjörleifsdóttir,
Reykjavík.
Kajsa Nyberg, landsliðsþjálfari,
er með liðið og henni til aðstoðar
er Guðmundur Jakobsson. Örnólfur
Valdimarsson, Reykjavík og Ásta
Halldórsdóttir frá Isafirði áttu einn-
ig að fara utan, en gátu það ekki
vegna náms. Ásta er í Menntaskó-
lanum á Isafirði og Örnólfur í Há-
skóla Islands.
Valdimar Valdimarsson og Krist-
inn Björnsson hafa báðir verið í
Júgóslavíu í hálfan mánuð þar sem
þeir hafa æft með júgóslavneska
unglingalandsliðinu.
Eyjamenn bytjuðu mjög vel í
síðari hálfleik og náðu aftur tveggja
marka forskoti. Þá fyrst tóku Vals-
menn við sér, kíttuðu í vörnina og
náðu nokkrum ágætum hraðaupp-
hlaupum. Þannig gerðu þeir sjö
mörk gegn einu og breyttu stöð-
unni í 22:18. Það var svo Páll
Guðnason sem gerði út um vonir
Eyjamanna er hann varði vítakast
Sigurðar Gunnarssonar, er staðan
var 24:21, og í kjölfarið fylgdu tvö
mörk Vais.
Valsmenn léku ágætlega á köfl-
um en greinilegt er að liðið er langt
frá sínu besta. Brynjar Harðarson
fór á kostum og gerði mörg glæsi-
leg mörk. Finnur Jóhannsson var
öruggur á línunni og stóð sig vel í
vörninni og Jakob Sigurðsson átti
góða spretti.
„Sóknarleikurinn er ágætur en
við verðum að líta á vörnina," sagði
Jakob Sigurðsson, fyrirliði Vals eft-
ir leikinn. „Annars vantar okkur
bara samæfingu og tilfinningu fyrir
leiknum," sagði Jakob.
Sigurður Gunnarsson og Sigmar
Þröstur Óskarsson voru bestir í liði
ÍBV. Þá átti Hilmar Sigurgíslason
góðan leik. Lið ÍBV er mun sterk-
ara en í fyrra og varnarleikur liðs-
ins var lengst af mjög góður.
„Við misstum stjórn á leiknum
og létum ýmislegt fara í taugarnar
á okkur,“ sagði Hilmar Sigurgísla-
son, þjálfari IBV. „Ég vil ekki kenna
dómurunum um tapið en þeir
breyttu gangi leiksins á slæmum
tíma og voru ósammála í dómum
sínum,“ sagði Hilmar.
Morgunblaðið/Sverrir
Hér er hann kominn framhjá Guðmundi Albertssyni
Brynjar Harðarson átti mjög góðan leik í gær og gerði 13 mörk.
og gerir eitt marka §inna.
SKIÐI
Ragnar Margeirsson.
ínémR
FOLX
■ RAGNAR Margeirsson, lands-
liðsmaður úr Fram, hefur leikið tvo
leiki með Strum Graz í aust-
urríksu 1. deildarkeppninni. Hann
fékk mjög góða dóma þegar félagið
gerði jafntefli, 0:0, við meistara
Tirol sl. laugardag og þá lagði
hann upp tvö mörk þegar Strum
Graz vann, 4:0, nágranaliðið Graz-
er AK á þriðjudagskvöld.
M „Ég er kann vel við mig hjá
félaginu," sagði Ragnar Margeirs-
son, sem verður hjá Strum Graz
fram í desember. „Það er ekki enn
ákveðið hvot ég leiki með liðinu í
úrslitakeppninni eftir áramót."
Strum Graz er í fimmta sæti, en
átta efstu liðin komast í úrsiita-
keppnina.
H ÞORVALDUR Örlygsson stóð
sig ágætlega í vináttuleik með
Nottingham Forest gegn Mans-
field á mánudaginn. Hann lagði
upp þijú mörk. Mörk Forest skor-
uðu Lee Chapman 2, Gary Cros-
by, Gary Parker og John Sherid-
an. Þorvaldur er nú á heimleið.
Hann bíður eftir hvað forráðamenn
Forest gera í máli hans.
ÚRSLIT
Blak
Reykjavíkurmótið
KarL-u-
ÍS-Þróttur.......................3:1
(15:9, 15:16, 15:3 og 15:11)
■ÍS varð þar með Reykjavíkurmeistari.
Konur
Víkingur—ÍS......................3:2
(17:15, 12:15, 13:15, 15:11, 15:11)
■Þróttur Roykjavíkurmeistari.
Handknattleikur
2. deild karla:
Fram—Breiðablik...................20:19
Haukar—ÍBK........................27:21
JUDO / HM
■ w
Bjarni i
fjórðungs
M ■■ m
Bjarni Friðriksson komst í
fjórðungsúrslil á heims--
meistaramótinu í júdó í Belgrad
í Júgóslaviu í gærkvöldi.
Bjarni tapaði fyrir Sovét-
manninum Koba Kurtanidze í
fjórðungsúrlitum og komst þvi
ekki áfram í undanúrslit. Sovét-
maðurinn hélt hinsvegar áfram
og sigraði Odvogin Baljuynnan
frá Mongólíu í úrslitum.