Morgunblaðið - 09.11.1989, Blaðsíða 29
MORgUNBIADm FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1989
—
29
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Grettir í samnefiidum söngleik, en alls koma um 30 leikarar fram í
sýningunni.
Söngleikurinn Grettir
frumsýndur í Keflavík
LEIKFELAG Keflavíkur frumsýnir söngleikinn Grettir í Félagsbioi
annað kvöld og er þetta eitt viðamesta verkefnið sem félagið hefur
fengist við í ijölda ára. Höfundar eru þeir Olafur Haukur Símonarson,
Þórarinn Eldjárn og Egill Ólafsson og var verkið fyrst sýnt hjá Leik-
félagi Reykjavíkur árið 1980. Leikstjóri er Edda Þórarinsdóttir, en hún
hefur áður komið við sögu hjá Leikfelagi Keflavíkur þegar hún setti
upp barnaleikritið Línu langsokk fyrir 10 árum og átti Lína aðsóknar-
metið hjá félaginu þar til í vor.
Leikfélagið var endurvakið fyrir
tveim árum, en starfsemi þess hafði
legið niðri í nokkur ár. Á síðasta
vori flutti Leikfélagið reviuna „Við
kynntumst fyrst í Keflavík“ eftir
Ómar Jóhannsson og sló sú sýning
öll fyrri aðsóknarmet. Hjördís Árna-
dóttir formaður Leikfélags Kefla-
víkur sagði í samtali við Morgun-
blaðið að gott gengi revíunnar væri
kveikjan að því að félagið réðst í
þetta viðamikla verk. „Þá kom í ljós
að hér er mikið af ungu fólki sem,
auk þess að leika, kann að syngja
og leika á hljóðfæri. Um 30 manns
koma við sögu á sýningunni og er
þetta mest ungt — og umfram allt
áhugasamt fólk sem hefur blásið lífi
að nýju í leiklistarstarfsemina,“ sagði
Hjördís.
Æfingar hafa staðið yfir frá því
í september og hafa þær bæði verið
langar og strangar, en leikhópurinn
hefur æft 6 daga vikunnar í 4 tíma
■ í senn. Edda Þórarinsdóttir leikstjóri
sagði að boðskapurinn í söngleiknum
Gretti ætti enn fullt erindi til leikhús-
gesta, þrátt fyrir að 10 ár væru liðin
frá því að verkið var samið. Edda
sagði að sér hefði fundist ákaflega
gaman að vinna með leikfélagsfólk-
inu í Keflavík, sem bæði væri metn-
aðarfullt og hefði hæfileika í ríkum
mæli. Rp
Ráðstefiia Landverndar
um umhverfisráðuneyti
LANDVERND heldur föstudaginn 10. nóvember ráðstefhu um um-
hverfisráðuneyti í Félagsheimili Kópavogs. Ráðstefnan hefst klukkan
13.30 og er öllum opin. Daginn eftir, laugardaginn 11. nóvember, verð-
ur aðalfundur Landverndar haldinn á sama stað.
I frétt frá Landvernd kemur fram
að umhverfisráðuneyti hefur lengi
verið baráttumál hjá Landvernd. Nú
virðist það í sjónmáli en ýmsar hug-
myndir um verksvið þess. Frartjsögu-
menn verða Oddmund Graham ráðu-
neytisstjóri norska umhverfisráðu-
neytisins. Hann mun segja frá upp-
byggingu þess ráðuneytis í Noregi.
Júlíus Sólnes ráðherra mun gera
grein fyrir fyrirætlunum íslenskra
ráðamanna um verkefnasvið væntan-
legs ráðuneytis hér á landi.
Hallgrímur Indriðason fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags Ey-
firðinga mun velta upp spurningunni
hvort skógrækt á Islandi sé land-
búnaður eða umhverfismál og Auður
Sveinsdóttir landslagsarkitekt segir
frá hugmyndum áhugamanna um
verkefni þessa ráðuneytis.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 8. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 80,00 38,00 65,19 5,958 388.393
Þorskur(ósL) 70,00 41,00 67,01 ' 2,659 178.184
Þorskur(smár) 51,00 51,00 51,00 0,055 2.805
Ýsa 94,00 90,00 91,98 2,193 201.669
Ýsa(ósl.) 93,00 71,00 86,23 7,925 683.344
Steinbítur 50,00 20,00 29,74 0,176 5.220
Karfi 20,00 20,00 20,00 0,012 230
Ufsi 32,00 32,00 32,00 0,383 12.240
Langa 40,00 38,00 39,14 0,467 18.283
Lúða 325,00 170,00 216,97 0,175 37.861
Samtals 74,90 21,025 1.574.785
í dag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 89,00 60,00 76,31 16,715 1.275.468
Ýsa 90,00 65,00 82,48 13,413 1.106.367 *
Karfi 47,00 37,00 38,13 105,757 4.032.886
Ufsi 47,00 15,00 45,70 8,735 399.191
Steinbítur 55,00 53,00 53,54 3,641 194.950
Langa 56,00 44,00 54,23 4,773 258.835
Lúða 370,00 205,00 262,39 0,474 124.375
Skarkoli 40,00 40,00 40,00 0,523 20.920
Keila 24,00 24,00 24,00 0,280 6.720
Samtals 47,96 155,432 7.454.438
Selt var meðal annars úr Margréti EA, Jóni Vídalín ÁR og Freyiu
RE. i dag verður selt úr línu- og netabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur(3.n.) 28,00 28,00 28,00 0,200 5.600
Þorskur(ósL) 75,50 50,00 68,82 28,867 1.986.650
Ýsa(ósL) 91,00 60,00 82,01 9,482 777.665
Karfi 43,50 15,00 38,14 2,050 78.181
Ufsi 21,00 15,00 16,98 0,224 3.804
Steinbítur 35,00 15,00 21,99 0,292 6.420
Langa 44,00 15,00 39,78 2,191 87.162
Lúða 240,00 220,00 233,97 0,136 31.820
Keila 18,50 10,00 17,33 2,455 42.535
Skata 90,00 90,00 90,00 0,080 7.200
Samtals 65,54 46,247 3.031.087
Selt var úr Búrfelli KE Ólafi GK, Sæmundi HF, Bjarna KE og
Reyni GK. 1 dag verða meðal annars seld 45 tonn af þorski,
30 tonn af karfa og óákveðið magn úr línu- og netabátum.
Skátar
byggja upp
fyrir fatlaða
ONNUR sölusýning sumarbúða
skáta að Ulfljótsvatni var opnuð
í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi, laugardaginn 4. nóvember
sl. Sýningin mun verða opin til
17. nóvember.
Hér er á ferðinni sýning á verk-
um 8-12 ára barna sem dvöldu í
sumarbúðum skáta að Úlfljótsvatni
síðastliðið sumar. Verkin sem eru
til sýnis eru ljósmyndir teknar á
myndavélar sem börnin bjuggu
sjálf til og flestir þekkja sem kassa-
myndavélar.
Sýningin er sölusýning. Öllum
ágóða af sölu myndanna verður
varið til uppbyggingar á aðstöðu
fyrir fatlaða að Ulfijótsvatni.
Hljómsveitin Nazareth.
Nazareth í Glym
BRESKA hljómsveitin Nazareth
heldur tónleika í Reykjavík
næstkomandi föstudag og laug-
ardag. Tónleikarnir verða í
Glym, þar sem áður var veitinga-
húsið Broadway.
Nazareth kom hingað til lands
fyrir fimmtán árum og lék þá í
Laugardalshöll. Hljómsveitin er
enn skipuð sömu mönnum, þeim
Darrell Sweet, Manny Charlton,
Pete Agnew og Dan McCafferty. Á
tónleikunum í Glym leikur hljóm-
sveitin lög af nýrri plötu, Snakes
and ladders, auk eldri lag svo sem
Love hurts, Razamanazz og Bad,
bad boy.
Tónleikarnir hefjast klukkan 23
bæði kvöldin, en íslenska hljóm-
sveitin Gildran leikur á undan Naz-
areth. Aðgöngumiðar eru seldir í
öllum hljómplötuverslunum Steina
hf. og í Glym.
Bók um sr.
Magnús Runólfs-
son væntanleg
í TILEFNI þess að í febrúar á
næsta ári eru liðin 80 ár frá
fæðingu sr. Magnúsar Runólfs-
sonar, sem um árabil var fram-
kvæmdastjóri KFUM í
Reykjavík, er nú verið að und-
irbúa útkomu bókar með efni
eftir sr. Magnús og æviágripi
hans. Safnað verður áskrifcnd-
um að bókinni og er ráðgert að
bókin komi út kringum afmælis-
dag sr. Magnúsar, 21. febrúar
næstkomandi, en hann lést 24.
mars 1972.
Séra Magnús Runólfsson var um
skeið aðstoðarprestur á Akranesi
og síðar sóknarprestur í Árnesi á
Ströndum og Þykkvabæ, en áður
hafði hann starfað fyrir KFUM í
Reykjavík sem framkvæmdastjóri
félagsins. Hópur vina og vanda-
manna séra Magnúsar hefur ann-
ast undirbúning útgáfunnar, en í
bókinni verða nokkrar ræður hans,
söngvar og æviágrip. Bókagerðin
Lilja mun annast útgáfuna og er
hægt að gerast áskrifandi með því
að senda nafn óg heimilisfang í
pósthólf 1203, 121 Reykjavík.
Aðalheiður Valgeirsdóttir.
Sýningu Aðal-
heiðar að ljúka
SYNINGU Aðalheiðar Valgeirs-
dóttur í Ásmundarsal við Freyju-
götu lýkur næstkomandi sunnu-
dag. Sýningin hefur staðið frá
28. október.
Á sýningunni eru 36 verk, 15
þurrkrítarmyndir og 21 dúkrista.
Verkin eru öll unnin á þessu ári.
Sýningin er opin frá kl. 14-20
alla daga.
Námskeið í
ættrakningu
Hjá Ættfræðiþjónustunni, Sól-
vallagötu 32a, heíjast á mánudag
námskeið í ættrakningu, bæði
fyrir byijendur og lengra
komna.
Þar er veitt fræðsla um leitarað-
ferðir, gefið yfirlit um helstu heim-
ildir og leiðbeiningar veittar um
gerð ættartölu og niðjatals. Þá fá
þátttakendur tækifæri til að þjálf-
ast í verki við að rekja eigin ættir
og frændgarð með afnotum af
gagnasafni, m.a. kirkjubók'um um
allt land, manntölum, ættartölu-
handritum og útgefnum bókum.
Nafti misritaðist
I leikdómi Jóhönnu Kristónsdótt-
ur, um sýningu Leikfélags Hafnar-
fjarðar á leikritinu „Leitin að týnda
brandaranum" misritaðist nafn
eins leikarans, Guðbjartar Kvien.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
Parsons leiðbein-
ir tónlistarfólki
GEOFFREY Parsons, píanóleik-
ari, er væntanlegur til landsins
á næstunni til þess að leika und-
ir á tónleikum fyrir Sigríði Ellu
Magnúsdóttur, söngkonu.
Parsons mun halda „Master
class“ fyrir nokkra söngvara og
undirleikara þeirra, mánudags-
kvöldið 13. nóvember kl. 20.30 í
sal Tónlistarskólans í Reykjavík.
Öllum er fijáls aðgangur.
Geoffrey Parsons fæddist í Ástr-
alíu og heldur reglulega tónleika í
föðurlandi sínu. Hann hefur leikið
inn á fjölmargar hljómplötur, nú
síðast með Jessye Norman og
nokkrar plötur með Olaf Bár.
Piltur sem var í
Firðinum gefi
sig fram
Rannsóknarlögreglan í Hafii-
arfirði óskar eftir að hafa tal af
pilti, sem var að skemmta sér í
veitingahúsinu Firðinum þar í
bæ aðfaranótt sunnudagsins 22.
október.
Ástæða þess að lögreglan
ræða við piltinn er sú, að hann lenti
í áflogum við annan pilt. Þegar
þeir tókust á slasaðist nærstödd
kona nokkuð í andliti. Lögreglan
hefur þegar rætt við annan pilt-
anna, en óskar eftir upplýsingum
um hver hinn er. Hann var á
skemmtistaðnum með hópi Horn-
firðinga.
Þeir sem gætu veitt upplýsingar
um hver pilturinn er eru beðnir að
hafa samband við rannsóknarlög-
regluna í Hafnarfirði, en auk þess
er skorað á piltinn sjálfan að gefa
sig fram.
Djass í Djúpinu
Friðrik Karlsson gítarleikari,
Gunnlaugur Briem slagverks-
leikari, Richard Korn bassaleik-
ari og Reynir Sigurðsson víbra-
fónleikari halda djasstónleika í
Djúpinu, kjallara veitingahúss-
ins Hornsins við Hafharstræti í
kvöld.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22
og er aðgangur ókeypis.
Sveinn Björnsson.
Sýningu Sveins
að ljúka
SÝNINGU Sveins Björnssonar,
listmálara, á Kjarvalsstöðum
lýkur á sunnudagskvöld, en að-
sókn að henni hefúr verið góð.
Á sýningunni eru olíumálverk,
vatnslitamyndir, grafík, málaðir
steinar og málaðar höggmyndir.
Öll verkin eru unnin á síðustu 2-3
árum.
Sýning Sveins Björnssonar er
opin á venjulegum opnunartíma
Kjarvalsstaða, frá klukkan 11-18
daglega.
Símahappdrætti
til rekstrar sum-
ardvalarheimilis
STYRKTARFÉLAG lamaðra og
fatlaðra hefur hafið sölu á mið-
um í símahappdrætti félagsins.
Tilgangurinn er að safha fé til
rekstrar sumardvalarheimilisins
í Reykjadal.
í frétt frá SLF segir að happ-
drættið hafi um margra ára skeið
gert félaginu kleift að reka sum-
ardvalarheimilið og byggja upp
mannsæmandi aðbúnað fyrir börn.
Vegna peningaskorts hefur hins-
vegar ekki verið hægt að nýta
húsið á vetúrna og stefnt sé að
bæta úr því.
Náði ekki kjöri í
Sauðlauksdals-
prestakalli
Innri-Múla, Baröaströnd.
Á Birkimel á Barðaströnd fór
fyrir nokkru fram prestkosning
í Sauðlauksdalsprestakalli. Einn
var í kjöri, séra Jón Isleifsson,
settur prestur í Sauðlauksdal og
náði hann ekki kjöri.
Jón fékk 6 atkvæði, einn seðill
var ógildur og 19 auðir. Af 30 kjör-
mönnum mættu því 26 til kosning-
anna. Jón náði ekki kjöri þar sem
vill ' tvö þriðju hluta greiddra atkvæða
þarf til að prestur sé rétt kjörinn.
Presturinn á Patreksfirði mun því
sinna prestakallinu, fram að ára-
mótum.
Flosi Magnússon, prófastur,
stjórnaði kosningunum.
SJÞ.