Morgunblaðið - 09.11.1989, Qupperneq 14
MORGÚNBLAÐIÐ FÍMMTUDÁGOR' 9. NÖVEMBER '1989
14^
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
UU RUTL AND
TMU ÞÉTTIEFNI
Á ÞÖK - VEGGI - GÓLF
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
hefjast bráðlega hjá
ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTUNIMI
(lýkur um miðjan desember).
Leiðbeinandi Jón Valur Jensson.
Innritun ísíma 27101 daglega.
Ættfræðiþjónustan
ERASURE - WILD!
Vinsælasti poppdúett Bretlands sendi
frá sér á dögunum sína fjórðu breiðskífu.
WILD! fór beint I fynta sæti
vinsaeldalistans breska og situr þar enn.
Melódískt og heillandi popp í anda
Depeche Mode og Yazoo...
BEISLI
HLJÓMPLÖTUR
S i M I 626029 SNORRABRAUT 29
( V I Ð LAUGAVEG)
iiiiikiiiiiiiakiiáááiá,
Kalja Ricciarelli í Há-
skólabíói á laugardag
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands utan áskriftar laug'ar-
daginn 11. nóvember næstkomandi kl. 17 í Háskólabíói, syngur
hin heimsþekkta óperusöngkona Katja Ricciarelli. Miðasala fer
fram í Gimli við Lækjargötu og fer hver að verða siðastur að fá
miða á tónleikana.
Á efnisskránni verða meðal ann-
ars aríur eftir Rossini, Bellini, Ciiea
og Catalani. Auk þess verður flutt
Sinfónía nr. 23 eftir Mozart og
Exultate jubilate, éinnig eftir Moz-
art, forleikurinn úr Luisa Miller
eftir Verdi og Stundadansinn eftir
Poncielli.
ítalska óperusöngkonan Katja
Ricciarelli fæddist í Rovigo á Norð-
ur Ítalíu, þar sem hún hóf tónlist-
arnám, en framhaldsnámi lauk hún
í Tónlistarháskólanum í Feneyjum.
Hún hefur í rúm 20 ár komið
fram í aðalsópranhlutverkum allra
helstu söngbókmenntanna í fjöl-
mörgum löndum s.s. flestum lönd-
um Evrópu, Bandaríkjunum, Japan,
Kína og Ástralíu. Hún hefur sungið
þar í hinum"frægustu óperuhúsum.
Katja Ricciarelli hefur auk þess
sungið og leikið í kvikmyndum,
• •
Orlagið gefiir út skáldsöguna
Draumur þinn rætist tvisvar
BÓKAÚTGÁFAN Örlagið gefiir
út skáldsöguna Draumur þinn
rætist tvisvar eftir Kjartan Árna-
son fyrir þessi jól. Fyrr á árinu
kom út ljóðabókin Gluggar hafs-
ins eftir Jóhann Hjálmarsson.
Örlagið er lítil bókaútgáfa, eins
og nafnið bendir til, og var hún
stofnuð fyrir þremur árum. Draum-
ur þinn rætist tvisvar er fimmta
bókin sem Örlagið gefur út, en áður
hafa komið út ljóðabókin Dagbók
Lasarusar og smásögusafnið Frost-
mark, báðar eftir Kjartan Árnason
og I skolti Levítans, ljóðaþýðingar
Jóhanns Hjálmarssonar. Kjartan Árnason
Katja Ricciarelli, sópransöng-
kona.
m.a. á móti Placido Domingo í kvik-
myndinni Óþelló. Hún hefur sungið
inn á fjölmargar hljómplötur og
geisladiska. M.a. söng hún verk úr
Tosca, Turandot og Carmen inn á
hljómplötur undir stjórn Herberts
von Karajan. Auk þess að starfa
með þessum mönnum hefur hún
m.a. unnið með Pavarotti og hljóm-
sveitarstjóranum Claudio Abbado,
sem tók við Fílharmóníusveit
Berlínar að Karajan frágengnum.
Katja Ricciarelli var væntanleg á
Listahátíð 1986 en gat ekki komið
þá vegna skyndilegra veikinda.
Hljómsveitarstjóri á tónleikunum
verður Petri Sakari, aðalhljómsveit-
arstjóri Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands. Hann hefur undanfarnar vik-
ur verið á tónleikaferðalagi um
Svíþjóð með Sænsku kammersveit-
inni, en hann hefur nokkrum sinn-
um stjórnað henni á tónleikaferð-
Um. (Fréttatilkynning)
Smásögur
eftir Jón Dan
BÓKAÚTGÁFAN Keilir hefúr
sent frá sér nýja bók> eftir Jón
Dan; Sögur af sonuni.
í bókinni eru tíu smásögur sem
fjalla um afstöðu sona til foreldris
eða um afstöðu foreldris til sonar.
Á bókarkápu stendur: „Jón Dan
segir sögur. Hann forðast að vera
ljóðrænn, áreitinn, skrýtinn eða
heimspekilegur, en sagan getur í
höndum hans orðið þjóðfélagslýsing,
skapgerðarrýni, krafning á mann-
legu eðli.
Sögurnar eru af margvísiegum
toga... Sögur sem fólk les, ekki
aðeins sér til ánægju, heldur einnig
til dýpri skilnings á mannfólkinu."
Bókin er 176 blaðsíður, unnin í
Prentsmiðjunni Eddu hf.
Jón Dan.
Sparaðu peninga
og fækkaðu umferðum
með Jotun málningu
frá Húsasmiðjunni
^ Jotun er norsk hágæðamálning sem
Húsasmiðjan selur mjög ódýrt. Jotun
málningin þekur afbragðsvel og þú
•£f færð grunninn og málninguna í ná-
kvæmlega sama lit.
Ef þú málar með Jotun þarf færri umferðir
(hvílíkur léttir) með minni tilkostnaði.
í Húsasmiðjunni hefur þú þína eigin Jotun
málningarverksmiðju. Við bjóðum upp á 1300
litaafbrigði í þremur gljástigum og blöndum máln-
inguna á staðnum á aðeins 2 mínútum. Hún er
tilbúin til notkunar því þú þarft ekki að hræra
hana upp eða setja herði út í.
Það er þægilegt að vinna með Jotun málningu.
Hún er mjög þykk og henni
fylgir lítill óþrifnaður. Þú getur
nánast málað í sparifötunum.
Málaðu með Jotun-
það mælir allt með því
HUSA
SMIOJAN
SKCrRJVOGI16 SÍMI 687700
1K