Morgunblaðið - 09.11.1989, Qupperneq 48
'48
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 9.] NÓVEMBER 1989
,VGetuVéu etck-i smurt handa þer braiuS
sjalfur þegar ég u\nn úii alLan oiaqinn? “
TM Reg U.S. Pal Otf — all rights reserved
© 1989 Los Angeles Times Syndicate
Ást er ...
. .. aðgera sér dugamun.
Hann er svo niðurlútur að
hann verður að rétta úr
sér þegar hann hnýtir skó-
reimamar...
Með
morgunkaffinu
Þú ættir að vera í öðm
starfi úr því þú hefur of-
næmi fyrir ull ...
Draga mætti úr saltaustrinum
Til Velvakanda.
Nú þegar vetur er genginn í garð
og allra veðra er von, fara forsjálir
bifreiðaeigendur að búa bíla sína til
vetraraksturs og margir eru þegar
búnir að því. Jafnframt fara að birt-
ast í fjölmiðlum hin árvissu viðtöl
við gatnamálastjóra Reykjavíkur-
borgar, þar sem bifreiðaeigendur eru
hvattir til að nota ekki neglda hjól-
barða, sem „slóðarnir" túlka sem svo
að sumarhjólbarðarnir dugi og ágætt
sé að fullnýta þá í saltbeðjunni.
Þessir sömu menn loka svo öllum
leiðum þegar hálka myndast óvænt
t.d. á miðjum degi. Og enginn kemst
land eða strand, hvorki saltdreifing-
artæki borgarinnar eða þeir sem vel
Til Velvakanda.
Eftir votviðrasamt sumar, bíðum
við eftir vetrinum. Ef veturinn verður
harkalegur við okkur, er alltaf gott
að vita, að ef efnahagur og aðstæður
leyfa, þá bíða hin suðrænu sólarlönd.
Það er lofsvert framtak að Félag
eldri borgara í Reykjavík, er farið
að ryðja veginn fyrir ellilífeyrisþega
í samvinnu við ferðaskrifstofuna
Sólarflug, Vesturgötu 12.
I fyrravetur, áður en ósköpin
dundu yfir, fórum við hjónin þann
3. janúar í 40 manna hópi með Sólar-
flugi til Mallorca og dvöldumst við
þar til 26. mars.
Okkur leið vel þar, þótt hótelið
væri ekki með margar „stjörnur".
Herbergin voni góð og hrein, stórar
svalir, ætíð sólskin og fagurt var
útsýnið, einnig var garður með sund-
laug. Fararstjóri var Kjartan Trausti
Sigurðsson og hjúkrunarkona Bima
Sigurðardóttir, þau unnua störf sín
af mestu prýði og fylgdi þeim mikið
öryggi, þau voru sem sagt „á vakt“
allan sólarhringinn. Félagsvist var
eru búnir til aksturs í hálku.
Arekstrarnir hrannast upp, meðan
svona ástand varir hafa þeir komist
upp í á annað hundrað á skömmum
tíma hér á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er fyrst og fremst vegna þess
að bílamir eru vanbúnir til vetra-
raksturs.
Mér finnst saltausturinn ákaflega
tvíræður og nánast fráleitur í svona
miklum mæli. Ég vildi borga nokkuð
háan skatt fyrir að sjá aldrei salt-
bornar götur.
Saltið veldur ómældu tjóni á bif-
reiðum, gatnakerfinu, gróðri, skó-
taui, teppum, fyrir utan sóðaskapinn
sem af því hlýst, svo nokkuð sé
nefnt. Saltausturinn tælir trassana
spiluð einu sinni í viku og kvöldvaka
aðra vikuna.
A jarðhæð hótelsins vom rúmgóð-
ir salir og dunaði dansinn hjá öllum
Norðurlandabúum sem þama bjuggu
fram til kl. 10—11 á kvöldin.
Hinn 3. janúar nk. mun hópur frá
Sólarflugi leggja af stað til Mallorca
og“búist er við heimkomu í byrjun
apríl. Það er hægt að velja um hvort
maður vill búa á sama hóteli og í
fyrra, E1 Paso í Palma eða úti á
strönd á íbúðarhóteli sem er nýlegt
og þar fylgir eldhús og getur fólk
haldið þar heimili. Hótelið er nýtt
og heitir „Oasis Sahara“.
Mallorca er falleg eyja. Alls staðar
em gamlir forvitnilegir staðir. Palma
er falleg borg með mörgum frægum
fornminjum. Dómkirkjan í Palma
finnst mér vera „eitt af undmm ver-
aldar", er hún byggð á 12. öld. I
Palma er einnig glæsileg ópera og
hljómleikasalir og mikið um hljóm-
leikahald.
Unnur
sem em á vanbúnum bílum út í
umferðina. Þessi saltaustur á sér fáa
formælendur. Það torveldar oft út-
sýni ökumanna, þar sem salthroðinn
berst sífellt á bílrúður frá annarri
umferð. Ég álít að skemmdir af völd-
um nagladekkja sé hreinn hégómi
miðað við allt það tjón sem saltið
veldur.
Nú berast fréttir af hörmulegum
umferðarslysum þar sem mikilli
hálku er kennt um. Þá leiðir maður
huga að því hvort viðkomandi bifreið
hafi verið nógu vel búin til aksturs
í hálku, sem myndast oft óvænt og
skyndilega á okkar landi.
Því er mitt heilræði til ökumanna
og allra vegfarenda:
Búið ökutækin sem best til vetra-
raksturs. átillið ökuhraðanum í hóf
og akið eftir aðstæðum hvetju sinni.
Treystið fyrst og fremst á ykkur sjálf
í umferðinni, en ekki á það að aðrir
bjargi ykkur.
Hjörtur Elíasson
Týndur köttur
Snúður, hvítur og gulbröndóttur
högni sem er merktur í eyra, fór
að heiman frá Blesugróf 23. októ-
ber. Vinsamlegast hringið í síma
678276 eða 651191 ef hann hefur
einhvers staðar komið fram.
Vel heppnuð vetrarferð
HOGNI HREKKVISI
Víkveiji skrifar
Síðastliðinn mánudag lézt í New
York síðasti rómantíski píanó-
snillingurinn á þessari öld eins og
hann hefur verið kallaður, Vladimir
Horowitz, sem minnst verður íyrir
stórkostlega túlkun, ótrúlega snilli
og tækni.
Hinn 19. apríl 1985 var gerð sér-
stök sjónvarpskvikmynd um þennan
slaghörpusnilling, sem sýnd hefur
verið víða um heim. Kvikmyndin var
tekin á heimili Horowitz í New York
og þar lék hann verk eftir Bach/
Busoni, Mozart, Chopin, Schubert,
Lizt, Rachmaninov, Schumann,
Scriabin og Moszkowski. Myndin,
sem ber nafnið: „Vladimir Horowitz
— síðasti róinantíkerinn", var gerð
af Maysles Brothers.
Nú vill Víkveiji skora á annað
hvort sjónvarpið, að sýna Islending-
um þessa mynd. Sjón væri sögu
ríkari.
xxx
Yíkveiji verður að leyfa sér að
lýsa vanþóknun sinni á afstöðu
Neytendasamtakanna til notkunar
greiðslukorta. í greinargerð með
fromvarpi um greiðslukortastarfsemi
segir, að samtökin hafi eindregið
mælt með því, að kostnaður við kort-
in yrði dreginn af kortanotendum,
en hingað til hafa kaupmenn verið
samningsaðili um þóknun til korta-
fyrirtækjanna.
Það er augljóst mál, að með þess-
ari afstöðu sinni eru Neytendasam-
tökin að taka afstöðu gegn hand-
höfum kortanna, sem eru allflestir
neytendur þessa lands. Þar með er
líka brogðið út frá alþjóðavenjum,
þar sem kaupmenn eru jafnan látnir
greiða kostnaðinn. Viðbáran við því,
að kostnaðurinn sé lagður á korthafa
er sú, að kortanotkunin hækki verð-
lag. Þetta er fullyrðing, sem ekki fær
staðizt, því að eftir sem áður er fijáls
samkeppni á markaðinum. Fyrirtæki
hafa og reynt að hætta við kortin
um tíma, svo sem eins og Hagkaup
fyrir nokkrum árum, en fýrirtækið
neyddist til þess að hefja kortavið-
skipti að nýju, þar eð samdráttur í
viðskiptum varð það mikill. Með auk-
inni veltu hafa kaupmenn upp í korta-
kostnaðinn. Þetta sýnir að rökstuðn-
ingur Neytendasamtakanna fyrir
þessari afstöðu er meir en lítið hæp-
inn. Afstaðan er beinlínis fjandsam-
leg neytendum.
xxx
Nú er lokið yfirlitssýningu á list
Jóns Stefánssonar málara og
sáu hana um 30.000 rrians. Víkveiji
var einn þein-a, sem sáu sýninguna
og varð frá sér numinn, svo að ekki
sé meira sagt. Þessi fjöldi sýningar-
gesta sannar að þörf er á að láta
þær myndir Jóns, sem Listasafnið
á, hanga uppi að staðaldri, líkt og
gert er með listaverk Ásgríms Jóns-
sonar, þótt tilurð þeirrar sýningar sé
í raUn af öðram toga, þ.e. listamaðui-
inn gaf húseign sína við Bergstaða-
stræti og fjölda listaverka, sem þar
era sýnd.