Morgunblaðið - 09.11.1989, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1989
LYFTU
ÞÉR UPP
OG
OPNAÐU
PILSNER
Myndatökur frá 6.500.- kr.
til 15. nóvember. Öllum tökum
fylgja tvær prufustækkanir,
20x25 cm.
Ljósmyndastofan Mynd,
siml 5 42 07,
Ljósmyndastofa Kópavogs,
simi 4 30 20.
Minning:
Jón Sveinbjörns-
son vélstjóri
Fæddur 25. nóvember 1899
Dáinn 2. nóvember 1989
í dag verður elskulegur tengda-
faðir minn, Jón Sveinbjörnsson vél-
stjóri, Safámýri 69, tii moldar bor-
inn.
Hann varð bráðkvaddur á heim-
ili sínu aðfaranótt 2. nóvember.
Hann fæddist á Laugavegi 13 í
Reykjavík, þann 25.11. 1899 ásamt
Lilju systur sinni, þau voru önnur
í röð 5 systkina. Elst var Halldóra
f. 10.5. 1893, á eft.ir Nonna og Lilju
komu Kristbjörg María f. 28.10.
1904 og Bergur f. 1908 en hann
lést á öðru ári. Lilja er ein á lífi
af þeim systkinum.
Það ríkti mikil samheldni og
kærleikur á milli tvíburanna alla
tíð. Þau hittust alltaf reglulega, þau
vildu alltaf vera í návist hvort ann-
ars.
Foreldrar þeirra bjuggu í
Reykjavík, á Laugavegi 13, síðan á
Hverfisgötu 90. Móðir þeirra var
Anna Asmundsdóttir húsfreyja f.
5.7. 1865 í Hlíðarhúsum v/Vestur-
götu. Faðir þeirra var Sveinbjörn
Jónsson beykir f. 11.1. 1866 á Síðu
í Þverárhreppi, V-Húnavatnssýslu.
Hann vann hjá Thor Jensen í
Reykjavík.
Nonni lærði til vélstjóra 1918-
1922 og tók v.s.k. próf 1924. Meist-
ari hans sagði eitt sinn við hann
að hann ætti ekki að vera til sjós,
heldur í landi svo laghentur sem
hann væri.
Hann var á sjónum í tæpa tvo
■fflSP
Lestu hana strax því hún gæti höfðað til þín
EMS FORGANGSPÓSTUR
er alþjóölegt póstflutningskerfi sem
Póstur og sími er aðili að.
EMS þjónusta
tryggir hraðan og
öruggan flutning á
skjölum og vörum
innanlands og milli
landa.
HVERS VEGNA?
EMS forgangspóst--------- _
ur er nauðsynleg
þjónusta fyrir þá sem þurfa að koma
mikilvægum skjölum og varningi milli
staða á sem skemmstum tíma. Allt sem
hægt er að senda með venjulegum pósti
má senda sem forgangspóst, svo sem
bréf, bankaskjöl, lögfræðilega pappíra,
lyf, varahluti, tölvudisklinga, teikningar
o.fl.
HRAÐI OG ÖRYGGI
EMS forgangspóstur er sérstaklega
merktur og aðskilinn frá öðrum pósti.
Hver sending er skráð og kvittað fyrir
viðtöku hennar. EMS forgangspóstur
er ávallt í höndum starfsmanna y
póstþjónustunnar og þeir sjá jafnframt
um að koma sendingu með fyrstu og
skjótustu ferð hverju sinni.
FYRSTtB
FREMST
SÓTTUR - SENDUR
EMS forgangspósti er veitt viðtaka alla
daga allt árið. Sérstakir sendimenn taka
við og flytja EMS
forgangspóst
rakleitt til viðtakanda.
. HVERT?
H Viðskiptavinir okkar
jl eiga nú kost á EMS
forgangspóstþjón-
^ ustu milli þéttbýlis-
staða innanlands, til
Norðurlandanna, helstu Evrópulanda,
Bandaríkjanna og Kanada og margra
annarra landa. Nánari upplýsingar á
póststöðvum.
EMS FORGANGSPÓSTUR.
EMS forgangspóstþjónusta er sérstöh
þjónusta á sanngjörnu verði en dýrari en
almenn póstþjónusta. Sé sendingin hins
vegar mikilvæg og áríðandi að hún
komist örugglega í hendur viðtakanda á
sem skemmstum tíma, þá er EMS
forgangspóstur sú leið sem borgar sig.
Forgangssímanúmer: 687030.
Hámarksþyngd: 20 kg.
Mesta lengd: 1,5 m.
Ummál: 3,0 m.
FORGANGSPÓSTUR
áratugi, á bv. Apríl og síðan fyrsti
vélstjóri á bv. Karlsefni.
Hann minntist stundum á þá
tíma, t.d. hve hræðilegt hefði verið
að sigla í seinni heimsstyijöldinni.
Eitt sinn er hann kom upp á stjórn-
borða til að kæla sig, því það svo
svo heitt í vélarrúminu, þá sá hann
pípu kafbáts sem elti þá lengi, þótt
hann léti þá í friði.
Um þrítugt hitti hann Ágústu
eiginkonu sína tilvonandi, hún
fæddist 16.8. 1906. Foreldrar henn-
ar bjuggu á Hofi í Dýrafirði, þau
voru Magnús Helgason bóndi og
Þuríður Benónýsdóttir.
Nonni hafði oft á orði hve gullfal-
leg hún Gústa sín hefði verið. Þau
giftu sig 15. nóvember 1930, þá
þegar höfðu þau byggt hús í Skelja-
nesi 6 í Reykjavík (hús fél. ein-
stæðra foreldra), ásamt Lilju systur
Nonna og manni hennar, Júlíusi
Schopka, þau áttu sitt hvora hæð-
ina.
Þeim varð fjögurra barna auðið,
elst er Kristbjörg María kennari f.
4.4. 1931, maki hennar er Stefán
Þormóðsson, Sveinbjörn vélstjóri f.
25.11.1932, maki er Erna Konráðs-
dóttir, Magnús rennismiður f. 21.9.
1935, maki Laufey Símonardóttir,
og Helgi Þór rennismiður f. 25.10.
1943, maki Sólveig Sigurgeirsdótt-
ir. Afkomendur Nonna og Gústu
eru orðnir 28 alls.
Þegar Nonni var alkominn í land,
um 1940, þá setti hann á stofn
vélsmiðjuna Keili og árið 1942 vél-
smiðjuna Neista, jafnframt kenndi
hann vélstjóranemum smíðar hjá
Fiskifélagi íslands. Pjölskyldan
flutti um svipað leyti á Laugaveg
159.
Nonni vann mikið fyrir Mjólkur-
samsöluna, annaðist þar tæki og
áhöld. Þegar hann flutti af Lauga-
veginum, árið 1963, þá missti hann
um Ieið vinnuaðstöðu sína, en fékk
þá aðstöðu hjá Samsölunni við
Brautarholt, þar sem hann vann
allt til ársins 1976.
Þau hjónin fluttu 1963 í Safa-
mýri 69, þá voru börnin flutt að
heiman.
Nonni missti konu sína árið 1977,
hún hafði verið mjög veik síðustu
mánuðina sem hún átti eftir ólif-
aða. Fráfall hennar féll honum
þungt, en meðfædd lífsgleði létti
undir með honum.
Nonni var mjög sterkur persónu-
leiki, ég kynntist honum ekki fyrr
en hann var orðinn áttræður. Hann
var ávallt andlega hress þó líkami
hans væri orðinn lasburða. Hann
hafði jafnan á orði að ef maður
vildi verða gamall, þá ætti maður
að vera glaður og réyna að sjá
björtu hliðarnar á lífinu. Eins þegar
hann sjálfur var veikur, þá kvartaði
hann aldrei undan veikindum
sínum, hversu veikur sem hann
var, heldur var með glens á vör.
Hann sagði sína meiningu á öllu
og var stundum nokkuð hvass í
Ættfrædiþjonustan
Kynnið ykkur þjónustuna:
Ættfræðinámskeið, ættrakning
(ættartölur og niðjatöl), leit að
týndum ættmennum og önnur
upplýsingaöflun, sala ættfræði-
bóka og hjálpargagna í ættfræði.
Sími27101