Morgunblaðið - 09.11.1989, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGÚR 9 NÖVÉMBER 1989
Fj órir háhyrning-
ar bíða útflutnings
FJORIR háhyrningar eru í Sædýrasafhinu og bíða þess að verða flutt-
ir úr landi. Að sögn forráðamanna safhsins hafa þeir þegar verið
seldir. í frétt breska dagblaðsins Daily Express, er því haldið fram
að þeir hafi verið seldir fyrir 600.000S eða tæplega 60 milljónir
króna, hver. Ráðamenn Sædýrasafhsins neita þeirri upphæð.
Magnús Skarphéðinsson, tals-
maður Grænfriðunga, segist hafa
fengið upplýsingar að utan um að
tveir háhyrninganna hafi verið seld-
ir dótturfyrirtæki Sea World í Hong
Kong eða Japan og að þeir verði
sendir þangað á næstu dögum.
Lögum samkvæmt megi sædýra-
söfn í Bandaríkjunum, Kanada og
flestum Evrópuríkjum ekki kaupa
lifandi háhyrninga sem eru veiddir
í sjó en leyfilegt er að selja þá milli
safna. Þess vegna fari háhyming-
arnir fyrst til Hong Kong.
Þá segir Magnús að líklega fari
tveir háhyrninganna á safn í Frakk-
landi, samkvæmt þeim upplýsing-
um sem hann hafi fengið. „Ég vissi
til að deild í Sea Shepherd ætlaði
að koma hingað til lands og reyna
að koma í veg fyrir veiðarnar en
þeir voru of seinir,“ sagði Magnús.
VEÐUR
í frétturr) breska blaðsins Daily
Express kemur fram að blaðamanni
hafi verið neitað að skoða dýrin í
Sædýrasafninu og að þeirra sé
gætt allan sólarhringinn. Forráða-
menn safnsins segja að engum
blaðamönnum og allra síst erlend-
um væri hleypt að safninu. Reynsl-
an hefði sýnt að erlendu blaða-
mönnunum væri ekki treystandi, í
skrifum þeirra væru tómir útúr-
snúningar. Þeir vildu ekki staðfesta
að söluverð háhyrninganna væri
rétt, sögðu aðeins: „Betur að satt
væri,“ þegar þeir heyrðu uþphæð-
ina. Þetta verð væri ijarstæða og
dæmigert fyrir meðferð erlendra
blaðmanna á staðreyndum. Jafn-
framt fullyrtu þeir að háhyrning-
arnir færu ekki til Hong Kong en
vildu ekki segja hvert eða hvenær
þeir færu.
Japanska skipið Kayo Maro
Síldarfrysting:
Japanskt skip kom-
ið til Norðflarðar
Neskaupstað.
JAPANSKA skipið Kayo Maro, sem flytur frysta síld héðan til Jap-
ans, kom til Norðíjarðar á fostudag. Það liggur úti á firðinum en
búist er við að það leggist að bryggju í dag eða einhvern næstu
daga. A Neskaupstað er búið að frysta 20 tonn af síld á Japansmark-
að og um 400 tonn á Evrópumarkað. Hins vegar höfðu 900-1.000
tonn verið fryst á Japansmarkað 2. nóvember í fyrra.
Evrópukeppnin:
TR með forystu
TAFLFÉLAG Reykjavíkur hlaut
3 vinninga en NTK Búdapest 2
í fyrri umferð i Evrópukeppni
skákfélaga, átta liða úrslitum,
sem tefld var í Búdapest í Ung-
verjalandi í gær.
Úrslit urðu þau að Jóhann Hjart-
arson tapaði fyrir Portisch, Jón L.
Árnason vann Zsuzsa Polgar, Mar-
geir Pétursson gerði jafntefli við
Judit Polgar, Helgi Ólafsson vann
Barbero, Hannes Hlífar Stefánsson
gerði jafntefli við Forintos og Karl
Þorsteins gerði jafntefli við Zsofia
Polgar.
Seinni umferðin verður tefld í
dag.
Hér var 800 tonnum af frystri
síld skipað út í japanskt skip 2.
VEÐURHORFURIDAG, 9. NOVEMBER.
YFIRLIT í GÆR: Norðaustanstinningskaldi og snjókoma nyrst á Vest-
fjörðum en austan- eða suðaustangola annars staðar á landinu. Skúr-
ir voru við suður- og austurströndina en skýjað og þurrt annars stað-
ar. Hiti víöast 1 til 4 stig á láglendi.
SPÁ: Suðaustan- og síöar austan- eða norðaustanátt, stinningskaldi
eða allhvass með slyddu eða snjókomu norðan til á Vestfjörðum en
gola eða kaldi annars staðar. Skúrir sunnanlands og austan í kvöld
en léttir heldur til suðvestanlands á morgun. Skýjað með köflum, dálít-
il slydduél á annesjum en annars þurrt að kalla á Vestur- og Norður-
landi. Hiti víðast 0-5 stig en þó vægt frost í innsveitum noröanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðaustanátt með
éljum norðan- og austanlands en björtu veðri syöra. Hiti um og
yfir frostmarki sunnanlands á föstudag en tveggja til fjögurra stiga
frost norðanlands. Á laugardag verður frost um allt land.
TÁKN:
Heiðskírt
{jfc Léttskýjað
Zjik. Hál,skýiað
'wm%m
Á:
, Skýjað
Alskýjað
x Nórðan, 4 vindstig:
*' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* # # # Snjókoma
* * *
■JQ Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tfma hiti veöur Akureyri 0 skýjað Reykjavik 3 skýjað
Bergen 9 skýjað
Helsinki 5 súld
Kaupmannah. 8 þokumóða
Narssarssuaq +13 heiðskirt
Nuuk +10 léttskýjað
Osló vantar
Stokkhólmur 4 skýjað
Þórshöfn 7 léttskýjað
Algarve 21 léttskýjað
Amsterdam 10 rigning
Barcelona 19 léttskýjað
Berlín 6 þokumóða
Chicago 7 alskýjað
Feneyjar 14 hálfskýjað
Frankfurt 8 alskýjað
Glasgow 6 þokumóða
Hamborg 8 skýjað
Las Palmas 22 úrkoma
London 13 skýjað
Los Angeles 12 þokumóða
Lúxemborg 5 skýjað
Madríd 18 mistur
Malaga 23 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Montreal 3 alskýjað
New York 13 þokumóða
Orlando 17 skýjað
París 13 alskýjað
Róm 14 léttskýjað
Vfn 8 skýjað
Washington 11 þoka
Winnipeg 0 snjókoma
nóvember í fyrra en 19. og 20. sama
mánaðar var 500 tonnum til við-
bótar skipað út í Kayo Maro.
Hugsanlegt er að síld, sem fryst
hefur verið um borð í skipum í
haust, verði skipað um borð í Kayo
Maro. Óvíst er hvort skipið muni
bíða eftir að meira verði fryst af
síld á Japansmarkað en í haust
hefur lítið veiðst af stórri síld, sem
hentar til frystingar á þann markað.
Ágúst
Húsnæðislán:
Stúdentar
afhenda und-
irskriftir
AÐ FORGÖNGU Stúdenta-
ráðs hefúr undanfarna daga
verið safnað undirskriftum
gegn þeirri grein Qárlaga-
frumvarpsins, sem gerir ráð
fyrir að 60 milljónir af fé
Happdrættis Háskóla íslands
renni til Þjóðarbókhlöðunnar.
í gær voru komnir inn listar
með nöfnum 2.200 stúdenta og
fleiri listar voru væntanlegir.
Stúdentar ætla að afhenda Guð-
rúnu Helgadóttur forseta Sam-
einaðs þings listana í Alþingis-
húsinu í dag kl. 13.30.
Seðlabanki mælir
með vaxtahækkun
SEÐLABANKI Islands mælir eindregið með að vextir af lánum Bygg-
ingarsjóðs ríkisins verði hækkaðir um einn hundraðshluta að lág-
marki, að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Hús-
næðismálastjórn felldi fyrir skömmu tillögu um slíka vaxtahækkun
en samþykkti þess í stað tillögu um óbreytta vexti.
Jóhanna segir að i áliti Seðla-
bankans komi fram að vextir þyrftu
að hækka af öilum lánum Bygging-
arsjóðs, bæði nýjum og eldri lánum.
Hins vegar segir hún stefnu ríkis-
stjórnarinnar vera að hækka ekki
vexti af eldri lánum. Ríkisstjórnin
hefur vaxtaákvörðunina nú til með-
ferðar og kveðst Jóhanna hafa gert
stjórninni grein fyrir því, að um tvo
kosti sé að ræða. Ánnars vegar
hækkun vaxta, hins vegar auknar
fjárveitingar til Byggingarsjóðs.
Verði hvorug þessara leiða farin
stefni Byggingarsjóðurinn í gjald-
þrot á skömmum tíma.
Vextir af almennum húsnæðis-
lánum eru nú 3,5% og hækka í 4,5%
ef farið verður eftir tillögu Seðla-
bankans. Vaxtamunur á teknum
lánum Byggingarsjóðs og veittum
lánum er um þrír hundraðshlutar,
en verður tveir ef vextirnir hækka.
Skoðanakönnun Gallups:
Ahorfendum Ríkis-
sjónvarpsins flölg-
að frá fyrri könnun
SAMKVÆMT niðurstöðum skoðanakönnunar Gallup á íslandi á sjón-
varpsáhorfun 2.-4. nóvember síðastliðinn, hefur þeim íjölgað frá
fyrri skoðanakönnun sem horfa á Ríkissjónvarpið. Þar sem útsending-
ar beggja stöðvanna sjást horfðu 59—72% einhverntíma á Ríkissjón-
varpið, en 44—48% á stöð 2. Samkvæmt skoðanakönnun I september
horfðu 55—59% á Ríkissjónvarpið og 41—47% á Stöð 2.
Könnunin var unnin fyrir ís-
Ienska sjónvarpsfélagið, Ríkisút-
varpið sjónvarp og Samband
íslenskra auglýsingastofa. I úrtak-
inu voru 850 manns á aldrinum
15—70 ára, og af þeim svöruðu
599, eða 70% úrtaksins. Af að-
spurðum sögðust 93% hafa eitthvað
horft á sjónvarp þessa þrjá daga,
86% sögðust ná útsendingum
beggja stöðva og 58% sögðu að
myndlykill væri á heimilinu.
Flestir horfðu á fréttir Ríkissjón-
varpsins, en 36—50% þátttakenda
á samanburðarsvæðinu horfðu á
þær þá_ daga sem könnunin var
unnin. Á fréttir Stöðvar 2 horfðu
20—29% þátttakenda.
í könnuninni voru lagðar nokkrar
aukaspurningar fyrir þátttakendur.
Þar kom meðal annars í ljós að af
þeim sem svöruðu horfðu 72% á
þáttinn Á tali hjá Hemma Gunn í
Ríkissjónvarpinu, og 26% horfðu á
spurningakeppni Ómars Ragnars-
sonar, Bæirnir bítast, á Stöð 2.