Morgunblaðið - 09.11.1989, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ' FIMMTUDAGUR 9. NOVEMBER 1989
KJOTER
OKKAR
SÉRGREIN
lambaframpartur
niðursagaður
350,-
KJÚKIMAR
569,-
Bayonnes-skinka
890,-
Beinlaus!
Svínateri
Svínabógar
495,-
KONFEKT 400 f>r
339,-
Bökunarvörur
i úrvafí
,........99,-
Sykur 2 kg.......149,-
Egg..............398,-
mveiti 2 kg........84,-
Kókosmjöl 250 gr ..46,-
Möndlur 100 gr.....67,
Douglas Wilder er áð öllum líkindum sigurvegari ríkisstjórakosninganna í
Virginíu og þar með fyrsti þeldökki ríkisstjóri Bandarikjanna sem kosinn er
til embættisins. A innfelldu myndinni má sjá nýjan borgarstjóra í New York,
David Dinkins.
Kosningar til borgar- og ríkisstjóra í Bandaríkjunum:
Þeldökkir frambjóð-
endur vinna mikla sierra
New York. Reuter. ^ ^
New York. Reuter.
SVARTIR frambjóðendur unnu mikla sigra í ríkisstjóra- og borgar-
stjórakosningum í Bandaríkjunum á þriðjudag. David Dinkins sigraði
í borgarstjórakosningum í New York og sömu sögu er að segja frá
Seattle þar sem Norman Rice verður fyrsti þeldökki borgarsljóri í
sögu borgarinnar. Allt útlit er fyrir að Douglas Wilder verði fyrsti
svarti ríkisstjóri Bandaríkjanna sem kosinn er til starfans. Hann vann
keppinaut sinn í Virginíu með örlitlum mun og hefúr sá krafíst endur-
talningar.
í New York fékk demókratinn
David Dinkins 51% atkvæða gegn
repúblikananum Rudolph Giuliani
sem hlaut 48% atkvæða. Dinkins
naut stuðnings um það bil þriðjungs
hvítra kjósenda en hafði yfirgnæf-
andi fylgi hjá svertingjum og
spænskumælandi íbúum borgarinn-
ar. Þegar úrslitin voru ljós sagði
Dinkins að kosningadagurinn myndi
komast á spjöld sögu Bandaríkjanna
sem enn einn áfangi á frelsisbraut.
Dinkins þykir hafa höfðað til kjós-
enda með góðri og prúðmannlegri
FRICO rafm agnsh itablásarar eru
hljóðlátir smekklegir og handhægir
Frico rafmagnshitabiásarinn, TEMPERATOR 200,
fæst hjá Rönning. Þessi frábæri hitablásari er
léttur og meðfærilegur.
Hann er með hitastillingu, valrofa fyrir afl og loftmagn,
kröftugan blástur og yfirhitavörn.
TEMPERATOR 200 er sterkbyggður, mjög hljóðlátur
og með hiíöld úr ryðfríu stáli.
Hjá Rönning fást einnig fleiri gerðir af hitablásurum
sem henta nánast hvar sem er.
Frico TERMOVARM ofnar eru hannaðir til að þola
raka t.d. í skipum og bátum.
Hann er mjög fyrirferðarlítill en gefur góðan hita.
A ofninum er rofi af og á, hitastillir og yfirhitavörn.
Framhlið má fjarlægja með eiriu handtaki
til að auðvelda þrif.
Það er notalegt að sitja við ylinn frá Frico TERMOVARi
Veldu FRICO
Rofi af og á.
^ 00llim,»
Hitastillir.
Einfalt að fjarlægja
framhlið til að
auðvelda þrif.
JOHAN
RÖNínIING HF
Sundaborg 15-104 Reykjavík - sími (91) 84000
framkomu á meðan Guiliani, sem
áður var saksóknari, þykir mikill
harðnagli.
Þegar 99/100 atkvæða höfðu ver-
ið talin í Virginíu-ríki hafði demó-
kratinn Douglas Wilder 7.500 at-
kvæða forskot á keppinaut sinn.
Repúblikanar hafa krafist endurtaln-
ingar. Wilder hefur verið brautryðjT
andi í réttindabaráttu svartra í
Bandaríkjunum en það þykir merki-
legt að afi hans var leysingi. Árið
1969 varð Wilder t.d. fyrsti blökku-
maðurinn til að setjast á þing í Virg-
iníu frá dögum borgarastyijaldarinn-
ar. Urslitin era ekki síst merkileg í
ljósi þess að Virginía var áður vígi
kynþáttaaðskilnaðarsinna. Virginíu-
menn urðu fyrstir til að segja sig
úr lögum við alríkið. Einu sinni áður
í sögu Bandaríkjanna hefur blökku-
maður gegnt embætti ríkisstjóra.
Það var skömmu eftir borgarastyij-
öldina 1861-65 sem blökkumaður
varð ríkisstjóri í Louisiana í 43 daga
samkvæmt tilnefningu.
Tékkóslóvakía:
Ungverjaland:
Sovétmað-
ur og Búlg-
ari fá hæli
Búdapest. Reuter.
UNGVERSK stjórnvökl hafa
veitt Sovétmanni og Búlgara
pólitískt hæli. Er þetta í fyrsta
skipti sem eitt af Varsjárbanda-
lagsríkjunum skýtur skjólshúsi
yíír þegna annarra ríkja banda-
lagsins, að sögn vestrænna
diplómata.
„Eftir því sem ég veit best er
Ungverjaland eina Varsjárbanda-
lagsríkið sem hefur gert þetta,“
sagði háttsettur diplómat í viðtali
við Reuter, „Mér er ekki kunnugt
um önnur dæmi þessa.“
Flóttamannadeild innanríkis-
ráðuneytisins sagði að mennirnir
tveir væru hinir fyrstu sem veitt
hefði verið pólitískt hæli frá því að
Ungverjaland undirritiaði sáttmála
Sameinuðu þjóðanna um flótta-
menn og pólitískt hæli.
Ráðuneytismenn neituðu að
nafngreina mennina, en sögðu að
þeir væru báðir einhleypir, Sovét-
maðurinn 31 árs gamall, en Búlgar-
inn 21 árs.
„Búlgarinn tók afstöðu með tyrk-
neska minnihlutanum í Búlgaríu og
afleiðingarnar urðu þær að honum
var ekki vært í landinu,“ sagði ung-
verska fréttastofan MTI í gær.
Stjórnvöld í Ungveijalandi hafa
nú til athugunar 41 beiðni um
pólitískt hæli og eru nokkrar þeirra
frá tékkneskum borgurum.
Á undanförnum tveimur árum
hafa ungversk stjórnvöld veitt
24.000 rúmenskum flóttamönnum
landvistarleyfi og þar með brotið
tvíhliða samning við Rúmeníu, þar
sem Iofað var að snúa til baka
Rúmenum sem leituðu til Ungveija-
lands.
Harðlínuleiðtog-
ar orðnir uggandi
AFSOGN sljórnmálaráðsins og ríkissljórnarinnar í Austur-Þýska-
landi valda tékkneskuni harðlínuleiðtogum ugg og auka á einangrun
þeirra en forherða þá sennilega fremur en mýkja, að áliti vestrænna
sljórnarerindreka og andófsmanna í landinu. Atburðirnir í Austur-
Þýskalandi, Póllandi og Ungveijalandi virðast heldur ekki líklegir
til að koma strax miklu róti á tékkneskan almenning sem missti
móðinn er sovéskir skriðdrekar brutu á bak aftur umbótatilraun
Alexanders Dubceks 1968. Auk þess má nefna að matvælaframboð
er betra í Tékkóslóvakíu en í öðrum kommúnistaríkjum og lifskjör
yfírleitt með skárra móti.
„Þessir atburðir sýna tékknesku
leiðtogunum að endirinn er skammt
undan,“ sagði Anna Sabatova, sem
starfar í mannréttindasamtökunum
Charta 77. „En stjórnin fellur ekki
í næstu vjku. . . Leiðtogarnir eru
hræddir við þetta því að alltaf er
hætta á að sömu hugmyndir kvikni
hér. Sem stendur er þó ekkert sem
beinlínis bendir til þess.“ I lok októ-
ber tóku tíu þúsund manns þátt í
mótmælum gegn stjórnvöldum en
lögregla tvístraði þegar mannfjöld-
anum með mikilli hörku og fjölda-
fundir á borð þá í Austur-Þýska-
landi og Ungveijalandi hafa ekki
séð dagsins ljós. Áður en Erich
Honecker var velt úr sessi í Austur-
Þýskalandi vegna mótmælaöldunn-
ar og fjöldaflóttans frá landinu
höfðu stjórnvöld í Prag og Austur-
Berlín náið samstarf, ekki síst um
það að vísa á bug öllum umbóta-
kröfum og halda fast í ómengaðan
marxisma sem grundvöll stefnunn-
ar. Aukið efnahagssamstarf var
einnig á döfinni en nú er allt á
hverfanda hveli.
Opinber viðbrögð við atburðun-
um í Austur-Þýskalandi hafa verið
varkár en flokksmálgagnið Rude
Pravo skýrði frá afsögn austur-
þýsku stjórnarinnar á forsíðu. „Við
fylgjumst af athygli með þróuninni
í Þýska alþýðulýðveldinu," sagði
talsmaður utanríkisráðuneytisins
og bætti síðan við: „Ég geri ekki
ráð fyrir neinum breytingum hér.“
Stjórnandi rannsóknarstofnunar í
marx-lenínískum fræðum, Vladimir
Kunovjanek, lét í ljós áhyggjur
vegna hugmynda um sameiningu
. Þýskalands, sem margir Tékkar
óttast, og sagði ríkisstjórnina verða
að vera vel á verði þegar „hefndar-
stefna væri á uppleið" í Vestur-
Þýskalandi.
Heimildarmenn telja líklegt að
upplausnin í Austur-Þýskalandi
hvetji grasrótarhreyfingar til að
þrýsta-á yfirvöld um viðræður við
gagnrýnendur sína.