Morgunblaðið - 09.11.1989, Side 9
MORGIÍNBLAÐIÐ FIMMTUDÁGUR 9. NÓVÉMBER 1989
9
Aðeins
tveir dagar
eftir á gamla
staðnum
Kæru viðskiptavinir!
Um helgina flytjum við starfsemi okkar í
nýtt húsnæði í Kringlunni 5. Á mánudaginn
opnum við svo að nýju þannig að flutning-
arnir koma hvergi niður á þjónustu við ykkur.
Kringlan 5 er um 50 metrum sunnan við Iíús
verslunarinnar sem hefur verið okkar aðalað-
seturfrá upphafi. Við höldum síðan upp á
flutningana þriðjudaginn 14. nóvember og
bjóðum ykkur í opið hús í Kringlunni 5-
Á jarðhæð Kringlunnar 5 verðum við með
verðbréfamiðlun og sölu Einingabréfa,
Skammtímabréfa og Lífeyrisbréfa. Þeir við-
skiptavinir sem þess óska geta nýtt sér hrað-
þjónustu víð sölu og innlausn Eininga- og
Skammtímabréfa. Þar verður viðskiptavinum
einnig boðið upp á fjármálaráðgjöf sem með-
al annars felst í gerð greiðsluáætlana.
Á 6. hæð Kringlunnar 5 verður Fjárvarsla,
Verðbréfavarsla, Kröfukaup, Varsla verðbréfa-
sjóða og Innheimtudeild Kaupþings hf.
Afgreiðsla Kaupþings hf. í Kringlunni 5
verður opin daglega frá kl. 9:00-17:00.
Verið ávallt velkomin til okkar í Kringluna 5.
Kær kveðja,
Starfsfólk Kaupþings hf.
SÖLUGENGI VERÐBRÉFA PANN 9. NÓV. 1989
EININGABRÉF 1 4.391,-
EININGABRÉF 2 2.423,-
EININGABRÉF 3 2.882,-
LÍFEYRISBRÉF 2.207,-
SKAMMTlMABRÉF 1.504,-
KAUPÞING HF
Húsi vérslunarinnar, sími 686988
Guðsþjónustan
íVolowoska
Magnús Þorkell Bernharðsson segir frá mið-
stjórnarfundi Alkirkjuráðsins í Moskvu í
Víðförla, tímariti Þjóðkirkjunnar, m.a. fyrstu
guðsþjónustu í klausturkirkjunni í Volowoska
síðan 1917, en þá var hafin herför gegn kristni
í Sovétríkjunum. Staksteinarstaldra við þessa
grein í dag.
Fólkaðbaki
forsíðu-
fréttum
Magnús Þorkell Bem-
harðsson segir m.a. í
grein sinni að hann hefii
lestur Morgunbluðsins á
baksíðu vegna þess að
hún tíundi fréttir úr
heimaranni, er varði Is-
lendinga á líðandi stund.
Porsíðan mæti afgangi
vegna þess að hún spegli
fjarlæga atburði í öðmm
heimshomum.
Þar kom að Magnús
Þorkell sat miðstjómar-
þing Alkirkjuráðsms í
Moskvu þar sem fólk irá
öllum heimshomum
skiptist á skoðunum og
upplýsingum um heima-
slóðir, hagi og aðstæður
fólks. Orðrétt segir:
„Þama opnuðust því
augu mín fyrir því að til
væri fólk, eins og ég og
þú, sem em að lenda í
þessum hrakningum sem
daglega koma fyrir sjón-
ir manns á forsíðu Morg-
unblaðsins. Að það var
virkilega fólk að baki
þessum fréttum. Það ætti
að vera hlutverk okkar
sem búum við forréttindi
hér á Islandi að vera
meira á varðbergi gagn-
vart því sem er að gerast
út í hinum mikla heimi
og láta í okkur heyra
þegar grundvallarmann-
réttindi em fótum troð-
in.“
Trúaráhugi
ótrúlega
mikill
Magnús Þorkell segir
í grein sinni:
„Það sem mönnum
þótti merkilegast við
þennan fúnd var sú stað-
reynd að hami var hald-
inn í Sovétrikjunum, í
boði rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar. Fyrir
nokkmm ámm hefði slíkt
verið óhugsandi. En
vegna „perestrojku" hef-
ur kirkjan í Sovétríkj-
unm komið æ meir upp
á yfirborðið siðustu árin.
Allt fiá 1917 hafði verið
bannað að iðka sína trú
í Sovétríkjunum. Kirkj-
um var lokað og breytt
í söfii og kristnir memi
urðu fyrir margs konar
ofsóknutn. En eftir að
Mikhail Gorbatsjov kom
til valda hefur kirkjunni
verið skilað ýmsum eign-
um sínum. Ríkisstjómin
lítur á kirkjuna sem sam-
starfemann í framkvæmd
„perestroiku" og til að
vinna bug á ýmsum fé-
lagslegum vandamálum í
Sovétríkjunum svo sem
ofdrykkju.
Ég átti þess kost að
vera viðstaddur guðs-
þjónustu í klausturkirkju
sem ríkisstjórnin hafði
nýlega afhent kirkjunni
til afnota. Þessi kirkja
var í Volowoska eða rétt
hjá þeim stað sem Rússar
stöðvuðu sókn Þjóðverja
í seinni heimsstyijöld-
inni. Þetta var fyrsta
guðsþjónustan þama
síðan 1917. Kór hafði
komið sérstaklega Irá
Moskvu til að syngja við
guðsþjónustuna og hef
ég aldrei séð eða heyrt
aðra eins aðdáun og gleði
hjá söfimðinum. Það er
ekki oft sem maður sér
fólk gráta af gleði í
kh-kju. Það eitt að vera
viðstaddur messu í Sov-
étrKjunum (sem em allt
að 4 klst. langar) er ólýs-
anleg tilfinning og
reynsla, trúarhiti fólksins
og áhugi þess slíkur að
orð ná ekki að lýsa hon-
um.“
Enginn matur
1 búðum
I greininni segir síðar:
„Það em ekki ýkjur
þegar sagt er að það fyr-
irfinnist enginn matur í
matvömbúðunum. Alls
staðar sást fólk standa í
biðröðum I von um að
eitthvað ætilegt væri við
endaim á röðinni.
Fólkið er þreytt á
ástandinu, enda hefúr
verið sagt að umbóta-
áætlun Gorbatsjovs hafi
ekki enn breytt miklu
hinum almenna borg-
arbúa til hagsbó.ta.
Þreyta og vonleysi ein-
kenndi fólkið og sást það
vel, t.d. á því hversu
garðar og hús vom illa
hirt, fólkið illa klætt og
óhreinlæti almennt..
Forréttindi
að vera
*
Islendingur
Enn segir Magnús
Þorkell:
„I minum hópi vom
einstaklingar frá Líban-
on, Filippseyjum, Barb-
ados, Austur-Þýzkalandi
og Zimbabwe. Skipzt var
á að tala um sitt eigið
land og lífsskilyrði þar.
Það var því rætt um
vandamál sem era sam-
fara borgarastyijöldum,
þegar almenn mannrétt-
indi em fótum troðin,
þegar fólk hefúr ekki
rétt til að iðka sína trú
eða tjá eigin skoðanir án
þess að eiga það á hættu
að vera varpað í fangelsi.
Þegar komið var að
mér að lýsa lífinu hér
hcima og eftir að hafa
hlýtt á við hvers konar
aðstæður þetta fólk þarf
að búa þá setti mig hljóð-
an. Það var hálf kynlegt
að þurfa að greina frá
því að þau helztu vanda-
mál manns hér heima em
hvort maður nái strætis-
vagninum í tæka tíð eða
hvemig eigi að redda
Visa-reikningnum ...
Bréf frá
Líbanon
Greinarhöfúndur segir
frá þvi að honum hafi
borizt bréf frá kristnum
Líbana, sem þingið sat.
„Hami bað mig um að
hugsa til sín þar sem
bardagamir í Beirút
höfðu versnað, húsið
hans hafði verið sprengt
í loft upp og að hann
byggi núna lijá ættingj-
um og kæmist varla út
fyrir hússins dyr... A
sama tíma sat ég á Is-
landi og það var helzt í
fréttum að mjólkurfræð-
ingar höfðu boðað verk-
fall“.
Új'ijti) Á(,/ho
valmeline
BARNASKOR
Jólaskórnir komnir.
Stærðir: 28-37. Svart lakk, hvítt leður.
Ennfremur: Kvenskór - karlmannaskór - stígvél.
Skóverslun Kópavogs,
Hamraborg 3, sími 41754.
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
$ Múlalundur
5
■=>
3
i
P/fltul/i ift
Laugavegi 59, 2. h., sími: 1 52 50
V^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
BRÉFA- S
BINDIN 1
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað. 5
^ Múlalundur