Morgunblaðið - 09.11.1989, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1989
25
Ráðstefna um viðreisn
Sameinuðu þjóðanna
Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Fulltrúar frá á annað hundrað bandarískum félöguni og félagasam-
tökum gangast fyrir ráðstefnu í þessari viku hér í borg til að ræða
°S leggja á ráðin um hvað gera skuli til viðreisnar Sameinuðu þjóðun-
um, sem enn einu sinni eru komnar í flárþröng.
Varasjóður alþjóðasamtakanna
er þurrausinn og segja má, að stofn-
unin sé komin á vonarvöl enn einu
sinni. Horfir til stórvandræða verði
ekkert að gert. Fjárskorturinn
stafar m.a. af því, að margar aðild-
arþjóðir hafa ekki greitt framlög
sín til stofunarinnar. Það sem hvað
harðast kemur niður á alþjóðasam-
tökunum er að Bandaríkjamenn
hafa ekki greitt það sem þeim ber
og skulda nú samtals nærri 700
milljónir dollara (um 43 milljarða
ísl. kr.). Það er vafalaust engin til-
viljun, að ráðstefnarLer haldin um
sama leyti, sem Bandaríkjaþing er
að ganga frá ríkisutgjöldum næsta
árs.
Meðal ræðumanna á ráðstefn-
unni verða margir kunnir forystu-
menn í alþjóðamálum einsog t.d.
Hans Blix, aðalforstjóri Alþjóða
kjarnorkustofnunarinnar, Mabub ul
Haq, sérstakur ráðgjafi forstjóra
Framfarasjóðs Sameinuðu þjóð-
anna, Thomas Pickering, fastafull-
trúi Bandaríkjanna hjá S.Þ. og
Brian Urquart, fyrverandi aðstoðar-
framkvæmdastjóri S.Þ., svo ein-
hveijir séu nefndir.
JOIAGJAFIR
STÓRKOSTLEG
VERKSMIÐJUÚTSALA
að Iðavöllum I4b Keflavík.
Sameinuðu þjóðirnar:
Friðargæslusveit-
ir til Mið-Ameríku
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að senda friðar-
gæslusveitir til Mið-Ameríku. Verður þetta í fyrsta skipti sem sveit-
ir á vegum samtakanna halda uppi eftirliti á landamærum ríkja í
þessum heimshluta.
Tillaga þessi var samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum á
þriðjudagskvöld en Bandaríkja-
menn höfðu tafið fyrir framgangi
málsins. í síðustu viku lýsti stjórn
sandinista í Nicaragua yfir því að
bundinn hefði verið endi á 19 mán-
aða vopnahlé í bardögum stjórnar-
hersins og contra-skæruliða, sem
notið hafa stuðnings Bandaríkja-
manna.
Gert er ráð fyrir að 625 manna
eftirlitssveit verði send til ríkja
Mið-Ameríku til að koma í veg
fyrir vopnuð átök og að fylgjast
með því að hópar skæruliða ráðist
ekki inn fyrir viðurkennd landa-
mæri. Þá er sveitunum ennfremur
ætlað að halda uppi eftirliti með
því að tilteknum sveitum svo sem
sveitum vinstri skæruliða í E1
Salvador og contra-skæruliðum í
Nicaragua berist ekki utanaðkom-
andi aðstoð. Javier Perez de Cuell-
ar, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, sagði í ávarpi sínu til
Oryggisráðsins að hann væri sann-
færður um að friðargæslusveitirn-
ar gætu gegnt mikilvægu pólitísku
hlutverki í þessum heimshluta.
Gert er ráð fyrir að um 30 her-
menn og óbreyttir borgarar haldi
til Mið-Ameríku innan' viku en allt
liðið á að hafa tekið til starfa inn-
an þriggja mánaða.
Swaziland:
Afþökkuðu
næturgreiða
í fangelsinu
Mbabane. Reuter.
ÞINGMENN í Mbabane í Swazi-
landi hafa afþakkað boð um gist-
ingu í fangelsi, en það úrræði
átti að losa þá undan erfiðleikum
við að kómast á milli heimilis og
vinnustaóar.
Forsætisráðherrann, Obed Dlam-
ini, sagði síðastliðinn mánudag í
svari sínu við ítrekuðum beiðnum
þingmanna um svefnpláss í ná-
grenni þinghússins, að þeim væri
velkomið að nátta sig í Matsapa-
fangelsinu, sem er í um fimm kíló-
metra ijarlægð.
Þingmenn brugðust reiðir við og
höfnuðu boðinu; sögðu að það væri
ekki viðeigandi að vakna upp eftir
næturgistingu í fangelsi og fara
síðan að setja lög í þinghúsinu.
PC
Byrjenda-
námskeið
Skemmtilegt og gagnlegt nám- — _i/l
skeið fyrir þá sem eru að byrja
að fást við tölvur.
Tími: 14., 16., 21. og 23. nóv. kl. 20-23.
BSRB, ASÍ og VR styðja félaga sína
til þátttöku á námskeiðunum.
Leiðbeinandi: Stefán Magnússon.
n TÖLVU FRÆÐSLAN
Borgartúni 28, sími 687590
Opið frá kl. 10 - 18 alla daga til 19. nóv.
Flug-Hótel, Hafnargötu 57, Keflavík verður með
kaffihlaðborð laugardag og sunnudag.
Einstakt tækifæri til að kaupa ódýrar jólagjafir
fyrir fjölskyldu og vini, heima og erlendis.
Allir viðskiptavinir útsölunnar fá afsláttarmiða
að glæsilegu kaffihlaðborði Flug-Hótels sem opið
verður laugardag og sunnudag.
Best er að aka fram hjá gamla afleggjaranum til
Keflavíkur í áttina að Flugstöð Leifs Eiríkssonar
þar til skilti vísar inn í Keflavík.
VERIÐ VELKOMIN.
qa ÍSLENSKUR
CU MARKAÐUR
Iðavöllum I4b, Keflavík. Sími 92-12790.
AUK/SIA k627-1