Morgunblaðið - 24.11.1989, Blaðsíða 35
tMff'JHIffllPraMMig’S Cir..Ai-i'..r?i8ðBfŒttfcJB* ' SÖM
-----MORGUNBLAÐIÐ POSTUDAGUR 24. NOVEMBER 1989
1Í5
þar á eftir manni, sem helgaði alla
krafta sína garðyrkju á Islandi.
Axel varð kennari við Garðyrkju-
skólann á Reykjum árið 1950, strax
eftir að hann lauk námi við Land-
búnaðarskólann í Kaupmannahöfn.
Störf Axels í þágu garðyrkju-
manna hófust að marki árið 1955.
Þá var komið á fót jarðvegsrann-
sóknastofu á Reykjum og Axel fór
að leiðbeina um áburðarnotkun.
Var það algjört brautryðjandastarf.
Árið 1967 fór Axel til starfa hjá
Búnaðarfélagi íslands og gerðist
ylræktarráðunautur. Því starfi
gegndi hann meðan heilsan leyfði.
Axel lét sig varða alla þætti
garðyrkju og var ekki aðeins fag-
legur ráðgjafi garðyrkjubænda,
hann var einnig traustur bakhjarl
þeirra í félagsmálum og hagsmuna-
baráttu. Það var því engin furða
þótt hánn byndist traustum vináttu-
böndum við marga þeirra.
Hér verður ekki ijallað um skák-
manninn, húmoristann og fjölfræð-
inginn Axel V. Magnússon.
Þessum línum er ætlað að koma
tii skila innilegu þakklæti frá þeirri
stétt manna sem Axel helgaði
krafta sína á giftudijúgri starfsævi.
Sigurlínu og börnum þeirra hjóna
eru sendar innilegar samúðarkveðj-
ur.
F.h. Sambands garðyrkjubænda,
Jóhannes Helgason.
Sambandið:
Þrjár deild-
ir samein-
aðar í eina
STJÓRN Sambands íslenskra
samvinnufélaga ákvað á fundi
sínum i vikunni að samcina
þrjár deildir í eina. Hér er
um að ræða Búnaðardeíld,
sem verslar með fóður, land-
búnaðarvélar og fleira,
Bílvang, sem flytur inn bif-
reiðar, og Jötunn, sern er
rafmagnsfyrirtæki. Ólafiir
Sverrisson, formaður Sam-
bandsstjórnar sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að
þessi ákvörðun væri tekin í
hagræðingarskyni.
„Við gerum okkur vonir um
mikla hagræðingu af þessari
sameiningu," sagði Ólafur.
Hann sagði að til þess að stýra
þessari nýju, sameinuðu deild
hefði Sigurður Árni Sigurðsson
verið ráðinn, en hann hefði áður
starfað í Englandi. Ólafur sagði
að þessi sameining kæmi til
framkvæmda um næstu áramót.
&kzL
GULUR, RAUÐUR, GRÆNN OG BLÁR
gerður af meistara höndum
Allir þekkja EGILS-appelsínið eina og sanna,
þetta með bláu röndunum.
En EGILL hugsar líka um þá sem forðast sykurinn.
EGILS Diet-appelsín er drykkurinn þeirra,
þetta með grænu röndunum.
appelsín - að sjálfsögðu.