Morgunblaðið - 09.11.1989, Blaðsíða 49
MORGtJNBljAÐIÐ PIMMTODAGÚR 9.: NÓVRMBF.R < 1989
43
VELIAKANDI
SVARIR í SÍMA
í 691282KL. 10-12
FRÁ NÁNUDEGI
TIL FCSTUDAGS
ELFA
háfar úr stáli, kopar
og í 5 litum
Geta skal góðra verka
Til Velvakanda.
Mér hefur oft fundist furðulegt
og raunar óskiljanlegt, hve fjöl-
miðlar okkar ræða miklu oftar um
ýmiss konar neikvæða atburði en
jákvæða. Þessum starfsháttum
verða ijölmiðlar að breyta tafar-
laust. Hið neikvæða er í flestum
tilfellum fátíðar undantekningar,
iðkaðar af sárafáum sem gera sér
oft enga grein fyrir hvað þeir haf-
ast að. Hið jákvæða, hið góða og
eftirbreytniverða, er iðkað af öllum
fjöldanum og hjá þeim stóra hópi
er alltaf um að ræða svo mörg og
falleg og eftirbreytnileg verk, sem
alltaf hafa hvetjandi og uppörvandi
áhrif og þá ekki síst á æsku ís-
lands, sem við viljum að temji sér
alltaf það besta í íslenskum siðum
og menningu.
Hér skal nú í sem allra stystu
máli geta fágætlega góðra og eftir-
minnilegra verka sem Ferðamið-
stöðin Veröld stóð fyrir með 140
manna hópi eldri borgara til Beni-
dorm á Spáni dagana 3.-24. októ-
ber sl. Stjórnarmenn Veraldar hafa
ákveðið að taka upp nýja og stór-
Börnin í umferðinni eru börnin
okkar. Þar sem þau eru á eða
við akbrautir, er nauðsynlegt
að sýna sérstaka aðgát.
Öll viljum við vernda börnin
fyrir hættum í umferðinni. Það
gerum við best með því að sýna
gott fordæmi.
aukna þjónustu við þennan hóp far-
þega, sem sækja nokkurra vikna
dvöl á sólarströnd. Þessi þjónusta
var svo fjölþætt og fullkomin, að
allir þátttakendur, þessi stóri hóp-
ur, dáðist að henni og var innilega
þakklátur fyrir að fá að njóta henn-
ar. Kom það oft fram á samveru-
stundum okkar, sem voru næstum
því öll kvöld, klukkutíma í senn,
þennan þriggja vikna tíma. í við-
tölum mínum við ýmsa ferðafélaga
kom það oft f ljós, að þeir mundu
aldrei fara aftur til sólarstranda
nema öruggt væri, að þeir fengju
hliðstæða þjónustu.
Verður nú framkvæmd þessarar
frábæru þjónustu lýst nokkru nán-
ar, en þó aðeins lauslega, því að til
þess þyrfti langa ritgerð, ef vel
væri.
Er þá bæði ljúft og skylt að geta
fyrst allra þeirra ágætu manna, sem
stjórnendur Veraldar réðu til ferð-
arinnar. Og þar var vissulega ekki
valið af verri endanum, úrvalsmenn
í hveiju rúmi.
Aðalfararstjóri var Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir. Henni til
aðstoðar voru svo þrír aðrir: Dagur
Gunnarsson, Guðný Guðmunds-
dóttir hjúkrunarkona og Hermann
Ragnar Stefánsson danskennari,
útvarpsmaður og rithöfundur-. Fyrir
hádegið höfðu þeir allir fasta við-
talstíma við farþega á öllum hótei-
um, þar sem þeir bjuggu, og leystu
úr spurningum þeirra og vandamál-
um, sem um var að ræða hverju
sinni. Því næst fóru þeir með sem
leiðsögumenn í allar auglýstar ferð-
ir þessa hóps, ýmist fyrir eða eftir
hádegi, og veittu þar margvíslega
fræðslu og aðstoð.
Dálítið var um lasleika og smá-
óhöpp öðru hverju, eins og eðlilegt
er í svona stórum hópi, og sinnti
hjúkrunarkonan okkar góða, hún
Guðný Guðmundsdóttir þeim öllum
af fágætri alúð og nærgætni. Og
með sum okkar fór hún til ensku-
mælandi læknis, sém Veröld hafði
samið við, ef hún taldi ástæðu til.
Þannig vakti hún yfir okkur eins
og góð móðir yfir börnum sínum.
Enn er ógetið þess atriðis, sem
markaði raunar mestu sérstöðu
þessarar ágætu ferðar, en það er
hin skipulega, vel undirbúna og fjöl-
þætta félagsstarfsemi, kvöldvök-
urnar, sem fóru fram í ágætum
samkomusal næstum því á hveiju
kveldi allan tímann. Sá ágæti, fjöl-
hæfi og þjóðkunni maður, Hermann
Ragnar Stefánsson, stjórnaði þessu
af fágætr-i fjölbreytni og prýði með
nokkurri aðstoð, stundum úr hópn-
um. Vakti þessi mikla og markvissa
félagsþjónusta óblandna ánægju
þátttakenda, og var oft rædd og
þökkuð, eins og fyrr getur. Því
miður er ekki hægt að ræða þetta
nánar hér, það yrði alltof langt mál.
Tvennt er það þó, sem ég get
ekki stillt mig um áð drepa á að
lokum. Það fyrra eru verðlaunaveit-
ingar Hermanns Ragnars fyrir
keppni og viðurkenningu í margs
konar atriðum, sem hann stjórnaði
á kvöldvökunum, og í öðru lagi
verðlaunaveitingar af ýmsum toga,
sem ágætur aðalfarastjóri okkar,
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
veitti nokkrum félögum í lokahófinu
daginn áður en við fórum heim.
Og það var vissulega óvænt hve
þessi verðlaun eru vönduð og fal-
leg: listilega vel gerður kringlóttur
málmhringur, með fögrum mismun-
andi mynstrum og tvílitum silki-
borða, sem ætlaður er til að hengja
um háls verðlaunahafa.
Sú verðlaunaveiting Ástu sem
hreif mig mest, og ég get ekki ann-
að en sagt frá, er viðurkenning
hennar og ummæli til ferðahetja
okkar, þeirra vina okkar í hópnum,
sem sýndu það frábæra áræði og
dug að léggja í þessa löngu og
ströngu ferð í hjólastólum, fylgdust
með öllu sem gerðist með aðstoð
sinna nánustu, og stóðu sig alltaf
með einstakri prýði. Það var sann-
arlega hrífandi og verðskulduð við-
urkenning.
Hér hefur aðeins verið stiklað á
nokkrum atriðum í þessari eftir-
minnilegu og fágætlega vel skipu-
lögðu ferð, og það mátti með engu
móti gleymast að geta þeirra.
Ferðamiðstöðin Veröld fer þarna
nýjar leiðir í ferðum með eldri borg-
ara — leiðir, sem eru mjög til fyrir-
myndar, og aðrar ferðamiðstöðvar
þyrftu að taka til eftirbreytni.
í nafni okkar ferðafélaga allra
leyfi ég mér að endurtaka bestu
þakkir til stjórnenda Veraldar,
ágætra fararstjóra og leiðbeinenda
okkar, og óska þeim alls hins besta
í bráð og lengd.
Einn úr hópnum
Biandoóar tökur
sv/hv og litur
Leitið upplýsinga
L JOSMYNOASTOF A
GUÐMUNDUR KR JÚHANNESSON
LAUGAVEG1178 SÍMI689220
Kœru vinir!
Hjartans þakklœti til ykkar allra, sem glödduð
mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á
70 ára afmœli mínu þann 5. þ.m.
Sérstakar þakkir til hjónanna í Birtingaholti,
Guðbjargar og Magnúsar, fyrir þeirra stóra
þátt i að gera daginn svo eftirminnilegan.
Liflð heil. Bogi Guðjónsson,
_____________________ Kirkjuhvoli.
oftar í rúminu hverja nótt og hafa órólegri svefn en þeir
sem eru verkjalausir í skrokknum. Samt sýna rannsóknir
að heilbrigð manneskja snýr sér 60-80 sinnum í svefni
hverja nótt. Stífir hálsliðir, verkir í gömlum meiðslum,
verkir í liðamótum og vöðvum, og annað slíkt eykur
vanlíðan í svefni sem hugsanlegt er að laga mikið með
góðri dýnu.
Kannast þú við það að vakna á morgnana einhvern-
veginn ónóg(ur) sjálfri(um) þér, stirð(ur), já þreytt(ur)
eftir 7-8 tíma svefn og þurfa tvo kaffibolla minnst til að
koma þér í gang? Eða ertu kannski búin(n) að gleyma
því hvað það er að líða vel í skrokknum?
I Húsgagnahöllinni er sérstök útstilling fyrir þá sem vilja
gera eitthvað í þessum málum. Þar getur þú séð hvernig
Fáóu þér
alvöru
dýnu!
dýnurnar eru byggðar upp mismunandi stífar og mismun-
andi mjúkar og þar getur þú valið þér dýnu og skipt við
pkkur þangað til þú finnur dýnuna sem þér líður best á.
I samanburði við margt annað sem við þurfum að kaupa
í búið okkar er ódýrt að láta eftir sér það besta sem völ er
á í rúmdýnum. Þannig kostar hjónasett iðulega minna
en einn hægindastóll.
Við höfum upplýsingar um það frá Norðurlöndum að
sala á vatnsdýnum hefur hrunið, t.d. í Danmörku, en
sala á sænsku Qaðradýnunum, sem við eigum fullkomið
úrval af, frá SCAPA hefur meira en tvöfaldast á þessu ári.
Vertu góð(ur) við sjálfa(n) þig og gefðu þér gjöf sem gef-
ur þér til baka góðan væran svefn.
y .
Húsgagna-Siöllin
REYKJAVÍK
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI
Bidiieikir og gigli eUdr bylta sér
r